Morgunblaðið - 11.05.2009, Qupperneq 5
5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
Yfirgnæfandi meirihluti samþykkti
samstarfsyfirlýsingu nýrrar rík-
isstjórnar Samfylkingar og Vinstri-
hreyfingarinnar - græns framboðs á
flokksráðsfundi VG í gær, sem um
150 manns sóttu. Fundurinn stóð yfir
í um sjö klukkustundir og voru um 50
manns á mælendaskrá.
Í yfirlýsingunni kemur fram að
flokkarnir séu sammála um að rétt sé
að utanríkisráðherra leggi fram til-
lögu á Alþingi um að Ísland sækist
eftir aðild þegar á vorþingi. End-
anleg ákvörðun verði svo í höndum
þjóðarinnar.
Ekki eru allir á eitt sáttir um þetta
innan raða VG, bæði þingmenn og
ráðherrar, enda er aðild að ESB
hafnað í stefnuyfirlýsingu flokksins.
Í samstarfsyfirlýsingu flokkanna
kemur jafnframt fram að flokkarnir
áskilji sér rétt til að halda fast í sín
sjónarmið í þeirri umræðu sem fram
fer í kjölfarið innan þings og utan.
Margir hafa sagt að með þessu hafi
flokkarnir ákveðið að vera sammála
um að vera ósammála.
Málið er umdeilt innan flokksins
og var tekist á um málið á flokksráðs-
fundinum. Flokksmenn sem rætt var
við í gær segja hins vegar að þetta
hafi verið málamiðlun sem VG hafi
orðið að gera svo að félagshyggju-
stjórn gæti litið dagsins ljós.
„Ég sætti mig við þetta af því að
fulltrúalýðræðið fær að ráða þessu,“
segir Atli Gíslason, þingmaður VG,
sem hefur talað gegn aðild að ESB.
Hann segir að hver þingmaður
flokksins muni fylgja sinni sannfær-
ingu í málinu.
„Okkur greinir á um þessa máls-
meðferð, en stefna flokksins er al-
gjörlega klár í ESB-málum. Við
leggjumst gegn ESB-aðild. Eigum
við ekki að segja að þetta hafi verið
orrusta um málsmeðferð en ekki
stríðið um ESB. Þetta er millileikur
og það verður að miðla málum í rík-
isstjórn,“ segir Atli.
„Mér fannst menn vera að horfa á
breiddina í málinu. Það eru gríðarleg
verkefni sem bíða þessarar rík-
isstjórnar,“ segir Sjöfn Ingólfsdóttir,
formaður svæðisfélags VG í Reykja-
vík, sem var viðstödd flokksráðs-
fundinn í gær. „Það eru aðilar sem
eru mjög andvígir því [aðild að ESB]
og telja að einhverjar aðrar aðferðir
hefðu verið betri, en engu að síður af-
greiðir fundurinn þetta með yf-
irgnæfandi niðurstöðu.“
Ísland í ESB
með VG?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VG Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fundaði um sam-
starfsyfirlýsinguna í gær og sátu um 150 manns hinn sjö tíma langa fund.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ESB Flokksstjórn Samfylkingarinnar fundaði um yfirlýsinguna kl. 13 í gær.
Ákveðið hefur verið að Alþingi kveði upp um aðildarumsókn að ESB.
Aðild að ESB er hafnað í stefnu-
yfirlýsingu Vinstri grænna.
Flokkurinn hefur hins vegar
myndað nýja ríkisstjórn með
Samfylkingunni þar sem
Evrópumál eru í brennidepli.
„MAÐUR dregur
eðlilega þá álykt-
un að stjórnar-
flokkarnir muni
tryggja að þessi
þingsályktunar-
tillaga nái fram
að ganga,“ segir
Aðalsteinn Leifs-
son, lektor við
Háskólann í
Reykjavík, varð-
andi það að stjórnarflokkarnir
muni leggja fram á Alþingi tillögu
um aðildarumsókn að ESB.
„Það er erfitt að sjá að Samfylk-
ingunni sé sætt í ríkisstjórn ef þetta
grundvallaratriði í efnahags- og ut-
anríkisstefnu flokksins fær ekki
framgang. Ég sé það ekki fyrir mér
að stjórnarflokkarnir láti örlög
stjórnarinnar í hendurnar á stjórn-
arandstöðunni strax á fyrstu dög-
unum. Það finnst manni ákaflega
ósennilegt og ótrúlegt að það verð-
ur niðurstaðan.“
ESB-tillagan nái
fram að ganga
Aðalsteinn
Leifsson
BJÖRN Bjarna-
son, fv. ráðherra,
segir í pistli á
amx.is að Jó-
hanna Sigurð-
ardóttir virðist
treysta á stuðn-
ing stjórnarand-
stöðu við tillögu
um aðildarvið-
ræður að ESB.
„Staðfestir það
enn á hve veikum grunni ríkis-
stjórnin er reist, ef annar flokkur-
inn treystir á stuðning þingmanna
stjórnarandstöðunnar við helsta
stefnumál sitt …“
„Á veikum grunni“
Björn Bjarnason