Morgunblaðið - 21.04.2009, Side 25

Morgunblaðið - 21.04.2009, Side 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2009 ✝ Guðfinna Jóhann-esdóttir (Gógó) fæddist á Flateyri og andaðist á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja 13. apríl 2009. Foreldrar hennar voru Sigríður Magn- úsdóttir f. á Flateyri 19. júlí 1911, d. á Sól- borgu, Dvalarheimili aldraðra á Flateyri, 20.5. 1995 og Jóhann- es Jón Ívar Guð- mundsson frá Mosdal í Önundarfirði, fædd- ur 6.4. 1908 og dáinn 27.3. 1978 Foreldrar Sigríðar Magn- úsdóttur voru hjónin Magnús Jóns- son frá Auðkúlu í Arnarfirði, skip- stjóri á Flateyri og síðar Akranesi, og Bjarney Steinunn Einarsdóttir frá Núpi í Dýrafirði Foreldrar Jóhannesar Jóns Ívars voru hjónin Guðmundur Jóhann- esson og Jónína Kristjánsdóttir sem bjuggu í Mosdal í Önundarfirði. Guðfinna var önnur í röð fimm barna Sigríðar og Jóhannesar. Eftirlifandi systkini eru: Bjarney Stein- unn, gift Guðmundi Sveini Haraldssyni, Kári Ævar, giftur Öldu Bjarnadóttur, Gíslína Jónína, gift Guðfinni Sigurvins- syni. Kristján Jón yngsti lést 2006 og var gift- ur Sólveigu Dalrósu Kjartansdóttur sem lést 2005 Guðfinna kvæntist Heiðari Georgssyni 23. nóvember 1963, f. 17.8. 1934, d. 24.8. 2008. Þau áttu eina dóttur, Heiðu Björk Heiðarsdóttir f. 2.5. 1964. Heiða Björk á tvær dætur, Kar- enu f. 4.8. 1980. Karen á 3 börn, Heiðar Aron, Jennýju Björk og Kjartan Þóri. Brynja Dögg, f. 18.12. 1985. Hún á soninn Sigurð Frey. Útförin fer fram frá Keflavík- urkirkju í dag, þriðjudaginn 21.apríl og hefst athöfnin kl. 14. Meira: mbl.is/minningar Komið er að kveðjustund. Lífs- göngu Gógóar er lokið. Ganga sem var ekki alltaf auðveld. Gógó glímdi meira og minna allt sitt líf við veik- indi, sem hún gaf þó aldrei mikið vægi eða lét hafa of mikil áhrif á sín daglegu störf. Það sem öðru fremur einkenndi Gógó var hversu jákvæð, skapgóð og dugleg hún var. Viðhorf hennar til lífsins kenndi mér mikið. Til dæmis hversu ánægð hún var með allt sem hún átti. Litla húsið hennar við Heiðarveginn var henni afar kært og fékk hún aldrei nóg af því að mála, breyta og bæta þar. Nú síðast fyrir jól dró hún til húsgögn og breytti í litlu stofunni sinni. Þeg- ar ég spurði hana hvernig hún hefði farið að þessu, þar sem mátturinn var ekki mikill, svaraði hún kankvís: „Ég hvíldi mig á milli stóla.“ Ef Gógó var að fara eitthvað út var hún ekki að vandræðast með í hverju hún ætti að fara. „Ég fer bara í fal- lega hvíta pilsinu mínu og frakk- anum frá henni mömmu.“ Við fórum stundum saman í búð- ina og voru það ánægjustundir okk- ar beggja. Mikið hlegið og sprellað. Mér er sérstaklega minnisstæð ein slík ferð sem við fórum nýlega í Bónus. Þegar við vorum að fara heyri ég skyndilega eitthvert tíst og lít á Gógó. Mér brá mér heldur bet- ur við þá sjón, þarna situr hún renn- blaut í framan með sápufroðu í aug- um og munni og skellihlær! Ég hafði sett rúðupissið á og vildi ekki betur til en svo að það fauk allt framan í hana þegar hún settist inn í bíllinn. Hún hafði svo gaman af að hún skellihló og mátti ekki mæla fyrr en við vorum komnar að Njarð- víkursjoppu frá Fitjum. Þegar við komum í hlað á Heiðarveginum kvaddi hún mig með því að segja að ég hefði ekki getað skemmt sér bet- ur. „Þetta dugir mér út vikuna, Dæja mín,“ sagði hún enn flissandi. Það flaug í gegnum huga mér að sennilega hefðu flestir orðið frekar pirraðir við slíka uppákomu, en ekki hún Gógó. Okkar síðasta búðarferð var farin viku fyrir páska. Þá var hugur hennar allur hjá litlu langömmu- börnunum, þau urðu að fá sín páskaegg. Amma ætlaði sko ekki að klikka á því. Þegar við komum aftur í bílinn sagði ég: „Gógó mín, þessi ferð var farin meira af vilja en mætti.“ Leit hún þá á mig og svar- aði: „Já, ég viðurkenni það. En það tókst!“ Að leiðarlokum vil ég þakka sam- fylgdina og tryggðina í gegnum ár- in, elsku Gógó mín. Far þú í friði. Dagfríður Arnardóttir. Eftir því sem ég verð eldri vex með mér sú tilfinning að tilveran sé í raun eitt stórt leikrit á leiksviði lífsins. Í eigin lífi erum við sjálf að- alleikarnir, vinir og vandamenn fara með aukahlutverk og fólk á förnum vegi er statistarnir. Hver og einn hefur sínu hlutverki að gegna, bæði í eigin sýningu og annarra. Gógó þekkti sitt hlutverk út í ystu æsar. Hún lét andstreymið aldrei buga sig, heldur hélt áhorfandanum við efnið sama hvað á gekk. Gógó, sem við kölluðum líka stundum Goggu frænku, var ótrúleg mann- eskja. Hún sagði það enda oft sjálf: „Ég veit það, ég er alveg ótrúleg. Það segja það líka margir við mig: Guðfinna, þú ert alveg ótrúleg!“ Og það var hún svo sannarlega. Hún barðist við krabbamein og veikindi um áratuga skeið, og sama hversu margar erfiðar aðgerðir voru gerð- ar þá reis hún alltaf upp. Henni fannst lífið of skemmtilegt. Slík manneskja setur auðvitað sterkan svip á líf annarra. Stríðn- ispúkinn Guðfinna Jóhannesdóttir réð jafnan för. Hún hafði þessa glettni í augunum sem kom hreyf- ingu á hlutina. „Sérðu þetta?“ spurði hún mig eitt sinn flissandi þegar ég kom til hennar á Heið- arveginn. Á veggnum hékk platti frá barnabörnunum og á var ritað: „Léttgeggjuð amma“. „Þau sjá mig eins og ég er, Guðfinnur minn, ég er léttgeggjuð og hef gaman af því!“ Húsið hennar á Heiðarveginum er sennilega með minnstu húsum sem ég hef komið í. Það breytti ekki því að í hvert skipti sem ég leit inn fékk ég leiðsöguferð um húsið. Gógó elti ekki tískuna og keypti nýtt inn eftir straumum og stefnum, heldur málaði hún öll húsgögnin í þeim lit sem henni fannst fallegastur hverju sinni. Sennilega hefur innbúið í gegnum tíðina verið í öllum regn- bogans litum og rímaði það vel við persónuleikann sem þar bjó. Í heimsóknum tíndi hún til stafla af ljósmyndum og sagði sögur af langömmu og langafa á Flateyri, sér og systkinum sínum. Hún ljóm- aði í frásögninni, sem stundum gat dregist á langinn. Ég var til dæmis einu sinni alveg búinn að tapa þræð- inum í sögunni af hringferð þeirra Heiðars 1964. Hver svarthvít mynd- in af annarri kom undan bunkanum og þar með í smáatriðum sagan af því þegar þau festu bílinn hér og þar. Heiðar sjálfur var farinn að ranghvolfa augunum við eldhús- borðið þegar hún bar undir hann eitthvert atriði sem hún var ekki klár á. „Gógó mín, ég man þetta ekki. Það er svo langt síðan,“ sagði hann og andvarpaði. „Nú nú, þykist hann ekki muna …“ sagði Gogga þá, hristi hausinn og hélt sögunni ótrauð áfram. Ég þurfti að setja höndina yfir munninn. Þetta var óborganleg sena. Hinsta kveðjan var í hennar anda. Fyrir skömmu hringdi hún heim í Rúnar bróður og við lok samtalsins sagði hún: „Segðu Guffa mínum að vitleysingurinn á Heiðarveginum biðji að heilsa.“ Slíkar kveðjur frá Goggu frænku vöktu bros á vör og hlýju í hjarta. Nú er tjaldið fallið og stórleikkona gengin af sviðinu. Hún kvaddi á páskunum, tíma uppris- unnar. Þegar lífið sigraði dauðann. Að vanda átti hún síðasta orðið, síð- asta brandarann. Guðfinnur Sigurvinsson. Elsku Gógó mín, ekki grunaði mig þegar við fórum um daginn að kaupa kápuna sem þig var búið að langa svo lengi í, að þetta yrði okkar síðasta verslunarferð. Þó ég vissi hve alvarleg veikindi þín væru óraði mig ekki fyrir hve stutt þú ættir eft- ir. Alltaf barstu þig vel, svo sæt og fín, hvort sem þú varst að dunda í fallega garðinum þínum eða á leið út í búð. Okkar góðu kynni hófust þegar ég og fjölskylda mín fluttumst vorið 2001 í næsta hús við ykkur Heiðar. Það voru ófá skiptin sem við spjöll- uðum yfir girðinguna eða sátum yfir kaffibolla. Ekki var það sjaldan sem þú laumaðir yfir sælgæti eða köku- sneið til barna okkar. Enda varstu í þeirra augum eins konar amma. Ég veit að að nú líður þér betur og ert komin á góðan stað til hans Heiðars, sem tekið hefur vel á móti þér. Þakka þér, elsku Gógó, fyrir góð- ar samverustundir og þín verður sárt saknað. Ég votta Heiðu, Karen Guðfinnu, Brynju Dögg og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Drottinn er nálægur öllum, sem ákalla hann, öllum, sem ákalla hann í einlægni. (Sálm. 145.18). Laufey Vilmundardóttir og fjölskylda. Hversu oft hef á bankað á gluggann hjá þér seint um kvöld, þú opnað dyrnar og tekið á móti mér með kossi? Hversu oft hef ég skriðið upp í fangið á þér og grátið? Orð þín hugguðu mig ætíð og gáfu mér von. Ég sit nú og reyni að koma niður á blað hvað þú varst mér, hlusta á lög sem endalausar minningar eru tengdar við en orðin týnast bara með tárunum sem ryðjast fram og ég er bara litla stelpan sem bankaði á gluggann, nema það er engin amma sem huggar mig. Ég held ég hafi verið 4 ára þegar ég læddist fyrst, af óteljandi skipt- um að heiman og kom í litla húsið þitt, þar leið mér alltaf best. Hjá ykkur var ég litla stelpan ykkar, alla tíð. Ég átti alltaf heimili hjá ykkur, alveg sama hvað. Þú sagðir mér að ég mætti aldrei gleyma því hvað þú elskaðir mig mikið, að afi væri að passa upp á mig og þú mundir aldrei fara langt frá mér. Og ég veit að flestir sem þekkja okkur vita hversu náin ég var ykkur báðum. Og ég mun aldrei gleyma því amma, ég lofa. Ég veit að ég átti bestu ömmu í heimi. Minningarnar eru óteljandi og mér svo dýrmætar. Við höfum sungið, hlegið og grátið saman. Það var alveg sama hvað gekk á, alltaf varstu til staðar. Þrátt fyrir öll þín veikindi var lífsgleði þín og trú á Guð alltaf sterk. Þú kenndir mér ungri að biðja og ég man eftir þér að signa mig áður en ég fór í hrein- an bol eftir bað. Það hef ég alla tíð gert við ormana mína. Sagt þeim sögur eins og þú sagðir mér. Núna er það undir okkur stelpunum þín- um komið að halda á lofti því sem þið gáfuð okkur. Þannig munuð þið bæði lifa áfram, með minningum og venjum sem ganga áfram. Ég veit að þið fylgist með okkur, ég veit að þið verðið alltaf nálægt. Ég veit að ég á ykkur alltaf að. En ofboðslega finnst mér sárt að geta ekki knúsað þig, eiga eftir að gera svo margt og ekki geta séð þig brosa. Húsið ykkar stendur autt, en við stelpurnar ætlum að halda sál- inni lifandi í því. Ekki hafa áhyggj- ur. Við hugsum um garðinn þinn. Ég ætla að stelast í jarðarberin þín, eins og alltaf, klippa asskotas rósa- runnann og hreinsa beðin. Hlusta á Kenny Rogers, syngja með og von- andi brosa og hlæja, því það mundir þú vilja. Það er nokkuð ljóst að litla fjöl- skyldan mín hefur heldur betur minnkað, það er mikið sem vantar þegar þið eruð bæði farin. Ég veit ekki hvernig lífið á að verða án ykk- ar en það hlýtur að koma í ljós. Ég vona bara af öllu hjarta að þið tvö fylgist með í fjarska með bros á vör og séuð stolt af því sem þið sjáið. Afi búinn að finna giftingarhringinn sinn, þú búin að pakka fyrir ykkur bæði í töskuna. Draumarnir okkar, amma, þú vissir þetta alveg. Þú vildir hvíla þig, þér fannst komið nóg. Enda ekki skrítið, þetta voru mörg ár af veikindum, líf þitt var þyrnum stráð. En alltaf stutt í gleðina, það viðhorf ætla ég að reyna að tileinka mér, elsku amma, þótt ekki væri það annað. Kysstu afa frá mér og hann þig. Hvílið í friði bæði tvö. Karen Guðfinna. Ég er svo heppin að hafa fengið að njóta foreldra minna langt fram eftir fullorðinsárum. Engu að síður líður mér svolítið eins og ég sé tólf ára hérna að skrifa kveðjuorð til móður minnar. Minningar næstum fjörutíu og fimm ára komast ekki á þetta blað en þær eru hérna allar, í höfðinu á mér og í hjartanu. Mamma og pabbi sáu mér fyrir allri þeirri ást og umhyggju í uppeldinu sem ég þurfti á að halda og rúmlega það. Núna þegar þau eru bæði farin með svona stuttu millibili líður mér eins og ég sé í frjálsu falli. Móðir mín, þessi litla fínlega kona, var mun sterkari en líkams- burðir gáfu til kynna. Þrátt fyrir öll þau veikindi sem hún hefur þurft að eiga við nánast alla ævi missti hún aldrei getuna til að gleðjast og vera einlæg. Hún endaði öll símtöl á orðunum „ég elska þig“. Hún þreyttist aldrei á því að segja mér að fara varlega áður en ég keyrði Reykjanesbraut- ina. Ef ég hóstaði, sagði hún við mig „ertu orðin kvefuð barn“. Hún varð yfir sig stolt af litlum hversdags- legum hlutum sem henni fannst ég gera vel og hún dæmdi mig aldrei fyrir það sem ég gerði ekki vel. Hennar er og verður sárt saknað. En ég kýs að trúa því að núna séu mamma og pabbi aftur saman, heil- brigð og glöð. Ég sé þau fyrir mér dansa saman með þetta sérstaka blik í augunum sem uppljóstraði leyndarmálum um rómantík og ást sem þau áttu sem ung hjón. Heiða Björk. Elsku amma mín, ég sakna þín svo mikið, miklu meira en ég gerði nokkurn tíma ráð fyrir að ég myndi gera. Það var búið að segja mér oft að þú myndir fara á næstu mán- uðum en mér fannst þetta samt svo óvænt og var engan veginn tilbúin. Þú varst búin að vera veik svo lengi að maður var víst bara orðin vanur þeirri hugsun að þú kæmir alltaf heim, alltaf. Þú áttir að gera það núna líka. Mig langar svo að fá að knúsa þig aftur og fá mér eina sígó með þér og spjalla við þig í símann klukkutímum saman bara til að segja þér að ég elska þig. Þú gast alltaf látið mig hlæja og mér leið ekki neins staðar jafn vel og þegar ég sat ein með þér inní horninu þínu að spjalla við þig um eitthvað sem enginn annar veit. Þú varst án efa besta amma og langamma í heimi, þú varst svo lífs- glöð og sterk að ég dáist að þér og er svo stolt að hafa átt þig sem ömmu mína. Ég mun alltaf sakna þín og sjá til þess að Sigurður Freyr muni aldrei gleyma þér. Bless elsku amma mín. Brynja Dögg Brynjarsdóttir Guðfinna Jóhannesdóttir ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA DÓRA HARÐARDÓTTIR, Austurbergi 6, lést á heimili sínu sunnudaginn 19. apríl. Hjörleifur Einarsson, Marta Ríkey Hjörleifsdóttir, Bragi Jónsson, Sigurveig Hjörleifsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, sonur, bróðir, mágur og tengdasonur, GÍSLI ÞÓR REYNISSON, Haukanesi 14, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðviku- daginn 22. apríl kl. 15.00. Anna Margrét Kristinsdóttir, Gabríel Þór Gíslason, Anna Fríða Gísladóttir, Benjamín Ágúst Gíslason, Katrín Rósa Gísladóttir, Reynir Þorgrímsson, Rósa Guðbjörg Gísladóttir, Einar Örn Reynisson, Ingibjörg Reynisdóttir,Ólafur Tryggvason, Ragnar Már Reynisson, Elín Oddsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FRÍÐUR Á. GUÐMUNDSDÓTTIR, Hjallaseli 55, áður Gautlandi 7, lést á dvalarheimilinu Seljahlíð föstudaginn 17. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hilmar Herbertsson, Bára Björgvinsdóttir, Hans Herbertsson, Aldís Daníelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.