Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 26
26 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009 Þetta helst ... ● NÝHERJI var rek- inn með tæplega þriggja milljóna króna hagnaði á fyrstu þremur mán- uðum þessa árs. Þetta er viðsnún- ingur frá fyrra ári en á sama tímabili árið 2008 var tapið 209 milljónir króna. Þórður Sverrisson, forstjóri Ný- herja, segir í tilkynningu félagsins að efnahagsaðstæður og rekstrarumhverfi fyrirtækja hér á landi sé með þeim hætti, að óviðráðanlegt sé að reka fyr- irtæki með viðunandi árangri. Vísar hann meðal annars til gengismála, vaxta, starfsemi banka og fleiri þátta. Lífsspursmál sé fyrir atvinnulífið og heimilin, að Alþingi auðnist strax að loknum kosningum, að móta skýra stefnu í peningamálum. gretar@mbl.is Þriggja milljóna króna hagnaður hjá Nýherja verða settar inn í nýju bankana reyn- ast lægri en upphaflega var ætlað mun það einnig verða til þess að end- urfjármögnun þeirra verður ríkinu ódýrari. Upphaflega var áætlað að endurfjármögnun bankanna þriggja myndi kosta ríkið um 385 milljarða króna en ef þær tölur sem Sigmundur hefur talað um eru réttar mun hún verða nær 200 milljörðum króna. FME ætlaði að kynna hluta af skýrslu Olivers Wymans í síðustu viku. Hætt var við það og nú verður hún ekki kynnt fyrr en viðræðum milli kröfuhafa og ríkisins um skipt- ingu eigna gömlu bankanna lýkur. Stjórnvöld stefna á að þeim verði lok- ið fyrir 18. maí næstkomandi. Afskrifa 75 prósent af fyrirtækjalánum Myndi þýða að ríkið þyrfti að leggja minna fé til bankanna Morgunblaðið/Kristinn Hræðist hrun Sigmundur Davíð stendur fast við sitt þrátt fyrir að fjármála- og viðskiptaráðherra hafi hafnað hrakspám hans um annað hrun. Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is ÁÆTLANIR gera ráð fyrir að hátt í 75 prósent af lánum gömlu viðskipta- bankanna til íslenskra rekstrarfyrir- tækja verði afskrifuð. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins kemur þetta fram í minnisblaði Olivers Wymans um eignir og skuldir Nýja Landsbankans (NBI), Íslandsbanka og Nýja Kaupþings. Samhæfðu end- urmati fyrirtækisins var skilað til Fjármálaeftirlitsins (FME) fyrr í þessari viku. Endurfjármögnun ódýrari Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hef- ur minnisblaðið undir höndum. Hann segir að áætluð innheimta nýju bank- anna verði um 2.000 milljarðar króna, sem er um þúsund milljörðum króna minna en áður hafði verið áætlað. Þær upplýsingar sýni að staða ís- lenskra fyrirtækja sé í raun mun verri en haldið hafi verið fram. Bæði við- skipta- og fjármálaráðherra hafa vís- að þessu á bug. Sigmundur stendur þó við sitt. „Þar kemur fram að skuld- ir eignarhaldsfélaganna verði að mestu leyti eftir í gömlu bönkunum. Þess vegna fannst mér þetta áhyggjuefni vegna þess að afskrift- irnar eru þá miklu meiri hjá hefð- bundnum rekstrarfélögum. Þessar tölur um stærðargráðu væntanlegra útlánatapa þykir mér benda til þess að staða fyrirtækjanna sé það slæm að hrun sé raunveruleg hætta. Það er þó svigrúm til að bregðast við með því að láta þessar miklu afskriftir að ein- hverju leyti ganga áfram til þeirra sem skulda áður en þeir fara í þrot.“ Ef þær skuldir fyrirtækja sem Í HNOTSKURN »Gylfi Magnússon segir töl-urnar sem Sigmundur byggir mat sitt á vera á mis- skilningi byggðar. »FME sendi í gær frá sérlýsingu á verðmatsferli eigna og skulda nýju bank- anna. FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is NÝI Landsbankinn (NBI), Nýja Kaupþing og Íslandsbanki, sem allir eru í ríkiseigu, keyptu skuldabréf úr peningamarkaðssjóðum sínum á miklu yfirverði í lok síðasta árs. Það gerði bönkunum kleift að greiða þeim sem áttu hlutdeildarskírteini í sjóðunum 69-86% af öllum eignum þeirra til baka. Nú er hins vegar orð- ið ljóst að þorri þeirra fyrirtækja sem gáfu út skuldabréf sem keypt voru inn í peningamarkaðssjóði ís- lenskra fjármálafyrirtækja eru í gjaldþrotaskiptum, í greiðslustöðvun eða eiga við alvarlega rekstrarerf- iðleika að etja. Því munu ríkisbank- arnir þrír ekki innheimta í samræmi við það sem þeir greiddu. Allir bank- arnir héldu því þó fram á sínum tíma að uppkaupin hefðu verið fram- kvæmd á viðskiptalegum forsendum. 55 prósenta niðurfærsla Þessu til stuðnings er hægt að benda á að Íslensk verðbréf (ÍV), sem ráku peningamarkaðssjóð sem hefur ekki verið slitið, framkvæmdu varúðarniðurfærslu á eignum sjóðs- ins um síðustu mánaðamót. Í sjóðn- um eru skuldabréf frá útgefendum sem voru áberandi í sjóðum rík- isbanka. Niðurfærslan, 55% af eign- um sjóðsins í dag, var aukin vegna stöðu Baugs, FL Group/Stoða, Landic Property og Eimskips. Þegar peningamarkaðssjóði Landsbankans var slitið í desember námu eignir hans 102,7 milljörðum króna. Sjóðurinn greiddi sjóðs- félögum um 69% af eignum sínum til baka. Um 60% af sjóðnum voru skuldabréf og innlán hjá Kaupþingi, Landsbankanum og Straumi. Allir ofangreindir bankar hafa verið yf- irteknir af Fjármálaeftirlitinu (FME). Um 40% af sjóðnum voru síðan bundin í fyrirtækjaskuldabréf- um. Stærstu útgefendurnir, Baugur, Samson, Eimskip, Atorka og FL Group/Stoðir, eru allir annaðhvort í þroti eða glíma við rekstrarerf- iðleika. Af öllum útgefendum bréfa sem var að finna í sjóði bankans þá virðist eina fyrirtækið sem ætli að standa af sér yfirstandandi efna- hagsþrengingar vera Marel, en skuldabréf fyrirtækisins námu 1,1% af sjóðnum. Íslandsbanki keypti út bréf úr peningamarkaðssjóði sínum, Sjóði 9, á 70% af markaðsvirði, eða þrettán milljarða króna. Þá var þegar búið að fjarlægja öll skuldabréf útgefin af bankanum og Stoðum/FL Group. Í byrjun apríl staðfesti Sigrún Ragna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri fjár- málasviðs bankans, að virði bréfanna hefði þegar verið tekið niður. Hún vildi hins vegar ekki segja hversu mikið. Glitnir greiddi 85% út úr sjóðnum þegar honum var slitið. Samkvæmt uppgjöri sjóðsins frá miðju ári 2008 voru bréf í Straumi, Exista, Atorku og Baugi fyrirferð- armikil í honum. Í sjóði Kaupþings voru rúmir 36 milljarðar króna þegar honum var slitið. Um 2/3 hlutar sjóðsins voru innlán en um þriðj- ungur var í skuldabréfum. Kaupþing greiddi um 57% af markaðsvirði skuldabréfa í sjóðnum fyrir þau. Fengu ekki fyrirgreiðslu SPRON, MP banki, Byr og ÍV ráku öll peningamarkaðssjóði en nutu ekki sömu fyrirgreiðslu um uppkaup bréfa og bankarnir sem rík- ið tók yfir. Þau hafa nú í sameiningu kært íslenska ríkið fyrir að neita að kaupa út bréf þeirra á sama verði og úr ríkisbönkunum til Eftirlitsstofn- unar EFTA (ESA). SPRON keypti á sínum tíma út öll bréf úr sjóði sínum og greiddi sjóðsfélögum 85,5%. Tæp 72% sjóðsins samanstóðu af bréfum fyrirtækja sem eru annaðhvort í þroti eða í alvarlegum rekstrarerf- iðleikum. Útgefendur bréfa flestir í þroti  Ríkisbankarnir keyptu skuldabréf úr peningamarkaðssjóðum á yfirverði  Útgefendur flestir í þroti eða alvarlegum erfiðleikum  Kaupin kærð til ESA  " ("   )*           '() *   %#     !   + , % * (  -  %#, + " " -.  /   - (                                     Einstaklingar sem áttu verð- laus hlutabréf í bönkunum um síðustu áramót geta ekki fært tapið á móti söluhagnaði hlutabréfa í skattframtali. Pétur Blön- dal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í efnahags- og skattanefnd Alþing- is, segir málið hafa verið rætt í nefndinni. Hann segir einnig dæmi um að fólk, sem erfði bréf í bönkunum á síðasta ári, hafi þurft að greiða af þeim erfða- skatt. Er þá miðað við verðmæti bréfanna á dánardegi eigandans. Hafi fólk fengið bréfin í arf í september þurfi að greiða af þeim erfðaskatt þótt þau voru verðlaus í lok árs. Í raun er ekki hægt að líta á hlutabréfaeign í bönkunum, þrátt fyrir að eignin sé verðlaus í dag, sem raunverulegt tap. Það hefði einungis verið hægt ef bréfin voru seld með tapi, til dæmis fyr- ir eina krónu, rétt áður en bank- arnir féllu og viðskipti með bréfin voru stöðvuð. „Það koma upp alls konar vandamál núna vegna þess að bankarnir eru ekki gjaldþrota,“ segir Pétur. Það sé í raun ekki búið að raungera tapið. Þetta sé eitthvað sem þurfi að leysa og verði að öllum líkindum skoðað þegar þing kemur aftur saman. Skúli Eggert Þórðarson ríkis- skattstjóri segir mikið spurt um hvernig telja eigi bankabréfin fram. bjorgvin@mbl.is Telja fram verðlaus bankabréf Pétur Blöndal 456 456 0 11 2345 246   456 6 3575 77 245 240   78  9 3 : 610 30 2345 240   ;"< 6 7350 7017 2847 284   4560. 4561% 071 0 $4 2348   ● TÓLF mánaða verðbólga lækkar úr 15,2% í mars í 11,7% í apríl, ef spá Greiningar Íslandsbanka gengur eftir, en deildin spáir því að vísitala neyslu- verðs í apríl hækki um 0,3% frá fyrra mánuði. Hagstofan mun birta mælingu á vísitölunni næstkomandi miðvikudag. Í Morgunkorni Greiningar Íslands- banka segir að deildin spái því að verð- bólgan hjaðni hratt á næstunni. Hún verði komin undir 10% um mitt þetta ár og undir verðbólgumarkmið Seðla- bankans, sem er 2,5% verðbólga, í byrjun næsta árs. Þá segir í vefritinu að að frátöldum áhrifum af gengislækkun krónunnar sé nánast enginn verðbólgu- þrýstingur í hagkerfinu. grear@mbl.is Spá hraðri hjöðnun verðbólgunnar „ÞETTA er í samræmi við ákvörð- un ríkisskattstjóra að leggja áherslu á aukið eftirlit. Það end- urspeglar niðurstöðu samráðshóps fjármálaráðuneytisins, skattrann- sóknarstjóra og skattstjóra að leggja áherslu á eftirlit í tengslum við hrun bankanna og í aðdraganda þess,“ segir Skúli Eggert Þórð- arson ríkisskattstjóri. Í Morgunblaðinu í fyrradag aug- lýsir embættið eftir starfsmanni í eftirlitsdeild. Það sé í samræmi við aukna áherslu ríkisskattstjóra á skatteftirlit. „Í viðræðum fjármálaráðuneyt- isins við skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra hefur komið fram að afar brýnt sé að hraða rannsókn hugsanlegra skattalagabrota í tengslum við fall bankanna og í starfsemi þeirra í aðdraganda falls- ins hvort sem er hjá eigendum, stjórnendum eða starfsmönnum bankanna og félaga sem þeim tengjast,“ segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Því verður skipaður starfshópur sérfræðinga þessara stofnana og annarra stofnana skattkerfisins til að vinna sérstaklega að þessum verkefnum. bjorgvin@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Skattsjóri Skúli Eggert Þórðarson. Meira lagt í skatteftirlit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.