Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 54
þangað til fólkið birtist og hann opn- aði fyrir því ríki sitt. Ríki Haralds var aðeins að hluta til af þessum heimi eins og kom í ljós þegar hann ók gestum um Nýja Ísland eða Skagafjörð – sem hann lagði undir sögur sínar. Ríki Haralds var sagna- heimur þar sem samferðamenn hans voru leiddir fram og skipað til sætis á þeim Glæsivöllum sem glóðu í kringum Harald hvar sem hann fór. Í meðförum hans rúmaði Skaga- fjörður allar víddir mannlegrar til- veru innan um goðmögn úr eddu. Veröld Vesturíslendinga varð vett- vangur hugarflugs með himinskaut- um – og þurfti þá ekki endilega að fara lengra en að stofuborði með kaffibolla og pönnsur á diski. Sundferð á Akureyri að morgni dags kveikti litríkar mannlýsingar á laugargestum, útúrdúra um ættir, uppruna og þau ótrúlegu afrek sem þeir höfðu unnið um sína daga. Kaffihitunin á eftir varð leikandi samspil við vélar og takka, kötturinn Keli mátti sitja undir upprifjun á aðdáunarverðri athygli sinni þegar kunnuglegur ræðumaður ávarpaði Akureyringa á sjómannadaginn svo Keli gerði sér ferð að hlusta, og utan um hafragrautinn varð til lítil helgi- stund um Bjössa bomm og þá heilsu- samlegu uppskrift sem hann hafði þróað af læknisfræðilegum myndug- leik – uns uppvaskið tók við og gaf tilefni til djúphygli um hlutverk þess fyrir hjónabandið. Allt þetta fyrir klukkan 8 og áður en hinar eiginlegu sögur hófust. Haraldur tók öllum opnum örm- um og fordómalaust, fann snilldina í hverjum og einum, hlustaði vel, las mikið og hratt og hafði gríðarlegan áhuga á fólki. Þá skipti ekki máli á hvaða tilverustigi það var því graf- skriftir voru honum mikilvægur hlekkur í þeim allsherjartengingum mannlífs og goðheima að fornu og nýju sem hann fágaði í list sinni. Fræðistörf Haralds urðu þáttur af þessari heimssýn með áherslu á Völuspá þar sem allt rann saman, menn og guðir andspænis örlögum sínum. Honum auðnaðist að ná utan um hinn munnlega sagnaheim sinn í tveimur meistarabókum, Bréfum til Brands og Dagstund á Fort Garry, frumlegustu og óvenjulegustu verk- um íslenskra bókmennta hin síðari ár. Haraldur var sérlega örlátur og gjafmildur á sjálfan sig, bæði í inni- legri vináttu við fjölmarga einstak- linga en ekki síður í þágu þess sam- félags sem hann var hluti af hverju sinni. Í fræðunum, í Winnipeg, á Ak- ureyri og í Reykjavík, alls staðar markaði hann djúp spor með nær- veru, höfðingsskap og forystu. Hann átti mest allra þátt í mótun þeirrar sterku sjálfsmyndar Vesturíslend- inga sem sér hvarvetna stað og hann var stórtækur drifkraftur á upphafs- árum Háskólans á Akureyri. Slíkan mann kveðjum við öll með miklum trega en gleðjumst jafnframt yfir þeim fögnuði á Ódáinsvöllum sem hann gengur nú á vit. Fjölskyldu Haralds votta ég mína dýpstu sam- úð. Gísli Sigurðsson. Við kynntust honum strax, ís- lenskir stúdentar sem komu til náms við háskólann í Manitoba þar sem Haraldur starfaði sem forstöðumað- ur íslenskudeildarinnar. Ég hygg að hann hafi verið nákunnugur flestum íslenskum námsmönnum sem þar dvöldu á þeim tíma. Á árunum 1973-1977 var lítill og mjög samheldinn hópur Íslendinga við nám í Winnipeg og eins og jafnan gerist meðal stúdenta erlendis, gengum við hvert öðru í fjölskyldu- stað á meðan á dvölinni stóð. Har- aldur var hluti af þeirri fjölskyldu og færði okkur í rauninni nýja vídd í námi okkar og lífsreynslu. Hann um- gekkst okkur ævinlega sem jafn- ingja þrátt fyrir töluverðan aldurs- og lífreynslumun þannig að kyn- slóðabil var ekki til í þessum sam- skiptum. Haraldur kynnti okkur vesturíslenska menningu og sam- félag Vestur-Íslendinga í Manitoba, fór með okkur í heimsóknir til fólks- ins sem hafði íslensku og íslenskan menningararf í heiðri þrátt fyrir að hafa aldrei til Íslands komið. Þetta var merkileg reynsla fyrir tvítugan ungling frá Íslandi sem vissi fátt um þennan kafla Íslandssögunnar. Har- aldur þekkti þetta samfélag betur en flestir aðrir og kunni betur skil á því bæði sem fræðimaður og áhugamað- ur um fólkið sem hann kunni sögur af og sagði frá en nokkur annar. Haraldur var fjölhæfur fræðimað- ur og aðrir munu gera fræði- mennsku hans, kennslu og ritstörf- um betri skil. Sá Haraldur sem ég kynntist best sjálf var samt sveita- maðurinn sem átti rætur í Skaga- firði og þreyttist aldrei á að segja frá ágæti þess héraðs. Við áttum sveita- mennskuna sameiginlega og skipti engu þó ég kæmi af Suðurlandi og þekkti lítið til í Skagafirði. Hann var persónulegur vinur og aðstoðaði við að leysa vandamál sem hent gátu auralitla stúdenta á tímum naumt skammtaðra námslána. Undirritaðri útvegaði hann sumarvinnu við að snara íslenskum heimildum frá Nýja-Íslandi yfir á ensku, fyrir sagnfræðinema sem voru að rann- saka sögu Íslendinga í Kanada. Þetta varð til þess að ég lærði margt um upphafsár íslenska samfélagsins í Manitoba en hrædd er ég um að enskan á þessum þýðingum hafi ekki alltaf verið rismikil. Launin nægðu til viðurværis um sumarið og gott betur en aldrei vissi ég hvernig stað- ið var að þessari ráðningu þar sem ekkert var atvinnuleyfið. Haraldur kom aftur til hjálpar þegar námslán brugðust – það bráðvantaði aðstoð- arkennara í íslensku fyrir byrjend- ur. Alltaf var eins og ég hefði gert honum greiða með því að taka að mér þessi verk þó í rauninni væri það þveröfugt. Að loknu námi skildi leiðir og sambandið við Harald var stopulla eftir það en hvorugt okkar var nokkurn tíma í vafa um vinskap- inn sem stóð á gömlum merg. Við áttum skemmtileg símtöl stöku sinn- um á Akureyrarárunum og það var alltaf jafn gaman og alltaf eins og við hefðum síðast talast við í gær. Ég verð forsjóninni ævinlega þakklát fyrir að hafa kynnst Haraldi og átt hann að vini. Margréti eiginkonu Haralds og börnum þeirra sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minn- ingu Haralds Bessasonar. Emma Eyþórsdóttir. Það var á miðjum sjöunda áratug síðustu aldar að undirritaður hafði dvalið nokkra mánuði á sléttum Manitobafylkis í Kanada, nánar til- tekið í Íslendingaborginni Winni- peg. Þá hafði ég samband við blaðið Lögberg-Heimskringlu. Ingibjörg Jónsson ritstjóri varð fyrir svörum. Ég spurði á ensku hvort hún væri mælandi á íslenska tungu og ekki stóð á svarinu: „Skammastu þín Haraldur.“ Misskilningurinn leið- réttist fljótt og ég var boðinn vel- kominn til Winnipeg, en forvitni mín var vakin að kynnast þessum Har- aldi. Ekki var erfitt að finna hann í símaskrá. Þrátt fyrir marga Sig- urðssyni, Jónssyni og Guðmunds- syni í Winnipeg var aðeins einn Bessason. Eitt símtal varð að kynn- um og langri vináttu. Daginn eftir hitti ég Harald, Ásu konu hans og dæturnar þrjár sem bjuggu í St. Vi- tal-hverfinu í Winnipeg. Á þeirra heimili var alltaf indælt að koma og hverfa um stundarsakir inn í ís- lenska veröld. Ása var mikil sóma- kona sem var það eðlislægt að láta gesti finna sig velkomna. Það gæti glatt margan Vesturbæinginn í Reykjavík að þessi kona svo indæl sem hún var, búandi þúsundir mílna frá Íslandi, gaf engan afslátt af því að ekkert félag jafnaðist á við KR. Fræðimaðurinn Haraldur: Enginn sem til þekkir efast um að á árum sínum í Winnipeg var Har- aldur sannkallaður útvörður ís- lenskrar tungu vestan hafs. Hann leiddi um áratugi íslenskudeild Ma- nitobaháskóla og kenndi þúsundum að meta íslenska tungu, sögu og menningu. Hann var þessi ár tengi- liður nýja og gamla heimsins og lagði mikið af mörkum við að efla tengsl við Vestur-Íslendinga. Grallarinn Haraldur: Allir sem þekktu Harald vissu að kímnigáfu átti hann í ríkum mæli. Ég veit hann fyrirgefur mér að láta eina sögu flakka sem skemmt hefur mörgum. Ungur maður hafði komið til Manitoba, fremur ófleygur í enskri tungu en lagði stund á hár- greiðslu. Hann átti að þreyta munn- legt próf í greininni en treysti sér illa til þess sökum slakrar ensku- kunnáttu. Þeir félagar voru báðir Skagfirðingar. Haraldur tók sig til og lærði allan textann og bauðst til að vera túlkur við próftökuna. Hann sagði sveitunga sínum að hafa engar áhyggjur. Túlkurinn skyldi svara öllum spurningunum og síðan skyldu þeir spjalla um hrossin heima í Skagafirði og láta prófdómarann halda að hann væri að svara spurn- ingunum á íslensku. Þetta tókst með prýði og Haraldur var því í raun með próf í hárgreiðslu þótt aldrei væri það viðurkennt! Brautryðjandinn Haraldur: Árið 1987 var Haraldur skipaður fyrsti rektor nýs háskóla á Akur- eyri. Menn hafa líklega ekki hugleitt að með starfi sínu á Akureyri var hann að leggja nýjar brautir og varða veginn til framtíðar. Háskóla- nám á Íslandi var í fyrsta skipti komið út fyrir múra höfuðborgar- innar. Bóndasonurinn frá Kýrholti lyfti menntun á Íslandi til nýrra hæða. Ég þakka dýrðlegar stundir vest- an hafs með honum og fjölskyldu hans. Guð blessi minningu Haraldar Bessasonar. Hann var drengur góð- ur. Ólafur Bjarni Halldórsson, Ísafirði. Í leikhúsi 19. aldar og vel fram á þá tuttugustu tíðkaðist að stærstu stjörnurnar færu með stærstu rull- urnar. Þar sem stjörnustaða er óháð aldri (eða var það allavega í þann tíð) bauð þetta fyrirkomulag upp á Hamleta sem hefðu getað verið feð- ur Geirþrúðar, og Rómeó og Júlíu sem töluvert ímyndunarafl hefur þurft til að trúa að væru að kynnast ástinni í fyrsta sinn. En ímyndunar- afl áhorfenda er nú reyndar mótor- inn sem knýr leiklistina áfram þann- ig að þetta gekk bara ágætlega. Það sama má segja um þann við- burð þegar Haraldur Bessason tók að sér að leika unga elskhugann í fyrstu uppfærslu leikfélagsins Hug- leiks árið 1984, á fimmtugasta og þriðja afmælisdeginum sínum. Verkið var Bónorðsförin, gamall baðstofuleikur eftir Magnús Gríms- son. Og Haraldur bar af. Enda stjarna. Þó að Haraldur hafi lítið tekið þátt í starfi félagsins eftir þennan leik- sigur eru áhrif hans mikil og góð. Við viljum allavega vona að við höf- um tileinkað okkur þó ekki sé nema brot af ómótstæðilegri kímni hans, hæfileikum til að skoða hluti frá óvæntum vinkli, og ástríðu fyrir því sem best er og skemmtilegast í menningu okkar og sögu. Fyrir það þakka Hugleikarar, um leið og við vottum Margréti og allri fjölskyldu Haraldar samúð okkar. F.h. Leikfélagsins Hugleiks, Þorgeir Tryggvason. Skarð er fyrir skildi, nú þegar Haraldur Bessason er dáinn. Ég varð mér fyrst mjög meðvitaður um Harald, er hann skrifaði grein um ís- lenskunotkun Vestur-Íslendinga í tímarit mömmu: Amalíu Líndal, er nefndist 65 degrees, og sem hún gaf út frá Kópavogi kringum 1969. Síðar kynntist ég honum í framhaldsnámi mínu í mannfræði, í Winnipeg, á ár- unum 1978-1980, en þá var ég við nám í Manitóba-háskóla, þar sem hann var kennari. Ekki bara lágu leiðir okkar nemendanna frá Íslandi og hans saman í skólanum, heldur einnig í Íslendingafélögunum. Þá sat hann og í nefnd um rannsóknarsam- anburð á Íslendingum og Vestur-Ís- lendingum, ásamt mér sem áheyrn- arfulltrúa, og vestur-íslensku prófessorunum John S. Matthiasson og Alberti Kristjanssyni, og Jens Pálssyni. Eru þeir nú allir horfnir. Mamma var þá sest að í Kanada, og hafði þar kynnst fyrri konu Harald- ar, og skrifað í blaðið sem hann var ritstjóri að þar, Lögberg-Heims- kringlu. Þegar Haraldur var fluttur heim til Íslands, þótti mér við hæfi að senda honum eintak af fyrstu ljóða- bókinni minni, Næturverðinum (1989), enda var hann þá að kenna við HA ásamt skólafélögum mínum frá MA forðum daga. Svo þegar ég stofnaði Vináttufélag Íslands og Kanada, 1995, þótti okkur óhugs- andi að bjóða honum ekki að verða í heiðurssæti á stjórnarlista okkar, enda var hann þá orðinn frægasti Vestur-Íslendingurinn. Hann átti svo eftir að halda erindi hjá okkur um Vilhjálm Stefánsson landkönnuð og kynni þeirra. Á síðustu árum heyrði ég oft lesið upp úr listilega hnyttnum minningum hans í útvarp- inu. Síðari kona hans hafði og þýtt á íslensku skáldsögu eftir hinn kanad- íska stórrithöfund, Margaret Atwo- od. Síðast hitti ég þau hjónin á förn- um vegi í Reykjavík, og þáði hann þá af mér tíundu ljóðabók mína, A poet of Iceland (2007), af því hann fýsti að sjá hversu mér hafði tekist að þýða eigin ljóð á ensku. Einnig baðst hann þá undan að vera lengur í stjórn VÍK, enda nú orðinn óvirkur félagi, verandi búsettur í Kanada. Við Haraldur höfðum báðir gam- an af stórkarlalegum goðsögnum af torkennilegra taginu. Þykir mér því við hæfi að kveðja hann með kvæði úr elleftu ljóðabók minni: Kvæða- ljóðum og sögum (2008), er fjallar um gríska goðsögu, og nefnist: Af- kvæmi sunnanblæsins: „Nú skal nefna kappann Zephyros þann er sunnanvindi blæs á oss: Vindur mun hann vera, gat þó hross við mannfyglinu Hörpu, er gaf hann koss. Hestar þessir mæltir voru vel, drógu vagninn Akkils, heilla-skel. Forspáir, þótt eigi mættu feigð Akkils forða undan lævíss hneigð.“ (Höf. T.V.L.) Tryggvi V. Líndal Þá er Haraldur frændi horfinn okkur yfir móðuna miklu. Ég ætla hér aðeins að skrifa fátæklegar línur í minningu föðurbróður míns. Miklir hæfileikar, góðmennska og kímni einkenndu hann þannig að margs er að minnast. Undanfarið höfum við skipst á tölvupóstum og alltaf var hann glaður og hress. Síð- asta bréf hans var svo fullt af húmor að ég og móðir mín hlógum lengi eft- ir lestur þess. Það er notaleg síðasta kveðja. Þegar ég var á barnsaldri var hann stóri frændi í Vesturheimi sem kom öðru hverju í heimsókn. Faðir minn heitinn og hann höfðu mikil samskipti með bréfum, pistlum og bókum sem þeir sendu hvor öðrum. Elsta dóttir hans, Steinunn, er jafn- gömul mér og kom hér oft á ung- lingsárum sínum í heimsókn á sumr- in. Við fórum hefðbundnar ferðir í Mývatnssveitina og Eydals-fjöl- skyldan dvaldi saman í Bjarkarlundi í Vaglaskógi. Áttum við góða tíma saman. Enn höfum við Steina bréfa- og tölvusamskipti. Árið 1975 fórum við, ég og foreldrar mínir, í stóra ferð til Kanada og í þeirri ferð heimsóttum við Harald frænda. Hann og þáver- andi kona hans, Ása, tóku á móti okkur eins og höfðingjar værum. Slíkur var velgjörningurinn að gengið var úr rúmum fyrir okkur og dekrað á alla lund. Það var dýrðlegt að hitta þau og á heimili þeirra hjóna hittum við marga þjóðkunna fræði- menn sem gaman var að kynnast. Þetta var mikið ævintýri og ógleym- anlegt. Eftir að Haraldur tók við rektors- stöðu Háskólans á Akureyri urðu samskipti við hann meiri. Áttum við afar ánægjulegar stundir með hon- um, Margréti konu hans og dóttur þeirra Sigrúnu Stellu. Ég vil hér með þakka Haraldi frænda fyrir gefandi og skemmtileg kynni. Ég og móðir mín, Þyri Eydal, sendum Margréti og Sigrúnu Stellu, Steinunni, Elínborgu, Kristínu og fjölskyldum þeirra innilegar samúð- arkveðjur. Þyri Guðbjörg Björnsdóttir. Haraldur Bessason 54 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009 ✝ Elskulegur bróðir okkar og frændi, BALDUR JÓNSSON frá Fjósatungu, búsettur á Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 16. apríl. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 28. apríl kl. 13.30. Systkini hins látna og fjölskyldur. ✝ SIGURÐUR EGILL ERLINGSSON er látinn. Erling Sigurðsson. ✝ Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, MARGRÉT HERDÍS THORODDSEN, Sólheimum 25, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt sumardagsins fyrsta, 23. apríl. María Louisa Einarsdóttir, Hannes Sveinbjörnsson, Egill Þórir Einarsson, Hlaðgerður Bjartmarsdóttir, Þórunn Sigríður Einarsdóttir, Halldór Árnason, Sigurður Thoroddsen Einarsson, Jórunn Erla Sigurjónsdóttir, Margrét Herdís Einarsdóttir, barnabörn, makar þeirra og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.