Morgunblaðið - 11.05.2009, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Ný ríkisstjórn
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
NÝ ríkisstjórn Samfylkingarinnar
og Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs vill að ákvörðun um aðild
Íslands að Evrópusambandinu verði
í höndum þjóðarinnar. Fram kemur
í samstarfsyfirlýsingu flokkanna,
sem var kynnt í gær, að Íslendingar
muni greiða atkvæði um samning í
þjóðaratkvæðagreiðslu að loknum
aðildarviðræðum. „Utanríkis-
ráðherra mun leggja fram á Alþingi
tillögu um aðildarumsókn að Evr-
ópusambandinu á vorþingi,“ segir í
yfirlýsingunni.
„Við leggjum áherslu á að aðild-
arumsókn fari í júlímánuði, ekki síð-
ar,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir,
forsætisráðherra og formaður Sam-
fylkingarinnar, er hún kynnti sam-
starfsyfirlýsinguna í gær.
Ólíkar áherslur virtar
Steingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra og formaður VG, segir
hins vegar að aðild að ESB sé ekki
stærsta verkefni íslenskra stjórn-
valda í augnablikinu. „Stóra verk-
efnið er hér heima. Það er okkar
samfélag, okkar atvinnulíf, okkar
fjölskyldur og aðalglíma næstu
misseri verður þar,“ segir hann.
„Þá er það vissulega málamiðlun
sem við gerum og er mörgum okkar
erfið. Á það skal ekki draga dul,“
segir Steingrímur varðandi ESB-
tillöguna. Hann tekur hins vegar
fram að VG hafi ekki hvikað frá
stefnu sinni. „Flokkarnir eru sam-
mála um að virða ólíkar áherslur
hvors um sig og þar með talið rétt til
málflutnings og baráttu í samræmi
við það.“
Í samstarfsyfirlýsingunni segir
jafnframt að flokkarnir leggi áherslu
á að leita þjóðarsamstöðu um leið Ís-
lands til endurreisnar – nýjan stöð-
ugleikasáttmála. Meginmarkmið
nýrrar ríkisstjórnar sé hins vegar að
endurreisa íslenskt efnahagslíf.
„Það er skýr áhersla á að endurreisa
á Íslandi norrænt velferðarsamfélag
í besta anda,“ segir Steingrímur og
bætir við að á Íslandi sé orðin til
„fyrsta hreina vinstri græna rík-
isstjórnin og það er sérstakt fagn-
aðarefni“.
Jóhanna segist binda miklar vonir
við stjórnina. „Ég er mjög stolt á
þessum degi. Að þetta skuli vera
fyrsta ríkisstjórn félagshyggju- og
jafnaðarmanna.“
Erfið verkefni framundan
Jóhanna benti á að ríkisstjórnin
stæði frammi fyrir erfiðum verk-
efnum, sérstaklega í ríkisfjármál-
unum. Áfram yrði unnið að því að
endurreisa bankakerfið og koma
efnahags- og atvinnulífinu betur á
fót.
Hún kynnti jafnframt 100 daga
áætlun þar sem tilgreint er hvernig
ríkisstjórnin hyggist hrinda í fram-
kvæmd mikilvægustu verkefnunum.
Ráðuneytunum verður m.a. fækkað
úr 12 í 9 á þessu kjörtímabili og má
því búast við ráðherrabreytingum á
tímabilinu.
Stefnt er að því að koma á einu at-
vinnumálaráðuneyti, sem verður
hleypt af stokkunum um mitt kjör-
tímabil, innanríkisráðuneyti auk
þess sem stofnað verði efnahags-
ráðuneyti þegar í stað. Jóhanna
benti á að Seðlabanki Íslands og
Hagstofan mundu heyra undir efna-
hagsráðuneytið.
Þá leggur ríkisstjórnin til að lög
um fiskveiðar verði endurskoðuð í
heild í samræmi við stefnumörkun
stjórnarflokkanna, sem þýði inn-
köllun á aflaheimildum í áföngum og
endurúthlutun. Endurskoðunin
verði unnin í samráði við hags-
munaaðila í sjávarútvegi og miðað
við að áætlun um innköllun og end-
urráðstöfun taki gildi í upphafi fisk-
veiðiárs, 1. september 2010.
Þjóðin kjósi um aðild að ESB
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samstarfsyfirlýsing Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
kynntu nýja samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna í Norræna húsinu í gær.
Áhersla lögð á að aðildarumsókn fari í júlí Meginverkefni nýrrar stjórnar að endurreisa íslenskt
atvinnulíf Lagt til að endurskoða lög um fiskveiðar Ráðuneytum fækkað úr 12 í 9