Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009
Félagslíf
Landsst. 6009020519 VII
Kvöldvaka í kvöld kl. 20.
Happdrætti og veitingar.
Umsjón: Gistiheimilið.
Samsæti föstudag kl. 19 -
fyrir herfólk. Ræðumenn og
gestir: Ofurstahjónin Marianne
og Clive Adams frá Noregi.
Dagsetrið á Eyjarslóð 7
er opið alla daga kl. 13-18.
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6,
opin alla virka daga kl. 13-18.
Einnig laugardaga á Eyjarslóð!
I.O.O.F. 11 189258
-
Samvera eldri borgara kl.15
í kaffisal kirkjunnar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Maddömurnar flytja!
Maddömurnar á Selfossi eru fluttar í
annað húsnæði, opið á föstudögum
13-18 og eftir samkomulagi. Hægt að
hringja í 866-9269 og 483-3083.
www.maddomurnar.com
Veitingastaðir
Sigin grásleppa og
saltfiskur alla daga
Grandagarði 9 • 101 Reykjavík
Sími 517 3131 • sjavarbarinn.is
sjavarbarinn@gmail.com
50% afsláttur á kvöldin
af sjávarréttahlaðborðinu
Kr. 1.300 (áður kr. 2.600)
Húsnæði í boði
Mosfellsbær, 2ja herbergja íbúð
til leigu á jarðhæð, 65 m² í einbýlis-
húsi. Allt sér. Þvottavél, ísskápur,
sjónvarp, stöð 2 og netttengi fylgir.
94.000 á mánuði. Trygging 100 þús.
Sími 896-0415, Páll.
Laus strax!
110 fm hæð með húsgögnum og
leirtaui, í 105 Reykjavík.
2 svefnherb. og 2 stofur, stutt í sund
og garðinn, leiga 150 þ. + rafm./hiti.
Upplýsingar í síma 699 5252.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Frábært, rafrænt námskeið í
netviðskiptum. Notaðu áhugamál
þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að
skapa þér góðar og vaxandi tekjur á
netinu. Við kennum þér hvernig!
Skoðaðu málið á
http://www.menntun.com
Til sölu
Frímerki - íslensk
Til sölu frímerkjasafn. Selst í
einingum eftir númerum í Facit lista.
Afsláttur ca. 70% (Kóngsríkið),
afsláttur ca. 80-85% (Lýðveldið).
Upplýsingar í síma 544-8181 eða
557-2574.
Verslun
PYLONES Smáralind
Full búð af skemmtilegum, nýjum
vörum. Litríkt og skemmtilegt.
www.pylones.123.is, Smáralind :-)
Viðskipti
Ég trúi þessu varla sjálf...!
Vááá... Ég fékk 844,26 dollara fyrir
aðeins 10 klst. vinnu. Dagsatt og ég
hef sönnun fyrir því! Kíktu á
http://www.netvidskiptaskolinn.com
strax í dag!
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket,
útihurðir o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Gerum við húsgögn, margra ára
reynsla.Til sölu bæs, olíur og fl. fyrir
húsgögn og innréttingar. S: 896 3303.
Er þér kalt á fótunum?
Vandaðir kuldaskór úr leðri fóðraðir
með lambsgæru. Margar gerðir.
Stærðir: 40 - 48.
Verð frá 14.900. til 24.775.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Bílar
Glæsilegur Volvo S40 ‘02
Sjálfsk. 16’’ álf. Metal litur, skriðvörn,
leðursæti, cruise, ek. aðeins 76 þ.
Bensíneyðsla 9 l. Verð: tilboð, ný
tímareim, smur- og þjónustubók,
listav. 1450 þ. S: 699-3181/588-8181.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Stigahúsateppi
Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 533-5800.
Eruð þið leið á baðherberginu?
Breytum, bætum og flísaleggjum.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Ég og hann afi vor-
um virkilega góðir
vinir. Hann vildi gera
allt fyrir mig sem
hann gat. Ég heimsótti hann
reglulega á dvalarheimili aldraðra
í Vestmannaeyjum þau ár sem
hann dvaldi þar. Þangað kom
Þórður bróðir hans á hverju kvöldi
og þá fengum við þrír okkur kaffi
og spjölluðum saman um daginn
og veginn. Þessu hafði afi gaman
af.
Annan hvern fimmtudag var
bingókvöld á dvalarheimilinu og
afi vildi ekki missa af því. Ég
hjálpaði afa að spila og gott þótti
honum að vinna. Eitt sinn vann
hann tvisvar sama kvöldið og það
gladdi hann og vinningsupphæðin
fór í úlpukaup.
Ég fór oft með afa og ömmu í
bíltúr. Þá lá leiðin oft upp í Dali en
þar var hugur hans ávallt.
Afi fylgdist vel með því hvernig
fjölskyldunni vegnaði og spurði
iðuega um systkini mín, Kristínu
og Guðjón, sem sitja á skólabekk í
Reykjavík.
Ég sakna hans afa míns og
minningin um mætan mann mun
lifa með mér.
Daði Gíslason.
Magnús Magnússon
✝ Magnús Magn-ússon fæddist í
Vestmannaeyjum 10.
febrúar 1930. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
mannaeyja 3. janúar
síðastliðinn og fór út-
för hans fram frá
Landakirkju 17. jan-
úar.
Elsku afi, nú hef-
urðu fengið hvíldina
góðu eftir langa og
erfiða baráttu. Það
hefur verið mjög sárt
að horfa upp á þig
veslast svona upp og
hvað það var alltaf
erfitt að kveðja þig
eftir heimsóknartím-
ana á spítalanum vit-
andi það að þarna
þyrftirðu að dúsa,
hvort sem þér líkaði
það betur eða verr. Þú
þráðir svo heitt að
geta orðið frískur aftur og geta búið
heima hjá þér en því miður var það
ekki í boði. Þó svo að líkami þinn
hafi verið orðinn mjög máttfarinn
þá varstu skýr í kollinum og fylgdist
vel með því sem fram fór í kringum
þig.
Þín vegna er ég ofsalega fegin að
þrautum þínum sé lokið og að þú
sért kominn á nýjan og betri stað
þar sem gott fólk hefur tekið á móti
þér.
Kveðjustundin er alltaf erfið, erf-
iðari en orð fá lýst, jafnvel þó að
maður hafi vitað í hvað stefndi.
Maður er einhvern veginn aldrei
tilbúinn að sleppa takinu og kveðja.
Mig dreymdi þig um daginn, um
einni viku áður en þú kvaddir þenn-
an heim, og sá draumur situr of-
boðslega fast í huga mér. Í honum
mætti ég þér valhoppandi á gang-
stéttinni og þú varst svo frjáls –
frjáls eins og fuglinn og gast gert
hvað sem þú vildir, akkúrat eins og
þig dreymdi um. Það huggar mig að
vita af þér svona frjálsum í himna-
ríki. Þetta var góður draumur því
þér leið svo vel og þegar ég vaknaði
vissi ég innst inni að komið væri að
leiðarlokum.
Allar góðu minningarnar geymi
ég í hjarta mínu og mun varðveita
um ókomna tíð, allar skemmtilegu
ferðirnar uppi á Dölum, bíltúrana,
rollufjörið og margt fleira.
Elsku afi, takk fyrir allt saman og
hafðu það ofsalega gott þar sem þú
ert og við sjáumst síðar.
Hvíldu í friði.
Þitt barnabarn,
Helga.
Ég kveð þig elsku afi minn með
söknuði og tárin í augunum en jafn-
framt brosi út í annað þegar ég
hugsa til baka og rifja upp allar
yndislegu minningarnar sem ég hef
eignast um þig.
Á mínum yngri árum var ég mikið
úti í eyjum hjá ykkur ömmu, enda
gott að komast til ykkar og mikið líf
og fjör sem fylgdi að vera þar.
Þær voru nú ekki fáar ferðirnar
okkar sem við fórum uppi á Dölum,
enda alltaf nóg að gera. Hvort sem
það var að gefa kindunum, púdd-
unum, taka upp kartöflur eða rab-
arbara, alltaf fékk ég að fylgja með.
Mér er það mjög minnisstætt þegar
við fórum eitt kvöldið að hjálpa
einni kindinni að bera, mér fannst
afi algjör hetja og var lengi vel að
rifja þetta upp með honum.
Það voru mikil forréttindi að upp-
lifa svona búskap og allt sem honum
fylgdi, enda var ég mjög ákveðin í
því að ég ætlaði að eiga fullt af dýr-
um eins og afi. Eitt af því besta var
að sofa í afabóli og var ég mjög oft
komin á undan þér upp í rúm og
spurði svo voða blíðlega: „Afi, hvar
ætlar þú að sofa?“ Og já, auðvitað
fékk ég það.
Eins og svo margar stelpur
fannst mér voða gaman að vera í
hárgreiðsluleik nema ég notaði ekki
dúkkur til að klippa og greiða held-
ur var afi fenginn til og honum
fannst það nú ekki leiðinlegt.
Alltaf fékk ég að fylgja þér afi,
hvort sem það var í vinnuna þína,
heimsækja kallana niður í Gúanó,
fara bíltúrinn góða sem endaði oft í
ísbíltúr eða í kaffi út í Höfða. Elsku
afi, nú allar þrautir eru á enda og ég
veit að þér líður vel hjá Guði. Minn-
ingarnar um þig mun ég varðveita í
hjarta mínu og segja litlu langaf-
astrákunum þínum frá þér. Þú varst
yndislegur afi og góður vinur og
fyrir það vil ég þakka þér.
Ég bið góðan Guð að styrkja
ömmu í hennar miklu sorg því
tómarúmið er stórt sem þú skilur
eftir.
Nú liðin er hin þunga þraut
og þreytta brjóstið rótt,
þinn andi svífur bjarta braut
á bak við dauðans nótt.
Ég kveð með þökk, í traustri trú
um tilverunnar geim
að sál þín örugg svífi nú
til sigurlandsins heim.
(Ingibjörg Þorbergs)
Þín afastelpa,
Hrafnhildur.
Mig langaði að skrifa nokkur orð
um hann afa minn, Magga á Skans-
inum eða Magga í Dölum eins og
hann var oftast kallaður. Afi var
rollubóndi af guðs náð áður en hann
missti heilsuna og má segja að hans
áhugamál hafi verið að hugsa um
skepnurnar í Dalabúinu. Ég fór
með honum ófáar ferðirnar upp í
rollukofann í Dölum að gefa roll-
unum og kisunum. Já eða bara til að
kanna hvort það væri ekki allt í lagi
með skepnurnar. Við afi áttum sam-
an dúfur í mörg ár og var honum
alltaf mikið kappsmál að ég hugsaði
vel um þær, þ.e. að fóðra og þrífa
undan þeim.
Það er skemmtilegt frá að segja
að afi réð nafninu sínu sjálfur. Afi
var alltaf stoltur af nafninu sínu og
var orðinn nokkuð stálpaður,
þriggja eða fjögurra ára, þegar það
átti að gefa honum nafn. Presturinn
var mættur á Skansinn, þar sem afi
ólst upp, og átti þarna að skíra hann
ásamt fleiri systkinum hans og
frændsystkinum. Hann átti víst að
heita eitthvað annað og þegar til
þess kom að gefa honum það nafn
spurði presturinn langömmu hvað
barnið ætti að heita þá greip afi
fram í og sagði, „Ég vil heita Magn-
ús eins og pabbi minn,“ og hljóp út á
tún og þar með var það ákveðið. Afa
tókst líka að ráða nafninu mínu. En
það var þannig að í nóvember á því
herrans ári 1973, gosárinu, í
Reykjavík, þegar mamma var kom-
in með hríðir þá bað hún afa um að
keyra sér á fæðingardeildina sem
hann og gerði. Á leiðinni þangað
sagði afi við mömmu: „Ef þetta er
strákur þá á hann að heita Magn-
ús.“ Mamma sagðist ætla að hugsa
málið en afi bætti þá við „ef þú ekki
gerir það þá keyri ég þér bara heim
aftur“. Mamma var með svo mikla
verki að hún gat ekki hugsað sér að
fara að þvarga við afa þannig að það
var ákveðið að ég myndi heita
Magnús eins og afi og er ég stoltur
af því.
Alla tíð hef ég stoltur litið upp til
afa og áttum við margar góðar
stundir saman. Allar mínar minn-
ingar um afa minn eru góðar. Ég
veit að núna líður honum vel. Hvíldu
í friði, elsku afi minn.
Magnús Páll Sigurjónsson.
Fleiri minningargreinar
um Magnús Magnússon bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.