Morgunblaðið - 11.05.2009, Page 25
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Sudoku
Frumstig
4 2 9
9 5 1
8
3 2 1 7
8 1
2
1 9 3
3 6 1 2 4 8
5 6
1
8 3 9
9 8 4
3
8 3 9 7
2 4 1
4 2 7 8
8 6
3 5 6
5 9 2
3 1 5 8
4 6
9 6
9 1
4
5 1
7 2
6 2 4 3
7 6 9 5 2 1 4 8 3
4 1 3 9 8 6 2 5 7
5 2 8 4 7 3 1 9 6
9 4 1 7 6 2 8 3 5
8 7 6 3 4 5 9 1 2
3 5 2 1 9 8 6 7 4
2 8 5 6 1 7 3 4 9
1 3 4 2 5 9 7 6 8
6 9 7 8 3 4 5 2 1
7 9 3 4 2 8 5 1 6
8 6 2 1 5 9 4 7 3
4 1 5 7 3 6 9 8 2
5 2 7 6 9 3 1 4 8
1 3 4 8 7 2 6 5 9
9 8 6 5 4 1 3 2 7
2 5 9 3 8 4 7 6 1
3 7 1 2 6 5 8 9 4
6 4 8 9 1 7 2 3 5
6 1 8 2 9 4 3 5 7
4 3 9 5 1 7 6 2 8
2 7 5 6 8 3 9 4 1
3 8 7 4 2 9 5 1 6
9 4 1 3 5 6 7 8 2
5 2 6 1 7 8 4 3 9
1 6 3 9 4 2 8 7 5
8 9 2 7 3 5 1 6 4
7 5 4 8 6 1 2 9 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist töl-
urnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 11. maí, 131. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar
himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.)
Víkverji er, eins og lesendur vita,algerlega ópólitískur og kýs
ávallt alla flokka í kosningum. Hann
er samt mjög áhugasamur um nýju
ríkisstjórnina og eiginlega aðeins eitt
sem hann skilur alls ekki: hvernig
getur nokkur Íslendingur viljað taka
að sér ráðherraembætti við þessar
aðstæður? Víkverji á það til að sýna
fórnarlund en aldrei myndi hann vilja
dreypa á svona beiskum bikar. Von-
andi veit fólkið hvað það er að gera.
x x x
Að allt öðru. Tannlæknar hafanefnilega líka sýnt fórnarlund á
undanförnum vikum og gert við tenn-
ur í börnunum okkar endurgjalds-
laust. Og Víkverji sér ekki betur en
þörfin sé brýn. Hann heyrði reyndar
sagt frá því að kona á Austurlandi
hefði drifið sig af stað með nokkur
börn sín þegar þessi gjaldfrjálsi dag-
ur var síðast fyrir um tveim vikum,
keyrt suður til að bjarga málunum.
Bensínið kostar að vísu sitt en hún
hefur áreiðanlega reiknað þetta rétt.
x x x
Tannviðgerðir eru fljótar að verðarándýrar og ekki verra að grípa
inn áður en í óefni er komið. Það er til
háborinnar skammar að tannheilsa
íslenskra barna skuli vera verri en
hjá langflestum þjóðum OECD. Ekki
getum við skellt skuldinni á krepp-
una, hún byrjaði ekki fyrr en 2008 og
augljóst að ástandið var slæmt löngu
fyrir hana. En framtakið er frábært.
x x x
Sumir halda víst að gert sé viðtennurnar í grunnskólunum en
svo er ekki. En Víkverji veltir fyrir
sér hvernig það sé með tannheilsu á
vistheimilum aldraðra, er henni sinnt
nógu vel?
Fyrir nokkrum áratugum var mál-
ið einfalt, gamla fólkið var annað-
hvort með þokkalegar tennur eða bú-
ið að fá sér falskar. Fölsku tennurnar
eru að hverfa og spurning hvort ekki
þarf að hafa virkara eftirlit en áður
með öldruðum. Ekki er víst að þeir
passi nógu vel upp á þessa hluti, við
verðum mörg gleymin á elliárunum.
Og tannpína spyr ekki um aldur.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 draugagang-
ur, 8 viljugan, 9 gallinn,
10 askur, 11 búi til, 13
synji, 15 málms, 18 nurla
saman, 21 ætt, 22 sjáv-
armál, 23 þjálfun, 24 ein-
læga.
Lóðrétt | 2 tungumál, 3
op, 4 aldursskeiðið, 5
gladdi, 6 eldstæðis, 7
iðjusemi, 12 spaða, 14
rengja, 15 róa, 16 skatt-
ur, 17 kvenvargur, 18
borða, 19 ærslahlátur,
20 ilmi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rúbín, 4 sópur, 7 múkki, 8 endur, 9 nær, 11 al-
in, 13 barr, 14 ýsuna, 15 kurr, 17 klár, 20 hak, 22 neyða,
23 risti, 24 ræddi, 25 ranga.
Lóðrétt: 1 rúmba, 2 bakki, 3 náin, 4 sver, 5 padda, 6 rýr-
ar, 10 æruna, 12 nýr, 13 bak, 15 konur, 16 reynd, 18 lús-
in, 19 reisa, 20 hani, 21 krár.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. f3 e5 7. Rb3 Be6 8.
Be3 Be7 9. Dd2 O-O 10. O-O-O Rbd7
11. g4 b5 12. g5 b4 13. Re2 Re8 14. f4
a5 15. f5 Bxb3 16. cxb3 a4 17. bxa4
Hxa4 18. b3 Ha5 19. Kb1 d5 20. exd5
Bc5 21. Bxc5 Rxc5 22. Dxb4 Rd6 23.
f6 Da8 24. Rc1 Hb8 25. Dc3
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Kaupmanna-
höfn í Danmörku. Natalia Zdebskaja
(2438) frá Úkraínu hafði svart gegn
frá Nils Grandelius (2491) frá Sví-
þjóð. 25… Hxa2! 26. Dxc5 Re4 27.
De3 Da7! 28. Dh3 hvítur hefði orðið
mát eftir 28. Dxa7 Rc3#. 28… Rf2
29. Rxa2 Rxh3 30. Bxh3 Hxb3+ 31.
Ka1 Df2 og hvítur gafst upp enda fátt
til varna.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Déja vu.
Norður
♠K74
♥4
♦Á10875
♣D873
Vestur Austur
♠Á965 ♠3
♥ÁK98 ♥D752
♦G43 ♦K62
♣104 ♣ÁKG92
Suður
♠DG1082
♥G1063
♦D9
♣63
(7) Sagnbaráttan.
Það er enginn á hættu. Austur vekur
á 1♣ og suður – aðdáandi þeirra Rob-
sons & Segals – stekkur í 2♠. Vestur
doblar neikvætt. Fyrir norður er þetta
endurtekin saga frá því í gær. Þá sagði
hann 4♠ og makker hans tók tíu létta
slagi. Ef hann segir aftur 4♠, dobla
A-V og fá alla vega 800-kall fyrir fjóra
niður. Þeir freistast ekki upp á fimmta
þrep.
Hvað er í gangi? Það sem var rétt í
gær er kolvitlaust í dag.
Munurinn er þessi: Þröngt skil-
greindar sagnir gera makker að hús-
bónda framvindunnar. Það var í gær.
Vítt skilgreindar sagnir gera makker
að óvirkum áhorfenda. Eins og í dag.
Samkvæmt Robson-stílnum má norður
í mesta lagi lyfta í 3♠, en líklega myndi
Robson mæla með passi. Skrítið, en
svona eru þessi fræði Bretanna.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hrósaðu þeim sem eiga það skilið,
ekki síst ef það ert þú sjálfur sem átt í
hlut. Fjöldi hugmynda er að brjótast um
í þér þótt sumar séu ekki sérlega hag-
nýtar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur lengi velt fyrir þér hvern-
ig hægt sé að bæta andrúmsloftið á
vinnustað. Jákvæð orka þín kemur þar til
góða.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Mundu að það er vel hægt að
halda sínum málstað án þess að setja
öðrum úrslitakosti, eða beita öðrum
þvingunum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú nýtur þess að fá huggulega
sendingu í pósti, en þegar upp er staðið
eru bestu pakkarnir þeir sem maður
pantar sér sjálfur.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Lokaðu þig ekki af frá umheiminum
þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Hlust-
aðu vandlega á það sem fólk hefur að
segja við þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Vinum og fjölskyldu gætu fundist
þú vera að yfirgefa þau þegar þú ferð
einn að sinna ýmsum iðjum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Jafnvel metnaðarfyllsta markmiðið
getur verið innan seilingar, ef maður
sleppir takinu af öflum sem vinna gegn
því.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þér er yfirleitt óhætt að
treysta tilfinningum þínum, þegar um
viðskipti er að ræða. Mættu erfiðleikum
með bros á vör.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú munt bæta samskipti við
þína nánustu á árinu með ánægjulegum
hætti. Gefðu því tíma til þess að sýna
þinn innri mann.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Vertu viss um að þú njótir þess
sem þú upplifir jafnóðum, í stað þess að
vera með hugann við framtíðina. Reyndu
að finna þér stund í einrúmi svo þú getir
slakað á.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ný tækifæri draga styrk þinn
fram í dagsljósið en vertu ekki svona
harður við sjálfan þig. Þú hefur verið of
upptekinn til að gefa þeim gaum sem
næst þér standa.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er sjálfsagt að njóta þess sem
maður hefur vel gert. Gefðu þér tíma til
að skoða þær breytingar sem eru að
verða í lífi þínu.
Stjörnuspá
Þetta gerðist…
11. maí 1661
Ragnheiður Brynjólfsdóttir
biskupsdóttir í Skálholti sór op-
inberan eið um hreinlífi sitt. Níu
mánuðum síðar, 15. febrúar
1662, eignaðist hún son, Þórð,
með séra Daða Halldórssyni.
Leikritið Skálholt eftir Guð-
mund Kamban fjallar um sam-
band Ragnheiðar og Daða.
11. maí 1721
Kötlugos hófst. Gosmökkur sást
víða að og miklar drunur
heyrðust norður í Eyjafjörð.
Gosinu fylgdi hlaup „sem bar
svo marga jaka á sjó út að ekki
sást út fyrir ísinn af hæstu fjöll-
um,“ sagði í ritinu Land-
skjálftar á Íslandi.
11. maí 1911
Knattspyrnufélagið Valur var
stofnað í Reykjavík. Stofnendur
voru fjórtán strákar úr KFUM.
11. maí 1921
Vökulögin voru samþykkt á Al-
þingi. Samkvæmt þeim áttu há-
setar á togurum að hafa „að
minnsta kosti 6 klst. óslitna
hvíld í sólarhring hverjum,“ en
áður höfðu sjómenn þurft að
standa vaktir í tvo til þrjá sólar-
hringa. Hvíldartíminn var
lengdur í 8 klst. árið 1928 og í
12 klst. árið 1955.
11. maí 1952
Tómstundaþáttur barna og
unglinga í umsjá Jóns Páls-
sonar hóf göngu sína í Útvarp-
inu. Hann var á dagskrá í meira
en áratug, yfirleitt síðdegis á
laugardögum, og var mjög vin-
sæll.
11. maí 1955
Kópavogur fékk kaupstað-
arréttindi en Kópavogshreppur
hafði verið skilinn frá Seltjarn-
arneshreppi sjö árum áður. Nú
búa um 30.000 manns í Kópa-
vogi en íbúar voru um 3.300 ár-
ið 1955.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
„VIÐ bjóðum kannski fjölskyldunni út að
borða eða fáum hana heim til okkar, það
kemur í ljós,“ segir Dagný Hildisdóttir,
ritari í Gerðaskóla í Garðinum, sem í dag
fagnar 54 ára afmæli sínu. Ekki telst það
vera stórafmæli en þegar við bætist eig-
inmaðurinn, Arnór G. Ragnarsson, eiga
þau hjónakornin samanlagt 115 ára af-
mæli í dag. Arnór á semsagt einnig af-
mæli 11. maí, verður „aðeins“ 61 árs. Þau eiga eina dóttur og þrjú
barnabörn. Dótturinni fannst það sjálfsagt fyrstu árin sín að foreldr-
arnir ættu afmæli sama dag og varð að sögn Dagnýjar undrandi þegar
hún uppgötvaði að þannig væri það ekki á öllum heimilum!
„Ég held hann hafi sótt fastar á eftir mér þegar hann uppgötvaði að
við ættum sama afmælisdag, hefur áreiðanlega séð einhvern sparnað í
því,“ segir Dagný en þau Arnór kynntust fyrir um 35 árum. En fyrir
nákvæmlega 40 árum, 11. maí 1969, urðu önnur tímamót í lífi Dagnýj-
ar. Hún fermdist þann dag í Garðinum og fermingarsystkinin héldu
einmitt upp á tímamótin í gær, 40 árum eldri. Komið var saman á svo-
nefndum Útskáladegi, sem er árviss menningarviðburður í Garði. Að
messu lokinni hittist hópurinn á Flösinni. bjb@mbl.is
115 ára afmæli hjónanna Dagnýjar og Arnórs
Sótti fastar á eftir mér