Morgunblaðið - 21.04.2009, Síða 15

Morgunblaðið - 21.04.2009, Síða 15
Fréttir 15ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2009 Genf. AFP. | Fulltrúar 23 Evrópusambandsríkja gengu úr salnum á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um kynþáttafordóma í Genf í gær þegar Mahmo- ud Ahmadinejad Íransforseti fór hörðum orðum um meinta grimmd og kynþáttahatur Ísr- aelsstjórnar. „Ísraelsmenn sendu innflytjendur frá Evrópu og Bandaríkjunum [...] til að koma á stjórn kyn- þáttahaturs á hernumdu svæðunum í Palestínu,“ sagði forsetinn, sem vísaði til sögunnar. Vesturlönd hefðu gert heila þjóð, það er Palest- ínumenn, heimilislausa undir yfirvarpi þjáninga gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni. Þá hefðu síon- istar og bandamenn þeirra í Bandaríkjastjórn skipulagt innrásina í Írak vorið 2003. Nokkur ríki, Bandaríkin, Ástralía og Ísrael þar á meðal, sniðgengu ráðstefnuna í mótmælaskyni við þátttöku forsetans sem var fyrstur á mælenda- skrá samkvæmt þeirri formvenju að þjóðhöfðingj- ar stígi fyrstir í pontu á slíkum samkomum. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fordæmdi ræðuna, en hann hafði áður gagnrýnt ríki fyrir að sniðganga ráðstefnuna. Ekki voru hins vegar allir ósáttir við málflutn- ing forsetans og fögnuðu nokkrir erindrekar þeirra ríkja sem eftir sátu ræðunni með lófataki. Að ræðunni lokinni ræddi forsetinn um um- deilda kjarnorkuáætlun Írana með þeim orðum að þeir hefðu fullan rétt til að þróa kjarnorku, en hann hefur undanfarið boðað að senn verði lagt fram nýtt útspil Írana í deilunni. baldura@mbl.is Úthúðaði Ísraelsstjórn Fulltrúar fjölmargra ríkja gengu úr salnum þegar Íransforseti hóf reiðilestur sinn um Ísraelsmenn á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um kynþáttafordóma í Genf Reuters Umdeildur Ahmadinejad Íransforseti í Genf í gær. Ísraelar heimsækja Yad Vashem safnið í Jerúsal- em sem er helgað minningu fórnarlamba Helfar- arinnar. Dagur helgaður minningu þeirra hófst við sólsetur í Ísrael í gær með athöfn í Yad Vas- hem að viðstöddum leiðtogum þjóðarinnar. Fórnarlambanna verður minnst með ýmsum hætti í dag, m.a. áttu sírenur að hljóma í eina mínútu í morgunsárið. Í gær voru liðin 120 ár frá fæðingu Adolfs Hitlers, foringja nasista. AP Helfararinnar minnst SAMKVÆMT nýjum upplýsingum beitti bandaríska leyniþjónustan, CIA, tvo grunaða hryðjuverkamenn vatns- pyntingum 266 sinnum, mun oftar en áður hefur verið talið. Samkvæmt dagblaðinu The New York Times sýna gögn að Khalid Sheikh Mohammed, sem hefur játað á sig skipu- lagningu hryðjuverkaárásanna þann 11. september, hafi verið beittur vatnspyntingum 183 sinnum auk þess sem Abu Zubaydah, grunaður al-Qaida leiðtogi, hafi verið beitt- ur slíkum pyntingum 83 sinnum. Áður hafði CIA gefið upp að Zubaydah hafi aðeins verið beittur vatnspyntingum í 35 sekúndur. Nákvæmar tölur hafa ekki áður verið birtar en árið 2007 sagði New York Times frá því að Khalid Shaikh Moham- med hefði verið pyntaður á grimmilegan hátt í yfir 100 skipti. Tölurnar höfðu verið fjarlægðar af flestum þeim minn- isblöðum CIA sem bandaríska dómsmálaráðuneytið gerði opinber síðastliðinn fimmtudag en bloggarar, þ. á m. Marcy Wheeler frá vefsíðunni emptywheel, uppgötvuðu að tölurnar var enn að finna á einu minnisblaðanna. Þessar upplýsingar leiða líkur að því að slíkar pyntingar hafi verið mun víðtækari en áður var talið. Hafi vatnspynt- ingarnar verið endurteknar svo oft vekur það einnig spurningar um hversu árangursrík aðferðin sé. Þá þykir það vekja efasemdir um fullyrðingar Bush-stjórnarinnar um að aðferðunum væri beitt samkvæmt ströngum reglum. Michael V. Hayden, yfirmaður CIA síðustu tvö ár Bush- stjórnarinnar hefur ekki viljað staðfesta tölurnar þar sem hann telur þær enn vera trúnaðarmál. jmv@mbl.is CIA beitti vatnspynting- um oftar en talið var Reuters Pyntingar Ný gögn sýna að CIA beitti fanga vatnspynt- ingum í mun fleiri tilvikum en áður hafði verið talið. SEÐLABANKASTJÓRI Simbabve hefur játað að hafa tekið peninga út af reikningum einkafyrirtækja og erlendra hjálp- arsamtaka í leyf- isleysi. Það segist hann hafa gert til að halda ráðu- neytum landsins gangandi. Með yfirlýs- ingu sinni er talið að Gideon Gono, bankastjóri, vilji reyna að halda starfinu í ljósi vaxandi gagnrýni. Gono sagði í yfirlýsingunni að tímabært væri að gleyma fortíðinni nú þegar í Simbabve væri komin ný samsteypustjórn, staðráðin í að ráða fram úr efnahagsvanda þjóðarinnar. Gono sagðist hafa veitt pening- unum sem hann tók af reikning- unum til ýmissa ráðuneyta, þeir yrðu endurgreiddir þegar ráðu- neytin hefðu endurgreitt lánin. Framtak bankans hefði „stutt við landið“ á neyðartímum. Gono sagði á mánudag að gagn- rýni á störf hans hefði náð fárán- legum hæðum „í því skyni að sýna hversu vondur, óverðugur og óhæf- ur bankastjórinn er.“ Gagnrýni á Gono hefur farið vaxandi á liðnum dögum eftir að hann bauð nýjum þingmönnum 50 notaða bíla til af- nota og hefur það leitt til viðamikilla rannsókna, allt frá kaupum á hnífa- pörum bankans til fyrirtækja sem Gono rekur. Notaði fé hjálpar- stofnana Gideon Gono Seðlabankastjóri Simbabve umdeildur TVEIR innbrotsþjófar í Leicester á Englandi fylla flokk afbrotamanna sem fara ótroðnar slóðir. Þannig gerðu þeir sér lítið fyrir eftir innbrot í heimahús þar í borg og báðu leigubílstjóra um aðstoð við að flytja heim þýfið. Persónulegir munir, skartgripir og jólagjafir handa börnum, voru á meðal þess sem þeir báðu um að komið yrði fyrir í farangursrýminu. Inntir eftir því hvort þeir hefðu brotist inn hlógu þeir við og báðu bíl- stjórann um halda áfram akstrinum, grunlausir um að húseigandinn sat við stýrið. Með þýfið í leigubíl TUGÞÚSUNDIR almennra borgara streymdu út af yfirráðasvæði Tam- íltígra í norðurhluta Srí Lanka í gær. Forseti Srí Lanka kallaði fólksflótt- ann „stærstu gíslabjörgunaraðgerð sögunnar.“ Í sjónvarpsræðu sagði forsetinn, Mahinda Rajapaksa, að Srí Lanka-her hefði opnað flóttaleið fyrir fólkið. Á vefsíðu á vegum Tamíltígra segir að óttast sé um líf hundraða borgara í þeirri „algjöru ringulreið“ sem ríkti þegar hermennirnir fóru inn á svæðið. Ekki er unnt að sannreyna þær fullyrðingar þar sem svæðið í norðri er lokað blaðamönnum. Ráðist var í björgunaraðgerðina um það leyti sem yfirvöld gáfu upp- reisnarmönnum frest til hádegis í dag til að gefa sig fram. Uppreisnarmennirnir hafa verið ásakaðir af yfirvöldum og hjálp- arsamtökum um að halda nokkur hundruð borgurum eftir til að nota sér til skjóls. Tamílar mótmæltu aðgerðum yf- irvalda á Srí Lanka víða um heim í gær og krefjast vopnahlés. Mestu mótmælin voru í London þar sem þúsundir mótmæltu en margir Tam- ílar kenna Bretum, sem fyrrverandi nýlenduherrum, um að hafa neitað þeim um ættjörð. Talið er að um 200.000 Tamílar búi í Bretlandi. Tugþúsundir flúðu svæði Tígranna Reuters Mótmælt Tamílar mótmæltu víða um heim og kröfðust vopnahlés. „Stefna Íslands hefur verið sú að ríki eigi að ræða saman óháð því hvort þau séu sammála eða ekki. Á þessum forsendum hefur þátttaka Íslands í endurskoðunarráðstefnunni [í Genf] grundvallast en mikilvægt er að ríki heims nái samkomulagi um aðgerðir í baráttunni gegn kynþáttamisrétti og útlendingahatri en út á það á ráðstefnan að ganga,“ segir í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneytinu. Tilefnið er að fulltrúar Íslands kusu að ganga ekki úr salnum heldur sitja undir ræðunni, líkt og norski og svissneski fulltrúinn, en öll eru rík- in þrjú sem kunnugt er utan ESB. Fulltrúar Evr- ópusambandsríkjanna yfirgáfu allir salinn með tölu, en fyrir höfðu fjögur aðildarríkjanna af- boðað þátttöku í mótmælaskyni við fyrirhugaða opnunarræðu Íransforseta. Kristinn F. Árnason, sendiherra, Ingibjörg Davíðsdóttir, fulltrúi utan- ríkisráðuneytisins, auk starfsnema, sátu ráð- stefnuna. Fulltrúar Íslands fóru hvergi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.