Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 39
39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009 Gott til glóðarinnar Samfylking er umburðarlyndið uppmálað en svo virðist sem frjálslyndir og vinstri græn viti eitthvað sem við hin vitum ekki. Ómar Jens Guð | 23. apríl 2009 Hrikalegt áfall – sólin heldur stöðugt áfram að kólna ...Mannlífið fær einnig vítamínsprautu frá sólinni í bókstaflegri merkingu. Sólin framleiðir nefnilega D-vítamín á húðinni og kemur af stað upp- tökuferli kalks. Þannig styrkir sólin bein, húð, hár og neglur. Sólin lætur heilann sömuleiðis losa boð- efni sem framkalla glaðværð og vellíðan. Þess vegna brosir fólk meira í sól en í beljandi stórhríð og norðangarra. Fólk með hina ýmsu húðsjúkdóma fagnar sól- inni alveg sérstaklega. Sólin hefur svo læknandi eiginleika. Nýjar fréttir um að sólin haldi stöðugt áfram að kólna eru hrikalegt áfall. Ekki aðeins vegna ofantalinna atriða heldur einnig vegna sölu á sólkremum. Á móti kemur að sala á vettlingum og kuldagöll- um tekur að glæðast. Gleðilegt sumar! Meira: jensgud.blog.is Elín Ýr | 24. apríl 2009 Þetta líf! Ég er í leigukytrunni minni, sem státar hvorki af mörgum fermetrum né mikilli fegurð, hefur þó einhvern sjarma sem þarf að leggja rækt við. Yf- irdráttarheimildin er í há- marki, bankareikningurinn sársvangur. Íbúðin mín er tóm vegna tilraunar minn- ar til að skella mér í sambúð og of- urbjartsýni mín varð að verkum að meiri- hluti innbúsins fékk að fjúka. Ég er því með pappakassa fulla af dóti í stað hús- gagna þar sem ég hef ekki húsgögn til að setja dótið í eða á. Gamla fressið minn er með þvagsteina og krefst ok- urdýrs sjúkrafóðurs og sýklalyfja dag hvern. Tíkin mín er á bullandi lóðaríi og mér líður eins og ég sé með heyrn- arlausan, ofvirkan krakka í göngutúrum. Bíllinn minn er bensínlaus og þarf bráð- um rándýrrar viðgerðar við til þess að fá gula 2009 miðann á sig, er með fínan eiturgrænan endurskoðunarmiða eins og er. Sjónvarpið gaf ég í örlæti mínu og er því sjónvarpslaus, ekki hef ég grátið það mikið. Mjólkin stendur úti í glugga, því ísskáp á ég ekki, eina ástæða þess að ég voni að hitni ekki mikið í veðri á næstunni. [...] En þrátt fyrir allt þetta ... þá er ég bara andskoti sátt! Ég er ánægðari en ég hef verið í lengri tíma, ég hlæ með sjálfri mér þegar ég ætla að kaupa í matinn og þarf að skila flestu því ég gleymi ís- skápsleysinu. Hafragrautarát þessa dag- ana sér mér fyrir orku og fáum hitaein- ingum. Tíkin knúsar mig í gríð og erg og dregur mig út að hreyfa mína stirðu vöðva. Þrifin eru fljótgerð, því litlu þarf að þurrka af og tíminn minn fer ekki í sjónvarpsgláp. Ég gæti haft það svo miklu verra og meðan svo er ekki, þá þakka ég bara fyr- ir! Meira: elin.blog.is KOSNINGARNAR í dag marka tímamót í ís- lensku samfélagi. Íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir þungu höggi og framtíðin er mörkuð óvissu. Nú sem aldrei fyrr er horft til þeirra lausna og hug- mynda sem stjórnmálaflokkarnir bjóða upp á, enda voru það veigamestu rökin fyrir því að flýta kosn- ingum til Alþingis um tvö ár að þjóðin fengi tæki- færi til að veita stjórnmálaflokkunum endurnýjað umboð til þess að takast á við þau risavöxnu við- fangsefni sem framundan eru. Von Í stefnu okkar sjálfstæðismanna felst sú von sem íslensku þjóðinni er nauðsynleg um þessar mundir. Áherslur okkar ganga út á að skapa ný störf á næsta kjörtímabili, nýta þá möguleika sem landið hefur upp á að bjóða og virkja þannig kraftinn í fólkinu í landinu. Við Íslendingar eigum að hefja nýja sókn á grundvelli þeirra sterku innviða sem þjóðin býr yfir og efldust mjög í tíð Sjálfstæð- isflokksins í ríkisstjórn. Við höfum byggt upp öfl- ugt menntakerfi, sterkan nýsköpunar- og há- tæknigeira, heilbrigðiskerfi á heimsmælikvarða og traust öryggisnet í samfélaginu. Þetta verða okkar haldreipi í endurreisninni. Við drögum ekki dul á að brýnt er að gera upp við fortíðina og læra af þeim mistökum sem gerð voru. Það gerðum við sjálfstæðismenn með op- inskáum og einlægum hætti á okkar landsfundi. En kosningarnar hinn 25. apríl snúast fyrst og síðast um framtíð íslensku þjóðarinnar og hvaða stefnu við ætlum að marka okkur í þeirri endurreisn sem framundan er. Umfangsmiklar skattahækkanir vinstriflokkanna Kjósendum standa til boða skýrir valkostir í þessum kosningum. Vinstriflokkarnir tveir hafa boðað áframhaldandi samstarf eftir kosningar. Ljóst er að verði áframhald á slíku stjórnarsam- starfi er veðjað á leið forsjárhyggju og ríkisafskipta í uppbyggingu íslensks efnahagslífs. Í stjórnarsátt- mála væntanlegrar ríkisstjórnar verður, miðað við yfirlýsingar fulltrúa flokkanna og stefnuskrár þeirra, kveðið á um hækkun tekjuskatts, fyr- irtækjaskatts og fjármagnstekjuskatts auk þess sem eignarskattur, sem leggst þyngst á eldri borg- ara, og ný skattþrep verða tekin upp að nýju. VG vill eignarskatt Að vísu eru forystumenn Vinstri grænna nú á harðahlaupum frá stefnu sinni um endurupptöku eignarskatta sem mörkuð var á landsfundi flokks- ins fyrir rúmum mánuði. Fyrir þá sem ekki muna kemur eftirfarandi setning fram í landsfund- arályktun Vinstri grænna um efnahagsmál, skatta- mál og ríkisútgjöld: „Taka á aftur upp sanngjarna eignarskatta.“ 15 þúsund eldri borgarar greiddu eignarskatt Þessi fullyrðing, að taka eigi aftur upp sann- gjarna eignarskatta, er athyglisverð. Það var ekk- ert sanngjarnt við eignarskattana sem tókst loks að afnema árið 2005 og það verður ekkert sanngjarnt við þá ef þeir verða teknir upp aftur. Í fyrirspurn til fjármálaráðherra á Alþingi 2006 kom fram að þessi ósanngjarni skattur lagðist sérstaklega þungt á eldri borgara og greiddu 14-15 þúsund eldri borg- arar slíkan skatt fyrir tekjuárin 2003 og 2004. Skattastefna vinstriflokkanna er ekki einungis vond af því að hún á eftir að leggja auknar álögur á heimilin í formi skatta heldur líka vegna þess að hún felur í sér ranga nálgun. Skattstofnar eru í lægð núna; tekjur heimilanna hafa dregist saman, afgangur af rekstri fyrirtækja er lítill sem enginn og fjármagnstekjur nánast hverfandi. Engu að síð- ur vill stjórnin hækka skattana og þyngja álög- urnar í þeirri trú að þegar skattstofnar minnka þurfi einfaldlega að skattleggja harðar til þess að vinna upp mismuninn. Inn í þessa efnahagsstefnu vantar að hugsa fyrir uppbyggingu og leið fram á við. Við þurfum að stækka kökuna og auka verð- mætasköpun í samfélaginu í stað þess að ganga enn fastar gegn því sem fyrir er. Aðför að sjávarútvegi Stjórnarsáttmáli vinstristjórnarinnar myndi ekki einasta kveða á um skattahækkanir og auknar álögur á heimilin heldur yrði þar einnig að finna ákvæði um að ríkisstjórnin myndi fyrna aflaheim- ildir frá útgerðum landsins. Vinstri grænir vilja innkalla og endurráðstafa aflaheimildunum, eins og segir í stefnu þeirra. Samfylkingin vill líka innkalla heimildirnar og á að hámarki 20 árum. Um þetta mál hefur áður verði tekist á um, t.d. fyrir kosning- arnar 2003 og fyrir liggur að aðgerð sem þessi myndi ganga mjög nærri nánast allri útgerð í land- inu. Nú bætist hins vegar við sú staðreynd að bank- arnir myndu, ef fyrningarleiðin verður farin, þurfa að afskrifa gríðarlega fjármuni. Um áhrif þess fyrir bankakerfið í því ástandi sem nú er til staðar þarf ekki að fjölyrða. Engin olíuleit? Það segir töluverða sögu um viðhorf vinstri- stjórnarinnar til atvinnuuppbyggingar þegar sá stjórnmálamaður sem var skipaður umhverf- isráðherra í ríkisstjórninni og er m.a. ætlað að gæta hagsmuna Íslands í loftslagsmálum, kemur í fjölmiðlum og segir af og frá að við Íslendingar leit- um að olíu á Drekasvæðinu. Þótt vissulega sé ekk- ert í hendi varðandi olíu á Drekasvæðinu þá hafa stjórnvöld sett upp metnaðarfull áform um að hefja þar leit, m.a. með útboði á olíuleit og með því að setja lög um skattlagningu á vinnslu kolvetnis. Þessi möguleiki er ein af vonarglætunum um þess- ar mundir og það væri mikill dómgreindarskortur og alvarlegt ábyrgðarleysi að ætla að hætta við þessi áform. Byggjum upp Það boðar ekki gott ef þetta viðhorf verður ráð- andi hér á næstunni. Við þurfum stefnu sem geng- ur út á að byggja upp atvinnulífið, t.d. með nýtingu orkuauðlinda landsins og með uppbyggingu í orku- frekum iðnaði, ásamt því að tryggja hagfelld skil- yrði fyrir fyrirtæki og atvinnulíf. Það gerist með hröðu vaxtalækkunarferli, með því að koma fyr- irtækjum úr ríkisforsjá svo fljótt sem auðið er og ná tökum á ríkisfjármálunum. Það ríður því mikið á að þessar hugmyndir nái fram að ganga. Það liggur fyrir að fái vinstriflokk- arnir umboð í kosningunum til þess að mynda rík- isstjórn saman verður ofan á að hækka skatta, halda fyrirtækjum í ríkisforsjá og fyrna aflaheim- ildir frá útgerðum landsins. Eins og oft áður stend- ur það upp á sjálfstæðismenn að hindra að þessar hugmyndir verði að veruleika og mynda bandalag gegn gamaldags vinstrilausnum og úreltri skatta- og ríkispólitík. Til þess þurfum við á öllu okkar að halda og verðum að tryggja að öll okkar atkvæði skili sér í dag. Eftir Illuga Gunnarsson og Guðlaug Þór Þórðarson » Áherslur okkar ganga út á að skapa ný störf á næsta kjör- tímabili, nýta þá möguleika sem landið hefur upp á að bjóða … Illugi Gunnarsson Illugi skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norður. Guðlaugur Þór skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður. Skýrir valkostir Guðlaugur Þór Þórðarsson BLOG.IS Anna Einarsdóttir | 24. apríl 2009 Kosningasjónvarp RÚV Kosningasjónvarp RÚV var frábær skemmtun. Ég get fullyrt að aldrei hef ég séð jafn skemmtilegan stjórnmálaþátt. Atkvæðið mitt var óákveðið í byrjun þáttar. Það komu þrír flokkar enn til greina. Stjarna þáttarins var Ástþór Magnússon sem augljóslega toppaði sjálfan sig í kvöld þegar hann sagði Sig- mund Davíð vera strengjabrúðu Ólafs, Finns Ingólfs. ofl. Þvílíkur senuþjófur. Mér fannst Þór Saari komast verulega vel í gegnum þáttinn. Jóhönnu þekkjum við og vitum fyrir hvað hún stendur og Steingrímur var flottur að vanda. Þegar síðan kom að stjórnmálafræðingunum var mér ekki eins skemmt. Konan þar, Stefanía Óskarsdóttir, misnotaði að- stöðu sína og reyndi að vekja auð sjálf- stæðisatkvæði upp frá dauðum. Mér leið eins og verið væri að vekja upp drauga. [...] Mér finnst lágmarkslýðræði að stjórnmálafræðingar hagi sér sem slíkir og láti eigin skoðanir liggja á milli hluta. Stefanía átti ekki heima við þetta borð. Meira: annaeinars.blog.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.