Morgunblaðið - 03.04.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
ENDA þótt enn séu 20 dagar í
sumardaginn fyrsta er veturinn lið-
inn samkvæmt skilgreiningu Veð-
urstofu Íslands og Trausti Jónsson
veðurfræðingur búinn að taka sam-
an yfirlit yfir veturinn, eins og
fram kom í blaðinu í gær.
Samkvæmt upplýsingum Trausta
telst veturinn vera mánuðirnir des-
ember til mars, apríl og maí teljast
til vorsins, júní, júlí, ágúst og sept-
ember til sumarsins og október og
nóvember til haustsins. Í flestum
Evrópulöndum er mars talinn til
vorsins, en það er ekki gert hér.
Þessi skilgreining var tekin upp
fljótlega eftir að Veðurstofa Ís-
lands tók til starfa 1920.
Nýliðinn vetur var hagstæður að
flestu leyti. Meðalhitinn í Reykja-
vík var 0,8 stig, sem er 0,9 stigum
fyrir ofan meðaltal. Er þetta ní-
unda árið í röð sem meðalhiti vetr-
arins í Reykjavík er fyrir ofan með-
altal.
Trausti segir að af yfirlitinu
megi glöggt sjá hversu gríðarlega
hlýtt hefur verið
nánast alveg frá
og með apríl
2002 og febrúar
það ár hafi verið
eini verulega
kaldi mánuður-
inn á tímabilinu.
Aðeins 11 mán-
uðir af 84 síðustu
hafa verið með
hita undir með-
allagi og aðeins þrisvar hefur hit-
inn verið meira en eitt stig undir
meðallagi (í september og október
2005 og í október 2008). Þá bendir
Trausti á að hlýjasti ágúst (2003)
og hlýjasti desember (2002) frá
upphafi mælinga séu frá síðustu ár-
um og einnig hlýjasta árið (2003).
Hitamet ársins í Reykjavík hefur
tvisvar verið slegið á tímabilinu,
fyrst í ágúst 2004 og svo aftur í júlí
2008.
Alhvítir dagar voru þremur fleiri
í Reykjavík í vetur en að meðallagi
áranna 1961-1990. Snjór varð aldrei
mikill í höfuðborginni og snjómagn
12% undir meðallagi sama tímabils.
Þetta er heldur minna en í fyrra.
Hitinn yfir meðaltali
níunda veturinn í röð
Trausti Jónsson
Veturinn er liðinn hjá Veðurstofunni TVÖ ný dægurlágmarksmet fyrir
landið allt voru sett í vetur og er
þá viðmiðunartíminn árin 1924 til
2008.
Hið fyrra varð er lágmarkshiti í
Svartárkoti í Bárðardal fór niður í
-29,0 stig hinn 12. febrúar síðast-
liðinn. Eldra metið fyrir þennan
dag, mínus -27,5° stig, var sett við
Mývatn 1998. Síðara lands-
lágmarksmetið féll þegar hiti á
Brúarjökli fór niður í -25,8 stig
þann 28. mars. Eldra metið fyrir
þennan dag, mínus 25,5 gráður,
var sett í Möðrudal á Fjöllum árið
1995.
Lágmarkið í Svartárkoti hinn
12. febrúar var vitaskuld einnig
nýtt landsmet fyrir byggð, en dag-
inn áður mældist lágmarkshiti í
Svartárkoti -27,1°C. Mest frost 11.
febrúar hafði áður orðið í Möðru-
dal 1995 (-23,7°C). Byggðamet
vetrarins urðu því einnig tvö.
Met af þessu tagi falla að jafn-
aði tvisvar til sex sinnum á ári í
hverjum þriggja flokka (lands-
lágmark, byggðalágmark, landshá-
mark). Ekkert landsdægurhámark
féll í vetur. Stöðvalágmörk féllu
aðeins á þeim stöðvum sem starf-
að hafa minna en þrjú ár.
Mesta frost
vetrarins var
mínus 29 stig
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
EKKI hefur enn verið tekin endan-
leg ákvörðun um hvort Háskóli Ís-
lands muni bjóða uppi á sumarönn
við skólann. Kristín Ingólfsdóttir,
rektor Háskóla Íslands, mun í dag
eða á allra næstu dögum, funda með
Katrínu Jakobsdóttur menntamála-
ráðherra með það fyrir augum að
finna lausn á þeim vanda sem blasir
við stórum hluta stúdenta vegna
slæmra atvinnuhorfa í sumar.
Stúdentar hafa þrýst á um að boð-
ið verði upp á sumarönn við HÍ
vegna alvarlegrar stöðu í atvinnu-
málum landsins. Samkvæmt könnun
sem gerð var fyrir stúdentaráð Há-
skóla Íslands, dagana 9. til 23. mars,
voru tæplega 13 þúsund háskóla-
nemar, í öllum háskólum landsins, þá
ekki komnir með vinnu fyrir sumarið
og um 10 þúsund af þeim töldu ekki
líklegt að þeir myndu fá vinnu.
Staðan í efnahagsmálum, eftir
hrun bankakerfisins í byrjun októ-
ber í fyrra, hefur leitt til þess að fyr-
irtæki sjá sér ekki fært að ráða sum-
arstarfsmenn í eins miklum mæli og
áður. Þá eru mörg byggingarfyrir-
tæki, sem hafa ráðið til sín hundruð
sumarstarfsmanna undanfarin ár, í
miklum vanda vegna slæms rekstr-
arumhverfis.
Mótmælt á göngum
Á annað hundrað stúdentar við
Háskóla Íslands, undir forystu
Röskvu, komu saman fyrir fund há-
skólaráðs í aðalbyggingu skólans
skömmu eftir hádegi í gær til að
þrýsta á um að skólinn byði upp á
lánshæft nám í sumar til að koma í
veg fyrir að þúsundir stúdenta verði
atvinnulausar í sumar. Það sem ekki
síst gerir stöðuna alvarlega er að
réttur stórs hluta stúdenta til at-
vinnuleysisbóta er lítill. Margir sjá
því fram á að í þrjá mánuði geti þeir
hvorki verið í lánshæfu námi né
fengið tekjur. Stúdentaráð Háskóla
Íslands, þar sem Vaka er í meiri-
hluta, hafði áður vakið athygli á
vandanum og þrýst á um úrbætur.
Hildur Björnsdóttir, formaður stúd-
entaráðs, hafði meðal annars komið
skilaboðum til rektors um að að-
gerða væri þörf og það eins fljótt og
kostur væri, eftir að niðurstöðurnar
úr fyrrnefndri könnun lágu fyrir.
Forsvarsmenn Sambands ís-
lenskra framhaldsskólanema vinna
nú að könnun á atvinnuhorfum nem-
enda í framhaldsskólum. Talið er að
þar sé staðan jafnvel enn verri en hjá
háskólastúdentum, ekki síst í ljósi
þess að nemendur í framhaldsskól-
um eru tæplega 30 þúsund, þar af 22
í dagskóla. Í háskólum eru hins veg-
ar alls um 18 þúsund manns.
Forsvarsmenn Háskólans í
Reykjavík gripu strax í kjölfar hruns
bankanna til róttækra aðgerða í
rekstri skólans, til þess að geta kom-
ið til móts við nemendur skólans á
sumarmánuðum. Skólinn hyggst
bjóða upp á yfir 40 námskeið í láns-
hæfu námi sem kennt er við skólann.
Þarf meira fé
Svigrúm Háskóla Íslands í þess-
um efnum er minna. Forsvarsmenn
skólans telja sig þurfa meira fé frá
ríkinu eigi skólinn að geta boðið upp
á nám fyrir stúdenta í sumar. Hafa
um 10 til 40 milljónir verið nefndar í
því samhengi, sem hugsanlegur
kostnaður við sumarönn. Þó fer það
allt eftir umfangi og útfærslu hver
endanlegur kostnaður yrði.
Enn óljóst með sumar-
nám fyrir stúdentana
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mótmæli Stúdentar efndu til setuverkfalls fyrir utan skrifstofu rektors Háskóla Íslands í gær og kröfðust úrræða.
Fátt er um fína drætti fyrir þá úti á vinnumarkaðnum núna en fátt vilja stúdentar síður en sitja auðum höndum.
Stúdentar þrýsta á
um úrbætur enda
er atvinnuleysi
þúsunda fyrirséð
Í HNOTSKURN
»Könnunin sem stúdentaráðgerði þar sem spurt var um
atvinnuhorfur náði til 3.500
stúdenta í öllum háskólum
landsins.
»Stúdentar hafa bent á aðkostnaðurinn við sumarönn
geti aldrei orðið eins mikill og
kostnaðurinn við atvinnuleysi
þúsunda stúdenta.
»Talið er að atvinnuhorfurfyrir framhaldsskólanema í
landinu séu einnig alvarlegar.
Um 30 þúsund eru nemar eru
nú í framhaldsskólum landsins.
LEIÐTOGAFUNDUR Atlantshafs-
bandalagsins verður haldinn í dag og
á morgun í tilefni af því að 60 ár eru
liðin frá stofnun
bandalagsins.
Hann verður
haldinn beggja
vegna landamæra
Þýskalands og
Frakklands
(Strasbourg/
Kehl) til marks
um vináttu og
samstarf þessara
tveggja stóru
evrópsku grann-
ríkja. Vegna mikilla anna á innan-
landsvettvangi þarf Jóhanna Sigurð-
ardóttir, forsætisráðherra, að hverfa
frá áformum um þátttöku í leiðtoga-
fundinum, segir í fréttatilkynningu.
Í hennar stað verður Össur Skarp-
héðinsson, utanríkisráðherra,
fulltrúi ríkisstjórnar Íslands.
Á fundinum verður m.a. fjallað um
framtíðarhlutverk Atlantshafs-
bandalagsins, samskipti þess við
Rússland, aðgerðir bandalagsins í
Afganistan og Kosovo og áframhald-
andi aðlögun varnarviðbúnaðar að
breyttri heimsmynd. Yfirlýsingar
fundarins verða birtar www.nato.int.
Össur
sækir leið-
togafund
Össur
Skarphéðinsson
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað
karl og konu, sem ákærð voru fyrir
umboðssvik með því að nýta sér
kerfisvillu í netbanka Glitnis. Þar
hafði kaup- og sölugengi gjaldeyris
víxlast og græddi karlmaðurinn
rúmar 24 milljónir á því en konan
tæpar 350 þúsund krónur.
Málið kom upp í maí 2007 en þá
voru þrír karlmenn og kona ákærð
fyrir að nýta sér villuna. Fólkið afl-
aði sér samtals um 30 milljóna með
því að kaupa dollara fyrir evrur og
selja dollarana strax fyrir evrur.
Allt var fólkið sakfellt í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra árið 2007.
Tveir karlmannanna áfrýjuðu dómn-
um til Hæstaréttar, sem sýknaði þá.
Í kjölfarið sóttu karlmaðurinn og
konan, sem eftir voru, um endur-
upptöku málsins og féll dómur í
Hæstarétti í gær á sama hátt og í
málum mannanna tveggja.
Máttu nýta
sér kerfisvillu
FJÖLDI útgefinna grásleppuveiðileyfa hef-
ur stóraukist frá síðasta ári. Alls hafa verið
gefin út 119 leyfi með byrjunardag á bilinu
frá 10. mars til og með 30. mars, en þau voru
76 á sama tíma í fyrra. Mest er aukningin
hlutfallslega á Austfjörðum, rúmlega 100%
en einnig er mikil aukning á Norðurlandi, að
því er fram kemur á vef Fiskistofu.
Um miðjan mánuðinn kom fram á vef
Landssambands smábátasjómanna að veiðin
hefði verið í lagi úti fyrir Norðurlandi, en
hefði mátt vera betri á svæðinu frá Rauf-
arhöfn til Vopnafjarðar.
Aukin sókn í grásleppu
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti Húsgögn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
verðhrun
mikið úrval af sófum og sófasettum
10-50% afsláttur
af völdum vörum