Morgunblaðið - 11.05.2009, Page 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
Ó
!
·
1
2
5
9
5
Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital | Skógarhlíð 22 | 105 Reykjavík | sími 545 2600 | sagacapital. is
Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital veitir fyrirtækjum,
eignarhaldsfélögum og öðrum fjárfestum óháða
og faglega ráðgjöf.
• Fjárhagsleg endurskipulagning
• Kaup, sala og sameining
• Vöktun kaup- og sölutækifæra
• Stöðumat og verðmat
• Samningaviðræður og samningsgerð
• Umsjón með áreiðanleikakönnunum
Starfsmenn Fyrirtækjaráðgjafar Saga Capital hafa
sjálfir umfangsmikla reynslu af stjórnun fyrirtækja
og þekkingu á viðskiptum með fyrirtæki.
HREIN
SNILLD
Drjúgt, fjölhæft og þægilegt...
Gott á:
gler
plast
teppi
flísar
stein
ryðfrítt stál
fatnað
áklæði
tölvuskjái
omfl.
ATH. frábært á
rauðvínsbletti
og tússtöflur
S. 544 5466 • www.kemi.is • kemi@kemi.is
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
ÞRÁTT fyrir að krabbameinsleit
hjá konum hafi verið hætt á föstu-
dögum eins og á fimmtudögum er
nú tekið á móti fleiri konum en
áður þá þrjá daga sem leitarstöðin
er opin í viku hverri. Það er vegna
nýrra tækja og tækni Krabba-
meinsfélags Íslands (KÍ). Tekið er
á móti pöntunum fimm daga vik-
unnar.
Skoðunarstöðvum úti á landi
hefur verið fækkað úr 42 í 30 og
er ástæðan að hluta til sú að nýju
tækin eru viðkvæm fyrir flutningi
og hitastigsbreytingum. Legháls-
skoðunum á konum eftir fertugt,
með ákveðinn fjölda eðlilegra
frumustrokna, er nú einnig fækk-
að og þær boðaðar á fjögurra ára
fresti í stað tveggja.
Yfir 40 milljóna sparnaður
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri
KÍ, segir að lengi hafi verið skoð-
að að fækka komum þessara
kvenna eftir fertugt. Horft hafi
verið til rannsóknarniðurstaðna
hérlendis og til Norðurlandanna
þar sem konur séu ekki skoðaðar
reglulega eftir 65 ára aldur og að-
eins fimmta hvert ár eftir fimm-
tugt. Þrátt fyrir fækkunina nú
verði eftirlitið því öflugra hér en
þar og sjötugum konum og eldri
enn frjálst að mæta reglulega í
skoðun.
Guðrún segir félaginu gert að
hagræða eins og öðrum í þessu ár-
ferði. Það hafi tekist án þess að
slá af gæða- og öryggiskröfum.
Ekki sé búið að reikna nákvæm-
lega saman hversu mikill sparn-
aðurinn verði en búast megi við að
hann sé á fimmta tug milljóna
króna. „Við munum standa vörð
um þjónustuna og reyna að spjara
okkur eins og við mögulega get-
um. En það kann að vera að kraf-
ist verði meiri sparnaðar síðar og
þá þarf að reyna að mæta því.“
Spurð um starfsfólkið, segir hún
breytingarnar hafa áhrif á vinnu
þess þar sem ýmsir vinni nú ekki
lengur á föstudögum. „Það er
kannski enginn ánægður, en
starfsfólkið hefur almennt verið
mjög jákvætt í þessu mikla breyt-
ingaferli og staðið sig vel. Ég vona
að okkur takist að standa saman
um það að halda þessari þjónustu
úti þannig að allir séu sáttir.“
Breytingarnar tóku gildi 1. maí
og segir Guðrún nú ljóst að bið-
tími í skoðanirnar hafi ekki lengst
frá því sem áður var.
Færri dagar - fleiri skoðanir
Biðtími í krabbameinsskoðanir hefur ekki lengst þrátt fyrir
róttækar breytingar Krabbameinsfélagið sparar tugmilljónir
Morgunblaðið/Heiddi
Nýtt tæki Þrýstingurinn á brjóstin er minni í nýju leitartækjunum á Leit-
arstöðinni en var í þeim gömlu.
JAKE Siewert,
sem lengi var yf-
irmaður upplýs-
ingamála hjá Al-
coa, hefur verið
ráðinn aðstoðar-
maður fjármála-
ráðherra Banda-
ríkjanna, Tims
Geithners, í
stjórn Baracks
Obama forseta. Siewert var aðaltals-
maður Alcoa þegar fyrirtækið gekk
frá samningum um byggingu álvers
á Íslandi og er vel hnútum kunnugur
hér eftir fjölda sendiferða til lands-
ins. Hann þekkir einnig vel til í Hvíta
húsinu því áður en hann kom til Al-
coa starfaði hann þar um átta ára
skeið, síðast sem blaðafulltrúi Bills
Clintons Bandaríkjaforseta. Þá var
hann meðal ráðgjafa Johns Kerrys
sem árið 2004 sóttist eftir útnefningu
demókrata til forsetakjörs.
Íslandsvinur í stjórn Obama
Jake Siewert