Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009 ÖSE í öllum kjördæmum  Fulltrúar frá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu fylgjast með framkvæmd þingkosninganna í dag  Tíu fulltrúar verða í öllum kjördæmunum sex Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is „VIÐ verðum á ferðinni um landið og ætlum að fylgjast með framkvæmd kosninganna í öllum kjördæmum,“ sagði Jonathan Stonestreet, tals- maður Öryggis- og samvinnustofn- unar Evrópu (ÖSE), í samtali við Morgunblaðið í gær. Tíu fulltrúar frá stofnuninni eru staddir hér á landi til þess að fylgjast með því að alþingiskosningarnar í dag fari fram samkvæmt lögum og reglum. „Við verðum í tveggja manna teymum. Þau vinna út frá Ak- ureyri, Borgarnesi, Selfossi, Hafnar- firði og Reykjavík og fylgjast með framkvæmd kosninganna,“ sagði Stonestreet. ÖSE hefur það verkefni öðru fremur að fylgjast með heildrænni umgjörð kosninga. Hinn 12. febrúar sl. bauð fasta- nefnd Íslands hjá ÖSE stofnuninni að hafa eftirlit með kosningunum. Á þeim tíma hafði mikil ólga einkennt stjórnmálaumræðu en ný ríkisstjórn var þá nýtekin við völdum, í kjölfar mótmæla við Alþingishúsið og við stjórnarráðið. Fulltrúar frá ÖSE komu síðan hingað til lands og ræddu við embættismenn og stjórn- málamenn, og hlustuðu á viðhorf þeirra til kosninganna sem fara fram í dag. Öll þátttökuríki ÖSE eru skuld- bundin til að bjóða stofnuninni að hafa eftirlit með þing- og forseta- kosningum en því er ætlað að styrkja lýðræði í ríkjum og tryggja að kosn- ingar fari eðlilega fram. Morgunblaðið/Ómar Eftirlit Stonestreet frá ÖSE. Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is UTANRÍKISMÁLANEFND Alþing- is fundaði í gærmorgun, að beiðni Sivj- ar Friðleifsdóttur, þingkonu Fram- sóknarflokksins, um Icesave-deiluna svokölluðu og voru trúnaðargögn er varða samskipti Íslands og Bretlands meðal annars til umræðu á fundinum. Rannsóknarnefnd Alþingis, sem Páll Hreinsson hæstaréttardómari stýrir, heimilaði aðgang nefndarinnar að gögnunum. Rannsóknarnefndin hafði þau til skoðunar vegna rann- sóknar sinnar á orsökum bankahrunsins í október í fyrra. Kristinn H. Gunnarsson þingmaður sagði í samtali við mbl.is að loknum fundi, að margt athyglisvert væri í þess- um gögnum. „Það er ekkert í þeim gögnum sem við feng- um aðgang að sem rökstyður þær kenningar að stjórn- völd hefðu getað afstýrt því að Icesave-ábyrgðir féllu á íslenska skattborgara með því að reiða fram 200 milljónir punda,“ segir Kristinn. Hann vitnaði þar til þess sem Björgólfur Thor Björgólfsson, sem var einn stærsti eig- andi Landsbankans ásamt föður sínum Björgólfi Guð- mundssyni, hefur sagt um að Landsbankinn hefði þurft að reiða fram fyrrnefnda upphæð til þess að færa ábyrgðina á Icesave í breska lögsögu. Íslensk stjórnvöld, þar á meðal Geir H. Haarde, fyrr- verandi forsætisráðherra, hafa sagt að ekkert slíkt tilboð hafi komið inn á borð stjórnvalda. Þrátt fyrir neitun stjórnvalda hefur Björgólfur Thor staðið við frásögn sína og sagt að tilboðið hafi vissulega borist. Ekki liggur ljóst fyrir enn hversu háa upphæð íslenska ríkið mun þurfa að ábyrgjast vegna ábyrgðar á lág- marksvernd innstæðna á Icesave-reikningunum. Skila- nefnd Landsbankans, þar sem Lárus Finnbogason er formaður, hefur gefið frá sér að reiknað sé með því að 72 milljarðar muni að lokum lenda á íslenska ríkinu. Mikil óvissa ríkir um málið enn en samninganefndir íslenskra og breskra stjórnvalda vinna nú að lausn málsins. Ræddu um Icesave-gögn  Trúnaðargögn um Icesave-deiluna voru rædd á fundi utan- ríkismálanefndar Alþingis  Athyglisvert segja þingmenn Kristinn H. Gunnarsson KRISTJÁN Gunnarsson, for- maður Starfs- greinasambands- ins og Verkalýðs- og sjómanna- félags Keflavík- ur, segir það fá- ránlegt að ætlast til að hann segi af sér for- mennsku í síð- arnefnda félaginu þó aðalfundur þess hafi samþykkt að láta gera skoðanakönnun meðal félagsmanna um áframhaldandi aðild að Starfs- greinasambandinu. Sú krafa hefur komið fram af hálfu Vilhjálms Birg- issonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness. Kristján sagði að málið snerist um skipulagsmál verkalýðshreyf- ingarinnar en verið væri að ræða þau innan félagsins og raunar víð- ar. Hann benti á að önnur lands- sambönd verkalýðsfélaga væru ekki í sömu stöðu og ætlunin var þegar til þeirra var stofnað. Lands- samband verslunarmanna innihéldi eitt stórt félag en önnur mun minni. Nokkur þúsund félagsmenn hefðu horfið úr Samiðn þegar járniðn- aðarmenn hættu aðild. Kristján sagði að menn yrðu að ræða hvort landssamtök væru nauðsynleg. „Ef við finnum verkefnunum farveg á annan hátt þá breytast þessir tímar eins og aðrir.“ runarp@mbl.is Ræða framtíð lands- sambanda Kristján Gunnarsson VINSTRI hreyfingin – grænt fram- boð hefur kært Vefþjóðviljann til siðanefndar Sambands íslenskra auglýsingastofa fyrir auglýsingar sem vefritið birti í Fréttablaðinu 22. apríl. Í auglýsingunni var birt mynd af Steingrími J. Sigfússyni, án hans leyfis en VG telur að aug- lýsingin brjóti gegn 8. grein siða- reglnanna sem kveður á um að í auglýsingum skuli ekki sýna eða minnast á einstaklinga nema áður hafi fengist heimild. Ungliðahreyfing VG hefur gert barmmerki með myndum af Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæð- isflokksins og Höskuldi Þórhalls- syni, þingmanni Framsóknar- flokksins. Drífa Snædal, fram- kvæmdastýra VG, sagði að barm- merki væru ekki auglýsing og féllu væntanlega ekki undir siðareglur SÍA. Barmmerkin væru ekki birt sem auglýsing og þau væru á ábyrgð ungliðahreyfingarinnar. Kæra auglýs- ingu en búa til barmmerki ÞEGAR grindverkið á horni Austurstrætis og Lækjargötu fauk í hvassvirði á dögunum tóku menn eftir því að húsið Lækjargata 2 var horfið af grunni sínum. Að sögn Þorsteins Bergssonar hjá Minjavernd, var húsið tekið niður spýtu fyrir spýtu. Jafn- framt var húsið mælt upp nákvæmlega og teikn- að upp. Allar heillegar fjalir, nothæfar klæðn- ingar, gólfborð og grind var merkt. Timbrið var síðan sett í þurrk og í framhaldi af því í einangr- aða gáma og er geymt þannig í dag að lang- mestu leyti. Einstakir hlutar úr grindinni voru teknir niður í heilu lagi, en þeir hlutar eru svo stórir að þeir fara ekki inn í gáma. Þessu öllu er vel haldið til haga og betur en dæmi eru til áður. Sökkulhleðslur eru einnig geymdar þótt þær verði ekki notaðar aftur, því húsið verður reist að nýju á steyptum kjallara. Sökkulhleðslur und- ir Austurstræti 22 eru einnig varðveittar og er ætlunin að hlaða það hús á gömlu hleðslunum eins og hægt er. Ekkert annað er eftir af Austur- stræti 22 sem nothæft er. Að sögn Þorsteins standa nú yfir verðkann- anir á timbri og stáli, sem rekið verður niður meðfram lóðarmörkum. Hann segir að vonir standi til að hægt verði að koma stálþilinu niður í endaðan maí. Að því búnu verður girðing utan um svæðið endurnýjuð og settar á hana myndir af því sem rísa skal ásamt sögulegum upplýs- ingum. Reyna á að ljúka því verki fyrir 17. júní. Miðborgin fær svo að vera í friði yfir hásumarið, en eftir menningarnótt í ágúst verður byrjað að grafa fyrir grunnum húsanna. sisi@mbl.is Vonir standa til að uppbygging við Lækjartorg hefjist síðsumars Húsið Lækjargata 2 er geymt í gámum Morgunblaðið/RAX GANGSTÉTTARHELLU var hent inn um einn steinda gluggann á Ak- ureyrarkirkju um síðustu helgi. Tjónið er töluvert og lagfæringar kosta mikla vinnu og tíma. Glerið þarf að sérsníða og það er síðan útbúið í Englandi. Óvenju mikið hefur verið um skemmdarverk á kirkjunni frá því í desember síðastliðnum; krotað á að- aldyrnar með tússpenna í tvígang, rist í hurðina með hníf og bjórflösku kastað inn um glugga í uppganginum í turninn, svo dæmi séu nefnd. Segja má að steininn hafi tekið úr um síðustu helgi; einhver lagði á sig að kroppa upp litla hellu á bílastæð- inu við kirkjuna og þeytti steininum gegnum gluggann og inn í miðja kirkju, þar sem hann lenti á bekk. Steindur gluggi brotinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.