Morgunblaðið - 25.04.2009, Side 30
30 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
TALIÐ er að allt að 6.500 óbreyttir borgarar hafi beðið
bana og nær 14.000 særst síðustu þrjá mánuði í átökum
stjórnarhersins og uppreisnarmanna úr röðum Tamíla á
Sri Lanka, að sögn embættismanna Sameinuðu þjóðanna.
Uppreisnarmennirnir, Tamíl-tígrarnir svonefndu,
höfðu eitt sinn um þriðjung Srí Lanka á valdi sínu en eru
nú innikróaðir á tólf ferkílómetra strandsvæði á norð-
austanverðri eyjunni. Yfir 100.000 óbreyttir borgarar
hafa flúið af yfirráðasvæði Tamíl-tígranna á síðustu dög-
um en embættismenn Sameinuðu þjóðanna telja að allt að
50.000 manns séu enn innlyksa á svæðinu. Áður en stjórn-
arherinn hóf sókn sína inn á yfirráðasvæði Tamíl-tí-
granna höfðu stjórnvöld á Srí Lanka haldið því fram að
aðeins 50.000 manns væru á svæðinu og undirbúningur
neyðaraðstoðarinnar við flóttafólkið miðaðist við þann
fjölda. Flóttamannabúðirnar eru því alltof litlar fyrir
150.000 manns og skortur er á matvælum og öðrum hjálp-
argögnum. Fréttamaður BBC, sem sá flóttamenn nálægt
átakasvæðinu, sagði að flestir þeirra virtust veikburða
vegna vannæringar og margir alvarlega veikir eða særð-
ir, þeirra á meðal mörg börn.
Sagðir nota fólkið sem skildi
Fast hefur verið lagt að stjórnvöldum á Srí Lanka að
gera hlé á árásunum til að hægt verði að hjálpa fólkinu
sem er enn innlyksa á átakasvæðinu. Stjórn landsins neit-
aði því í gær og sagði að uppreisnarliðið héldi flóttamönn-
unum í gíslingu og þeir kæmust ekki af svæðinu nema
stjórnarherinn bjargaði þeim. Stjórnin hefur sakað Tam-
íl-tígranna um að nota flóttafólkið sem nokkurs konar
skildi í átökunum.
Stjórnin hefur synjað beiðnum nokkurra hjálparstofn-
ana um leyfi til að senda hjálparsveitir á vettvang. „Það
væri ekki skynsamlegt að hleypa hjálparstofnunum inn á
átakasvæðið vegna þess að herinn hefur þegar gripið til
aðgerða til að bjarga óbreyttum borgurum,“ sagði varn-
armálaráðherra Srí Lanka, Gotabhyaya Rajapakse.
Þúsundir féllu í valinn
Allt að 50.000 manns innlyksa á átakasvæðinu á Sri Lanka og 100.000 hafa flúið
Margir þeirra þjást af vannæringu og þúsundir særðra hafa ekki fengið aðstoð
Í HNOTSKURN
» Leiðtogi Tamíl-tígranna,Velupillai Prabhakaran,
stjórnar enn uppreisnarliðinu
í frumskógi í norðausturhluta
Srí Lanka og hyggst berjast
þar til yfir lýkur, að sögn tals-
manns stjórnarhersins.
» Orðrómur hefur verið ákreiki um að leiðtoginn
hafi fallið eða flúið eyjuna.
» Herinn segir að nær 6.000Tamíl-tígrar hafi beðið
bana og 3.000 særst í átök-
unum frá september 2007.
VORIÐ er svo sannarlega komið á meginlandi
Evrópu og náttúran er farin að punta sig upp
fyrir sumarið. Hér er kona að ganga sér til
heilsubótar í skóginum við Halle í Belgíu en
hann er víðfrægur fyrir litadýrðina í apríl. Þang-
að koma ferðamenn og náttúruunnendur víðs
vegar að til að sjá villtar hýasintur eða goðaliljur
í blóma. Þá er skógurinn eins og blátt haf yfir að
líta og ilmurinn er víst engu líkur. svs@mbl.is
Vor í belgískum bláskógi
AP
SÁPUÓPERUR eru mjög vinsælar í Paragvæ eins og
annars staðar í Suður-Ameríku. Flækjurnar í þeim hafa
þó beinlínis bliknað í samanburði við fréttirnar af forset-
anum, Fernando Lugo. Hann er ekki bara forseti, heldur
líka fyrrverandi biskup og hefur nú játað að vera faðir
tveggja ára barns. Lugo er 57 ára en barnsmóðir hans
26. Þetta er þó kannski bara byrjunin.
Þegar Viviana Carrillo skýrði frá faðerni barnsins síns
brást Lugo vel við og gekkst ekki aðeins við því, heldur
tók hann þau til sín í forsetahöllina. Mæltist það vel fyrir
því að Paragvæ er ekki bara rammkaþólskt land, heldur
líka hið mesta karlrembusamfélag. Gamanið fór þó held-
ur að kárna þegar önnur kona höfðaði barnsfaðernismál
gegn Lugo sl. mánudag og sú þriðja á miðvikudag.
„Ég viðurkenni, að ég átti barn með konunni,“ sagði
Lugo á blaðamannafundi og átti við fröken Carrillo en
hún segir, að ástasamband hennar og biskupsins hafi
byrjað er hún var 16 ára. Um önnur börn vildi hann ekki
ræða en stjórnarandstaðan og fjölmiðlar í landinu hafa
bætt úr því.
„Það er eðlilegt, að íbúar þessa lands spyrji sig að því
hvort hægt sé að treysta því, sem forsetinn segir,“ sagði
Claudio Paolillo, ritstjóri dagblaðsins Nacion. „Ef hann
felur, brenglar staðreyndir og lýgur um ekki minna mál
en sitt eigið barn, má þá ekki búast við, að hann ljúgi til
um annað? Hvað á forsetinn eftir að gangast við mörgum
börnum?“
Mikill orðrómur er um, að barnahópurinn hans Lugos
eigi eftir að stækka og kaþólska kirkjan í Paragvæ liggur
undir miklu ámæli. Sagt er, að yfirmenn hennar hafi
lengi vitað um fjörugt ástalíf biskupsins fyrrverandi en
kosið að þegja um það. svs@mbl.is
Börnin farin að hlaðast á bisk-
upinn og forseta Paragvæ
AP
Barnakarlinn Bólfimi biskupinn Fernando Lugo eftir að
hann var kjörinn forseti Paraguay.
YFIRVÖLD í
Mexíkó staðfestu
í gær, að svína-
flensa væru kom-
in upp í landinu
og var fólk varað
við að koma sam-
an eða nota neð-
anjarðarlestir til
að draga úr smit-
hættu.
WHO, Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin, sagði í gær, að
60 manns hefðu látist úr flensunni en
mexíkósk stjórnvöld segjast geta
staðfest, að 45 manns hafi látist en
943 veikst. Er stjórnin nú að gang-
ast fyrir viðamikilli bólusetningu.
Sjö sjúkdómstilfelli hafa komið
upp í Bandaríkjunum og hafa stjórn-
völd þar miklar áhyggjur af sóttinni.
Þar er búið að greina veiruna, sem
er nýtt afbrigði af A-stofni, en óttast
er, að hún geti valdið faraldri. Hefur
það gerst áður, að skæð inflúensa
hafi borist úr svínum í menn.
Á síðustu árum hafa menn haft
mestar áhyggjur af, að flensa í fugli
yrði að faraldri að mönnum en frá
vordögum 2003 hefur alls 421 maður
veikst af fuglaflensu. Af þeim létust
257. Mesta hættan er þó sú, að ein-
hver veikist samtímis af fugla- og
svínaflensu. Út úr því gæti komið
nýtt og hættulegt flensuafbrigði.
Skólum var lokað í Mexíkóborg í
gær og í miðhluta landsins og var
fólk varað við að takast í hendur eða
kyssast. svs@mbl.is
Afar skæð
flensa í
Mexíkó
Smitberinn?
Komin úr svínum og
nokkrir tugir látnir
„MÉR líður eins og ég sé end-
urfædd,“ sagði 35 ára sádi-arabísk
kona í gær þegar læknar í Þýska-
landi höfðu fjarlægt brjóskæxli sem
vó hvorki meira né minna en átján
kíló. Læknarnir segja þetta stærsta
brjóskæxli sem vitað sé um.
Konan greindist með brjósksark-
mein árið 2004 og læknar í Kúveit
sögðu henni að fjarlægja þyrfti
hægri fótinn og helming mjaðm-
argrindarinnar. Hún sætti sig ekki
við þetta og leitaði til lækna í Berlín.
Þeir beittu fyrst efnameðferð til að
æxlið félli saman og fjarlægðu það
síðan í fimm skurðaðgerðum sem
framkvæmdar voru með tveggja til
fjögurra vikna millibili. bogi@mbl.is
Átján kílóa
æxli fjarlægt
UM 30 manns týndu lífi og meira en
100 særðust er tveir menn sprengdu
sig upp við helgidóm í Bagdad í Írak
í gær. Hefur þá nokkuð á annað
hundrað manns misst lífið í slíkum
árásum á tveimur dögum.
Árásirnar í gær áttu sér stað er
fjöldi manna baðst fyrir við einn
mesta helgidóm sjíta en dag hvern
koma þar saman hundruð manna
víðs vegar að úr Írak og nágranna-
löndunum, einkum Íran.
Mannskæðasta árásin á þessu ári
var gerð í bænum Muqdaadiyah,
sem er norðaustur af Bagdad, í
fyrradag en þá sprengdi sig upp
maður inni á veitingastað. Var hann
yfirfullur af fólki á leið til sjíta-helgi-
dómsins í Karbala. 56 menn létust í
árásinni, langflestir frá Íran.
Önnur sams konar árás var gerð í
Bagdad í fyrradag og þá létust 28
manns. Var þar um að ræða fólk,
sem hafði flúið ofbeldið í heimahög-
unum og leitað hælis í yfirgefinni
byggingu. Þegar það kom út til að
taka við matarhjálp var ráðist gegn
því. svs@mbl.is
Mikið mannfall
í árásum í Írak
Á annað hundrað
hefur týnt lífi á
tveimur dögum
AP
Sorg Harmi slegnar konur eftir
ódæðisverkið í Bagdad í fyrradag.