Morgunblaðið - 21.04.2009, Síða 33

Morgunblaðið - 21.04.2009, Síða 33
Dagbók 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2009 Sudoku Frumstig 3 8 4 6 2 7 1 8 6 2 5 9 4 6 1 8 7 8 5 7 9 5 6 4 6 3 8 2 5 3 1 8 9 6 9 7 5 7 3 8 9 7 5 1 1 9 4 6 3 4 4 5 8 3 9 7 6 1 2 8 8 6 4 6 7 9 1 5 7 3 2 5 4 9 2 1 6 3 8 7 5 7 8 6 9 5 4 3 2 1 3 1 5 8 2 7 4 9 6 9 4 3 6 1 5 2 8 7 2 6 1 7 3 8 9 5 4 8 5 7 4 9 2 6 1 3 5 2 4 3 7 9 1 6 8 1 7 8 2 4 6 5 3 9 6 3 9 5 8 1 7 4 2 6 9 1 5 3 2 8 4 7 4 2 8 7 9 1 6 3 5 3 7 5 8 4 6 1 2 9 7 1 9 3 8 4 5 6 2 8 5 6 2 7 9 3 1 4 2 3 4 6 1 5 9 7 8 5 8 2 4 6 3 7 9 1 1 6 7 9 2 8 4 5 3 9 4 3 1 5 7 2 8 6 4 2 3 6 1 5 9 8 7 9 6 1 8 3 7 5 2 4 5 7 8 4 2 9 6 1 3 3 1 6 7 9 8 4 5 2 8 4 7 3 5 2 1 6 9 2 9 5 1 4 6 3 7 8 6 3 4 2 8 1 7 9 5 1 5 2 9 7 3 8 4 6 7 8 9 5 6 4 2 3 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 21. apríl, 111. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: „Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.“ (Jh. 13, 35.) Víkverji var að ferma frumburðinnum helgina og heppnaðist sú at- höfn að öllu leyti mjög vel, sem og veislan á eftir í faðmi fjölskyldu og vina. Stólræðan hjá prestinum var góð, þar sem fermingarbörnin voru m.a. minnt á þær skyldur og dyggðir sem þau ættu að ástunda þegar kom- ið væri út í alvöru lífsins. Kreppuna bar að sjálfsögðu á góma og mik- ilvægi trúarinnar og kirkjunnar við þær erfiðu aðstæður. Eitthvað virtist boðskapurinn fara fyrir ofan garð og neðan hjá sumum fermingarbörnum, eins og gengur, enda spennan og eft- irvæntingin mikil í hug þeirra og hjarta. Talandi um skyldur þá hefur Vík- verja nokkrum sinnum orðið hugsað í vetur til eigin fermingarfræðslu fyrir margt löngu, þegar læra þurfti utan- bókar nokkra sálma og fara síðan með ritningarorð í sjálfri ferming- arathöfninni. Ekki varð Víkverji var við að frumburður hans þyrfti að leggja hið sama á sig, nema að læra utan að trúarjátninguna, þó það nú væri! En þegar komið var að sjálfri athöfninni var ekki verið að flækja hlutina. Fermingarbörnin þurftu að- eins að segja já og amen á réttum stöðum. Víkverji viðurkennir fúslega að hann er haldinn fortríðarþrá á háu stigi, þar sem allt lítur út fyrir að hafa verið miklu betra í gamla daga en kröfurnar og aginn um leið meiri á þeim tíma. Tímarnir hafa greinilega breyst og mennirnir með, og sjálf- sagt er þetta bara öfund út í frum- burðinn fyrir að hafa ekki þurft að fara með ritningarorð í fermingunni. x x x Frá fermingu til kosninga. Vík-verji hefur ekki gert upp hug sinn um hvað eigi að kjósa á laug- ardaginn. Allt virðist þetta vera sama tóbakið. Ein hreyfing hefur verið talsvert í sviðsljósinu, Lýðræð- ishreyfing Ástþórs Magnússonar, sem leggur RÚV nánast í einelti. Líkast til þorði landskjörstjórn ekki annað en að hleypa karlinum í gegn, af ótta við kosningaeftirlitsnefnd ÖSE sem hér er stödd. víkverji@m- bl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 mótgengur, 8 hörfar, 9 þyngdarein- ingar, 10 tala, 11 jarði, 13 sefaði, 15 þráðar, 18 dreng, 21 afkvæmi, 22 detta, 23 smáaldan, 24 miskunnarleysið. Lóðrétt | 2 hráslagi, 3 dimmviðri, 4 yfirhafnir, 5 systir, 6 torveld, 7 fífl, 12 smáger, 14 títt, 15 Freyjuheiti, 16 kvabba um, 17 vik, 18 lítil saur- kúla, 19 þvættingi, 20 þekkt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 blíða, 4 sígur, 7 asann, 8 náðug, 9 agn, 11 alda, 13 uggs, 14 umber, 15 sálm, 17 traf, 20 kal, 22 eyrun, 23 jaðar, 24 lúrir, 25 narra. Lóðrétt: 1 blaka, 2 íhald, 3 Anna, 4 senn, 5 geðug, 6 regns, 10 gubba, 12 aum, 13 urt, 15 spell, 16 lærir, 18 riðar, 19 forna, 20 knár, 21 ljón. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. Bg5 d5 3. e3 e6 4. c4 c6 5. Rc3 Be7 6. Rf3 Rbd7 7. Hc1 0-0 8. Bd3 dxc4 9. Bxc4 b5 10. Bd3 a6 11. Bxf6 Rxf6 12. a4 Bb7 13. 0-0 Hc8 14. De2 Db6 15. Rd2 c5 16. axb5 cxd4 17. bxa6 dxc3 18. axb7 Hc7 19. bxc3 Dxb7 20. Rf3 Re4 21. c4 Rc5 22. Bc2 Bf6 23. Rd4 Hd8 24. Rb5 Hcd7 Staðan kom upp á alþjóðlega Reykja- víkurskákmótinu sem lauk fyrir nokkru í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhús- inu. Þýski alþjóðlegi meistarinn Dennis Braeder (2.427) hafði hvítt gegn Vigfúsi Ó. Vigfússyni (2.027). 25. Bxh7+! Kf8 svartur hefði einnig staðið höllum fæti eftir 25. …Kxh7 26. Dh5+. 26. Bc2 Hd2 27. Dh5 Dc6 28. Hfd1 g6 29. Dg4 Bb2 30. Hb1 Re4 31. Hxd2 Rxd2 32. Hxb2 Rxc4 33. Hb1 Rd2 34. Rd4 Dc3 35. Hd1 e5 36. Dg5 He8 37. Ba4 He7 38. Df6 Hc7 39. Re6+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sjónarspil. Norður ♠K1073 ♥752 ♦G9642 ♣8 Vestur Austur ♠62 ♠984 ♥ÁG4 ♥D1096 ♦873 ♦105 ♣K10753 ♣ÁG96 Suður ♠ÁDG5 ♥K83 ♦ÁKD ♣D42 Suður spilar 4♠. Lauf upp á ás og hjarta um hæl jarð- ar samninginn í snarhasti, en vestur er kjarklaus og trompar út. Hvernig á sagnhafi að nýta tækifærið? Vandinn er stíflan í tíglinum. Það væri afhjúpandi spilamennska að taka þrisvar tromp, spila ♦Á-K-D og gefa síðan slag á lauf. Þá þarf engan snilling í austursætinu til að spila ♥10 í gegn- um kónginn. Önnur nálgun og betri er að taka fyrsta slaginn á ♠10 í borði og spila strax laufi í þeirri von að vörnin trompi aftur út. Best af öllu er þó að setja á svið smá blekkingarleik. Sagn- hafi tekur fyrsta slaginn heima og leggur niður ♦Á-K. Fer svo inn í borð á ♠10 og spilar þaðan tígli eins og hann ætli að trompa. Austur þarf að vera í meira lagi tortrygginn til að stinga í þann slag. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þér mun finnast þú valdaminni en þú ert ef þú berð þig saman við aðra. Láttu ekki aðra fara í taugarnar á þér. (20. apríl - 20. maí)  Naut Áttu við vandamál að stríða? Reyndu að nálgast það líkamlega í stað andlega. Njóttu góðra stunda með öðrum og þiggðu öll boð sem þér berast. Taktu til þinna ráða. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú hefur rétt til að skipta um skoðun, og það muntu gera oft eftir að þú ferð að endurskoða forgangsröðina. Ein- hvers konar endurnýjun er nauðsynleg þótt engar stórbreytingar eigi sér stað. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er í góðu lagi að hafa áhrif á fólk með framkomu sinni ef þú bara gætir þess að fæla það ekki frá við nánari kynni. Ekki gefast upp núna. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Eitthvað veldur þér áhyggjum í dag og óróleiki gerir vart við sig. Þótt þú reynir að tala skýrt muntu verða mis- skilin/n. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Samstarfsmaður kemur til þín með áætlun sem hentar honum mjög vel en ekki þér. Mundu að þú verður auðvitað sjálfur að leggja þitt af mörkum. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Orka þín er lífleg, þú laðar að þér aðdáanda sem eltist við þig án ótta og jafnvel af of mikilli ákefð, fyrir þinn smekk. Ekki láta hann reka á reiðanum. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Sporðdrekinn vinnur af mýkt innan kröfuharðrar stofnunar. En þér er óhætt að treysta eðlisávísun þinni í bland við hæfilegan skammt af raunsæi. Láttu ekki aðra stjórna lífi þínu. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Gættu þess að setja annað fólk ekki á of háan stall. Hið sama gildir um áætlanir þínar. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það þýðir ekki að stinga hausn- um í sandinn eins og strútur. Hlustaðu á ráð og tillögur annarra þótt sumar þeirra virðist ankannalegar í fyrstu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú hefur unnið þér hylli vegna verka þinna og allar líkur eru á því að þér bjóðist gull og grænir skógar. Forðastu því allar fjárfestingar og gerðu nákvæm- ar áætlanir sem þú svo ferð eftir. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Nú er kominn tími fyrir fiskinn að finna sér hjálp sem getur létt undir í dag- legu amstri. Spjallaðu við fyndnustu manneskju sem þú þekkir. Stjörnuspá 21. apríl 1648 Svo mikil snjókoma var á Suð- vesturlandi að snjór var „í mitti á sléttlendi“, eins og sagt var í Setbergsannál. 21. apríl 1800 Sex bátar úr Staðarsveit og Bjarneyjum á Breiðafirði fór- ust í miklu norðanveðri og með þeim 37 manns. 21. apríl 1919 Sænsk kvikmynd um Fjalla- Eyvind, eftir sögu Jóhanns Sigurjónssonar, var frumsýnd í Gamla bíói, á annan í pásk- um. „Eru sýningarnar mjög skrautlegar,“ sagði í Lög- réttu. „Yfirleitt er mesta ánægja að myndinni,“ sagði í Tímanum. 21. apríl 1951 Mikil snjóþyngsli voru á Eski- firði. Tíminn sagði frá því að sum hús hefðu verið alveg á kafi og margir hefðu grafið göng gegnum skaflana. Einn gróf tvenn göng og „eru þau notuð á víxl eftir því hver vindáttin er. Eru önnur göng- in 16 metra löng en hin 14 metra“. 21. apríl 1971 Fyrstu handritin komu til landsins frá Danmörku með herskipinu Vædderen. Þetta voru Flateyjarbók og Kon- ungsbók Eddukvæða. Alls voru afhent 1.807 handrit, þau síðustu í júní 1997. 21. apríl 2002 Íslenska ríkið festi kaup á Gljúfrasteini og listaverk- unum sem prýddu heimili Halldórs og Auðar Laxness. Ekkja nóbelsskáldsins gaf rík- inu allt innbú, bókasafn, hand- rit o.fl. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … „ÉG held að eftirminnilegasti afmælisdagurinn hljóti að vera þegar ég var 8 eða 9 ára því það mættu allir í afmælið nema afmælisbarnið. Hann gleymdi sér og fór út á sjó með trillusjómanni og mundi ekki eftir afmælisdeginum sínum fyrr en allir veislugestirnir fóru að leita að honum, m.a. niðri á bryggju. Þá var svo miklu skemmtilegra að fara út á sjó en að vera í pylsupartíi heima,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, sem er fimmtugur í dag. Lúðvík mun vonandi ekki gleyma sér í dag þar sem hann og eiginkonan Hanna Björk Lárusdóttir, sem einnig verður fimmtug í ár, hafa skipulagt afmælisveislu með menningarlegri dag- skrá fyrir vini og samstarfsfólk í lista- og menningarmiðstöðinni Hafnarborg milli kl. 17 og 19 í dag. Lúðvík er menntaður bakari og aðspurður segir hann aldrei að vita nema hann hjálpi til við undirbúning veitinganna fyrir afmælið. Hann er einnig með B.A.-gráðu í íslensku og bókmenntum og segir hann námið sitja djúpt í sér. „Áhugamál mitt er fyrst og fremst bók- menntir. Ég les eins mikið og ég get,“ segir Lúðvík en hann hefur sjálfur skrifað fjórar bækur um sögu Hafnarfjarðar. ylfa@mbl.is Lúðvík Geirsson bæjarstjóri 50 ára Gleymdi afmælinu sínu ;) Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum um fæðingarstað og stund, þyngd, lengd og nöfn foreldra, á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.