Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 14
FRÉTTASKÝRING Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is VERÐI tillögur nefndar félags- og trygginga- málaráðherra, sem sett var á laggirnar árið 2007, um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum, að lögum verður dómurum heimilt að dæma for- eldrum sameiginlega forsjá barns gegn vilja ann- ars foreldris sé það talið þjóna hagsmunum barns- ins. Þá munu sýslumenn fá rýmri heimild til að úrskurða um umgengni barna við afa sína og ömmur auk þess að fá heimild til að úrskurða um umgengni við stjúpforeldri eftir skilnað eða sam- búðarslit við kynforeldri. Eftirbátur annarra Norðurlanda Sameiginleg forsjá við skilnað var gerð mögu- leg árið 1992 en komi upp ágreiningur milli for- eldranna hafa dómarar ekki heimild til að dæma jafnhæfa foreldra í sameiginlega forsjá. Ýmis hagsmunasamtök foreldra hafa barist fyrir dóm- araheimild og m.a. bent á að í barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna segi að það sem sé barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar dómstólar og aðrir gera ráðstafanir sem varði börn. Nefndin horfði til hinna Norðurlandanna og þeirra landa sem Ísland ber sig oftast saman við en sameig- inleg forsjá hefur verið dæmd í Noregi, Finnlandi og Frakklandi síðan á 9. áratug síðustu aldar, í Svíþjóð síðan árið 1998 og Danmörku síðan 2007. Nefndin leggur einnig til að báðir foreldrar beri almennt kostnað af umgengni, að maður sem telji sig föður barns geti höfðað ógildingar- eða vefeng- ingarmál þegar um feðrað barn er að ræða og að sýslumenn og dómarar fái heimild til að ákveða umgengni sjö af fjórtán dögum. Þá leggur hún til að sýslumenn fái rýmri heimild til að úrskurða um umgengni barna við afa sína og ömmur til að börn njóti aukinna möguleika til umgengni við þau. Samkvæmt núgildandi barnalögum er heimilt að úrskurða afa og ömmu, eða öðrum nánum að- standendum, umgengni sé annað foreldrið eða bæði látin eða foreldrið ófært um að rækja um- gengisskyldur sínar við barnið. Taldi nefndin skil- yrðið of þröngt og þyrftu lögin að ná til þess þegar foreldrið hefur ekki áhuga á að sinna barninu. Hugsanlega mætti beita heimildinni vilji foreldrið ekki gefa afa og ömmu kost á að umgangast barnabarnið. Stjúpforeldrar fái að umgangast börn eftir sambandsslit Nefndin telur að barn eigi rétt á umgengni við stjúpforeldri og leggur til að sýslumenn fái heim- ild til að úrskurða um umgengni við stjúpforeldri eftir skilnað eða sambúðarslit við foreldri, með sama hætti og úrskurðað er um umgengni kynfor- eldris sem barnið býr ekki hjá. Í barnalögum seg- ir að forsjá stjúpforeldris vari eingöngu meðan á hjúskap eða sambúð standi. Samkvæmt gildandi reglum hafa því stjúpforeldrar engan rétt á um- gengni við barn slitni upp úr sambandi við kynfor- eldrið, jafnvel þó þeir hafi gengið barninu í föður- eða móðurstað. Önnur breyting sem nefndin leggur til og varð- ar stjúpforeldra er að afnumið verði gildandi sam- komulag sem felur í sér að taki fráskilið foreldri með barn upp sambúð á nýjan leik fái makinn sjálfkrafa forsjá yfir barninu. Vilji kynforeldrið að stjúpforeldrið deili með sér forsjá þurfi að sækja sérstaklega um það. Hagur barna í fyrirrúmi Vilja dómaraheimild í forsjármálum og aukin réttindi stjúpforeldra Morgunblaðið/Heiddi Kynning Nefnd félags- og tryggingamálaráðherra um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum kynnti tillögur sínar í gær. Nefndin skiptist í félags- og sifjahóp, fræðsluhóp og fjárhagshóp. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is KAUPMÁTTUR launa jókst um 0,7% í mars frá fyrra mánuði. Vísi- tala kaupmáttar launa hafði þá lækkað um 8,4% á síðustu 12 mán- uðum, samkvæmt frétt Hagstof- unnar í gær. Lítil breyting varð á launavísitölu frá febrúar til mars síð- astliðins en hún hækkaði um 0,1% milli mánaða. Þessi vísitala hefur hækkað um 5,5% síðustu 12 mánuði. Launavísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð á eftir. Hagstofan bendir á að laun áttu að hækka um 13.500 kr. 1. mars s.l. samkvæmt kjarasamningum ASÍ og SA frá því í febrúar 2008. Þrátt fyrir samkomulag aðila vinnumarkaðar- ins um að fresta launahækkunum komu þær til framkvæmda hjá hluta þeirra fyrirtækja sem eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins. Þá ákvað Kjararáð 23. febrúar s.l. að lækka laun embættismanna sem undir ráðið heyra, annarra en dóm- ara og skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands, um 5-15% frá 1. mars 2009. Áður hafði Kjararáð ákveðið að laun alþingismanna myndu lækka um 7,5% og laun ráðherra um 14-15%. „Þetta eru heldur jákvæðar frétt- ir,“ sagði Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusambands Ís- lands. Hann benti á að þessar breyt- ingar séu litlar og e.t.v. sé merkasta fréttin sú að verðbólgan hafi lækkað í síðasta mánuði og neysluverðs- vísitalan því lækkað um síðustu mán- aðamót. Það skýri kaupmáttaraukn- inguna milli mánaða. Ólafur Darri benti á að kaupmátt- urinn hafi lækkað umtalsvert á síð- astliðnum 12 mánuðum eða um 8,4%. Það þýði að fólk fái 8,4% minna fyrir kaupið sitt nú en fyrir ári síðan. „Við gerum ráð fyrir að verðbólgan gangi nú hratt niður, það versta í henni sé afstaðið og að verðbreytingar verði ekki miklar. Vonandi erum við búin að sjá það versta í kaupmáttarhrap- inu,“ sagði Ólafur Darri. Litlar breytingar framundan Hannes G. Sigurðsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, benti á að væntanlega hafi verið litlar hreyfingar á launum í mars, nema hjá örfáum fiskvinnslu- fyrirtækjum sem greiddu út launa- hækkunina eins og Hagstofan getur um. Eins samdi SA um að lágmarks- tekjutrygging myndi taka gildi, þótt öðru væri frestað. Hannes taldi að á móti þessu kynnu að koma ein- hverjar launalækkanir, sem fólk hef- ur verið að taka á sig. Hannes býst ekki við að laun hækki eða lækki á næstu mánuðum. Verðbólguþróunin muni því ráða mestu um þróun kaup- máttar á næstunni. Hún sé mjög háð gengisþróun og húsnæðisliðnum. Kaupmáttur launa jókst um 0,7% frá febrúar til mars Kaupmáttur launa hefur rýrnað um 8,4% á undanförnum tólf mánuðum !  "  "   #""  $$%$$&' / , 0   ' . %    % . '     -   -  *+ *+ /1+     2 3   , -   * *  +#&', $ #&', $ - !).,, " $  14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009 REYKJANESBÆR og Dalvík- urbyggð hafa skrifað undir sam- komulag um að efla tengsl bæj- arfélaganna með ýmsum hætti. Bæirnir eiga margt sameiginlegt þó að stærðarmunur sé nokkur, m.a. stórar bæjarhátíðir, þ.e. Fiski- daginn mikla á Dalvík og Ljósanótt í Reykjanesbæ. Komið verður á samstarfi þeirra sem sjá um und- irbúning hátíðanna og samstarf aukið í ýmsum málaflokkum. Vinir Svanfríður Jónasdóttir og Árni Sigfússon skrifa undir. Reykjanesbær og Dalvík vinabæir NORRÆNU menntamálaráðherr- arnir hafa gert með sér sam- komulag, sem tryggir náms- mönnum á Norðurlöndum aðgang að æðri menntun annars staðar á Norðurlöndum. Kostnaður við samkomulagið er gerður upp á milli landanna, en hann er 22.000 danskar krónur á hvern námsmann, en Ísland greiðir ekki neitt. Ókeypis menntun á Norðurlöndum HÁSKÓLINN í Reykjavík og Út- lendingastofnun hafa gert með sér samstarfssamning sem miðar að því að liðka fyrir afgreiðslu dvalar- leyfa til erlendra nemenda skólans utan Evrópusambandsins. Samn- ingurinn felur það m.a. í sér að Há- skólinn í Reykjavík sækir hér eftir um dvalarleyfi fyrir erlenda nem- endur sína og ábyrgist að þeir hafi öruggt húsnæði á meðan dvöl þeirra stendur. Erlendir nemendur SAMKVÆMT nýjum lögum frá Al- þingi hefur sá einn rétt til að kalla sig náms- og starfsráðgjafa og starfa sem slíkur sem til þess hef- ur leyfi menntamálaráðherra. Leyfi skal veita umsækjanda sem lokið hefur námi í náms- og starfs- ráðgjöf frá háskóla sem hlotið hef- ur viðurkenningu frá mennta- málaráðherra. Með lögverndun starfsheitisins er stefnt að því að gæði þjónustunnar verði tryggð betur. Námsráðgjafar Hagsmuna- samtök heim- ilanna skora á alla framboðs- lista að samein- ast um að slá raunverulega skjaldborg um heimilin, með yf- irlýsingu um taf- arlausar almennar aðgerðir til leið- réttingar á gengis- og verðtryggðum veðlánum heim- ilanna, strax að loknum kosningum. Á þessum tímapunkti hafa stjórn- völd tækifæri til þess að fyr- irbyggja frekara tjón og boða til nýrrar þjóðarsáttar milli hins op- inbera, fjármálakerfisins, atvinnu- lífsins og heimilanna. Vilja alvöruskjald- borg um heimilin Nefndin um stöðu barna í mismunandi fjöl- skyldugerðum kynnti einnig tillögur að nýju kerfi barnatrygginga til að útrýma fátækt barna- fjölskyldna. Kerfið kæmi í stað barnabóta, mæðra- og feðralauna, barnalífeyris og viðbótar við atvinnuleysisbætur vegna barna. Barnatryggingakerfið miðar að því að öllum barnafjölskyldum verði tryggð ákveðin fjárhæð til lágmarksframfærslu óháð því hvaðan tekjur fjölskyldunnar koma. Tryggingarnar yrðu tekju- tengdar og myndu skerðast hjá fólki með tekjur umfram meðalráðstöfunartekjur en hagur tekju- lágra hópa, t.d. atvinnulausra, myndi batna og myndi kerfið nýtast barnmörgum fjölskyldum vel. Barnatryggingarnar myndu tryggja öllum foreldrum upp að lágtekjumörkum 40 þúsund kr. greiðslu fyrir hvert barn en í núgildandi kerfi fengi einstætt foreldri rúmar 20 þúsund kr. Skerðingarmörkin yrðu 146 þúsund kr. hjá ein- stæðum foreldrum og 252 þúsund kr. hjá hjón- um. Einstætt foreldri eins barns sem er með tæpar 730 þúsund kr. í mánaðarlaun og fær nú rúmar 10 þúsund kr. í barnabætur á mánuði myndi ekki fá neinar barnatryggingar. Vilja útrýma fátækt barnafjölskyldna STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.