Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 72
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 115. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Stöðvuðu tilskipun  Ráðherrar VG komu í veg fyrir að aðildarríki á EES-svæðinu sam- þykktu tilskipun frá Brussel um að þjónustustarfsemi á svæðinu verði samræmd. Sendiherra Íslands í Brussel fékk skilaboð um að beðið skyldi með samþykkt þar til eftir kosningar. »Forsíða, 6 Samfylkingin stærst  Síðasta könnun Capacent fyrir kosningar sýnir að Samfylking og VG fengju samtals 56,1% atkvæða og hreinan meirihluta. Stjórnmála- fræðingur telur horfur tvísýnar. »2 Smábátar vinsælir  Gríðarleg eftirspurn er eftir smá- bátum og hafa margir lýst sig reiðu- búna að staðgreiða bátana. Áform sjávarútvegsráðherra um frjálsar handfæraveiðar við strendur lands- ins eru taldar hafa valdið aukning- unni. »6 Fylgst með svínaflensunni  Tugir manns hafa látist eftir að svínaflensa kom upp í Mexíkó. Einn- ig hafa komið upp tilfelli í Bandaríkj- unum. Íslenskur sóttvarnarlæknir segir vel fylgst með málum hér á landi. »6 og 30 SKOÐANIR» Staksteinar: Allt er þá þrennt er Forystugrein: Úr vöndu að ráða Pistill: Gamla Ísland, aðeins lengur Ljósvaki: Ekki gaman UMRÆÐAN» Er efnahagsáætlun AGS í uppnámi? Atvinnumál í öndvegi Lyftum huganum hærra 25. apríl Tryggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu Börn: Verðlaunaleikur vikunnar 300 börn á landsmóti barnakóra Lesbók: Þýðingar halda tungunni við Fuglar og furðufuglar BÖRN | LESBÓK » Heitast 11°C | Kaldast -4°C  Hæg norðlæg átt og víða bjartviðri, síst norðaustan til. Þykkn- ar upp suðvestan til seint í kvöld. »10 „Skemmtilegt æv- intýri og gott að fá inni í góðum sal.“ Leikrit Jóns Atla Jónassonar til Ed- inborgar. »62 LEIKLIST» Djúpið á skoska hátíð FÓLK» Peningar? Bara pappírar sem safnast saman. »67 „Kannski og kannski ekki,“ segir þátt- arstjórinn og vill halda áfram. Mýkt, kurteisi og ýtni eru lykilatriði. »64 FJÖLMIÐLAR» Slökkt á færibandi? TÓNLIST» Bleikur kjóll og trommu- skinn kosta sitt. »65 TÓNLIST» Hann er „listamaðurinn“ – er á 10 af 100. »64 Menning VEÐUR» 1. Samfylkingin enn stærst 2. Stefna ríkinu vegna SPRON 3. Sögulegar kosningar 4. Vargar rústuðu æfingasvæði SHS  Íslenska krónan hélst óbreytt »MEST LESIÐ Á mbl.is Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is ÞAÐ er blómlegt um að litast í gróð- urhúsinu í Elliðahvammi þessa dag- ana. Ávaxtatré eru þar í blóma með tilheyrandi ilmi, sem ekki er laust við að minni á hin ýmsu lönd Evrópu á vormánuðum. Í þessu íslenska gróðurhúsi rækta Þorsteinn Sigmundsson og kona hans, Guðrún Alísa Hansen, bláberja- runna, kirsuberjatré, peru- og plómu- tré. Og ekki má gleyma eplatrjánum. Af þeim fá hjónin góða uppskeru. Sérstaklega eitt yrkið sem skilað hef- ur allt að 130 fullþroskuðum eplum um uppskerutímann, eða tæpum 30 kg. Góð búbót það. „Þetta er frábært yrki,“ segir Þorsteinn. „Við erum með tuttugu kvæmi af eplatrjám, sína hverja tegundina, en þetta sker sig úr er kemur að afköstum.“ Eplin segir hann bragðgóð og geymast vel, en trén eru hjónin með í köldu gróð- urhúsi. Vorið lofar góðu Þau Þorsteinn og Guðrún Alísa hófu tilraunir með ávaxtatrjáræktina fyrir um átta árum og er eplatréð góða frá þeim tíma. Hverrar teg- undar það er vita þau hins vegar ekki. „Við týndum merkimiðanum af trénu og vitum ekki hvað það heitir.“ Síðan hefur verið passað vel upp á allar merkingar. Þekki einhver lesandi hins vegar tréð á myndinni hér að of- an tæki Þorsteinn glaður á móti þeim fróðleik. Upphaflega voru þau með lítið heimasmíðað gróðurhús, en fyrir um tveimur árum settu þau aukinn kraft í ræktunina og byggðu nýtt hús yfir trén. Flest ávaxtatrén hafa komið til eftir byggingu nýja hússins og segir Þorsteinn þá ræktun vera á þróun- arstigi. „Við erum engu að síður byrj- uð að fá nokkra uppskeru og þetta vor lofar mjög góðu því að það er góð blómgun í öllu.“ Við ræktunina hafa þau notið góðrar aðstoðar garðyrkju- fræðinga. Gróðurhúsið er vinsæll viðkomu- staður hjá yngri fjölskyldumeðlimum yfir uppskerutímann. „Þá koma þau einu sinni á dag, krakkarnir, til að fá sér ýmislegt úr gróðurhúsinu.“ Þau hjónin hafa gaman af ræktun- inni, þó að Þorsteinn segi að það sé Guðrún Alísa sem hafi grænu fing- urna. Þegar á hann er ýtt viðurkennir hann að hann hafi þó líklega eins og eina græna hönd. Þau hafa líka lengi verið í ræktuninni og hófust handa við skógrækt fyrir u.þ.b. tuttugu ár- um. „Þá var það eitt af forgangsmál- unum að koma upp skógi í landinu okkar til að fá meira skjól í lóðina.“ Þau virðast líka óhrædd við nýj- ungar og hafa einnig reynt fyrir sér í býflugnarækt með góðum árangri. „Við vorum með yfir 100 kg af hun- angi á síðasta ári.“ Eplauppskeran góð Þorsteinn og Guð- rún hafa fengið 130 epli af einu tré Morgunblaðið/Árni Sæberg Eplabóndi Þorsteinn Sigmundsson við eplatréð góða sem hann myndi gjarnan vilja vita nafnið á. „ÞAÐ gengur ekki að setja einhverja bóklega ís- lensku upp í bófa sem er á harðahlaupum undan réttvísinni, þá eru menn ekki með núþálegar sagnir uppi í sér“, segir nýbakaður þýðing- arverðlaunahafi, Hjörleifur Sveinbjörnsson, í samtali í Lesbók, en lýsingin er dæmigerð fyrir glímu þýðenda við orðin. Rætt er við alla þá sem tilnefndir voru til þýð- ingarverðlaunanna um verk þeirra og stöðu þýð- inga um þessar mundir. Svo virðist sem þær eigi undir högg að sækja í kreppunni; einn þýðandi þýðir nú einvörðungu fyrir Seðlabankann og álíka aðila, í stað fagurbókmennta áður. Einnig er deilt á fábreytni í þýðingum og það hversu markaðssjónarmið hafi ráðið miklu í bókaútgáfu á Íslandi undanfarin ár, því bestu bókmennta- verkin eru ekki endilega þau söluvænlegustu. Glíma þýðenda við orðin ÞAÐ hvarflaði væntanlega varla að nemum í Listaháskóla Íslands er þeir hófu vinnu við verk sín fyrir útskriftarsýningu skólans að verkin gætu varð- að við lög. Sú virðist þó vera raunin í tilfelli þeirra Bergdísar Hrannar Guðvarðardóttur og Emils Magnúsarsonar Borhammar. Verk Bergdísar verður hulið á Kjarvalsstöðum í dag, kjördag. En Emil býðst að flytja verk sitt, sendibíl fylltan myndum af þjóðþekktum einstaklingum, á Flókagötuna. „Okkur var boðið upp á þann kost að loka sýningunni á kjör- dag, en það vildum við alls ekki,“ segir Finnur Arnar Arnarson, sýningarstjóri myndlistardeildar. Sátt hefði því náðst um að þau verk sem talist gætu póli- tískur áróður yrðu fjarlægð eða hulin. „Annars held ég að það sé eiginlega heiður að eiga verk sem tekur þátt í þeirri pólitísku umræðu sem er í samfélaginu. Þannig eiga listirnar að virka.“ annaei@mbl.is Listin víki fyrir kosningar Verkin talin brjóta lög um áróður á kjörstað Morgunblaðið/RAX Áróðurslist? Emil Magnúsar með bannverk sitt. Er hægt að rækta ávaxtatré og -runna á Íslandi? Þegar eru ræktaðar margar teg- undir ávaxtarunna hér á landi, s.s. rifsberja-, sólberja- og stikilsberjarunnar. Erfiðara er að rækta tré sem bera stóra ávexti, s.s. kirsuber, epli og plómur. Það má þó reyna upp við húsveggi á sólríkum og hlýjum stað, eða í köldu eða upphituðu gróðurhúsi. S&S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.