Morgunblaðið - 11.05.2009, Side 1
M Á N U D A G U R 1 1. M A Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
126. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«FLUGAN FÓR Á STJÁ
FÚLAR KONUR OG
ÍSLENSK HÖNNUN
«SÖNGVASEIÐUR FRUMSÝNDUR
HÁTÍÐARSTEMNING Í
BORGARLEIKHÚSINU
Össur Skarphéðinsson smellti einum kossi á
kinn flokkssystur sinnar Katrínar Júlíusdóttur
um leið og hann afhenti henni lyklana að iðn-
aðarráðuneytinu í gærkvöldi. „Þetta leggst vel
í mig,“ sagði Katrín nýskipuð iðnaðarráðherra.
Árni Páll Árnason, nýr félagsmálaráðherra, er
ánægður með þá miklu ábyrgð sem honum er
fólgin. Ásta R. Jóhannesdóttir, fráfarandi fé-
lagsmálaráðherra, virðist leggja honum lín-
urnar um leið og hún færir honum lyklavöldin.
Svandís Svavarsdóttir er þakklát fyrir það
traust sem henni er sýnt með því að fá um-
hverfisráðuneytið. Hún tók við ráðuneytislykl-
unum í gærkvöldi úr hendi Kolbrúnar Hall-
dórsdóttur sem víkur nú af Alþingi.
Ráðherrum fjölgar um tvo
Katrín Júlíusdóttir tekur
við iðnaðarráðuneytinu
Árni Páll Árnason er nýr
félagsmálaráðherra
Svandís Svavarsdóttir sest
í stól umhverfisráðherra
Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jón Bjarnason, nýr ráðherra landbúnaðar og
sjávarútvegs, segir sóknarfæri íslensku þjóð-
arinnar liggja ekki hvað síst í íslenskum land-
búnaði og sjávarútvegi. Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður VG, afhenti Jóni lyklavöldin.
Jón Bjarnason ráðherra
landbúnaðar og sjávarútvegs
Eftir Jón Pétur Jónsson og
Skapta Hallgrímsson
„ÞAÐ verður lögð fyrir Alþingi til-
laga um að ríkisstjórnin hefji við-
ræður um aðild að Evrópusam-
bandinu fljótlega eftir að þing
kemur saman, sem við vonumst til
að ljúka á þessu þingi,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir, forsætisráð-
herra og formaður Samfylking-
arinnar, þegar hún kynnti sam-
starfsyfirlýsingu Samfylkingar-
innar og Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs síðdegis í gær. Ný
ríkisstjórn tók síðan við völdum á
Bessastöðum um kvöldmat-
arleytið. „Hér er orðin til á Íslandi
fyrsta hreina vinstristjórnin,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon,
fjármálaráðherra og formaður VG.
Þrátt fyrir ólíka afstöðu í Evr-
ópumálum hafa flokkarnir samið
um að halda áfram stjórnarsam-
starfi og hafa ákveðið að ákvörðun
um aðild Íslands að ESB verði í
höndum þjóðarinnar. „Eftir langar
umræður varð um það mjög breið
samstaða í flokksráðinu að við
gengjum til þessa samstarfs,“
sagði Steingrímur.
ESB-málið er hins vegar mjög
umdeilt innan raða VG og skv.
heimildum Morgunblaðsins lýstu
þingmennirnir Atli Gíslason, Jón
Bjarnason, Þuríður Backman, Ás-
mundur Einar Daðason og Lilja
Rafney Magnúsdóttir yfir and-
stöðu sinni á fundi flokksráðsins og
sögðust áskilja sér rétt til að greiða
atkvæði á móti ESB-tillögunni á
Alþingi.
Stjórnmálafræðingar segja að
flókin staða sé komin upp. „Maður
dregur eðlilega þá ályktun að
stjórnarflokkarnir muni tryggja að
þessi þingsályktunartillaga nái
fram að ganga,“ segir Aðalsteinn
Leifsson, lektor við HR.
Gunnar Helgi Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði við HÍ,
segir Evrópumálið setja alla flokka
í nokkurn vanda. Formaður Sjálf-
stæðisflokksins segir ekki mikið
hafa komið á óvart í nýjum stjórn-
arsáttmála. „Það virðist taktík
þessarar ríkisstjórnar að teysta á
stjórnarandstöðuna,“ segir Bjarni
Benediktsson. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, segir að það sé
einsdæmi að ríkisstjórnarflokk-
arnir ætli að treysta því að stjórn-
arandstaðan leysi ESB-málið.
Ný ríkisstjórn hefji við-
ræður um aðild að ESB
Fyrsta hreina vinstristjórnin tekin við völdum Nokkrir þingmenn VG á
móti ESB-ályktun Stjórnarandstaðan furðar sig á ákvörðunum stjórnarinnar
Í HNOTSKURN
» Fyrsti fundur nýrrarríkisstjórnar verður
haldinn á Akureyri á morg-
un.
» Vorþing tekur til starfaá föstudag.
» Fjórir ráðherrar ríkis-stjórnarinnar eru nýir.
Ný ríkisstjórn/2-8,12-13, 18
„MÉR líst afar illa á þær fyrirætlanir að
gera aflaheimildir upptækar,“ sagði Friðrik
J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna við
Morgunblaðið, um fyrningarleiðina svoköll-
uðu sem ríkisstjórnin hyggst fara við end-
urskoðun laga um stjórn fiskveiða. „Það
hafa aldrei verið talin mikil búhyggindi að
slátra mjólkurkúnni.“ Innkalla á aflaheim-
ildir og endurráðstafa á 20 ára tímabili og
stefnt er að því að áætlun þar að lútandi
taki gildi við upphaf nýs fiskveiðiárs, 1.
september 2010. Örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands smábátaeig-
enda, segir sambandið einnig alfarið á móti
fyrningarleiðinni. Þeir sem nú vinni við
veiðar séu best til þess fallnir; þeir hafi
unnið samkvæmt gildandi lögum, margir
keypt veiðiheimildir fyrir háar fjárhæðir,
skuldi þar af leiðandi mikið og staðan sé
þannig að lítið megi koma upp á til þess að
allt fari á annan endann. „Það á ekki að
hvarfla að nokkrum manni að fara út í
svona aðgerðir,“ sagði Örn Pálsson.|7
„Ekki mikil búhyggindi að slátra mjólkurkúnni“
Framkvæmdastjórar Landssambands íslenskra útvegsmanna og
Landssambands smábátaeigenda andvígir fyrningarleið ríkisstjórnarinnar
Ráðuneytum verði fækkað úr
12 í 9 og m.a. verði stofnuð at-
vinnuráðuneyti og innanríkis-
ráðuneyti.
Peningastefna Seðlabankans
verði endurskoðuð og mat lagt
á hvernig best verði dregið úr
vægi verðtryggingar.
Grunnur verði lagður að inn-
köllun og endurráðstöfun
aflaheimilda á tuttugu ára
tímabili.
Verðleggja beri losunarheim-
ildir gróðurhúsalofttegunda
og gera viðskipti með þær
möguleg.
Samráð verði haft við aðila
vinnumarkaðarins um gerð
stöðugleikasáttmála.
Frjálsar handfæraveiðar
yfir sumarmánuðina verði
heimilaðar.
Kynjuð hagstjórn verði höfð
að leiðarljósi við fjárlagagerð
og efnahagsstjórn.
Jafnvægi náist í ríkisfjármálin
fyrir 2013 og ýtrasta aðhalds
verði gætt í rekstri
ríkisins.
Forgangsröðun verkefna hjá
ríkinu verði í þágu mann-
aflsfrekra framkvæmda.
Stjórnin stefnir
að því að …