Morgunblaðið - 21.04.2009, Page 19

Morgunblaðið - 21.04.2009, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2009 Í súld Vegna bilunar varð Fokker-vél Landhelgisgæslunnar að fljúga með ströndinni í gær á leið til Reykjavíkur. Flogið var út fyrir Surtsey, sem birtist í allri sinni svörtu dýrð út úr suddanum. Árni Sæberg ÍSLAND stendur á krossgötum. Landið er í erfiðri kreppu og fjölmargar fjölskyldur og fyrirtæki eiga um sárt að binda. Öllum, sem hafa horft á hús- næðislánin sín stór- hækka, er ljóst af beiskri reynslu að ís- lenska krónan dugar þeim ekki. Heimilin eru föst í skuldafjötri og borga svimandi upphæðir í vaxtaálag vegna krón- unnar. Fyrirtækin nota fæturna til að greiða atkvæði gegn henni, og boða flutning úr landi um þessar mundir. Trúin á krónuna er í lág- marki og gildir einu hvort litið er heim eða utan. Við þurfum nýjan gjaldmiðil. Stjórnmálaflokkar verða því að segja þjóðinni fyrir kosningar hvaða leið þeir vilja fara í gjald- miðilsmálum. Þeir geta ekki notað pólitískar brellur – eða málþóf – til að skjóta sér undan þeirri ábyrgð. Stefna okkar í Samfylk- ingunni er skýr og afdráttarlaus: Langbesti kosturinn er að sækja sem allra fyrst um aðild að Evr- ópusambandinu og taka upp evr- una. Þetta er forgangsmál hjá jafnaðarmönnum. Rökin fyrir ESB-aðild eru margvísleg, en þau þyngstu lúta að efnahagslegum stöðugleika til framtíðar, öryggi fyrir fyrirtækin, og bættum lífs- kjörum fyrir Íslendinga. ESB og efnahags- legur stöðugleiki Vegna krónunnar hafa jafnt heimili sem íslensk fyrirtæki lengi glímt við óstöðugleika, þungbærar gengissveiflur og verðbólgu, sem hafa gert langtímaáætlanir ómögu- legar og lánsfjármagn dýrt. Við bankahrunið í október tók steininn úr, þegar hrun krónunnar leiddi til óðaverðbólgu, margföldunar á skuldum þjóðarbúsins, gjald- þrotahrinu og meira atvinnuleysis en dæmi eru um hér á landi. Hinn beiski veruleiki er sá að íslenskt efnahagslíf hefur glatað trausti á alþjóðlegum mörkuðum. Við fáum ekki lengur lán á eðlilegum kjör- um til að ráðast í nauðsynlega uppbyggingu. Fyrir þau lán sem fást borgum við of- urvexti. Í iðn- aðarráðuneytinu þekkjum við það af eigin raun að erlend- ir fjárfestar fælast hagkerfi krónunnar. Við verðum líka að horfast í augu við þá nöturlegu staðreynd, að ef við tökum ekki upp nýjan gjaldmiðil er hætta á að Ísland muni missa stærstu útflutningsfyrirtækin úr landi, og með þeim þúsundir starfa. Aðild að ESB og upptaka evru við fyrsta tækifæri er besta og hraðvirkasta leiðin til að end- urnýja traustið á íslenskt efna- hags- og atvinnulíf. Aðrar leiðir, sem nefndar hafa verið, eins og að taka einhliða upp evru með aðstoð AGS – nýjasta skyndilausn Sjálf- stæðisflokksins – hafa reynst póli- tískar brellur sem standast ekki skoðun. Evrópustefna Samfylking- arinnar með upptöku evru mun hins vegar draga úr geng- issveiflum í viðskiptum við útlönd, og útflutningsviðskipti munu aukast með aðild að stærra mynt- svæði. Viðskiptakostnaður sem nú nemur milljörðum mun minnka. Matvælaverð mun lækka. Við þurf- um líka á evrunni að halda til að fá erlenda fjárfesta með fjármagn inn í atvinnulífið til að tryggja far- sæla endurreisn efnahagslífsins. Níðþungur krónuskattur Benedikt Jóhannesson hagfræð- ingur sagði í fjölmiðlum í síðustu viku að umsókn um aðild að ESB gæti lækkað vaxtabyrði um 3%. Benedikt verður varla sakaður um að ganga erinda Samfylking- arinnar en hann er þekktur fyrir tæpitungulausa hreinskilni og glögga sýn á efnahagsmál. Vaxta- munurinn sem hann bendir á er í reynd álag, einskonar skattur, sem Íslendingar greiða sem fórn- arkostnað ef þeir velja krónuna áfram og hafna upptöku evrunnar. Þegar skuldastaða heimila, fyr- irtækja, að ógleymdum ríkissjóði, eru skoðuð kemur í ljós hversu níðþungur þessi krónuskattur er á herðum þjóðarinnar. Heildaryfirlit yfir skuldir ís- lenskra fyrirtækja liggur að sönnu ekki fyrir, en þó má áætla að þær liggi nærri 4.500 milljörðum króna. Gætu þau fjármagnað þessar skuldir á 3% lægri vöxtum við upptöku evrunnar þýddi það að vaxtabyrði fyrirtækjanna yrði 135 milljörðum króna minni á ári. Skuldir heimilanna voru áætl- aðar 2.000 milljarðar í árslok 2008. Á evruvöxtum myndu því íslensk heimili þurfa að greiða 60 millj- örðum minna á ári í vexti. Vaxtaberandi skuldir ríkissjóðs eru nú 1.100 milljarðar króna. Yrði hægt að fjármagna þær á 3% lægri vöxtum þýddi það ríflega 30 milljarða sparnað. Það er svipuð upphæð og kostar ríkið að reka Landspítalann á ári og hægt væri að reka þrjá Háskóla Íslands fyrir sömu fjárhæð. Fórnarkostnaðurinn sem íslensk heimili, fyrirtæki, og ríkissjóður, þurfa því sameiginlega að greiða árlega vegna krónunnar sam- anborið við evru nemur því 220 milljörðum króna árlega en það jafngildir um 55 prósentum af heildartekjum íslenska ríkisins á þessu ári. Er þá ógetið þess, að verðtryggingu er sjálfhætt með upptöku evrunnar. Kjarni málsins Í hnotskurn, þá er aðild að Evr- ópusambandinu og upptaka evr- unnar besta kjarabótin sem hægt er að benda á fyrir íslensku þjóð- ina. Hún er besta leiðin til að ná efnahagslegum stöðugleika. Besta leiðin til að fá fjármagn til að end- urreisa atvinnulífið. Besta kjara- bótin fyrir heimilin, og líklega mikilvægasta sparnaðaraðgerðin sem hægt er að finna fyrir útgjöld ríkisins í framtíðinni. Hún felur ekki í sér töfralausn sem kippir öllu í lag á augabragði, en hún dregur úr bráðavandanum og leggur traustan grunn til lengri tíma. Samfylkingin treystir sér til að ná samningi við Evrópusambandið sem ver hagsmuni Íslendinga, ekki síst sjávarútvegs og landbúnaðar. Hún treystir líka þjóðinni til að taka ákvörðun um slíkan samning í þjóðaratkvæðagreiðslu. Eftir Össur Skarphéðinsson »Ef við tökum ekki upp nýjan gjaldmiðil er hætta á að Ísland muni missa stærstu út- flutningsfyrirtækin úr landi, og með þeim þús- undir starfa. Össur Skarphéðinsson Höfundur er utanríkis- og iðnaðarráðherra. ESB og ávinningur Íslands BLOG.IS Sverrir Stormsker | 20. apríl 2009 120 ár eru í dag liðin frá fæðingu frelsishetju Ís- lands, Adolfs Hitlers ... Og hverjum var þetta stríð nú að þakka sem reif Ísland upp á rassgatinu og kom því inní nútímann? Jú, engum öðrum en af- mælisbarni dagsins, Adolfi kallinum Hitler. ... hann er hin eina sanna frelsishetja Íslendinga... Meira: stormsker.blog.is Bergþóra Jónsdóttir | 20. apríl 2009 Opinberun! ...„Ugly Old Trout“ er sennilega andstyggileg- asta orðalagið sem ég hef fundið í fjölmiðlum um söngkonuna - þetta var í breska blaðinu The Sun. ... Ég spyr bara: Hvar er ljótleikinn? ... Ef Susan Boyle er próf- steinn á umburðarlyndi og víðsýni mann- skepnunnar, þá erum við sannarlega vanþroskuð og illa að okkur í þeim efn- um og gjörsamlega kolfallin á prófinu. Meira: begga.blog.is VIÐ Steingrímur J. Sigfússon sátum saman á Alþingi í nær ald- arfjórðung og nær aldrei sammála nema um nauðsyn þess að kvótinn yrði framseljanlegur. Báðir greiddum við því atkvæði fyrir jól- in 1990, hann ráðherra og ég í stjórnarandstöðu. Þessum lögum er það að þakka, að Grímsey er í byggð. Þar býr duglegt fólk. Gylfi Gunnarsson og Garðar Ólason standa fyrir útgerð og fiskvinnslu. Þeir berast hvorki á né taka pen- inga út úr útgerðinni. Við Stein- grímur þekkjum þá báðir og fjöl- marga aðra slíka fyrir norðan. Saga þeirra er saga byggðarlag- anna og fólksins í plássunum. Nú vill Steingrímur taka kvót- ann eignarnámi og færa í hendur ríkisins. Hann afsakar sig með því að það eigi að gerast smátt og smátt. En vitaskuld færi allur kraftur og endurnýjun úr grein- inni um leið og köld krumla rík- isins læsti sig um hana. Útgerðin veslaðist upp, fólkið missti at- vinnuna og Grímsey og byggð- arlögin eyddust. Kvótalögin voru sett fyrir ald- arfjórðungi. Sáralítið er í sömu höndum og þá. Þess vegna verð- ur ríkið að greiða fyrir kvótann fullt verð, ef það vill leysa hann til sín. Má vera, að Steingrímur J. Sigfússon vinstri-grænn vilji gera það, en áreiðanlega ekki fjármálaráðherrann Steingrímur J. Sigfússon því að þá færi rík- issjóður á hausinn. Og stendur hugur hans þó til þess að lækka laun og hækka skatta eftir kosn- ingar eins og menntamálaráð- herra hefur boðað. Halldór Blöndal Steingrímur og Grímseyingar Höfundur er fv. alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.