Morgunblaðið - 15.03.2009, Side 24
24 Nám
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MARS 2009
Freyr Ingi Björnsson fór í námið vegnaþess að hann hefur verið að vinna viðleiðsögn. „Ég er ekki með neitt nám á
bakinu í því en ég hef aðallega verið að vinna
við svokallaða ævintýraleiðsögn, flúðasigl-
ingar, ísklifur, hellaferðir,
gönguferðir og fleira í þess-
um dúr,“ segir hann.
Freyr Ingi hefur reynslu af
ýmiss konar fjallamennsku
og honum finnst sú þekking
nýtast í starfinu. „Ég fór í
námið því ég vildi koma
þessu á hærra plan því það
er meiri fagmennska að
læra,“ segir hann og útskýrir
að fagmennskan og kröf-
urnar séu að aukast í faginu.
Honum líkar námið vel og segir það hafa
staðið undir væntingum. „Það hefur komið
mér hvað mest á óvart hvað hópurinn er sam-
rýmdur og samstilltur því hann er mjög breið-
ur. Það er fólk alls staðar að, úr öllum hornum
þjóðfélagsins. Það kom mér á
óvart.“
Freyr Ingi er einnig menntaður
vélsmiður en starfar ekki við það
sem stendur. „Það er gott að
hafa það nám að baki en að vísu
held ég að það séu meiri líkur á
vinnu í ferðamannaþjónustunni
en vélsmíðinni um þessar mund-
ir. Ég held að það verði meiri
áhugi á þessu námi í kreppunni.
Ljósi punkturinn í þessu öllu
saman er jú ferðamennirnir.“
Freyr Ingi Björnsson, 28 ára vélsmiður og fjallabjörgunarmaður
Fjallamennska og
ævintýraferðir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hærra plan Frey Inga finnst fagmennskan og kröfurnar vera að aukast í starfi leiðsögumanna.
‘‘LJÓSI PUNKTURINNÍ ÞESSU ÖLLU SAM-AN ER JÚ FERÐA-MENNIRNIR.
Leiðin til framtíðar
Fjölbreyttur hópur nema stund-
ar nýtt leiðsögumannanám á
háskólastigi við Endurmenntun
Háskóla Íslands. Þarna má finna
leikara, óperusöngkonu, arki-
tekt, ferðamálafræðing, kenn-
ara, alþingismann, hárgreiðslu-
meistara og jógakennara, svo
eitthvað sé nefnt. Hér verður
rætt við þrjá sem bæta enn við
fjölbreytileikann í hópnum og
lýsa þeir reynslu sinni af nám-
inu en ljósmyndarinn leit við
þegar verið var að kynna
leiðsögumönnunum tilvonandi
sérútbúna fjallajeppa. Þeim
finnst námið vera gott mótvægi
við kreppunni og eru sammála
um að ferðamannaþjónustan
eigi aðeins eftir að fá meira
vægi í framtíðinni og leið-
sögumannsstarfið einnig.
Ástæðan fyrir því að Sigrún Sigurð-ardóttir ákvað að fara í leiðsögunámvar m.a. sú að henni fannst lýsingin á
náminu áhugaverð og eiga vel við starf sitt.
„Ég er með lítið gistiheimili í Reykjavík og svo
rek ég ferðaskrifstofu sem heitir Iceland Con-
gress. Við sérhæfum okkur í skipulagningu
ráðstefnu- og hvataferða,“ segir hún.
Sigrún er búin að starfa lengi í ferða-
mannabransanum en segir það „alltaf gott að
læra“. Þessi ánægði nemi bætir því svo við að
námið hafi farið „langt fram úr væntingum.“
Sigrún hafði áður sótt nám-
skeið hjá Endurmenntun og líkað
vel. „Ég var í markaðs- og út-
flutningsfræði sem tók heilan
vetur. Mér finnst námið hjá End-
urmenntun hafa verið vel skipu-
lagt. Tíminn sem kennslan fer
fram hentar þeim sem eru virkir í
atvinnulífinu. Annað sem ég féll
fyrir í þessu námi er að það gefur
háskólaeiningar sem má tengja
við hugvísindadeild. Ég er búin
að vera í þýskunámi uppí háskóla
og get þá tekið leiðsögunámið
sem aukagrein til BA-náms.“
Hvað hefur helst komið á óvart
í náminu? „Kannski það að þetta er meiri vinna
en ég gerði mér grein fyrir en að sama skapi
finnst mér það jákvætt. Líka kemur mér í raun
á óvart hvað maður veit lítið! Námið gengur út
á að vera með helstu fræðimenn í hverri grein
við kennslu. Það hefur tekist vel upp. Námið er
skemmtilega sett fram í alla staði.“
Hún er ánægð með stemninguna í nem-
endahópnum. „Hún er alveg einstök. Það
myndaðist strax ótrúlega sterk liðsheild. Þarna
eru bæði fjarnemar og staðnemar. Kjarninn,
20-25 manns, sem alltaf mætir í tíma er mjög
samstilltur. Nemendurnir eru úr
mismunandi áttum og aldurshóp-
urinn er mjög breiður, en samt
hefur fólk náð svona vel saman.“
Hún segir nemendahópinn jafn-
framt hittast utan skóla og fara í
ferðalög og gönguferðir saman.
„Stjórnendur námsins hafa ver-
ið einstaklega velviljaðir í garð
nemenda. Við höfum verið dugleg
að láta heyra í okkur og þeir hafa
tekið því vel. Allir eru jákvæðir fyr-
ir ábendingum og námið hefur að
einhverju leyti verið að mótast í
sameiningu, því þetta er nýtt
nám.“
Sigrún Sigurðardóttir, 48 ára ferðamálafrumkvöðull
Framar væntingum
Samvinna Sigrún segir stjórnendur námsins hafa verið velviljaða og tekið ábendingum vel.
‘‘NÁMIÐ GENGURÚT Á AÐ VERAMEÐ HELSTUFRÆÐIMENN Í
HVERRI GREIN
VIÐ KENNSLU.