Morgunblaðið - 11.05.2009, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol
21. maí í 12 nætur. Þú bókar sæti og 4
dögum fyrir brottför færðu að vita hvar
þú gistir. Gríptu tækifærið og njóttu lífs-
ins í sumarbyrjun á vinsælasta sumar-
leyfisstað Íslendinga.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 69.990 12 nætur
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi /
stúdíó / íbúð í 12 nætur, m.v. stökktu
tilboð. Aukavika kr. 20.000
12 nátta ferð – allra síðustu sætin!
Stökktu til
Costa del Sol
21. maí – 2. júní
frá kr. 69.990
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur
sigrunerna@mbl.is
SÖGULEG stund átti sér stað á
Bessastöðum í gær þegar fyrsta
vinstristjórn með þingmeirihluta
hér á landi kom saman í fyrsta sinn.
Samfylkingin og Vinstrihreyfingin –
grænt framboð mynda ríkisstjórn-
ina sem í sitja tólf ráðherrar og er
hún önnur stjórn Jóhönnu Sigurð-
ardóttur forsætisráðherra. Tveir
ráðherrar létu af embætti og fjórir
bættust í hópinn. Þrátt fyrir að ráð-
herrum hafi fjölgað um tvo áætlar
ríkisstjórnin að fækka ráðuneytum
úr tólf í níu síðar á kjörtímabilinu.
Skipti á tveimur stólum
Það var blendin stemning á
Bessastöðum í gær þegar ein rík-
isstjórn lét af störfum og önnur tók
við. Fyrri fundurinn var síðasti
fundur fráfarandi ríkisstjórnar og
mátti merkja þar ákveðinn þunga
enda voru tveir ráðherrar að
kveðja, þær Ásta Ragnheiður í fé-
lags- og tryggingamálaráðuneyti og
Kolbrún Halldórsdóttir í umhverf-
isráðuneyti.
Nýir ráðherrar
Óhætt er að segja stemningin
hafi verið léttari á síðari fundinum
sem var fyrsti ríkisráðsfundur
nýrrar stjórnar Jóhönnu Sigurð-
ardóttur. Fjórir nýir ráðherrar
höfðu þá bæst við. Árni Páll Árna-
son verður félags- og trygginga-
málaráðherra í stað Ástu Ragnheið-
ar sem verður forseti Alþingis, og
Svandís Svavarsdóttir tekur við í
umhverfisráðuneyti af Kolbrúnu
Halldórsdóttur sem náði ekki kjöri
á þing.
Nýir ráðherrar
Þá verður Jón Bjarnason land-
búnaðar- og sjávarútvegsráðherra
og Katrín Júlíusdóttir iðnaðar-
ráðherra. Gylfi Magnússon og
Ragna Árnadóttir sitja áfram sem
ráðherrar en þau eiga ekki sæti á
Alþingi. Verður Gylfi ráðherra
efnahagsmála og Ragna dómsmála-
ráðherra. Þeir ráðherrar sem sitja
áfram eru auk Jóhönnu þau Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra, Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra, Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra, Ögmundur
Jónasson heilbrigðisráðherra og
Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra.
Ný stjórn í skugga kreppu
Tveir ráðherrar láta af störfum Fjórir nýir ráðherrar í ríkisstjórn Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir verður nýr forseti Alþingis Fyrsta kjörna vinstriflokka-meirihlutastjórn Íslands
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinstristjórn Ný vinstriflokka-meirihlutastjórn hittist á sínum fyrsta ríkisráðsfundi á Bessastöðum í gær.
JÓN Bjarnason, nýr ráðherra landbúnaðar og sjávar-
útvegs, segist sáttur við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar þótt hann geri fyrirvara um Evrópubandalags-
aðild. Jón sagði verkefni ríkisstjórnarinnar fyrst og
fremst vera að rétta við efnahagslífið og stöðu heim-
ilanna.
,,Sóknarfæri íslensku þjóðarinnar liggja ekki hvað
síst í íslenskum landbúnaði og sjávarútvegi. Við þurf-
um að efla alla innlenda framleiðslu, afla gjaldeyris,
spara hann í innflutningi og skapa störf. Í landbúnaði
og sjávarútvegi liggja miklir möguleikar til þess,“ seg-
ir Jón.
Jón er fæddur 1943 og á sex börn með konu sinni, Ingibjörgu Berg-
steinsdóttur þroskaþjálfa. Jón er búfræðingur að mennt og var m.a.
skólastjóri Bændaskólans að Hólum í Hjaltadal í 18 ár. Hann tók fyrst
sæti á Alþingi árið 2003 og hefur gegnt starfi formanns þingflokks
Vinstri-grænna. sigrunerna@mbl.is
Fyrirvari um aðildarumsókn
Jón Bjarnason
ÁRNI Páll Árnason, nýr félagsmálaráðherra, sagði það
takmark nýrrar stjórnar að verja grundvallarstoðir vel-
ferðar og að forðast flatan niðurskurð í þeim viðkvæmu
málaflokkum sem heyrðu undir hans ráðuneyti. Það yrði
þó að spara líkt og önnur ráðuneyti og gæta hverrar
krónu.
,,Við verðum að eyða því takmarkaða skattfé sem við
höfum af mikilli ábyrgð og mikilli ráðdeild,“ sagði Árni.
Árni Páll segist taka við góðu búi af forverum sínum,
þeim Ástu R. Jóhannesdóttur og Jóhönnu Sigurð-
ardóttur.
Hann sagðist ánægður með þá miklu ábyrgð sem honum væri fólgin og
sagðist vona að með Guðs hjálp og góðra manna myndi hann standa undir
henni. Árni er 43 ára lögfræðingur og kvæntur Sigrúnu Eyjólfsdóttur flug-
freyju. Saman eiga þau þrjú börn.
Ekki náðist í Ástu R. Jóhannesdóttur í gær. sigrunerna@mbl.is
Munum verja velferðarkerfið
Árni Páll Árnason
,,ÉG er farfugl eins og margæsin sem ég sé þarna út um
gluggann,“ sagði Kolbrún Halldórsdóttir á Bessastöðum í
gær en þar lét hún af embætti umhverfisráðherra. Spurð
um framtíðina sagði Kolbrún að hún væri alls óráðin.
Hún vildi ekkert gefa út á orðróm þess efnis að hún
myndi sækjast eftir stöðu þjóðleikhússtjóra. Hún hefði
sótt um þá stöðu fyrir fimm árum og það yrði bara að
koma í ljós hvort hún gerði það aftur.
Kolbrún sagðist vera þakklát fyrir þann tíma sem hún
varði í ráðherraembætti, hann hefði verið líkur meist-
aranámi í háskóla og nú væri kominn tími til að útskrifast.
sigrunerna@mbl.is
,,Farfugl eins og margæsin“
Kolbrún
Halldórsdóttir
Ný ríkisstjórn
,,ÉG er hrærð og þakklát yfir því trausti sem mér er
sýnt með því að fela mér ráðuneytið. Verkefnin eru í
senn spennandi og krefjandi,“ segir Svandís Svav-
arsdóttir, nýr umhverfisráðherra. Svandís mun ekki
sitja út kjörtímabilið í borgarstjórn eins og hún hafði áð-
ur gefið út og mun sömuleiðis víkja úr stjórn Orkuveit-
unnar. Hver eftirmaður hennar verður í stjórn OR á eft-
ir að koma í ljós.
Svandís vildi ekki gefa upp hvernig hennar atkvæði
um aðildarviðræður myndi falla. „Það gerir það hver og
einn upp við sig í þingflokknum hvernig hann greiðir at-
kvæði um þessa tillögu,“ sagði Svandís.
Svandís er 45 ára að aldri og á fjögur börn með manni sínum, Torfa
Hjartarsyni lektor. Hún hefur MA í íslenskri málfræði frá Háskóla Íslands.
sigrunerna@mbl.is
Yfirgefur borgarstjórn
Svandís
Svavarsdóttir
SÓLEY Tóm-
asdóttir tekur
sæti Svandísar
Svavarsdóttur í
borgarstjórn
Reykjavíkur er
hún sest í stól
umhverfis-
ráðherra.
„Já, það er frá-
gengið, en við
eigum eftir að fara yfir hvort ég tek
við öllum hennar embættum innan
borgarinnar, það verða sjálfsagt
einhverjar hrókeringar þar,“ segir
Sóley. Svandís á nú m.a. sæti í borg-
arráði, skipulagsráði, situr í stjórn-
kerfisnefnd borgarinnar og er
fulltrúi í stjórn Orkuveitunnar.
Sóley hefur verið í 70% starfi sem
fyrsti varaborgarfulltrúi VG og í
30% starfi innan borgarstjórn-
arflokksins. Hún kveðst ætla að
halda áfram að beita sér fyrir
stefnumálum flokksins eins og hún
hafi gert fram til þessa í borg-
arstjórn.
Hermann Valsson tekur við stöðu
Sóleyjar sem varaborgarfulltrúi.
Sóley fær sæti
Svandísar
Sóley Tómasdóttir
Gunnar Helgi Kristinsson, prófess-
or í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, telur að sú „óvenjulega“
leið sem ríkisstjórnin fer í Evrópu-
málinu setji alla flokka í ákveðinn
vanda og geti t.d. reynt töluvert á
stjórnarsamstarfið. „Það verður
mjög flókið fyrir Framsóknarflokk-
inn að greiða atkvæði gegn þings-
ályktunartillögu sem gæti orðið
nánast samhljóða eigin flokks-
samþykkt. Og fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn gæti það orðið dálítið
erfitt að greiða
atkvæði gegn
þessu.
Reyndar er
landsfundar-
samþykktin
þannig en þá er
flokkurinn líka
fastur í þeirri
afstöðu næstu
áratugi, í raun.
Ég er ekki viss
um að hann vilji það.“
Evrópumálið setur alla flokka í nokkurn vanda
Gunnar Helgi
Kristinsson
„ÞETTA leggst vel í mig. Atvinnumálin verða gríð-
arlega stórt verkefni á þessu kjörtímabili og þarna er
þungamiðja atvinnumálanna,“ segir Katrín Júlíusdóttir,
verðandi iðnaðarráðherra. Hún tekur við ráðuneytinu af
Össuri Skarphéðinssyni, flokksbróður sínum.
Orkumál og stóriðjumál heyra undir iðnaðarráðu-
neytið en öll spjót hafa staðið á Samfylkingunni vegna
þessara málaflokka.
„Það þarf að fara að sætta sjónarmið í þessum efnum.
Þess vegna leggjum við mikið kapp á að rammaáætlun
um nýtingu og vernd náttúrusvæða verði kláruð sem
fyrst. Ég vildi sjá hana kláraða næsta vetur og þá erum við komin með yf-
irsýn sem er mikilvæg,“ segir Katrín.
Katrín Júlíusdóttir tók fyrst sæti á Alþingi árið 2003 og hefur setið í iðn-
aðarnefnd þingsins frá árinu 2005, þar af verið formaður hennar frá árinu
2007. the@mbl.is
Þungamiðja atvinnumálanna
Katrín Júlíusdóttir