Morgunblaðið - 25.04.2009, Page 37
Daglegt líf 37ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
Kjördagskaffi
Allir sjálfstæðismenn eru velkomnir í kjördagskaffi í Valhöll og á öllum kosninga-
skrifstofum Sjálfstæðisflokksins. Kaffi, meðlæti og fjörugar umræður. Það jafnast
fátt á við stemninguna á kjördag. Ingó úr Veðurguðunum fer á milli kosninga-
skrifstofa með fríðu föruneyti og tekur lagið. Allir velkomnir!
Kosning hefst í dag kl. 9.00 og lýkur kl. 22.00.
Kosningaskrifstofur sjálfstæðisfélaganna
- akstur á kjördag
Ef þig vantar far á kjörstað, hringdu þá í okkur
á eftirtöldum stöðum:
Austurstræti 7
Símar: 894-1587 og 895-0399
Ármúli 18
Símar: 895-2377 og 895-9188
Mjódd - Álfabakki 14A
Símar: 864-2366 og 898-3447
Árbær - Hraunbær 102B
Símar: 899-4785 og 897-6932
Grafarvogur - Hverafold 5, 2. hæð
Símar: 896-8843 og 899-6814
Grafarholt - Kirkjustétt 2-6
Símar: 862-7779 og 865-8482
Seltjarnarnes - Austurströnd
Símar: 866-4679 og 866-6405
Kópavogur - Dalvegur 18
Símar: 866-9591 og 867-5295
Garðabær - Garðatorg
Símar: 867-6061 og 869-0598
Hafnarfjörður - Norðurbakki
Símar: 869-1801 og 864-4096
Mosfellsbær - Háholt 23
Símar: 894-4236 og 892-7552
Aðstoð við fatlaða
Sími: 866-4679
GÖNGUM HREINT TIL VERKS
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
- kjósum Sjálfstæðisflokkinn!
Kosningakaffi
og akstur á kjörstað
Kjörstaðir
Reykjavíkurkjördæmi norður
Ráðhús
Kjarvalsstaðir
Laugardalshöll
Íþróttamiðstöðin Grafarvogi
Borgarskóli
Ingunnarskóli
Klébergsskóli
Reykjavíkurkjördæmi suður
Hagaskóli
Hlíðaskóli
Breiðagerðisskóli
Ölduselsskóli
Íþróttamiðstöðin Austurbergi
Ingunnarskóli
Árbæjarskóli
Suðvesturkjördæmi
Kópavogur
Hörðuvallaskóli og Íþróttahúsið
Smáranum
Garðabær
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Mosfellsbær
Lágafellsskóli
Álftanes
Álftanesskóli
Seltjarnarnes
Valhúsaskóli
Hafnarfjörður
Öldutúnsskóli, Víðistaðaskóli,
Setbergsskóli og Áslandsskóli
Allar upplýsingar um kjörskrá,
kosningar og framkvæmd þeirra
eru gefnar í síma 515 1700.
Munið persónuskilríki á kjörstað!
Kjósum snemma!
Kosningahátíð í Reykjavík
Kosningasjónvarp og kosningastemning fram á nótt í
Valhöll. Léttar veitingar verða seldar gegn vægu verði,
þeim sem hafa aldur til. Opið í Valhöll frá kl. 22.00.
Allir velkomnir!
Kosningahátíð í Suðvesturkjördæmi
Kosningavaka frambjóðenda í Suðvesturkjördæmi
verður haldin á Amokka, Hlíðasmára í Kópavogi
og hefst klukkan 22.00. Allir velkomnir!
Utankjörstaðaskrifstofa
Móttaka utankjörfundaratkvæða er í Valhöll,
Háleitisbraut 1. Símar: 515 1735 og 515 1736.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
fagnaði 100 ára afmæli sínu hinn 20.
mars með veglegu kaffisamsæti í
Félagsheimili Hvammstanga. Mikill
fjöldi fólks samfagnaði félaginu með
þessi merku tímamót. Gunnar Þór-
arinsson, formaður stjórnar KVH,
rakti sögu félagsins og minntist ým-
issa merkra atburða á starfstím-
anum. Reimar Marteinsson kaup-
félagsstjóri sagði frá rekstri KVH
og framtíðarhorfum félagsins. KVH
rekur matvöruverslun á Hvamms-
tanga, ásamt byggingarvörudeild,
vínbúð og pakkhúsi, auk þess að
leigja skrifstofuhúsnæði til Fæðing-
arorlofssjóðs. Sett var upp mynda-
sýning frá starfstíma félagsins
ásamt ýmsum munum frá rekstri
þess frá ýmsum tímum. Félaginu
voru færðar góðar óskir og Spari-
sjóðurinn styrkti starfsmannafélag
KVH með fjárframlagi. Karlakórinn
Lóuþrælar og Kvæðamannafélagið
Vatnsnesingur skemmtu gestum.
Þótti afmælisfagnaðurinn takast vel.
Það bar vel í veiði fyrir athafna-
manninn Bangsa, Björn Þ. Sigurðs-
son, þegar stærðarhákarl veiddist á
lóð sem hann hafði lánað kunn-
ingjum sínum, en þeir lögðu hana
norður af Miðfirði. Beittu þeir úr-
valsbeitu, úldnum sel. Bólið týndist
að vísu, en dragnótabátur frá
Drangsnesi krækti í lóðina og þar
var á um fimm metra langur hákarl,
sprelllifandi. Var honum landað á
Hvammstangahöfn. Varð það mál
manna að flikkið væri á annað tonn.
Bangsi, sem er snilldar hákarlsverk-
andi, tók skepnuna í verkun, und-
irbjó kæsingu á um helmingshlut, en
setti hinn hlutann í frysti. Það sem
undraði áhorfendur, m.a. skólabörn
úr grunnskólanum, var hve gríð-
arlega stór lifrin er í svona dýri,
þakti hún kviðarholið frá haus aftur
undir sporð. Það minnir á að á árum
áður var hákarl einkum veiddur
vegna lifrarinnar, hún brædd eða
látin sjálfrenna í lýsi. Lýsið var m.a.
selt til stórborga nágrannalanda og
notað sem ljósmeti. Bangsi nýtir
hins vegar hold dýrsins til að fram-
leiða kæstan hákarl og hefur alltaf
lukkast vel.
Nýja reiðhöllin á Hvammstanga er
ekki fullbúin, þótt húsið sé risið, en
hefur þó þegar sinnt miklu hlut-
verki. Þar fer fram kennsla á vegum
Æskulýðsstarfs Hestamannafélags-
ins Þyts í Húnaþingi. Þórir Ísólfsson
reiðkennari kennir og þjálfar um
fjörutíu ungmenni, 6 til 15 ára, allt
að sjö tíma í viku. Nemendur leggja
til sinn eigin hest og þjálfa því bæði
sig og hestinn. Um tuttugu leik-
skólabörn tveggja til sex ára koma
svo tvisvar í mánuði. Árangurinn
hefur mátt sjá á sýningum sem hafa
verið og komið þar fjöldi þátttak-
enda og gesta, einnig hafa komið um
60 börn í heimsókn frá Blönduósi.
Reiðkennsla hefur einnig verið með-
al eldri hópa, þar um 10-15 þátttak-
endur. Grunnskólamót í reiðlist
meðal ungmenna Húnvetninga og
Skagfirðinga var hinn 18. apríl á
Sauðárkróki og hnepptu Vestur-
Húnvetningar þar 2. sætið. Nú í
næstu viku taka 50 til 60 ungmenni
héðan þátt í móti á Akureyri, sem
ber heitið Æskan og hesturinn.
Miklar væntingar eru því bundnar
starfsemi í reiðhöllinni á Hvamms-
tanga á komandi tíð. Það er sann-
arlega jákvætt að skapa unga fólk-
inu svo hollan vettvang á þessum
óvissutímum í íslensku þjóðfélagi.
HVAMMSTANGI
Karl Ásgeir Sigurgeirsson fréttaritari
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Við sjóinn Bangsi á Hvammstanga
skoðar hákarlakrókinn.
Kosið er til Alþingis í dag.Magnús Skúlason sendir
Vísnahorninu kveðju: „Í tilefni
kosninganna datt mér í hug að
senda þér þessa stöku eftir hinn
kunna hagyrðing, Bjarna Jónsson
(úrsmið á Akureyri) frá Gröf (í
Húnavatnssýslu):
Kosningarnar koma senn,
kurteisina bæta.
Nú heilsa allir heldri menn
hverjum sem þeir mæta.
Eflaust gætu ákvæðavísur séra
Hallgríms Péturssonar breytt
úrslitum kosninga, því hann var
kraftaskáld eins og allir þekkja.
Um hann skrifar Kristján Eiríksson
í sjötta hefti Sónar frá árinu 2007:
„Eftir að Hallgrímur er kominn að
Saurbæ og orðinn frægur af
sálmakveðskap fara að spretta upp
þjóðsögur um hann og halda áfram
að magnast eftir dauða hans uns
þær fullkomna þá mynd af skáldinu
sem þjóðin þekkir. Hann er
kraftaskáld sem kveður drauga
jafnt upp sem niður og ekki getur
hann stillt sig er hann sér af
predikunarstóli hvar tófa kemur í
tún og bítur lamb en kveður hana
dauða úr miðri ræðunni:
Þú sem bítur bóndans fé,
bölvuð í þér augun sé,
stattu eins og stofn af tré,
stirð og dauð á jörðunne.“
Forvitnilega grein um
skáldkonuna Halldóru B. Björnsson
eftir Berglindi Gunnarsdóttur er að
finnaí hausthefti Skírnis 2008. Þar
er meðal annars ljóðið Ást:
Horfið er allt mitt yndi
angrar mig dagsins ljós.
Hvar áður var aldingarður
vex aðeins þyrnirós.
Ósk mín er vond: ég vildi
vita þig kaldan ná,
gera þér gröf í moldu
og grafa mig sjálfa þér hjá.
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Kraftaskáld og Þyrnirós
BRJÓSTAMJÓLK inniheldur
minna af prótíni en þurrmjólk og
það kann að vera ástæða þess að
pelabörn þyngjast hraðar en börn
sem höfð eru á brjósti, samkvæmt
nýrri rannsókn.
Rannsóknin náði til 1.000 ung-
barna í Belgíu, Ítalíu, Póllandi,
Spáni og Þýskalandi og var birt í
tímaritinu American Journal of
Clinical Nutrition. Rannsókn-
armennirnir segja niðurstöðurnar
benda til þess að minnka þurfi prót-
íninnihald þurrmjólkur til að minnka
líkurnar á því að börnin verði of feit
síðar. Fréttavefur breska rík-
isútvarpsins, BBC, hafði þó eftir
breskum þurrmjólkurframleið-
endum að þegar hefðu verið gerðar
ráðstafanir til að minnka prót-
íninnihaldið.
Rannsóknin náði til barna sem
fæddust á árunum 2002-2004. Þriðj-
ungur barnanna fékk prótínsnauða
mjólkurblöndu (um 2g á 100 kílókal-
oríur), þriðjungur prótínríkari
mjólkurblöndu (3-4g á 10 kílókal.) en
hin börnin fengu móðurmjólk fyrsta
árið, að sögn BBC.
Börnin voru vegin og mæld reglu-
lega. Þegar börnin voru tveggja ára
var meðalhæð hópanna þriggja svip-
uð, en þau börn, sem fengu prót-
ínríku þurrmjólkina, voru þyngst.
Rannsókninni verður haldið áfram
til að kanna hvort börnum, sem
fengu prótínríku mjólkina, sé hætt-
ara við offitu síðar. bogi@mbl.is
Stuðlar þurrmjólkin að offitu?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Móðurmjólk Rannsóknin er sögð
staðfesta mikilvægi brjóstagjafar.