Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
SAMFYLKINGIN og Vinstri græn
fengju samtals 56,1 prósent atkvæða
og hreinan meirihluta samkvæmt
könnun Capacent fyrir Morgunblað-
ið og RÚV. Könnunin var gerð dag-
ana 21.-23. apríl. Úrtakið var 2.433
og var svarhlutfall 60,2 prósent.
Samkvæmt könnuninni er Sam-
fylkingin stærst flokka með 29,8 pró-
sent atkvæða en Vinstri græn eru
með 26,3 prósent. Sjálfstæðisflokk-
urinn fengi 23,2 prósent skv. könn-
uninni og Framsóknarflokkurinn
tólf prósent. Borgarahreyfingin
mælist með 6,8 prósenta fylgi og
næði samkvæmt niðurstöðunni fjór-
um mönnum inn á þing.
Gunnar Helgi Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, segir margt benda til þess
að mikil spenna muni einkenna kosn-
ingarnar. „Ég tel horfur að mörgu
leyti tvísýnar. Það er mikil óvissa um
hvað má lesa út úr könnunum fyrir
þessar kosningar. Við eðlilegar að-
stæður myndu kannanir stuttu fyrir
kosningar segja mikla sögu um
hvernig landið liggur en mér finnst
erfitt að segja til um það núna. Ég er
til að mynda ekki viss um að Sjálf-
stæðisflokkurinn verði með minna
fylgi en kannanir segja til um, eins
og oft hefur orðið raunin. Það hafa
orðið miklar breytingar á landslag-
inu og fylgi frá síðustu kosningum
hefur færst mikið milli flokka. Kann-
anir gefa vitaskuld góða vísbendingu
um stöðuna en segja ekki alla sög-
una,“ segir Gunnar Helgi.
Samfylkingin mælist stærst
Vinstri græn og Samfylkingin eru með öruggan meirihluta samkvæmt síðustu skoðanakönnun
Capacent fyrir Morgunblaðið og RÚV Erfitt að lesa í stöðuna, segir Gunnar Helgi Kristinsson
! "
!
"
#
$%
$&
$
$'
$&
$
#
$
%&
"
! "
( )
( ' %
( &
( '
(
(
!"#$
%&'( " ) #
( *
+
(
, +
(
-
.$.
)$
.$'
$)
%$%
Samkvæmt könnun Capacent
ætla 8,4 prósent þeirra sem
greina frá því hvað þeir hyggjast
gera í kjörklefanum, að skila
auðu. Mengi þeirra sem enn eru
óákveðnir hefur minnkað nokk-
uð og mælist sem aðeins 2,3
prósent eigi eftir að gera upp
hug sinn. Þá neita 4,6 prósent
að gefa upp hvað þau ætla að
kjósa.
Gunnar Helgi Kristinsson segir
þessa stöðu vera hluta af óviss-
unni sem fylgir kosningunum.
„Það er ljóst að það er nokkur
fjöldi sem telur ekki að það sé
neinn valkostur í boði sem hægt
sé að styðja í kosningunum.
Flokkarnir hafa eflaust verið að
reyna að ná inn í þetta fylgi og
alveg fram á síðustu stundu þá
geta menn skipt um skoðun.“
8,4 prósent segjast ætla að skila auðu
FORMENN flokkanna voru á
fleygiferð í gær á lokasprettinum í
harla óvenjulegri kosningabaráttu.
Erlendir fjölmiðlar sýna kosning-
unum nú umtalsverða athygli, enda
hefur kastljós heimsins beinst að Ís-
landi í meira mæli en venjulega frá
því í haust, þegar bankarnir hrundu.
Hér er Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, farðaður fyrir for-
mannaþátt Ríkissjónvarpsins í
gærkvöldi undir árvökulu augu
heimspressunnar.
Þó að flestir landsmenn gangi að
kjörborðinu í dag greiddu sumir at-
kvæði utan kjörfundar. Hjá Sýslu-
manninum í Reykjavík höfðu í gær-
kvöldi kosið alls 12.617 manns sem
eru ívið færri en árið 2007 þegar
12.824 höfðu kosið á sama tíma.
Færri mættu þó á kjörstað í
Reykjavík þetta árið því að aðsend
atkvæði voru að þessu sinni 1.919, en
fyrir alþingiskosningarnar 2007
höfðu 1.350 atkvæði borist embætt-
inu á sama tíma. annaei@mbl.is
Formenn í
kastljósinu
Morgunblaðið/Ómar
FRÉTTAVEFUR Morgunblaðsins,
mbl.is, verður með öfluga kosn-
ingavakt í dag og nótt. Fylgst
verður með
gangi mála
frá því að
kjörstaðir
eru opn-
aðir og allt
til enda.
Tölur
verða birt-
ar á mbl.is
um leið og
þær verða
gefnar út
af yfirkjör-
stjórnum. Jafnframt má sjá á
mbl.is skiptingu þingsæta miðað
við stöðuna hverju sinni. Viðbrögð
frambjóðenda má einnig lesa á
vefnum og fylgst verður með kosn-
ingavökum flokkanna. Von er á
fyrstu tölum strax og kjörstöðum
hefur verið lokað eða upp úr
klukkan 22.
Mbl.is mun fylgjast með talningu
í öllum kjördæmum landsins, allt
þar til endanleg úrslit liggja fyrir.
Kosningavakt
staðin á mbl.is
UMRÆÐAN um aðild að Evrópu-
sambandinu og afstöðu flokkanna til
aðildarumsóknar var fyrirferðarmikil í
formannaþætti RÚV í gærkvöldi.
Sagði Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, sinn flokk hafa opnað á
möguleikann á ESB-aðild, að und-
angengnu vönduðu ferli, að þjóðin kysi
um málið.
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar sagði hins vegar
nauðsyn að hefja aðildarviðræður
strax en Þór Saari, talsmaður Borg-
arahreyfingarinnar, sagði þjóðina ekki
hafa tíma til að bíða eftir að VG og
Samfylkingin næðu saman um ESB.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokks, kvað ESB-aðildina
heldur ekki þá töfralausn sem Sam-
fylkingin boðaði. En þeir Guðjón Arn-
ar Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, voru báðir fylgjandi
aðildarviðræðum undir ströngum
skilyrðum. Ástþór Magnússon, tals-
maður Lýðræðishreyfingarinnar, gaf
lítið fyrir umræðuna. Hún væri óá-
byrg og fyrirfram mætti ekki hafna
ESB-aðild.
Ósammála um ESB
Stefnumálin rædd fyrir kjördag
Orðrétt
’Ég er hugsi yfir því hve fast ýmsirtalsmenn Samfylkingarinnarsækja ESB-aðildarumsókn. Ég er þóalveg rólegur og lít á þetta sem tauga-veiklun.“
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
’Það er ekkert samkomulag í höfnvið Vinstri hreyfinguna græntframboð um Evrópusambandsaðild.“JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
’Við ætlum að sækja þýfið sem aðútrásarvíkingarnir stálu. Við mun-um setja á þá hryðjuverkalög og í kjöl-farið lokast á öll þeirra bankaviðskiptium allan heim.“
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON