Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Bráðaaðgerðir gegn atvinnuleysi
Nú þegar hefur ríkisstjórnin ráðist í brýnar aðgerðir til að sporna við atvinnu-leysi sem skila eiga 6000 ársverkum á næstu mánuðum og misserum. Því til
viðbótar verður efnt til fjölþætts átaks til atvinnusköpunar sem felur m.a. í sér
eftirfarandi aðgerðir:
1. Efld verði úrræði Vinnumálastofnunar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands þar
sem fyrirtæki geta ráðið fólk af atvinnuleysisskrá tímabundið með stuðningi At-
vinnuleysistryggingasjóðs. Þar má nefna samninga um starfsþjálfun, reynsluráðn-
ingu, nám sem vinnumarkaðsaðgerð, atvinnutengda endurhæfingu, þróun eigin
viðskiptahugmyndar, frumkvöðlastarf innan fyrirtækja og sérstök tímabundin
átaksverkefni.
2. Opinberir sjóðir og samkeppnissjóðir leggi sitt af mörkum til atvinnusköp-
unar með því að taka mið af fjölgun starfa við ráðstöfun fjármagns án þess þó að
slaka á faglegum kröfum.
3. Umhverfi sprota- og nýsköpunarfyrirtækja verði bætt með lagfæringu á
skattalögum til þess að ívilna megi vegna rannsókna og þróunar. Auk þess verði
tímabundið veittur frádráttur frá skatti vegna fjárfestinga í sprota- og nýsköp-
unarfyrirtækjum.
4. Við innkaup ríkisins, þar á meðal vistvæn innkaup, verði m.a. horft til þess
að styðja við bakið á innlendri atvinnustarfsemi og nýsköpun.
5. Forgangsröðun verkefna hjá ríkinu verði í þágu mannaflsfrekra framkvæmda,
s.s. viðhalds opinberra bygginga. Þar verði sérstaklega hugað að bættu aðgengi
að opinberum byggingum um allt land. Leitað verði leiða til að flýta hönnun op-
inberra mannvirkja.
6. Staðinn verði vörður um opinber störf, ekki síst í velferðarþjónustu og
menntastofnunum, og í því skyni gripið til aðgerða sem auka kjarajöfnuð hjá rík-
inu og fyrirtækjum og stofnunum í eigu þess.
7. Sköpuð verði ný atvinnutækifæri fyrir ungt fólk t.d. með því að efla Nýsköp-
unarsjóð námsmanna og ýta úr vör sumarverkefnum fyrir framhaldsskólanema.
8. Ríkið efni til samstarfs við sveitarfélög, félagasamtök og Vinnumálastofnun
um að sköpuð verði fleiri sumarstörf við umhverfisvæn verkefni, s.s. landgræðslu
og uppbyggingu í kringum ferðamannastaði.
9. Reglum LÍN verði breytt til að auðvelda námsmönnum sem koma af vinnu-
markaði sem vilja hefja nám í stað virkrar atvinnuleitar að fá námslán til fram-
færslu.
10. Sérstök áhersla verði lögð á að koma í veg fyrir að langtímaatvinnuleysi
skjóti rótum með því að virkja fjölþætt úrræði Vinnumálastofnunar og stuðla að
endurmenntun atvinnuleitenda.
Sóknarstefna til framtíðar
1 Ríkisstjórnin mun efna til víðtæks samráðs undir forystu forsætisráðuneytisinsum sóknaráætlanir fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til
framtíðar. Markmiðið er að kalla fram sameiginlega framtíðarsýn og að sam-
þættar verði áætlanir í samgöngumálum, fjarskiptamálum, ferðamálum og
byggðaáætlanir auk áætlana um eflingu sveitarstjórnarstigsins og ýmsa vaxt-
arsamninga og aðra opinbera stefnumótun og framkvæmdaáætlanir sem ætla má
að komi til endurskoðunar í kjölfar efnhagshrunsins.
2. Ríkisstjórnin vill efla græna atvinnustarfsemi, þar með talin verkefni þar sem
hrein endurnýjanleg orka er nýtt á sjálfbæran hátt til verðmæta- og atvinnusköp-
unar. Lögð verði áhersla á að kortleggja sóknarfæri Íslands í umhverfisvænum
iðnaði og ýta undir fjárfestingar með tímabundnum ívilnunum og hagstæðu orku-
verði.
3. Ríkisstjórnin vill efla rannsóknir, þróun og framleiðslu á innlendu vistvænu
eldsneyti og fjölga fjölorkustöðvum. Stefnt verði að því að Ísland geti á komandi
árum orðið leiðandi í tilraunum og framleiðslu á vistvænum orkugjöfum, m.a. með
stuðningi við rannsóknir, þróun og uppbyggingu innviða.
4. Ríkisstjórnin mun standa vörð um innlendan landbúnað og tryggja fæðu- og
matvælaöryggi þjóðarinnar og standa vörð um störf í matvælaiðnaði. Íslenskur
landbúnaður verði efldur með áherslu á fullvinnslu afurða og markaðssókn innan-
lands sem utan. Stuðningskerfi landbúnaðarins verði endurskoðað með áherslu á
að auðvelda nýliðun. Svigrúm bænda til heimaframleiðslu, vöruþróunar og heima-
sölu með upprunamerkingum verði aukið og nýtt til sóknar í ferðaþjónustu. Átak
verði gert í lífrænni ræktun og bændum tryggður aðlögunarstuðningur skipti þeir
úr hefðbundinni ræktun yfir í lífræna.
5. Eflt verði stuðningsnet atvinnuþróunar, rannsókna og nýsköpunar, m.a. með
uppbyggingu sjóða, atvinnuþróunarfélaga og frumkvöðlastarfs um land allt.
6. Efld verði markaðssókn í ferðaþjónustu með sameiningu landkynningarmála
undir merkjum nýrrar Íslandsstofu. Lögð verði áhersla á frekari uppbyggingu
ferðamannastaða og heilsársferðaþjónustu. Stuðlað verði að auknum rann-
sóknum, þróun og nýsköpun í ferðaþjónustu. Aukin rækt verði lögð við uppbygg-
ingu og markaðssetningu menningarferðaþjónustu og íslenskrar matargerð-
arlistar.
7. Nýttir verði möguleikar Íslands á sviði heilsutengdrar ferðaþjónustu með því
að nýta hreina náttúru og heilbrigða ímynd landsins til að efla ferðaþjónustu í
tengslum við leirböð, heilsurækt, endurhæfingu og almenna lífsstílsbreytingu.
8. Rekstur og uppbygging þjóðgarða verði efld einsog aðstæður leyfa og þar
með stutt við atvinnuuppbyggingu, s.s. í ferðaþjónustu á landsbyggðinni, samhliða
náttúruvernd.
9. Ráðist verði í markaðssókn erlendis á sviði lista, menningar, hönnunar og
hugvitsgreina. Stutt verði við bakið á nýsköpunarverkefnum.
10. Lögð verði áhersla á endurvinnslu og endurnýtingu í því augnamiði að
skapa störf og verðmæti.
11. Stuðlað verði að betri orkunýtingu, svo sem með uppbyggingu iðngarða og
iðjuvera, garðyrkjustöðva, endurvinnslu og annarrar starfsemi sem nýtir gufuafl
sjálfbærra jarðvarmavirkjana.
12. Leitað verði samstarfs við aðila vinnumarkaðarins um virkar vinnumarkaðs-
aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi, þar sem m.a. verði metnir kostir þess að
stytta vinnuvikuna og bjóða sveigjanleg starfslok fyrir þá sem það kjósa.
Fiskveiðar
Markmið sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarinnar er að fiskveiðar umhverfis land-ið séu hagkvæmar og skapi verðmæti og störf en séu jafnframt sjálfbærar
og vistvænar og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar um verndun vistkerfa,
lífríkis og hafsbotns. Veiðiheimildir skulu ákvarðast af nýtingarstefnu sem byggist
á aflareglu hverju sinni. Íslenskur sjávarútvegur mun gegna lykilhlutverki við þá
endurreisn atvinnulífsins sem framundan er. Það er því afar mikilvægt að skapa
greininni bestu rekstrarskilyrði sem völ er á og treysta þannig rekstrargrundvöll-
inn til langs tíma, en jafnframt verði leitað sátta um stjórn fiskveiða.
Þjóðareign og mannréttindi
Með sérstöku ákvæði í stjórnarskrá verði undirstrikað að fiskistofnarnir um-hverfis landið séu sameign þjóðarinnar. Úthlutun aflaheimilda er tímabund-
inn afnotaréttur og myndar ekki undir neinum kringumstæðum eignarrétt eða
óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir heimildunum.
Bregðast þarf frekar við áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, m.a.
með því að gæta atvinnufrelsis og að tryggja að jafnræðis verði gætt við úthlutun
afnotaréttarins og aðgengi að hinni sameiginlegu auðlind.
Brýnar aðgerðir
a) Knýja á um frekari fullvinnslu afla hérlendis með því m.a. að skoða hóflegt
útflutningsálag á fisk og/eða að óunninn afli verði settur á innlendan markað.
b) Takmarka framsal á aflaheimildum, auka veiðiskyldu og endurskoða til-
færslur á heimildum milli ára.
c) Stofna auðlindasjóð sem fer með ráðstöfun fiskveiðiréttinda í eigu þjóð-
arinnar. Arður af rekstri sjóðsins renni til atvinnuuppbyggingar.
d) Vernda grunnslóð. Kannaðir verði möguleikar þess að veiðar afkastamikilla
skipa á grunnslóð og inni á fjörðum verði takmarkaðar frá því sem nú er með það
að markmiði að treysta grunnslóðina sem veiðislóð fyrir smærri báta og umhverf-
isvænni veiði.
e) Skipa ráðgefandi hópa útgerðarmanna og sjómanna varðandi veiðiráðgjöf
og nýtingu sjávarauðlinda og ástand í lífríki sjávar.
f) Heimila frjálsar handfæraveiðar smábáta yfir sumarmánuðina.
Endurskoðun laga um fiskveiðar
Lög um stjórn fiskveiða verði endurskoðuð í heild með það að markmiði að:
a) stuðla að vernd fiskistofna
b) stuðla að hagkvæmri nýtingu auðlinda sjávar
c) treysta atvinnu
d) efla byggð í landinu
e) skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar
f) leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í
samræmi við stefnu beggja flokka.
Endurskoðunin mun verða unnin í samráði við hagsmunaaðila í sjávarútvegi og
er miðað við að áætlun um innköllun og endurráðstöfun taki gildi í upphafi fisk-
veiðiárs 1. september 2010. Skipaður verði starfshópur er vinni að endurskoð-
uninni og kalli til samráðs hagsmunaaðila og sérfræðinga.
Vistvænar veiðar – rannsóknir o.fl.
a) Ríkisstjórnin telur brýnt að treysta í sessi siðræn viðhorf í umgengni við haf-
ið og auðlindir sjávar í ljósi þess að maðurinn er hluti af náttúrunni og verður að
umgangast hana af ábyrgð.
b) Nýta þarf krafta sjómanna og útgerðarmanna í hafrannsóknum til að efla
gagnasöfnun og rannsóknarverkefni sem þeir eru þátttakendur í.
c) Kortleggja vel menntun og fræðslu í sjávarútvegi með það að markmiði að
auka menntunarstig í greininni.
d) Íslendingar áskilja sér hér eftir sem hingað til rétt til nýtingar sjávarauðlinda
samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum. Forsendur fyrir veiðum og nýtingu sjáv-
arspendýra, sela og hvala, verði endurmetnar frá grunni með tilliti til sjálfbærni og
efnahagslegrar þýðingar fyrir þjóðarbúið í heild sem og alþjóðlegra skuldbindinga
og ímyndar Íslands.
Umhverfi og auðlindir
Standa þarf vörð um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum sínum. Einn afhornsteinum umhverfisstefnu ríkisstjórnarinnar er að þær séu nýttar með
sjálfbærum hætti. Stjórnarskrá lýðveldisins þarf að breyta svo að hún verði
grundvöllur umhverfisverndar til framtíðar. Stefna ríkisstjórnarinnar í umhverf-
ismálum byggist á meginreglum umhverfisréttar, svo sem varúðarreglunni og
mengunarbótarreglunni, eins og þær eru skilgreindar í alþjóðlegum samningum
sem Ísland er aðili að. Umhverfisvernd sem hefur sjálfbæra þróun samfélags og
efnhags að leiðarljósi er sá grunnur sem ný atvinnu- og auðlindastefna stjórn-
arinnar byggist á. Þannig eru tekin mikilvæg skref í átt til hins nýja græna hag-
kerfis sem skilar jöfnum vexti, og tryggir að ekki sé gengið á höfuðstól auðlind-
anna.
Náttúruvernd verði hafin til vegs og staða hennar innan stjórnarráðsins styrkt
til muna. Náttúruverndarlög verði endurskoðuð, verndarákvæði treyst og al-
mannaréttur tryggður. Sérstaklega skal hugað að náttúruvernd strandsvæða og
verndunar svæða í sjó.
Friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað og friðun þess lokið hið fyrsta. Ný
náttúruverndaráætlun til 2013 verði afgreidd á vorþingi.
Rekstur og uppbygging þjóðgarða og friðlýstra svæða verði tekin til endur-
skoðunar með það að markmiði að sameina stjórn þeirra, styrkja stöðu þeirra og
styðja við fjölbreytta atvinnuuppbyggingu um allt land.
Kannaður verði grundvöllur þess að leggja á umhverfisgjöld tengd ferðaþjón-
ustu sem renni til uppbyggingar þjóðgarða og annarra fjölsóttra og friðlýstra án-
ingarstaða ferðamanna og til eflingar ferðaþjónustu.
Vatnatilskipun ESB verði innleidd og aðlöguð íslenskum aðstæðum með því að
lokið verði við frumarp til nýrra vatnalaga, sem tryggi verndun og sjálfbæra nýt-
ingu ferskvatns og skilgreini aðgang að vatni sem grundvallarmannréttindi.
Lokið verði við aðgerðaáætlun um samdrátt í losun gróðurhúslofttegunda um
50-75% til 2050, með tímasettum og tölulegum markmiðum, eigi síðar en vorið
2010. Í áætluninni verði lögð sérstök áhersla á samdrátt í losun frá samgöngum
og fiskiskipum.
Verðleggja losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda og gera viðskipti með þær
möguleg.
Ný skipulags- og mannvirkjalög verði lögð fram á Alþingi að höfðu samráði við
sveitarfélög. Þar verði kveðið á um landsskipulagsstefnu, sem mótuð verður í
samstarfi ríkis og sveitarfélaga, þar sem litið verði til landsins sem einnar heildar.
Áhersla verði lögð á að marka stefnu um líffræðilegan fjölbreytileika og vernd
búsvæða tegunda, með það að markmiði að tryggja vernd líffræðilegrar fjöl-
breytni vistkerfa á landi, í sjó og vötnum.
Staðfesta Landslagssáttmála Evrópu með það að markmiði að vernda lands-
lagsheildir og ósnortin víðerni.
Endurskoða lög og reglur um sorphirðu og endurvinnslu með þarfir almennings
og umhverfis að leiðarljósi, svo markmið um minni urðun og meiri endurvinnslu
náist.
Unnin verði áætlun um sjálfbærar samgöngur í samvinnu við sveitarfélögin,
með það að markmiði að draga úr þörf fyrir einkabílinn. Í slíkri stefnu verði al-
menningssamgöngur um allt land stórefldar og fólki auðveldað að komast leiðar
sinnar gangandi eða á reiðhjóli. Almenningssamgöngur verði sjálfsagður hluti
samgönguáætlunar.
Innleiðingu Árósasamningsins í íslenskan rétt verði hraðað og nauðsynlegar
lagabreytingar kynntar á haustþingi 2009.
Efla fræðslu til almennings og fyrirtækja um vistvæn innkaup, umhverf-
ismerkta vöru og gildi sjálfbærrar neyslu, með það að markmiði að nýsamþykkt
vistvæn innkaupastefna hins opinbera nái tryggri fótfestu í samfélaginu öllu.
Tryggja að erfðabreytt matvæli séu merkt þannig að neytendum sé ljóst inni-
hald matvæla við innkaup.
Mótuð verði heildstæð orkustefna sem miði að því að endurnýjanlegir orkgjafar
leysi innflutta orku af hólmi. Við orkuframleiðslu með vatnsafli og jarðvarma verði
gætt varúðar- og verndarsjónarmiða. Orkustefnan styðji við fjölbreytt atvinnulíf,
með áherslu á uppbyggingu vistvæns hátækniiðnaðar. Í orkustefnu verði sjálfbær
nýting höfð að leiðarljósi sem forðast m.a. ágenga nýtingu á jarðhitasvæðum.
Ísland standi við loftslagsskuldbindingar sínar og leggi fram metnaðarfulla
áætlun í loftslagsmálum fyrir alþjóðlegu loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn í
desember 2009.
Gerð verði áætlun um orkusparnað, jafnt fyrir atvinnufyrirtæki og heimili.
Lögð er rík áhersla á að ljúka gerð rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og
jarðvarma sem allra fyrst og hún verði lögð fyrir Alþingi á vetri komanda og fái
lögformlega stöðu í stjórnkerfinu. Engar frekari ákvarðandir tengdar virkjun neðri
hluta Þjórsár verði teknar þar til rammaáætlun liggur fyrir.
Stuðlað verði að gagnsæi í orkusölusamningum og leitað leiða til að aflétta
leynd af orkuverði til erlendra stóriðjufyrirtækja. Stefnt verði að jafnræði í verð-
lagningu raforku í ólíkum atvinnugreinum.
Lýðræði og mannréttindi
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir opinni stjórnsýslu, auknu gagnsæi og lýðræð-isumbótum. Aukin áhersla verður lögð á mannréttindafræðslu og kvenfrelsi.
- Settar verði siðareglur fyrir ríkisstjórn og stjórnsýsluna. Lög um fjármál
stjórnmálaflokka verði yfirfarin og endurskoðuð í ljósi reynslunnar.
- Frumvarp um stjórnlagaþing – þjóðfund – verður lagt fram á vorþingi. Kosið
verði til þingsins í síðasta lagi samhliða sveitarstjórnarkosningum 2010. Við und-
irbúning málsins og í aðdraganda kosninganna verði gengist fyrir víðtækri sam-
félagsumræðu um helstu álitamál og viðfangsefni við endurskoðun stjórnarskrár-
innar.
- Lagt fram frumvarp um persónukjör og haft samráð við sveitarfélög um út-
færslu þess í tengslum við komandi sveitarstjórnarkosningar.
- Stefnt verði að eflingu Alþingis, m.a. með endurskoðun ákvæða í þing-
skapalögum um eftirlitshlutverk þingsins og að lokið verði þeirri vinnu sem hafin
er um endurskoðun laga um ráðherraábyrgð og landsdóm.
- Lög um skipan hæstaréttardómara og héraðsdómara verði endurskoðuð.
- Sett verði almenn lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna.
- Heildstæð lög um fjölmiðla verði sett þar sem ritstjórnarlegt sjálfstæði og
réttur blaðamanna eru tryggð.
- Sveitarfélög verði efld með flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga á sviði
málefna fatlaðra, aldraðra og heilbrigðisþjónustu. Samskiptareglur ríkis og sveit-
arfélaga verði bundnar í lög til að stuðla að öguðum og formföstum samskiptum.
Efnahagssamráð ríkis og sveitarfélag verði eflt. Sett verði á stofn tekjustofna-
nefnd sem hafi það hlutverk að vinna tillögu um breikkun og styrkingu tekjustofna
sveitarfélaga. Unnar verði tillögur að eflingu lýðræðis á sveitarstjórnarstigi í sam-
vinnu við sveitarfélög og samráði við íbúa um land allt. Auk þess verði sett
ákvæði um gerð siðareglna á sveitarstjórnarstigi.
- Undirbúnar verði breytingar á kosningalögum með það að markmiði að jafna
vægi atkvæða og koma til móts við ábendingar Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu um framkvæmd kosninga.
- Upplýsingalög verði endurskoðuð og aðgengi almennings og fjölmiðla að upp-
lýsingum aukið.
- Mannréttindasamningar sem Ísland hefur undirritað og fullgilt verði leiddir í
lög ásamt því að gerð verði áætlun í mannréttindamálum að norrænni fyrirmynd.
Mannréttindafræðsla efld á öllum skólastigum.
- Málaflokkur jafnréttismála fái aukið vægi innan stjórnkerfisins. Jafnréttisstofa
verði efld og sjálfstæði hennar aukið.
- Jafnréttismál flytjist í forsætisráðuneytið. Áhrif kvenna í endurreisninni verði
tryggð. Því mun ríkisstjórnin beita sér fyrir því að jafna hlutfall kynjanna á öllum
sviðum samfélagsins og grípa til sértækra aðgerða sé þess þörf. Jafnframt verði
kynjasjónarmið höfð að leiðarljósi í aðgerðum til atvinnusköpunar, svo þær gagn-
ist bæði körlum og konum með fjölbreyttan bakgrunn.
- Ríkisstjórnin grípi til aðgerða til að útrýma kynbundnum launamun í sam-
vinnu við hagsmunasamtök og aðila vinnumarkaðarins. Lokið verði gerð jafnrétt-
isstaðla á kjörtímabilinu og starf jafnréttisfulltrúa ráðuneyta verður eflt. Unnið
verður úr tillögum jafnréttisvaktarinnar.
- Ríkisstjórnin grípi til aðgerða til að útrýma kynbundnu ofbeldi, m.a. með lög-
festingu austurrísku leiðarinnar þannig að ofbeldismenn verði fjarlægðir af heim-
ilum sínum og banni við nektardansi. Aðgerðaáætlun gegn mansali, kynbundnu
ofbeldi og heimilisofbeldi verður fylgt eftir. Sérstaklega verði hugað að forvarnar-
og viðbragðsáætlun til að bregðast við auknu heimilisofbeldi samhliða versnandi
efnahagsástandi.
- Ein hjúskaparlög verði lögfest. Hugað verði að réttarbótum í málefnum kyn-
skiptinga í samræmi við ábendingar umboðsmanns Alþingis.
- Rík áhersla verður lögð á að tryggja rétt og þátttöku fólks af erlendum upp-
runa og lög um hælisleitendur verði endurskoðuð. Ný lög sett um málefni innflytj-
enda.
Utanríkis- og Evrópumál
Ríkisstjórnin leggur áherslu á sjálfstæða íslenska utanríkisstefnu. Þær miklubreytingar sem orðið hafa á undanförnum árum á sviði utanríkis- og öryggis-
mála, og ná einnig til viðskipta, stjórnmála og umhverfismála, kalla á nýja sýn og
nýja nálgun í utanríkismálum. Ríkisstjórnin vill kappkosta að alþjóðasamfélagið
stuðli með nýjum hætti að sameiginlegu öryggi, beiti sér fyrir nýjum reglum um
fjármagnsmarkaði og aðgerðir gegn spillingu, geri nýjan loftslagssáttmála, tryggi
að alþjóðalög gildi um málefni norðurslóða og sameinist um nauðsynlegar og
sanngjarnar aðgerðir til að vinna bug á heimskreppunni.
Norrænt samstarf verður áfram einn af hornsteinum íslenskrar utanríkisstefnu
en einnig verður lögð áhersla á Evrópumál, norðurslóðasamstarf og sjálfbæra nýt-
ingu auðlinda og alþjóðlega samvinnu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og stofn-
ana þeirra. Meðal meginverkefna utanríkisþjónustunnar á næstu árum verður að
endurheimta orðspor Íslands á alþjóðavettvangi, byggja upp ímynd lands og þjóð-
ar á grundvelli þekkingar okkar, menningar og mannauðs og styðja við markaðs-
sókn íslenskra fyrirtækja.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á baráttu fyrir mannréttindum og kvenfrelsi, friði
og afvopnun og gegn fátækt, félagslegu ranglæti, misskiptingu og hungursneyð,
m.a. með markvissri þróunaraðstoð. Framlag Íslands til friðargæslu í heiminum
verður fyrst og fremst á sviði sáttaumleitana, uppbyggingar borgaralegra stofn-
ana, jafnréttis- og mannúðarmála.
Áfram verður unnið á grundvelli nýrra laga um þróunarsamvinnu og aðgerða-
áætlana í víðtæku samráði við félagasamtök og fræðasamfélagið. Íslendingar sýni
metnað við stefnumörkun á sviði þróunarsamvinnu og nýti sérþekkingu sína til
raunhæfra verkefna í þróunarlöndum.
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að nýr alþjóðlegur loftslagssamningur
verði samþykktur í Kaupmannahöfn og leggi sitt af mörkum með því að flytja út
þekkingu sína og reynslu af endurnýjanlegum orkugjöfum.
Málefni norðurslóða verða forgangsmál og viðfangsefni svæðisins þarf að leysa
á grundvelli gildandi alþjóðasamninga, alþjóðastofnana og svæðasamstarfs.
Áhersla verði lögð á að vernda viðkvæmt lífríki svæðisins, sjálfbæra nýtingu auð-
linda og aukið samstarf á Norðurlöndum um viðbúnað gegn umhverfisvá og slys-
um á norðurhöfum, leit og björgun.
Áfram verði unnið að mótun öryggisstefnu Íslands á grundvelli eigin hættu-
mats í nánu samstarfi við nágrannaþjóðir og önnur bandalagsríki. Varn-
armálastofnun verði endurskoðuð, sem og loftrýmisgæsla, í samræmi við áherslur
í áhættumatsskýrslu fyrir Ísland. Unnið verði á grundvelli víðtæks öryggishugtaks
og áhersla lögð á sameiginlegt alþjóðlegt öryggi.
Áhersla verði lögð á að byggja upp pólitísk tengsl við heimastjórn Palestínu og
að Íslendingar styðji sjálfsákvörðunarrétt og sjálfstætt ríki þeirra og styðji áfram
Friðarráð palestínskra og ísraelskra kvenna.
Ísland verði boðið fram sem vettvangur fyrir friðarumræðu, þar á meðal fyrir
alþjóðlegar ráðstefnur og fundi fræðimanna og stjórnmálaleiðtoga um þau efni.
Ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði í höndum íslensku
þjóðarinnar sem mun greiða atkvæði um samning í þjóðaratkvæðagreiðslu að
loknum aðildarviðræðum. Utanríkisráðherra mun leggja fram á Alþingi tillögu um
aðildarumsókn að Evrópusambandinu á vorþingi. Stuðningur stjórnvalda við
samninginn þegar hann liggur fyrir er háður ýmsum fyrirvörum um niðurstöðuna
út frá hagsmunum Íslendinga í sjávarútvegs-, landbúnaðar-, byggða- og gjaldmið-
ilsmálum, í umhverfis- og auðlindamálum og um almannaþjónustu. Víðtækt sam-
ráð verður á vettvangi Alþingis og við hagsmunaaðila um samningsmarkmið og
umræðugrundvöll viðræðnanna. Flokkarnir eru sammála um að virða ólíkar
áherslur hvors um sig gagnvart aðild að Evrópusambandinu og rétt þeirra til mál-
flutnings og baráttu úti í samfélaginu í samræmi við afstöðu sína og hafa fyrirvara
um samningsniðurstöðuna líkt og var í Noregi á sínum tíma.
Ísland verður friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum og íslensk stjórnvöld munu beita
sér fyrir kjarnorkuafvopnun á alþjóðavettvangi.
Stjórnkerfisumbætur
Ríkisstjórnin mun gera umtalsverðar stjórnkerfisbreytingar og umbætur í þvískyni að gera þjónustu hins opinbera við almenning og atvinnulíf eins góða
og kostur er með þeim fjármunum sem til ráðstöfunar eru hverju sinni. Víðtækt
samráð verður haft við starfsfólk, almenning og hagsmunaaðila og leitast við að
skapa almennan skilning og samstöðu um nauðsyn þessara breytinga. Í kjölfar
efnahagshrunsins er nauðsynlegt að endurmeta forgangsröðun í stjórnsýslunni í
samræmi við verkefnin framundan.
Auk umbóta á stjórnsýslu atvinnuvega og nýsköpunar, auðlinda- og efnahags-
stjórnunar er lögð sérstök áhersla á umbætur á sviði mannréttindamála og lýð-
ræðisþróunar sem og að vanda stjórnsýsluhætti og efla traust almennings á
stofnunum hins opinbera.
Lögð er til í þessu skyni fækkun ráðuneyta í áföngum úr tólf í níu, ný forgangs-
röðun þar sem þess er þörf og breytt verkaskipting þar sem færð eru saman
verkefni til að ná sem mestum samlegðaráhrifum. Lögð er áhersla á vandaðan
undirbúning breytinganna. Verkefnisstjórnun er á hendi forsætisráðherra.
Forsætisráðuneyti fær aukið forystu-, verkstjórnar- og samræmingarhlutverk
m.a. með stýringu samráðsnefnda ráðherra. Ennfremur verður settur á fót fastur
samstarfsvettvangur stjórnvalda við aðila vinnumarkaðarins og önnur lykilhags-
munasamtök um þróun íslensks samfélags. Ráðuneytið mun stýra stefnumörkun
á sviði stjórnsýsluumbóta og -þróunar, þróunar lýðræðis og stjórnskipunar, sam-
keppnishæfni Íslands og jafnréttis kynjanna. Ennfremur verður lagasamræming
innan stjórnarráðsins efld undir forystu þess. Til að ofangreindar breytingar verði
markvissari verður starfsemi ráðuneytisins endurskipulögð til að halda utan um
umbótaverkefni annars vegar og verkefnisstjórn um samfélagsþróun hins vegar.
Í nýju efnahags- og viðskiptaráðuneyti verður almenn hagstjórn, lagaumgjörð
og eftirlit með fjármálamarkaði, mat á þróun og horfum í efnahagsmálum. Enn-
fremur verða þar málefni er tengjast umgjörð íslensks viðskiptalífs.
Nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti tekur til allra atvinnugreina (utan
opinbera geirans og fjármálamarkaðarins), nýsköpunar og þróunar innan þeirra.
Þar verða teknar ákvarðanir um nýtingu auðlinda á grundvelli rannsókna og ráð-
gjafar frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
Nýtt umhverfis- og auðlindaráðuneyti fær auk þeirra verkefna sem fyrir eru
lykilhlutverk varðandi rannsóknir, nýtingarstefnu, ráðgjöf og verndun á sviði auð-
lindamála. Þangað flyst ennfremur umsýsla Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls
og jarðvarma.
Til fjármálaráðuneytis færist öll eignaumsýsla ríkisins, en hún er nú dreifð á
mörg ráðuneyti, þ.m.t. jarðir og eignir á varnar- og öryggissvæðum. Í fjár-
málaráðuneyti verður í samráði við forsætisráðuneyti aukin áhersla á framkvæmd
og mat á árangri stjórnsýsluumbóta.
Nýtt ráðuneyti mennta- og menningarmála fær auk fyrri verkefna umsjón
menningarstofnana og verkefna er nú heyra undir forsætisráðuneyti.
Utanríkisráðuneyti fær aukið hlutverk á sviði alþjóðlegra viðskipta- og fjárfest-
ingarsamninga, auk þess sem Norðurlandaskrifstofa flyst þangað.
Nýtt ráðuneyti sveitarstjórna, samgangna og byggðaþróunar fær til viðbótar
við fyrri verkefni aukið vægi varðandi eflingu sveitarstjórnarstigsins, sem tengist
m.a. tilfærslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga, auk stefnumótunar á sviði byggða-
þróunar.
Í nýju ráðuneyti mannréttinda og dómsmála verður til viðbótar við verkefni
sem fyrir eru, lögð áhersla á verkefni á sviði lýð- og mannréttinda auk þess sem
öll framkvæmd almennra kosninga færist þangað, en hún er nú dreifð á þrjú ráðu-
neyti. Þangað færast ennfremur neytendamál.
Heilbrigðisráðuneyti og félags- og tryggingamálaráðuneyti verða óbreytt að
öðru leyti en því að stefnt er að því að auka samvinnu milli ráðuneytanna um
verkefni sem heyra undir bæði ráðuneyti. Heimahjúkrun og öll þjónusta við aldr-
aða á hjúkrunarheimilum færist til félags- og tryggingamálaráðuneytis. Stefnt er
að því að málefni aldraðra og fatlaðra færist til sveitarfélaga jafnhliða því að ráðu-
neytin sameinast.
Fyrir lok kjörtímabilsins er gert ráð fyrir því að lögfest verði sameining sam-
göngu- og sveitarstjórnaráðuneytis og mannréttinda- og dómsmálaráðuneytis í
nýju innanríkisráðuneyti.