Morgunblaðið - 05.02.2009, Qupperneq 38
38 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009
Bölsýnismenn geta nú allir sem
einn hætt að spá fyrir um andlát
Iceland Airwaves-hátíðarinnar.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
hélt Hr. Örlygur, sem stýrir hátíð-
inni, á fund við styrktaraðila há-
tíðarinnar (Reykjavíkurborg og
Icelandair) þar sem uppgjör fyrir
síðustu Airwaves-hátíð var kynnt.
Á fundinum kom fram að und-
irbúningur fyrir næstu hátíð væri
í gangi í samræmi við áætlanar og
að ástæður þess að engar upplýs-
ingar um hátíðina hefðu borist
fjölmiðlum væru þær að verið
væri að vinna að gerð nýrrar
heimasíðu. Hátíðin er því sett á
dagana 14.-18. október næstkom-
andi og því von á að fyrstu bók-
anir verði kynntar innan tíðar eins
og venja hefur verið undanfarin
ár. Sannarlega mikil gleðitíðindi
fyrir íslenskt tónlistarlíf og því
ekki seinna vænna fyrir unga
rokkara en að læsa sig inni í bíl-
skúrnum fram í október.
Iceland Airwaves ’09
fær grænt ljós
Fólk
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR felldi í gær úrskurð í máli STEFs gegn
skráarskiptisíðunni Istorrent og aðstandenda hennar, en
rekja má upphaf málsins til þess að lögbann var sett á
síðuna torrent.is, í nóvember 2007. Í dóminum var lög-
bannið staðfest og að auki viðurkennd bótaskylda Istorrent
og stofnanda síðunnar.
Málið snerist að nokkru leyti um það hvort Istorrent beri
ábyrgð á hugsanlegum lögbrotum notenda vefsetursins.
Dómurinn mat það svo að þeir sem stóðu að Istorrent
hefðu vitað um að vefsetrið hefði verið notað til
ólögmætrar dreifingar og eins hefði komið í ljós
að þeir hefðu beinlínis stuðlað að því að það væri
notað í þeim tilgangi.
Ekkert var fjallað um hugsanlegar bætur í dómsmál-
inu, en gera má ráð fyrir því að höfðuð verði skaðabóta-
mál á hendur Istorrent og aðstandendum í framhaldinu.
Á vefsíðu Istorrent kemur fram að áætlað sé að áfrýja
dómnum til Hæstaréttar og því varlegt að draga of mikl-
ar ályktanir af honum, en ef hann verður staðfestur er
girt fyrir starfsemi skráarskiptasíðna eins og Istorrent
rak, eða í það minnsta þyrfti rekstur þeirra og forsendur
að vera með allt öðrum hætti. Dómurinn staðfestir líka
það, sem hefur reyndar verið almennt viðurkennt að
það er fortakslaust höfundaréttarbrot þegar höf-
undarvörðu efni er dreift á netinu án heimildar
rétthafa.
Á meðan fyrirtækin og fjölskyld-
urnar í landinu heyja varnarbar-
áttu í stríðinu gegn kreppunni og
öðrum fylgifiskum bankahrunsins
eru enn margir sem sjá möguleika í
þrengingunum. Beinast liggur við
að líta til lögfræðistofanna sem
hafa víst aldrei haft meira að gera
og svo má ímynda sér að það sé
handagangur í öskjunni á vel-
flestum kontórum innheimtufyr-
irtækjanna.
En þau eru ekki minni átökin í
líkamsræktarstöðum landsins þar
sem landsmenn keppast við að búa
kroppinn undir harðnandi átök í
sálarlífinu – heilbrigð sál í hraust-
um líkama og allt það.
Ef marka má flennistórar auglýs-
ingar á strætisvögnum bæjarins
hefur Egill (Gilzenegger) fjarþjálf-
ari, ekki farið varhluta af þessari
þróun og greinilegt að ef menn
hafa efni á svo glæsilegri auglýs-
ingaherferð bendir allt til þess að
bisnessinn blómstri í kreppunni.
Í kreppunni felast
líka möguleikar
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ er líf í Háskóla Íslands þessa
dagana enda standa þar yfir kosn-
ingar hjá nemendum til Stúd-
entaráðs og Háskólaþings. Það er
síðari kjördagurinn í dag og í kvöld
verða úrslitin kunngjörð.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, og Röskva, samtök fé-
lagshyggjufólks við Háskóla Ís-
lands, eru stærstu hreyfingarnar í
framboði þetta árið sem fyrr. Þriðja
aflið, Öskra – hreyfing bylting-
arsinnaðra háskólanema, kom fram í
ár en er þó ekki í framboði.
Róttækara stúdentaráð
Öskra vill ekki setja fram fram-
boðslista því hreyfingin hafnar því
að nokkur innan hennar megi eða
geti notað starf sitt innan Öskru til
framapots. Hreyfingin er ekki
ákveðnir einstaklingar eða listi af
fólki, Öskra er fyrst og fremst fyrir
beinar aðgerðir og sameiginlegar yf-
irlýsingar. Öskra berst gegn því að
nemendur taki þátt í kosningunum
því með því að kjósa er sá sem það
gerir að viðurkenna hið hefðbundna
kosningakerfi og leiðir þess. Öskra
telur að kerfið sé ekki nauðsynlegt
pólitískt ferli heldur einhverskonar
vinsældakosningar, þar sem kjós-
endur eru gerðir að neytendum
frekar en að pólitískum verum.
Hreyfingin hafnar öllu við kerfið,
hvernig það virkar, hvernig er kosið
inn í stúdentaráð og hvernig atkvæði
eru veidd af fylkingunum. „Við
krefjumst beins lýðræðis innan og
utan veggja háskólans,“ segir á
heimasíðu Öskru en hreyfingin hef-
ur engan talsmann.
Valkostirnir í stúdentapólitíkinni í
ár eru þrír, Röskva, Vaka eða að
skila auðu. Morgunblaðið fékk þá
sem leiða lista Röskvu og Vöku til
Stúdentaráðs til að kynna helstu
stefnumálum sín í stuttu máli.
Öskra, Vaka eða Röskva?
Nemendur Háskóla Íslands kjósa sér Stúdentaráð í dag Öskra berst gegn
því að nemendur kjósi Vaka og Röskva vilja hærri námslán og sumarönn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kosið í gær Röskvufólk vill betri samning við Lánasjóðinn og námslánin eru einnig stærsta mál Vökuliða. Öskra
setur hinsvegar ekki fram framboðslista og hafnar hvernig kosið er í stúdentaráð; Öskra er fyrir beinar aðgerðir.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞAÐ er nú sagt að Paul McCartney
sé í hljóðveri þrjá til fjóra daga í
hverri viku. Það er nú kannski ekki
eins gott hjá mér, en maður reynir
að halda sig við efnið eftir föngum.
Þetta er mitt fag, að semja og
fremja,“ segir tónlistarmaðurinn
Jakob Frímann Magnússon þegar
hann er spurður út í orðróm þess
efnis að hann verji töluverðum tíma í
hljóðveri þessa dagana. „Bæði er ég
að vinna í eigin verkefni, ég gef alltaf
öðru hverju út svona „instrumental“
plötur. En svo er ég náttúrlega með
hljómsveit allra landsmanna sem
hefur verið að taka upp í Stúdíó Sýr-
landi, og það er verið að vinna í þeim
efniviði,“ segir Jakob sem á þar að
sjálfsögðu við Stuðmenn.
„Við erum að vinna nýtt efni og
það lofar góðu. Við erum búin að
taka upp einhver fimm eða sex lög
og það er eitthvað annað eins sem
vantar upp á,“ segir Jakob og bætir
við að von sé á plötu frá sveitinni síð-
ar á þessu ári.
Töluverðar mannabreytingar hafa
orðið á Stuðmönnum að undanförnu
og því liggur beinast við að spyrja
hvernig sveitin sé skipuð í hljóð-
verinu. „Það er ég, Tómas, Ásgeir og
Eyþór, og svo er Ómar Guðjónsson
gítarleikari með okkur. Svo er Jónsi
náttúrlega með okkur, auk þess sem
hinir og þessir söngvarar og söng-
konur koma að þessu með okkur, al-
veg eins og á Sumar á Sýrlandi. Á
þeirri plötu einni komu einhverjir
átta söngvarar við sögu,“ segir Jak-
ob sem vill þó lítið láta uppi um
hvaða gestasöngvarar munu koma
fram á nýju plötunni að svo stöddu.
Ný plata frá Stuðmönnum
væntanleg á þessu ári
Morgunblaðið/Ómar
Stuð! Jakob segir nokkra gestasöngvara koma fram á nýju plötunni.
Eru þegar búnir að taka nokkur lög upp í Stúdíó Sýrlandi
Tapaði Svavar Lúthersson, stofnandi
og rekstraraðili Istorrent.
STEF hafði betur í máli gegn Istorrent
Sigurður Kári Árnason leiðir lista
Röskvu. „Við leggjum áherslu á að
ná betri samningi við Lánasjóðinn
og að námslánin hækki í takt við at-
vinnuleysisbætur. Við viljum efla
samstarf við Félagsstofnun stúd-
enta og HÍ í að stúdentar fái for-
gang í störf sem skapast á vegum
þessara aðila í sumar, líka að skól-
inn bjóði upp á sumarannir svo þeir
sem fá ekki vinnu í sumar geti
stundað nám og verið á náms-
lánum. Við viljum líka koma því inn í stefnu allra flokk-
anna að gera menntamál að forgangsmáli í komandi al-
þingiskosningum.“
Röskva
Sigurður Kári
Árnason
Aðalbjörg Ósk Gunnarsdóttir leiðir
lista Vöku. „Námslánin eru okkar
stærsta mál enda óásættanlegt að
grunnframfærsla þeirra sé langt
undir atvinnuleysisbótum. Við
munum þrýsta á næstu ríkisstjórn
í að ná fram okkar málum í sam-
bandi við LÍN og bætan hag náms-
manna. Að sumarönn verði í boði
næsta sumar er líka eitt stærsta
baráttumálið, margir nemendur
sjá fram á atvinnuleysi og með
okkar fyrstu verkum væri að endurskoða þessi mál
því margir vildu frekar vera í skólanum í sumar á
námslánum.“
Aðalbjörg Ósk
Gunnarsdóttir
Vaka