Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 40
40 UmræðanKOSNINGAR 2009 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Costa del Sol 21. maí – 12 nætur frá kr. 99.900 12 nætur á ótrúlegum kjörum! Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu sætunum 21. maí til Costa del Sol. Njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað í 12 nætur og gistu á Hotel Los Patos sem er notalegt þriggja stjörnu hótel sem býður fjölbreytta þjónustu og góða staðsetningu í Benalmádena. Örstutt er á ströndina hin vinsæla snekkjubátahöfn er í göngufæri. Á hótelinu er sundlaug, barir, góð sólbaðsaðstaða, veitingastaður, lítil verslun, setustofa með sjónvarpi, internetaðgengi auk fjölbreyttrar afþreyingar fyrir fyrir gesti. Á hótelinu eru 277 herbergi sem eru með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, síma, öryggishólf, baðherbergi og svölum eða verönd. Hálft fæði er innifalið í gistingu, þ.e. morgun- og kvöldverður. Verð frá kr. 99.990 12 nætur með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í herbergi á Hotel Los Patos *** í 12 nætur með hálfu fæði. Sértilboð 21. maí til 3. júní. Verð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn kr. 103.900. Verð á mann m.v. gistingu í tvíbýli kr. 119.000. Ótrúlegt sértilboðHotel Los Patos ***Gott og notalegt hótelFjölbreytt þjónusta Aðeins örfá herbergi í boði! ALLIR flokkar, nema Vinstri grænir, voru sammála um þá ákvörð- un ríkisstjórnar Geirs H. Haarde sl. haust að leita eftir aðkomu Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins til að greiða fyrir end- urreisn íslensks efna- hagslífs eftir fall bank- anna síðastliðið haust. Það verkefni hófst strax og bankahrunið varð. Óhætt er að fullyrða að án þessa samstarfs hefði ekki tekist að tryggja áframhaldandi og tiltölulega ótruflaða banka- starfsemi hér á landi eftir fall bank- anna. Í umræðum á Alþingi voru allir flokkar nema Vinstri grænir sam- mála um nauðsyn þess að tryggja aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að endurreisn íslensks efnahagslífs. Vinstri grænir og einkum og sér í lagi formaður þeirra, Steingrímur J. Sigfússon, höfðu allt á hornum sér varðandi aðkomu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins og töldu miklu eðlilegra að leita til Noregs, einkum flokks- systkina sinna þar, eftir slíkum stuðningi. Þeirri viðleitni var hins vegar snarlega sópað út af borð- inu af norskum stjórnvöld- um sem eindregið studdu aðkomu Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins. Af þessu tilefni er fróð- legt að skoða afstöðu Vinstri grænna, og þá sér- staklega formannsins, Steingríms J. Sigfússonar, sem nú gegnir starfi fjármálaráðherra í vinstri stjórn Jó- hönnu Sigurðardóttur, til aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að end- urreisn íslensks efnahagslífs. Í aðgerðaáætlun íslenskra stjórn- valda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem samþykkt var í stjórn sjóðsins 15. nóvember sl. var gert ráð fyrir að sjóðurinn greiddi fyrsta hluta láns- ins að lokinni þeirri samþykkt og síðan kæmu jafnar greiðslur að lokn- um sérstökum athugunum sjóðs- manna á þriggja mánaða fresti út samningstímabilið sem var til tveggja ára. Hvað hefur síðan gerst? Jú, fyrsta greiðslan kom samkvæmt áætlun, þ.e. við undirskrift aðgerðaáætl- unarinnar í nóvember síðastliðnum enda lágu þá fyrir skýr áform þáver- andi ríkisstjórnar um næstu skref. Næsta greiðsla átti síðan að koma að lokinni yfirferð sendinefndar sjóðs- ins sem upphaflega var áformuð í febrúar en var síðan seinkað fram í mars vegna vandræðagangs vinstri stjórnarinnar með að uppfylla þau skilyrði sem sett voru í efnahags- áætluninni. Þessi skilyrði sneru í fyrsta lagi að endurreisn bankakerf- isins, í öðru lagi að áformum stjórn- valda um endurreisn ríkisfjármála og í þriðja lagi að samningum gagn- vart erlendum kröfuhöfum bank- anna, ekki síst eigendum marg- frægra Icesave-reikninga. Það er með ólíkindum að fjöl- miðlar skuli ekki hafa fjallað um þá niðurstöðu Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins að fresta næstu lánafyrirgreiðslu sjóðsins um óákveðinn tíma. Af hverju var sú ákvörðun tekin? Af hverju hefur enginn fjölmiðill spurt Alþjóðagjaldeyrissjóðinn slíkrar ein- faldrar og eðlilegrar spurningar? Það er ekki að ástæðulausu að Atli Rúnar Halldórsson, hinn kunni fréttamaður til margra ára, fjallar um málið á bloggsíðu sinni þar sem hann segir meðal annars: „Í Stjórnarráði Íslands er orðróm- ur uppi um að hinn almáttugi Al- þjóðagjaldeyrissjóður hafi tilkynnt ríkisstjórninni, í það minnsta óform- lega, að stjórnvöld fylgi ekki nægi- lega vel eftir endurreisnaráætl- uninni sem þau voru tilneydd að samþykkja í vetur og því verði hald- ið eftir lánum þar til úr hafi verið bætt. Það fylgir sögu að Gjaldeyr- issjóðsmönnum lítist ekki á blikuna í fjármálum ríkisins og vilji að stjórn- völd þjarmi ögn betur að þegnum sínum með því að setja á og herða mjög niðurskurðar- og skatt- heimtuskrúfur og það strax. Ég spurði þá sem orðróminn bergmála hverju það sætti að slíkt stórmál væri ekki dregið fram í dagsljósið í pólitískri umræðu, ef satt væri á annað borð, og fékk efn- isleg svör: „Pólitíska kerfið í heild ber ábyrgð á samningi við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn og áætlanir honum tengdum. Pólitíska kerfið hefur ekki hag af því að ræða þetta fyrir kosn- ingar, hvorki stjórnarflokkarnir né stjórnarandstaðan…Aðgerðirnar sem grípa þarf til, svo fullnægt verði hákörlum sjóðsins, eru svo rosalegar að stjórnmálamennirnir voga sér ekki út í að viðra þær fyrr en þing- kosningar eru afstaðnar. Þess vegna ríkir þessi æpandi þögn um Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn í kosningabarátt- unni.“ Það er auðvitað með ólíkindum að vinstri stjórnin komist upp með það að þegja um þær aðgerðir sem hún hyggst grípa til eftir kosningar. Að þegja um hvaða skattahækkanir hún hyggst leggja á heimili þessa lands, eins og þau eigi ekki nóg með sitt, að ekki sé minnst á þau áform rík- isstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar að lækka laun þúsunda ríkisstarfs- manna, eins og þeir eigi ekki fullt í fangi með að kljást við þá launa- lækkun sem þegar er orðin vegna minnkandi yfirvinnu, þ.e. raunveru- legrar yfirvinnu, ekki fastrar yf- irvinnu, o.fl. Er ekki kominn tími til að segja hingað og ekki lengra? Við höfnum vinstri stjórn sem ætlar að skatt- leggja heimilin til fjandans. Við höfnum vinstri stjórn sem ætlar að lækka launin okkar ofan á allt sem á okkur hefur dunið. Er efnahagsáætlun Alþjóðagjald- eyrissjóðsins í uppnámi ? Eftir Þorgerði Katr- ínu Gunnarsdóttur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundur er alþingismaður Í AÐDRAGANDA kosninga opinbera frambjóðendur stefnumál sín. Í upplýstu lýðræðisþjóðfélagi er nauðsynlegt að kjós- endur fái skýra mynd af því hvað frambjóð- endur muni gera eftir kosningar, komist þeir í ráðandi stöðu. Á opnum fundi um sjávarútvegsmál sem haldinn var í Ólafsvík í byrjun vikunnar upplýstu bæði Guðbjartur Hannesson og Jón Bjarnason, frambjóðendur Samfylk- ingar og Vinstri grænna, þá fyrirætlun flokka sinna að innkalla aflaheimildir á inn- an við 20 árum. Hins vegar var óljóst hvernig á síðan að stýra veiðum á takmarkaðri auðlind. Fyrir fyrirtæki og byggðir sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi eru hér váleg tíðindi á ferð sem eru til þess fallin að auka óvissu um framtíð þeirra og draga úr getu og löngun fyrirtækja til að móta framtíðarsýn. Eftir hrun bankanna er efnahagsöngþveitið og óvissan ærin fyrir. Stöðugur rekstur sjávarútvegsins er mjög mikilvægt innlegg í endurreisn efnahagslífsins. Getur verið að þjóðin sé ekki í tilfinningalegu jafn- vægi eftir það sem á undan hefur gengið? Er skyn- samlegt að rjúka til og gera breytingar breytinganna vegna og skemma meira og valda meiri upp- lausn? Víða um heim er litið til íslenskrar fisk- veiðistjórnunar sem fyrirmyndar um hvernig eigi að stýra afnotum af takmarkaðri auð- lind. Í hinu virta breska vikublaði The Eco- nomist var mikil umfjöllum um sjávarútveg síðastliðið haust, þar sem fjallað var á mjög jákvæðan hátt um kerfið okkar. Í vefútgáfu Financial Times (22.4.) kemur fram að Evr- ópubandalagið er að íhuga upptöku framselj- anlegra fiskveiðiheimilda. Sjálfstæðisflokkurinn telur að núverandi fiskveiðistjórnarkerfi hafi skilað þjóðinni miklum ávinningi og að áfram eigi að byggja á þessu kerfi. Jafnframt leggja sjálfstæðismenn mikla áherslu á öflugri rannsóknir á lífríki hafsins. Forðum okkur frá því að gera vanhugsaðar breyt- ingar í flýti og eyðileggja það sem aðrar þjóðir horfa upp til okkar fyrir. Höfnum fyrningarleið Samfylk- ingar og Vinstri grænna í alþingiskosningunum á laug- ardag. Eftir Sigríði Finsen Sigríður Finsen Höfundur er frambjóðandi Sjálfstæðisflokks í Reykjavíkurkjördæmi norður og forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðar. Fyrningarleið í sjávarútvegi er ekki leið sáttar MEÐ setningu neyðarlaga á Alþingi þann 6. október 2008 voru innlán gerð rétthærri öðrum skuldum bankanna og bönkunum skipt í gamla (slæma) og nýja (góða) banka. Vandi gagnvart erlendum köfuhöfum: Stærsti hluti skulda íslensku bankanna er í eigu erlendra aðila, þar á meðal stórra og áhrifamikilla banka. Áframhald deilna við þessa aðila getur valdið Íslandi marg- víslegum vandkvæðum til framtíðar. Dregið úr áhuga óskyldra erlendra aðila á að veita Íslandi fyrirgreiðslu. Gert umsýslan skulda okkar bæði dýrari og erfiðari en ella. Það eru því gríðarlegir hagsmunir okkar í húfi, að ná sátt við þessa aðila. Auk þess er möguleiki að þeir fari í mál við ríkið til að hnekkja neyðarlögunum, sem gæti sett þann gerning allan og núverandi skipan bankamála á Íslandi algerlega í háaloft. Kröfuhafar fái hlut í nýju bönkunum: Til að koma til móts við kröfuhafana má færa þeim hlutafé í nýju bönk- unum sem nemur skerðingu krafna þeirra. Með þessu móti færu einnig saman hagsmunir ríkisins og íslensks efnahagslífs annars vegar og kröfuhafanna hins vegar við uppbyggingu bankanna. Kröfuhafar myndu þá sjá sér hag í því að færa eignir úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju á lægra verði í því augnamiði að nýju bank- arnir yrðu sterkari. Ríkið leggur svo inn auk- ið eigið fé og fær hlutabréf til samræmis við það. Hugsanleg útfærsla: Til að tryggja yfirráð ríkisins yfir bönkunum, meðan á uppbygg- ingu þeirra stendur, mætti haga málum þann- ig, ef samkomulag við erlenda kröfuhafa næst um það fyrirkomulag, að hlutabréf ríkisins yrðu A-hlutabréf sem veittu atkvæðisrétt, en aðrir eigendur myndu fá B-hlutabréf sem gætu til dæmis veitt forgang að arðgreiðslum. Óvissa: Óvissa er um að erlendir kröfuhafa myndu sætta sig við þá skipan mála. En sjálfsagt er að láta reyna á það, hvort samkomulag næst. Ef þeir heimta full yfirráð yfir bönkunum, þarf að skoða stöðuna á ný. Framsóknarflokkurinn bendir á leiðir. Eftir Einar Björn Bjarnason Einar Björn Bjarnason Höfundur er stjórnmálafræðingur, Evrópufræðingur og í 9. sæti í Reykjavík suður fyrir Framsóknarflokkinn. Hugmyndir framsóknarmanna um framtíð bankanna! Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.