Morgunblaðið - 25.04.2009, Side 22
Um borð Sérsveitarmenn og liðsmenn Landhelgisgæslunnar leggja af stað á
aðgerðarbátnum að skútunni. Þeir voru illa varðir slæmu veðri á leiðinni.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Í ÓLGUSJÓ og niðamyrkri var áætl-
unin að taka seglskútuna Sirtaki. Um
borð voru þrír menn, hugsanlega
vopnaðir, sem sáu fram á langa fang-
elsisvist ef þeir yrðu teknir höndum.
Mennirnir neituðu að stöðva för sína
og gefast upp.
Þær voru ekki gæfulegar aðstæð-
urnar sem sérsveitarmönnum Rík-
islögreglustjóra og stýrimönnum
Landhelgisgæslunnar var boðið upp
á sunnudaginn fyrir viku. Á ellefta
tímanum að kvöldi fóru þeir frá varð-
skipinu Tý á svonefndum aðgerða-
bát. Sjö menn voru um borð, fjórir
sérsveitarmenn og þrír frá Gæslunni.
Ölduhæð var mikil og gekk yfir bát-
inn auk þess sem mjög hvasst var.
Um var að ræða tímamótaaðgerð,
enda í fyrsta skipti sem tekið er sjó-
far hér við land.
Skipstaka æfð margsinnis
Sú ákvörðun að ráðast í slíka að-
gerð er ekki tekin í fljótfærni og að
ástæðulausu. Á vettvangi voru að-
stæður metnar þannig að stöðva
þyrfti skútuna og áhöfn hennar.
Þetta væri öruggasta leiðin til þess.
Að baki framkvæmdinni liggja
einnig þrotlausar æfingar. Meðlimir
sérsveitarinnar og Gæslunnar hafa
um áratugaskeið æft saman, þar á
meðal margsinnis að taka sjóför. Við
æfingarnar hafa hins vegar stærri
skip verið tekin, veðrið verið skap-
legra og áhættan af vopnuðum saka-
mönnum engin.
Enda var allt gert til að lágmarka
áhættuna. Sérsveitarmennirnir sem
báru um 25 kg af búnaði voru í sér-
stökum þurrgalla auk björg-
unarvestis. Þeir hefðu því ekki sokk-
ið þótt þeir höfnuðu í sjónum, þrátt
fyrir mikla þyngd. Auk þess var ann-
ar bátur sjósettur og biðu menn um
borð í honum tilbúnir til björgunar ef
illa færi.
Þar sem ekki var vitað hvort
áhöfnin væri vopnuð eður ei voru
tveir sérsveitarmenn á varðskipinu,
stjórnandi og dekkningarmaður (þ.e.
leyniskytta). Á meðan sérsveit-
armenn voru á leið að skútunni mið-
uðu þessir menn á áhöfnina, með
leyfi til að skjóta ef ástæða þætti til,
þ.e. ef mennirnir hefðu brugðið vopn-
um.
Björgunarþátturinn var því mjög
vel undirbúinn en ekki kom til þess
að áhöfn aðgerðarbátsins þyrfti að-
stoð. Tvö óvænt óhöpp urðu þó við
aðgerðirnar sem skrifast á slæmt
veður á vettvangi.
Hékk á hlið skútunnar
Í báðum tilvikum hefði getað farið
illa og kom þjálfun manna því að góð-
um notum. Þegar einn sérsveit-
armanna var að klifra úr aðgerð-
arbátnum yfir í skútuna var mikill
veltingur sem olli vandkvæðum.
Maðurinn náði taki á skútunni og
gerði sig líklegan til að fara yfir þeg-
ar fótfestan hvarf allt í einu. Sökum
öldugangs fór aðgerðarbáturinn und-
an og hékk maðurinn því á hlið skút-
unnar. Hann þurfti að auki að halda
sér þar til búið var að yfirbuga áhöfn-
ina. Þá var honum bjargað af fé-
lögum sínum.
Hitt atriðið var öllu léttvægara en
stofnaði þó öryggi sérsveitarmanns í
hættu. Öldurnar sem gengu yfir að-
gerðarbátinn urðu til þess að saltpilla
í björgunarvesti sérsveitarmanns
leystist upp. Við það blés vestið upp
og maðurinn varð óstarfhæfur á
meðan hann fór úr vestinu. Hann var
því illa varinn hefði hann fallið út-
byrðis.
Þjálfunin skilaði sér
Sérsveitarmenn – og stýrimenn
Gæslunnar – unnu mikið þrekvirki
þetta sunnudagskvöld. Hluti af þjálf-
un þessara manna er að bregðast við
óvæntum uppákomum og halda ró
sinni. Þjálfun þeirra varð því ekki
síst til þess að aðgerðirnar gengu vel
fyrir sig, þrátt fyrir hnökra og sýna
og sanna mikilvægi sveitanna.
Ævintýralegar aðstæður
Í HNOTSKURN
»Varðskipið TÝR stöðvaðikl. 22:35 19. apríl för segl-
skútunar Sirtaki djúpt út af
SA-landi vegna gruns um stór-
fellt fíkniefnabrot.
»Áhöfn TF-SYN hafði fylgtskútunni nær óslitið eftir
frá því hún fann skútuna kl.
12:30.
»Eftir að seglskútan fannstvoru sérsveitarmenn flutt-
ir með TF-LIF út í varðskipið
þar sem þeir sigu niður í skip-
ið kl. 14:50.
»Sérsveitarmenn handtókusvo áhöfn skútunnar, tvo
Íslendinga og Hollending.
»Hollendingurinn sem varhandtekinn um borð í
skútunni var fenginn til að
sigla skútunni til hafnar undir
eftirliti sérsveitarmanna.
Sérsveit Ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslan hafa um áratugaskeið æft á sjó
Þrotlausar æfingar skiluðu góðum árangri þegar skútan Sirtaki var tekin
Fjörutíu manns eru í sérsveit Rík-
islögreglustjóra. Heimild er fyrir
48 mönnum en óvíst að hún verði
nýtt í bráð. Verkefni sveitarinnar
eru margvísleg en töluverðum
hluta starfs sérsveitarmanna er
varið til æfinga.
Allar hugsanlegar aðstæður og
atvik eru æfð, á sjó, landi og í lofti.
Það tekur enda um þrjú ár frá því
að einstaklingur hefur störf þar til
hann er fullþjálfaður.
Sérsveitin hefur þurft að þola
mikla gagnrýni á undanförnum
misserum, og hefur m.a. verið bent
á að sérsveitarmönnum væri betur
komið fyrir í almennri löggæslu.
Sérsveitarmenn vinna vaktir og
að lágmarki er einn mannaður bíll
úti, en um helgar eru oft þrír og
jafnvel fjórir bílar í almennum lög-
gæslustörfum. Einnig er mannaður
bíll á Akureyri og annar á Suð-
urnesjum.
Stöðug viðvera sérsveitarmanna
er því vanmetin, en til að mynda
þarf ekki að kalla sveitina út komi
til sérstakra aðstæðna, s.s. vopn-
aðra manna. Við slíkum aðstæðum
er brugðist fljótt og örugglega.
Æfingar á öllum hugsanlegum atvikum
22 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
ÍSLENSKAR
getraunir hafa
neyðst til að
hækka röðina í
Getraunum úr
tólf krónum í
fimmtán krónur.
Verðbreytingin
tók gildi á mánu-
daginn var. Verð-
breytingar hafa verið tíðar en þetta
er í fimmta skipti sem breytingar
eru gerðar á undanförnum sjö mán-
uðum. Síðast lækkaði verðið í mars
sl. úr fimmtán krónum í tólf.
Stefán Snær Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenskra getrauna og
Íslenskrar getspár, segir ástæðuna
fyrir hækkuninni sem fyrr veiking
krónunnar gagnvart sænsku krón-
unni. Samstarf Íslenskra getrauna
við Svenska Spel felur það meðal
annars í sér að vinningsupphæðir
eru reiknaðar út samkvæmt gengi á
sænsku krónunni. Því verða Get-
raunir að selja röðina á því verði sem
sænska krónan kostar.
Stefán segir tippara hafa sýnt
verðbreytingum mikinn skilning.
„Yfirleitt er það einnig þannig að við
höfum borið skarðan hlut frá borði
en ekki kúnninn,“ segir Stefán og
bendir á að lengi vel á síðasta rekstr-
arári hafi röðin verið seld á tólf
krónur og gengið hafi farið hátt í
fimmtán krónur. andri@mbl.is
Enn breyt-
ist verðið
á röðinni
Íslenskar getraunir
neyðast til að hækka
STJÓRN Sambands íslenskra
safnamanna hefur þungar áhyggjur
af framtíð bátanna sem eru í umsjá
Byggðasafnsins að Görðum vegna
þess sem fram hefur komið um að
skilja eigi bátana frá rekstri safnsins
ef gengið verður til samninga um að
rekstur safnsins verði færður í
hendur einkahlutafélagsins Vætta.
Í bréfi sem stjórnin sendi bæj-
arstjóra Akraness er minnt á að
byggðasafnið hafi átt aðild að sam-
bandinu frá stofnun þess 2006 en að-
ildarréttur byggist á því að a.m.k.
60% safnkosts og sýninga séu sjóm-
injar. Þá er bæjarstjórinn m.a.
spurður hver muni annast varð-
veislu bátanna. Um mikil menning-
arverðmæti sé að tefla, hluta af
skipasmíðaarfi þjóðarinnar, sem alls
ekki megi fara forgörðum og hlúa
þurfi að með virðingu fyrir hinu
gamla handverki og sögu sjósóknar.
„Það er ekki á færi annarra en fag-
manna og skal það undirstrikað
hér,“ segir í bréfi stjórnarinnar.
Áhyggjur af
framtíð báta
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ÞEGAR einkafyrirtæki tók við rekstri Lista-
safnsins á Akureyri árið 2004 var það í fyrsta
skipti hér á landi sem rekstur safns var færður
frá bæjarfélagi yfir til einkaaðila. Rekstur
safnsins og listræn stjórnun þykir almennt
hafa tekist mjög vel. Í deilunum á Akranesi um
einkarekstur Byggðasafnsins að Görðum verð-
ur væntanlega litið til reynslunnar af „útvist-
un“ Listasafnsins á Akureyri. Það virðist á
hinn bóginn sem þessi tvö söfn eigi lítið sam-
eiginlegt og þar að auki er aðdragandinn að
einkarekstri Byggðasafnsins gjörólíkur.
Fyrirtæki Hannesar Sigurðssonar hefur séð
um rekstur Listasafnsins á Akureyri frá árinu
2004 samkvæmt þjónustusamningi við bæj-
arfélagið. Hannes var ráðinn forstöðumaður
árið 2000 en hann hafði þá um 10 ára reynslu
af sýningarstjórn. Fyrstu fjögur árin var
rekstur safnsins hefðbundinn, undir hatti bæj-
arins og stjórn Hannesar.
Ánægja var með störf Hannesar og árið
2004 samdi bærinn um að fyrirtæki hans tæki
við rekstri safnsins, gegn árlegri greiðslu sem
var hin sama og framlag bæjarsins áður.
Aðdragandinn að því að Vættir taki við
Byggðasafninu að Görðum er augljóslega mun
skemmri en auk þess liggur ekkert fyrir um að
það fyrirtæki eða forsvarsmaður þess hafi áð-
ur komið að rekstri safns. Að Görðum eru að
auki margir forngripir en Listasafnið á Ak-
ureyri geymir enga forngripi. Listaverkaeign
þess er mjög lítil og er megináherslan á nýjar
listsýningar.
Aðdragandi á Akureyri
Rekstur Listasafnsins á Akureyri færður frá bænum til einkaaðila 2004
Hafði verið safnstjóri í fjögur ár áður en hann tók alfarið við rekstrinum
Morgunblaðið/Kristján
List Frá sýningu Patricks Huse í Listasafninu.
Hannes Sigurðsson, forstöðumaður
Listasafnsins á Akureyri, sagði að hann
gæti ekki dæmt um deilurnar á Akranesi.
Mál sem þetta yrði að meta í hvert skipti,
hvers eðlis samningurinn væri og hvort sá
sem tæki við rekstri safnsins væri hæfur
til þess. Ýmsir kostir væru við einkarekst-
ur safna, líkt og ýmsir kostir væru við fjöl-
breytt rekstrarform í skólastarfi. Skólar
Hjallastefnunnar og Myndlistarskólinn á
Akureyri væru t.a.m. einkareknir. Lista-
safnið á Akureyri hefði færst í aukana eft-
ir að rekstrinum var breytt.
Listasafnið á Akureyri fær ekki styrki
úr Safnasjóði þar sem það er einkarekið
og þar með ekki tryggt að ágóði af safna-
starfinu renni til safnsins. Hannes benti á
að ef afgangur er af söfnum sem rekin eru
af sveitarfélögum renni hann ekki til
safnastarfsins heldur aftur í sveitarsjóð.
Munurinn fyrir fjárhagsstöðu safnsins
væri því í raun enginn.
Skoði hvert mál fyrir sig