Morgunblaðið - 16.04.2009, Síða 6

Morgunblaðið - 16.04.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2009 Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is RÚMLEGA 500 börn hér á landi eiga foreldra sem báðir hafa misst vinnuna samkvæmt upplýsingum frá Vinnu- málastofnun. En um mánaðamótin febrúar-mars voru 425 pör á atvinnuleysisskrá og voru 300 þeirra para með barn á framfæri. Að sögn Salbjargar Bjarnadóttir, verk- efnisstjóra hjá Landlæknisembættinu, reynist það börn- um almennt erfiðara hafi báðir foreldrar, frekar en ann- að, misst vinnuna. Það fari þó vissulega eftir viðbrögðum foreldranna hvernig börn bregðast við aðstæðum. „Börn eru mjög næm á líðan foreldra sinna,“ segir Salbjörg. „Með atvinuleysi eykst hættan á pirringi og deilum milli hjóna sem getur svo framkallað kvíða, depurð og þung- lyndi hjá hinum fullorðnu. Þetta hefur áhrif á það hvernig börnin bregðast við.“ Segir hún sum börn verða leið og döpur og draga sig í hlé, önnur geti orðið uppivöðslusöm og erfið í umgengni. Þau líti e.t.v. svo á að betra sé að þau séu skömmuð en foreldrarnir deili sín á milli. Eins verði sum börn ofur- ábyrg og þeim geti hætt til að einangrast félagslega. Mikilvægt sé að útskýra aðstæður fyrir börnunum á máli sem að þau skilji, án þess þó að fara í of mikil smá- atriði. Eins skipti miklu að rútína fjölskyldunnar haldi sér. „Ég hef áhyggjur af að foreldrar fari að draga sig í hlé frá daglegu lífi og fari jafnvel ekki á fætur því að slíkt bitnar á börnunum.“ Börnin í reiðileysi í sumar? Full ástæða sé líka til að vera meðvitaður um að skert- ur fjárhagur foreldra geti komið niður á börnum nú í sumar og haust er skólar hefjast að nýju. „Það er mikil- vægt að við hlúum að þeim og skoðum hvernig við ætlum að gera það besta sem við getum fyrir þau.“ Hugmyndir velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um að hlaupa undir bagga með þeim fjölskyldum sem ekki hafa efni á skóla- mat sé jákvætt framlag. „Sumarið er líka áhyggjuefni því það vakna óneitanlega spurningar um það hvort fjöl- skyldur hafi efni á að senda börnin á námskeið, eða hvort að krakkarnir verði einir í reiðileysi.“ Fjölskyldan þurfi að finna sé sér sameiginleg viðfangsefni og börn og for- eldrar að átta sig á að góðar stundir þurfa ekki að kosta stórfé og að ævintýraferðir má fara í næsta nágrenni. Næm á líðan foreldranna  425 pör á atvinnuleysisskrá  Atvinnuleysi foreldra hefur áhrif á börnin Í HNOTSKURN »17.741 einstaklingur vará atvinnuleysisskrá í gær. » 10.100 börn koma fráheimilum þar sem að annað foreldrið hefur misst vinnuna. »425 pör voru á atvinnu-leysisskrá um mánaða- mótin febrúar-mars síðastlið- inn og áttu um 300 þeirra para börn. »Rúmlega 500 börn á aldr-inum 0-17 ára búa við að báðar fyrirvinnur heimilsins séu nú á atvinnuleysisbótum. SJÖ manns mótmæltu stefnu íslenskra stjórn- valda í málefnum hælisleitenda fyrir framan al- þingishúsið í gærmorgun. Bjargið lífi okkar og hættið að vísa fólki úr landi til Grikklands voru helstu kröfur þeirra. Meðal hinna þöglu mót- mælenda var Noordin Alazawi, 19 ára Íraki, sem fjallað var um í Morgunblaðinu sl. laugardag. Vafalaust var það tilviljun ein sem réð því að stuttu eftir að mótmælendur tóku sér stöðu við Alþingi barst fjölmiðlum fréttatilkynning um að Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, hefði skipað nefnd til að fara yfir lög og reglur um hælisleitendur í ljósi réttarframkvæmdar hér á landi, dóms Hæstaréttar frá 12. mars sl. og al- þjóðlegra skuldbindinga. Í dómnum sem vísað er til var ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja Amadou Shernu Daillo um hæli og stað- festing dómsmálaráðuneytisins á þeirri ákvörð- un felld úr gildi. Björg Thorarensen leiðir starf nefndarinnar sem er ætlað að skila tillögum fyrir 15. júní nk. Þögul mótmæli hælisleitenda við Alþingi Morgunblaðið/Ómar MIKIÐ er um undirboð á byggingamarkaðnum um þessar mundir, að sögn Finnbjörns A. Hermannssonar, formanns Samiðnar, sambands iðnfélaga. „Menn bjóða mjög grimmt niður verk og það er kvartað yfir að það sé varla hægt að taka þátt í útboðum í dag,“ segir Finnbjörn. Hann segir slegist um öll verkefni sem boðin séu út, sama hve lítilfjörleg þau séu. Finnbjörn telur þetta eiga við um byggingagreinar almennt. „Því miður virðast ekki gilda nein lögmál í þessu. Menn nota öll meðul sem hægt er að nota,“ segir Finnbjörn. Hann segir að svo virðist sem útboðsreglurnar reynist haldlitlar þegar á reyni í samkeppninni um verkefnin. Finnbjörn kveðst óttast að undirboðin komi helst niður á launaliðnum. Menn gætu lítið breytt efniskostnaði og þá væri vinnuliðurinn einn eftir til að lækka útboðsverðið. Fé- lagar í Samiðn lentu verst í því. Finnbjörn telur að ákvörðun um fulla endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað, sem m.a. nær til viðhalds húsa, hafi verið mjög til bóta. Hann telur þó að þessi eftirgjöf sé ekki alveg farin að skila sér í aukinni vinnu byggingarmanna. „Það er ekki komin jafn mikil hreyfing á viðgerðamark- aðinn og ég hefði ætlað að yrði við svona breytingu,“ segir Finnbjörn. Hann kveðst ekki átta sig á því hvað ylli töfinni. Þar gæti bæði tíðarfarið haft áhrif eða að fólk ætlaði að- eins að bíða og sjá til. „Ég er að vonast til að þetta fari af stað með vorinu,“ segir Finnbjörn. gudni@mbl.is Mikið um undirboð á byggingamarkaðnum Morgunblaðið/RAX Undirboð Hart er barist um öll verkefni sem bjóðast á byggingamarkaði, að sögn formanns Samiðnar. TILBOÐ hafa verið opnuð í gerð nýs Álftanesveg- ar, milli Hafn- arfjarðarvegar og Bessastaðavegar, sem mun leysa af hólmi gamla Álftanesveginn. Alls bárust 19 til- boð í verkið. Þar af voru 18 tilboð undir áætluðum verktakakostnaði Vegagerðarinnar, sem var 825 millj- ónir króna. Lægsta tilboðið átti Loft- orka Reykjavík ehf. í Garðabæ, 561,4 milljónir, sem voru 68% af verktaka- kostnaði. Hæsta boðið áttu ÞG verk- takar, Reykjavík, 916,9 milljónir. Að sögn Jónasar Snæbjörnssonar umdæmisverkfræðings Vegagerð- arinnar, verður gengið til samninga við lægstbjóðanda á næstu dögum. Verkið felst í því að leggja nýjan 4 kílómetra langan veg frá Engidal að Bessastaðavegi. Gera skal mislæg gatnamót ásamt að- og fráreinum við Hraunsholt í Engidal, leggja tvenn göng fyrir gangandi umferð og hring- torg við Bessastaðaveg. Breyta skal legu strengja, vatns- og hitaveitu- lagna. Þá á að leggja nýja háspennu- og rafdreifistrengi, síma-, vatns-, og hitaveitulagnir. Einnig fylgir með í verkinu landmótun, sáning og yf- irborðsjöfnun hrauns. Að sögn Jónasar getur verkið haf- ist fljótlega en því á að ljúka 31. ágúst 2010 . sisi@mbl.is Loftorka bauð lægst í vegagerð Nýr Álftanesvegur verður tilbúinn 2010 ALLS höfðu 1.236 manns kosið utan kjörfundar í Reykjavík á þriðjudagskvöld. Miðað við sama tíma fram að kjör- degi eru þetta talsvert færri heldur en höfðu kosið utan kjörfundar fyrir alþing- iskosningarnar 2007. Þá höfðu 2.058 einstaklingar kosið utan kjörfundar. Kosning utan kjörfundar vegna al- þingiskosninganna 25. apríl hófst hjá sýslumanninum í Reykjavík 14. mars. Frá mánaðamótum hefur atkvæða- greiðslan farið fram í Laugardalshöll- inni og er opið þar alla daga frá kl. 10- 22. aij@mbl.is Færri hafa kosið utan kjörfundar FERMINGARTILBOÐ H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 Comfort Zone rúmin aðlaga sig á ótrúlegann hátt að líkamanum, hafa einstaka þyngdardreifingu og veita slökun sem er á fárra færi. COMFORT ZONE • 5 svæðaskipt svefnsvæði • 5 svæðaskipt pokagormakerfi • 10 ára ábyrgð • þrýstijöfnunarsvampiur í svefnsvæði • Lagar sig að líkamanum • Veitir góða slökun • Steyptir kantar • 20% stærri svefnflötur • Þarf ekki að snúa COMFORT ZONE (120x200) Verð 132.900 kr. FERMINGARTILBOÐ 93.030 kr. COMFORT ZONE (97x200) Verð 116.900 kr. FERMINGARTILBOÐ 81.830 kr. 30% AFSLÁTTUR!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.