Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009 Í KOSNINGUNUM nú gefst fágætt tæki- færi í íslenskri stjórn- málasögu. Því nú er lag til að kjósa til lang- frama ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Og það tækifæri ættum við ekki að láta ónotað. Í 80-90 ár hafa þess- ir tveir flokkar ráðskast með stjórn landsins eins og hún sé þeirra eigin leggur og skel. Og núna, þegar við lítum í kringum okkur, sjáum við að það er nóg komið. Í 80-90 ár hafa þeir talið okkur trú um að festa og stöðugleiki séu ómöguleg í samfélaginu án þeirra. Heyr á endemi! Allan þennan tíma hafa festa og stöðugleiki verið víðs- fjarri íslensku samfélagi. Dýfur og svokölluð góðæri hafa skipst á, og endað nú með hinu algjöra hruni. Þetta er ekki náttúrulögmál. Þetta er afleiðing sjálfumglaðrar og græðgisfullrar stjórnar þessara tveggja flokka. Þetta er afleiðing þess að við höf- um leyft Skugga-Sveini Sjálfstæð- isflokksins og hans Katli skræk í líki Framsóknarflokksins að vaða á skít- ugum skónum yfir samfélagið. Ísland sem markaðstorg Þessir tveir flokkar hafa gert Ís- land að markaðstorgi þar sem sið- ferði og sjálfsvirðing eru til sölu ekki síður en feitt kjet og háar stöður; þeir hafa gegnsýrt samfélagið klíkuskap sínum og spillingu og talið okkur trú um að svona ætti það að vera; þeir hafa nú síðustu tvo áratugina aukið svo stéttaskiptingu og mis- skiptingu þjóðarauðs- ins að þess eru engin dæmi í vestrænu sam- félagi. Frá 1993-2007 juku fáeinar ríkustu fjöl- skyldur landsins hlut sinn í heildartekjum Íslendinga úr fjórum prósentum í tuttugu! Og nú sitjum við eftir í súpunni, og það eina sem við getum gert er að veita þessum flokkum þá ráðningu að þeir gleymi henni aldrei. Ef þeir sleppa tiltölulega vel frá kosningunum nú munu þeir verða fljótir að sleikja sár sín og hugsa sem svo: „Þetta fór nú ekki eins illa og við var búist. Við eigum ennþá hljóm- grunn. Við höfum enn tækifæri til að ná vopnum okkar. Við gætum enn komist í valdastóla – ekki gleyma því að við eigum þrátt fyrir allt enn auð- uga bakhjarla, þótt nú beri lítið á þeim í skuggunum.“ Og þá mun ekki líða á löngu þar til kolkrabbar og smokkfiskar verða aftur farnir að teygja anga sína um allt það nýja samfélag sem við ætl- um nú að reisa úr rústum þess gamla. Þeir verða að bíða En þeir Skugga-Sveinn og Ketill skrækur hafa ekki aðeins lemstrað efnahag landsins og aukið misrétti svo svívirðilega; þeir innleiddu líka samfélag þar sem þöggun og ótti réðu ríkjum. Ég veit að við erum fljót að gleyma, en muniði ástandið fyrir svona 5-8 árum? Gagnrýni á valdhafa var illa séð, enginn mátti amast við þeim hugsunarhætti sem þeir höfðu innleitt í samfélagið. En nú höfum við tækifæri til að verða frjáls. Við höfum verk að vinna, við þurfum að endurreisa heilt samfélag og við skulum fyrir alla muni gera það án þeirra sem lögðu það í rúst. Ég veit að innan bæði Sjálfstæð- isflokksins og Framsóknarflokksins er ágætt fólk sem hefur sitthvað til málanna að leggja – en það fólk verður að bíða. Nú þurfum við að hreinsa til og skúra og skrúbba og bóna, og við þurfum að þola ýmsar þrengingar meðan hreinsunin stend- ur yfir – og við þurfum að reyna að steypa okkur nýjan siðferðisgrunn fyrir samfélagið. Og það gerum við án þeirra. Við getum ekki leyft þeim sem með siðleysi sínu svívirtu okkur að taka þátt í að smíða okkur nýjar siðareglur. Eftir Illuga Jökulsson » Við getum ekki leyft þeim sem með sið- leysi sínu svívirtu okkur að taka þátt í að smíða okkur nýjar siðareglur. Illugi Jökulsson Höfundur er ritstjóri. Burt með þá ENN einu sinni hafa stjórnmálaflokkar okk- ar klikkað á grundvall- aratriði lýðræðisins. Þeim ber að sjá svo um að við getum kosið yfir okkur þá ríkisstjórn, sem við viljum hafa við völd og að við með at- kvæði okkar veitum henni skýrt umboð til að leysa þau stærstu vandamál sem við kjósendum blasa á kjördegi. Þeir klúðruðu þessu. Það er laukrétt, sem Þorsteinn Pálsson sagði í leiðara núna í kosningavik- unni: „Flokkarnir hafa komið því þannig fyrir að fólkið í landinu getur ekki kosið um þetta annað stærsta mál, sem að því snýr.“ Þetta stærsta vandamál er ís- lenska krónan. Hrakvirði hennar brennur nú á skuldsettum íslenskum heimilum, hún er ónýt í alþjóða- viðskiptum og sem gjaldmiðill nýtur hún einskis trausts hvorki heima né erlendis. Þetta hefur verið við- urkennt – með mismikilli tregðu þó – af öllum stjórnmálaflokkum lands- ins. Farið hefur verið yfir sviðið í leit að annarri mynt en evru, sem leyst gæti krónuna af hólmi: bandaríkja- dalur, svissneskur franki, norsk króna! Niðurstaðan er ljós: Ekkert af þessu hentar okkur né dugar. Ein- hliða upptaka evru í beinum og óbeinum fjandskap við Evrópusam- bandið væri að vaða úr ösku krón- unnar í eld alþjóðlegrar einangrunar. Við eigum aðeins tvo kosti. Slá skjaldborg um krónuna eins og við gerðum eftir heimskreppuna miklu 1930, með áratuga gjaldeyrishöftum, verðbólgu og síendurteknum geng- isfellingum – eða taka upp evru. Inntökuskilyrðin í Evrópusam- bandið eru þau að landið komi á stöð- ugleika og jafnvægi. Gengi gjaldmið- ilsins þarf að hafa verið stöðugt um tíma, verðbólga innan ákveðinna marka, fjárlagahalli sömuleiðis, rík- isskuldirnar viðráðanlegt hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu og jafnvægi í viðskiptum við útlönd. Allt eru þetta markmið, sem stjórn- málaflokkarnir hljóta að vera sammála um, hvort sem þeir eru við völd eða ekki. Með að- ildarumsókn yrði þetta yfirlýst stefna okkar og miðaði að því að end- urreisa traust um- heimsins og tiltrú á það fjármálakerfi okkar, sem nú er rjúkandi rúst. Það er kaldhæðn- islegt, en satt, að allan síðari hluta síðasta ára- tugar vorum við eina Evrópulandið, sem uppfyllti öll þessi skilyrði. Það hlýtur að vera okkur kappsmál að ná þeirri stöðu á ný eins fljótt og unnt er. Það hefur margsýnt sig í skoð- anakönnunum að mikill meirihluti þjóðarinnar er sammála því að taka upp evru. Það hlýtur því að vera það markmið sem þjóðin setur sér. Menn hafa meiri fyrirvara á um inngöngu í Evrópusambandið. Allir flokkar vilja þó að þjóðin fái að skera úr um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það verk- efni blasir því við sem forgangsverk- efni næstu ríkisstjórnar að koma málinu sem fyrst í dóm þjóðarinnar. Það ætti að vera vandalítið eftir nær tveggja áratuga umræðu, samningu opinberra skýrslna og fjölda nefnd- arálita á vegum flokka og hagsmuna- samtaka, að ganga frá samnings- markmiðum, sem flestir Íslendingar gætu sætt sig við. Því má ekki draga að senda inn umsókn strax á fyrstu dögum eftir kosningar. Það er í því fólgin ákveðin mót- sögn að verða að notast við krónuna til að ná þeim efnahagslega styrk og jafnvægi, sem er forsenda þess að við getum tekið upp evru og lagt krón- una fyrir róða. Það mundi líka þýða margra ára baráttu og efnahags- þrengingar, áður en inntökuskil- yrðum yrði fullnægt. Benedikt Jó- hannesson hefur sýnt fram á það í sínum greinum að undanförnu, að nú kann að vera til staðar glufa til inn- göngu, sem við gætum notað til að stytta okkur leið: Sem EES-ríki höf- um við þegar tekið upp og lögleitt megnið af því regluverki, sem aðilar að Evrópusambandinu verða að und- irgangast. Vitað er að stækk- unarstjóri sambandsins, Finninn Olli Rehn, er okkur hlynntur, en hann verður í því starfi aðeins út þetta ár. Svíar fara með forræði fyrir sam- bandinu frá 1. júlí til áramóta og eru okkur hlynntir. Yfirlýst er að lokað verði á frekari stækkun eftir inn- göngu Króatíu, sem væntanlega verður gengið frá í haust og að þá muni mörg ár líða þangað til næst verður opnað fyrir aðildarumsóknir. Sendum því inn umsókn strax eftir kosningar og látum á það reyna hvort okkur stendur hraðleið til boða. Sé það svo, stöndum við loksins frammi fyrir raunverulegu vali og af- greiðslu málsins í þjóðaratkvæða- greiðslu. Þá – og þá fyrst – fyrst get- um við af einhverju skynsamlegu viti hafið óhjákvæmileg átök um aðild að Evrópusambandinu – eða ekki aðild. Stjórnmálaflokkarnir hafa klúðrað því að við stæðum frammi fyrir skýru vali um þetta mikilsverðasta mál, sem til okkar kasta hefur komið frá stofnun lýðveldisins. Því verða kjósendur að ráða fram úr þessu og taka af skarið með atkvæði sínu í kosningunum. Núna er ekki rétti tíminn til að sitja heima eða skila auðu. Það er flestum ljóst, að núver- andi stjórnarflokkar þurfa að vera áfram við völd meðan verið er að hreinsa til í rústunum eftir helminga- skiptastjórnir íhalds og framsóknar. Jafnframt verða kjósendur að tryggja að sú stjórn verði á ótvíræðu forræði Samfylkingarinnar, sem helst er treystandi til þess að leggja, án hiks og tafar, upp meðsamnings- markmið og hefja umsóknarferil strax að kosningum loknum. Þá þarf líka að þrýsta á vinstri græna og sjálfstæðismenn að standa við fyr- irheit sín um að vinna að því að koma málinu í þann búning að það megi leggja fyrir þjóðaratkvæði. Um þetta erum við nálega öll sammála og þann þjóðarvilja ber að virða og fram- kvæma. Eftir Ólaf Hannibalsson »Núna er ekki rétti tíminn til að sitja heima eða skila auðu. Ólafur Hannibalsson Höfundur er blaðamaður. Hreinar línur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.