Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 31
Fréttir 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009 Útstrikun er skýr skilaboð sem hefur raunveruleg áhrif Auður seðill er ógildur www.andriki.is Fái Y listinn 4 menn kjörna, þurfa aðeins 11,2 % kjósenda hans að strika yfir nafn Ara Arasonar svo hann falli niður um sæti. Sendum skýr skilaboð. Útstrikanir hafa áhrif. Samkvæmt 100. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis er auður seðill ógildur. Hún er líka afar einföld: Y Listi Þingframboðsins SÝ NI SH OR N Ari Arason Björg Bjargardóttir Daníel Daníelsson Gunnlaugur Gunnlaugsson Ingi Ingason Jóna Jónsdóttir Karl Karlsson Magnús Magnússon Ólafur Ólafsson Páll Pálsson Ragna Ragnarsdóttir Sveinn Sveinsson Torfhildur Torfadóttir Una Unadóttir Viðar Viðarsson Þórður Þórarinsson X GOOGLE jörð-forritið hefur notið mikilla vin- sælda enda er vissulega spennandi að skoða ljós- myndir frá nærri öllum heimshornum úr lofti. Ástrali á fertugsaldri, Dashwood að nafni, vatt sér í verkefni með aðstoð forritsins sem krefst nokkurrar þolinmæði enda tók það hann sex mánuði að ljúka því. Erfitt að finna suma stafina Dashwood einsetti sér að finna, innan Viktor- íuríkis í Ástralíu, ígildi allra bókstafa stafrófsins á yfirborði jarðarinnar, hvort sem það væru byggingar, akrar eða form frá náttúrunnar hendi. „Ég fann táknin rétt eins og þú gætir getið þér til um,“ segir Dashwook í samtali við dagblaðið Telegraph. „Ég færði mig hægt yfir ljós- myndakortin og notaði bara augun,“ segir Dashwood. Hann segir að erfiðast hafi verið að finna stafi eins og K, R, W og Z þar sem skálínur mæti öðrum línum. Flóknari stafir eins og B og G voru líka erfiðir en fyrir B fann Dashwood B-laga haga og hafn- arsvæði í formi G. Dashwood hefur mikla reynslu af stafrænni myndvinnslu, þ.m.t. kvikmyndagerð og staf- rænni listsköpun. „Ég setti mér ákveðin skilyrði við verkefnið eins og að einskorða mig við Vikt- oríuríki og að lagfæra ekki myndirnar á nokk- urn hátt,“ segir Dashwood. Myndirnar séu því eins og hann fann þær í gegnum Google jörð. jmv@mbl.is Stafróf jarðarinnar A,B,C Dashwood eyddi hálfu ári í að finna stafi stafrófsins á yfirborði Viktoríuríkis í Ástralíu. BANDARÍSK stjórnvöld hafa sam- þykkt að birta myndir, sem sýna meintar pyntingar í fangelsum Bandaríkjamanna í Írak og Afganist- an í tíð ríkisstjórnar George W. Bush. Var það haft eftir talsmanni Banda- rísku borgararéttindasamtakanna, ACLU, en þau höfðuðu mál árið 2004 og kröfðust þess, að myndirnar yrðu birtar. 44 myndir verða birtar ekki síðar en 28. maí næstkomandi og verið er að undirbúa birtingu fleiri að því er fram kom hjá bandaríska dóms- málaráðuneytinu. Amrit Singh, lögmaður ACLU, sagði, að myndir sýndu og sönnuðu, að pyntingar á föngum hefðu ekki verið nein undantekning, heldur regla, sem farið hefði verið eftir ann- ars staðar en í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak. Ríkisstjórn Bush neitaði ávallt að birta myndirnar og hélt því fram, að birtingin myndi valda uppnámi og brjóta raunar gegn skyldum Banda- ríkjamanna við fanga samkvæmt Genfarsáttmálanum. Ríkisstjórn Baracks Obama for- seta skýrði í síðustu viku frá yf- irheyrsluaðferðum í Guantanamo- fangabúðunum á Kúbu en þær fólu meðal annars í sér ýmsar pyntingar aðrar en líkamlegt ofbeldi. svs@mbl.is Fallist á mynd- birtingu Taldar sýna meintar pyntingar á föngum LÖNGUM hefur farið það orð af frönskum konum að þær séu grannar og glæsi- legar, jafnvel þó þær úði í sig Ca- membertosti. Ný rannsókn Frönsku lýð- fræðistofnunar- innar styður að franskar konur séu vissulega þær grennstu í Evrópu. En hún sýnir jafnframt að af evrópskum konum hafa þær frönsku hvað mestar áhyggjur af þyngd sinni. Þá kemur fram að í Frakklandi séu flestar konur undir kjörþyngd en aðeins helmingur þeirra telji sig of grannar. Höfundur rannsóknarinnar, Thi- baut de Saint Pol, segir að franskar konur leggi mikið á líkama sína. Kjörþyngd sé lægri að þeirra mati en að mati annarra evrópskra kvenna. Það að vera undir kjör- þyngd þyki ákjósanlegt í Frakk- landi. jmv@mbl.is Grannar en þjakaðar Forsetafrú Skyldi hún hafa áhyggjur? ATVINNULEYSI á Spáni jókst mjög á fyrsta fjórðungi þessa árs og mælist nú 17,36%. Eru rúmlega fjór- ar milljónir manna án atvinnu en helmingur þeirra missti hana á síð- asta ári. Mikil þensla var í spænskum byggingar um nokkurra ára skeið en sú bóla hjaðnaði mjög skyndilega á síðasta ári. Að undanförnu hefur þó samdrátturinn verið mestur í þjón- ustuiðnaði, einkum í kringum ferða- mennskuna, en ferðafólki hefur fækkað verulega. Atvinnuleysið hefur ekki áður mælst jafnmikið og nú en Luis Rod- riguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, vonast til, að þær opinberu framkvæmdir, sem á að ráðast í, muni veita tugum þúsunda manna vinnu. svs@mbl.is 17% atvinnu- leysi á Spáni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.