Morgunblaðið - 11.05.2009, Qupperneq 16
16 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
SKEMMDIRNAR sem við sjáum
hér komu ekki með bankahruninu,
svona tekur mörg ár að myndast,“
segir Inga B. Árnadóttir forseti
Tannlæknadeildar Háskóla Íslands.
Inga er ein þeirra tannlækna sem
hafa verið í forsvari fyrir Hjálp-
arvakt tannlækna, samstarf Tann-
læknafélags Íslands og Tann-
læknadeildar Háskóla Íslands.
Hjálparvaktin bauð börnum og
unglingum fría tannlæknaþjónustu
í þriðja sinn á laugardaginn. Gríð-
arleg aðsókn hefur verið í öll skipt-
in, en á laugardaginn sinntu tutt-
ugu tannlæknar í sjálfboðavinnu 61
sjúklingi og komust færri að en
vildu.
Mörg þeirra barna og unglinga
sem nutu tannlæknaþjónustu í
þetta skiptið hafa ekki farið til
tannlæknis í mörg ár. Dæmi voru
um ung börn, 5-6 ára, sem aldrei
höfðu farið til tannlæknis.
Panódíl fyrir svefninn
„Þetta er ekki bara tannheil-
brigðismál, þetta er barnavernd-
armál,“ segir Sigfús Þór Elíasson
prófessor við Tannlæknadeild HÍ.
„Hér eru börn sem sofna ekki án
þess að fá panódíl fyrir svefninn
vegna tannverkja. Slíkt myndi aldr-
ei líðast ef barnið væri með bein-
brot eða aðra sjúkdóma.“
Rannsóknir Sigfúsar hafa leitt í
ljós að tannheilsa barna var komin
í svipað horf og á öðrum Norð-
urlöndum árið 1996. Samkvæmt
MUNNÍS-rannsókninni, sem fram-
kvæmd var árið 2005, eru íslensk
börn hins vegar með tvöfalt fleiri
skemmdar tennur en börn annars
staðar á Norðurlöndum. Sigfús seg-
ir að tannlæknar hafi ítrekað bent
á vaxandi vandamál í tannheilsu
barna undanfarin ár.
Margir sérfróðir álíta að fram-
ferði stjórnvalda á þessu sviði hafi
verið gjörsamlega úr takti við þess-
ar niðurstöður akademískra rann-
sókna. Endurgreiðsla hafi t.a.m.
ekki fylgt verðlagsþróun og hinn
aukni kostnaður vegna tann-
læknaþjónustu hvetji því ekki for-
eldra til að sjá til þess að börnin fái
nauðsynlegar viðgerðir og eftirlit.
„Það er ekki hægt að þvinga for-
eldra til að nýta læknisþjónustu
sem þeir þurfa að borga fyrir,“
segir Ingibjörg S. Benediktsdóttir,
formaður Tannlæknafélags Íslands.
Tannlæknaþjónusta eigi að sitja við
sama borð og önnur læknisþjón-
usta, ekki síst þar sem sýkingar
vegna tannskemmda geti auðveld-
lega breiðst út til nærliggjandi líf-
færa.
Áhyggjuefni en ekki óvænt
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
félagsmálaráðherra heimsótti
Hjálparvaktina og sagði ástandið
mikið áhyggjuefni en því miður
væri það ekki óvænt.
„Það voru mistök hjá stjórnvöld-
um undanfarin ár að draga úr þátt-
töku í tannvernd barna. Ég benti
ítrekað á það og það var vitað mál
að þetta hefði afleiðingar.“ Ásta
segir ljóst að það þurfi að bregðast
við og ræða við heilbrigðisráðherra.
Ögmundur Jónasson leit inn á
Hjálparvaktina fyrir rúmum tveim-
ur vikum, ásamt Svandísi Svav-
arsdóttur.
Stjórnvöld íhugi stöðuna
Inga B. Árnadóttir segir stjórn-
málamenn vissulega hafa fengið
áfall við að sjá ástandið og verið
sammála um að það verði að gera
eitthvað.
„Við í Tannlæknafélaginu og
Tannlæknadeild Háskóla Íslands
höfum ákveðið að veita þessa þjón-
ustu nú í apríl og maí. Svo viljum
við gefa stjórnvöldum tíma til að
hugsa málið yfir sumarið, um
hvernig skuli bregðast við ástand-
inu,“ segir Inga að lokum.
Tennurnar eftir góðærið
Hjálparvakt tannlækna sinnti 61 barni á laugardag Sum þeirra höfðu aldrei áður farið til tann-
læknis Tannheilsu barna hefur hrakað undanfarinn áratug Barnaverndarmál, segir prófessor
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjálparvaktin Auk þess að bjóða þeim sem mest þurfa upp á þjónustuna vilja tannlæknar vekja athygli á slæmri tannheilsu íslenskra barna og unglinga.
Í HNOTSKURN
»Um 17% barna og ung-linga á aldrinum 4-18 ára
mæta ekki í reglubundið eft-
irlit hjá tannlækni, skv.
MUNNÍS-rannsókninni sem
framkvæmd var árið 2005.
»Tannheilsa íslenskrabarna er í 6. neðsta sæti af
OECD-löndunum.
»Hjálparvakt tannlæknaverður aftur hinn 23. maí
nk. í Læknagarði.
„ÞETTA er óásættanlegt, bæði sá fjöldi sem þarf á að-
stoðinni að halda og ástandið á tönnunum, það þarf eng-
an sérfræðing til að sjá það,“ segir Bragi Guðbrandsson,
forstjóri Barnaverndarstofu. „Þetta er stórkostlegt
framtak hjá tannlæknum að veita þessa hjálp og um leið
opna augu okkar sem störfum að málefnum barna. Hér
eru greinilega börn sem fara í háttinn grátandi af verkj-
um.“ Bragi segir að ekki sé hægt að fría stjórnvöld frá
ábyrgð vegna þessa.
„Við myndum aldrei sætta okkur við svona ástand á
öðrum sviðum [innan heilbrigðisgeirans]. Þetta snýst um rétt barnsins til
að þroska og dafna eðlilega, að það þurfi ekki að stríða við heilsubrest sem
fylgi því til fullorðinsára. Svo virðist sem menn hafi haldið að sér höndum,
ef til vill ekki gert sér grein fyrir hvernig staðan væri.“
Bragi segist ekki vilja trúa öðru en að viðbragða sé að vænta hjá stjórn-
völdum. Barnaverndarstofa muni bregðast við með einhverjum hætti, sem
þurfi þó að kanna nánar. Ætla má þó, að Barnaverndarstofa beini því til
viðeigandi aðila að vera vakandi yfir þessum þætti, með fjárstuðningi ef
með þarf. Bragi segir nauðsynlegt að skoða fleiri en eina leið í þessu máli.
Til dæmis má kanna að koma á fót frekari forvörnum og eftirliti með tann-
heilsu í skólum, í tengslum við tilvísanakerfi.
Í háttinn grátandi af verkjum
ERFITT er að gera við tennur sem hafa fengið að
skemmast í friði árum saman. Hjálparvakt tann-
lækna hefur á laugardagsvöktum sínum aðeins haft
takmarkaðan tíma til að sinna þeim sem þangað
koma.
Ingibjörg S. Benediktsdóttir segir að áherslan sé
lögð á að sinna því nauðsynlegasta. Þegar um mikl-
ar skemmdir er að ræða er reynt að koma í veg fyr-
ir að þær dafni enn frekar.
Langflest íslensk börn bursta tennur bæði kvölds
og morgna þó notkun á tannþræði sé heldur ábóta-
vant. Of mörg börn og unglingar eru hins vegar án
eftirlits tannlækna. Ingibjörg bendir á að í grunn-
skólum fylgist skólahjúkrunarfræðingur með hæð,
þyngd og sjón barna en enginn sérfróður skoði
tennurnar. Jafnvel þótt í ljós komi að eitthvað sé að
tönnunum, þá skorti eftirfylgni, þ.e. að séð verði til
þess að barnið fái þá tannlæknaþjónustu sem það
þarf á að halda.
Jafnvel hefur borið við að foreldrar haldi að í
skólunum sé tannlæknaþjónusta og komi af fjöllum
þegar í ljós kemur, að svo er yfirleitt ekki.
Enginn sem fylg-
ist með tönnunum
Viðgerð Tannáta hreinsuð og lokuð en meðferð ekki lokið.
Inga B. Árnadóttir, tannlæknir
Skemmdir Hér er17 ára piltur sem man ekki hvenær
hann fór síðast til tannlæknis, mikil tannsýkla og tannáta.
„Þessi þjónusta mætti líka vera í
boði á landsbyggðinni, rétt eins og
Blóðbankabíllinn.“ Móðir sem lagði
af stað kl. 7 að morgni og var kom-
in í Læknagarð rúmlega níu. Hjálp-
arvaktin opnaði kl.10.
-----
„Maður hefur auðvitað ekki ráð á
þessu [tannlæknaþjónustu], hvað
þá með nokkur börn.“ Móðir
tveggja unglinga á meðan annar
þeirra var hjá tannlækninum.
-----
„Tannlæknafélag Íslands og
tannlæknadeild Háskóla Íslands
bjóða nú á laugardaginn, 9. maí,
barnafjölskyldum sem búa við
kröpp kjör upp á fría tann-
læknaþjónustu í þriðja sinn.“
Fréttatilkynning frá Hjálparvakt
tannlækna.
-----
„Hér er engum vísað frá vegna
peninga, við skoðum ekki skatt-
framtöl foreldra.“ Ingibjörg S.
Benediktsdóttir, formaður Tann-
læknafélags Íslands.
-----
„Þetta er svakalega gott fram-
tak hjá tannlæknunum. En mér
finnst að grunnskólabörn eigi að fá
fría tannlæknaþjónustu.“ Móðir
sem mætti með son sinn rúmlega
níu, áður en Hjálparvaktin var opn-
uð.
-----
„Ég man að árið 1996 borgaði ég
undir þrjú þúsund krónum fyrir
skoðun. Nú síðast borgaði ég hátt í
tólf þúsund krónur.“ Móðir með
son sinn á unglingsaldri, sem ætl-
aði að koma eftir tvær vikur með
yngri börnin.
-----
„Þau eru mjög almennileg, tann-
læknarnir, og bjóða mann velkom-
inn. Ég kann vel að meta það.“
Þriggja barna móðir sem flutti til
Íslands fyrir rúmum áratug.
-----
„Við vorum eiginlega alveg mið-
ur okkar eftir síðustu vakt, ástand-
ið var alveg skelfilegt á sumum
börnunum og okkar þjóð ekki sæm-
andi.“ Ingibjörg S. Benediktsdóttir.
-----
„Ég er ekki alveg viss hvenær
hann fór síðast til tannlæknis, því
miður. Það hefur mikið gengið á.“
Tveggja barna móðir á meðan hún
beið eftir syni sínum sem sat í
tannlæknastólnum.
„Ástandið ekki sæmandi okkar þjóð“