Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 26
26 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
JÓN, ÞEIR ERU
MEÐ OSTRUR Á
MATSEÐLINUM
OSTRUR? VIÐ ÆTTUM AÐ
NOTA TÆKIFÆRIÐ
UM...
JÁ
HVERNIG VAR
STEFNUMÓTIÐ?
HMM...
FÓLKI ER
FARIÐ AÐ
FJÖLGA
SVONA
GERIST ÞETTA
EINN DAGINN BÝR MAÐUR
UPPI Í SVEIT... NÆSTA DAG
BÝR MAÐUR Í ÚTHVERFI
ÉG ER EKKI
HRIFINN AF ÞVÍ AÐ
SKIPA FÓLKI FYRIR...
EN EF ÞIÐ SETJIÐ
ÖLL YKKAR VERÐMÆTI
Í POKA ÞÁ SKAL ÉG
TAKA VIÐ ÞEIM
EKKI HAFA ÁHYGGJUR, ATLI...
ÉG VEIT HVERNIG ÞÚ GETUR
LIFAÐ EÐLILEGU LÍFI ÞÓ AÐ OKKUR
TAKIST EKKI AÐ NÁ „PRINGLES“-
DÓSINNI AF HÖFÐINU Á ÞÉR
ÉG VIL BARA
AÐ ÞÚ VITIR AÐ
ÉG SÉ UM ÞETTA
FYRIR ÞIG
SVONA!
FLOTTUR!
EF ÞÚ SETUR
ÞETTA Á
„YOUTUBE“...
FANNSTU ÞENNAN
GAMLA KERTASTJAKA
NIÐRI Í GEYMSLU?
JÁ... AF
HVERJU NOTAR ÞÚ
HANN ALDREI?
HANN ER LÍTILL OG
BEYGLAÐUR... AUK ÞESS
SEM HANN NOTAR
MJÖG SKRÍTNA
STÆRÐ AF KERTUM
HANN Á SÉR
SAMT MJÖG
SKEMMTILEGA
SÖGU
SEGÐU
MÉR
ÉG VERÐ
AÐ FÁ
HANN TIL
AÐ SLEPPA
MÉR
HEYRÐU, FÉLAGI... HVAÐ
SEGIR ÞÚ UM AÐ LÁTA
MIG AFTUR NIÐUR?
KEMUR EKKI TIL GREINA!
UHH! ERTU
HEYRNARLAUS?
SLEPPTU
HONUM
FLUGEÐLAN KEMUR SÉR
FYRIR Á BRÚNINNI...
ÞEGAR HÚN ER TILBÚIN STEYPIR HÚN SÉR
OFAN AF BJARGINU OG BREIÐIR ÚT VÆNGINA.
HÚN SVÍFUR TIGNARLEGA YFIR DALINN
HUGSAÐU
JÁKVÆÐAR
HUGSANIR!
VIÐ HEFÐUM
KANNSKI ÁTT
AÐ VELJA
MINNA BJARG!
HANN var nokkuð álútur á að líta svanurinn sem ljósmyndari Morgun-
blaðsins hitti fyrir í Heiðmörk. Samkvæmt Vísindavefnum má rekja hug-
takið svanasöngur til forngrískrar frásagnar um að svanurinn syngi þegar
hann er að dauða kominn. Út frá því er hægt að rekja hugmyndir svana-
söngs sem oftast er þó notað um síðasta verk listamanns eða, nú í seinni tíð,
lokaræðu valdamanna.
Morgunblaðið/Ómar
Svanasöngur
Hugleiðingar um
úrslitarimmu
Hauka og Vals
MARGT hefur verið
skrifað og skrafað um
leiki Hauka og Vals í
úrslitarimmunni um
Íslandsmeistaratitilinn
og ekki allt fallegt.
Það má búast við slíku
þar sem hér eru tvö
bestu handknatt-
leikslið landsins að
berjast um æðstu
verðlaunin í handbolt-
anum og báðir aðilar
ætla sér titilinn. Þótt
hér sé um tvö gömul
vinafélög að ræða, KFUM-félögin
sem bæði eru stofnuð af séra Frið-
riki Friðrikssyni, þá gildir hið forn-
kveðna um þennan slag sem alla
aðra, að enginn er annars bróðir í
leik. Þrátt fyrir mikil átök og harð-
an slag er ég viss um að menn
munu skilja sáttir að leik loknum
eins og sönnum íþróttamönnum
sæmir og það eru leikmenn þessara
liða svo sannarlega. Mikið hefur
verið rætt um ætlað gróft brot
Kára Kristjáns á Sigurði Eggerts-
syni. Ég veit að Kári er ekki grófur
leikmaður og trúi honum eins og
nýju neti þegar hann segir að það
hafi ekki verið ætlun hans að meiða
Sigurð. En samt sem áður hefði
hann verðskuldað rautt spjald fyrir
þetta brot og fyrir bragðið er hann
undir smásjánni hjá dómurum og á
ekki sjö dagana sæla framundan
vegna þess. Það er mjög slæmt fyr-
ir Hauka. Hins vegar var rauða
spjaldið sem öðlingurinn Einar
Jónsson fékk algjörlega óverð-
skuldað. Þar sem sami maður, Sig-
urður Eggertsson, átti hlut að máli
í báðum tilfellunum er vert að
skoða hann sérstaklega. Sigurður
er geysilega fljótur og snöggur
leikmaður og allir
varnarmenn eiga í
mestu erfiðleikum með
að stöðva hann. Hann
fer oft á mikilli ferð
inn í vörn andstæðing-
anna og oft eru það
ósjálfráð viðbrögð
þeirra að rétta út
höndina þegar þeir
eru að missa hann
framhjá sér. Hann á
því sjálfur nokkurn
þátt í því að fá stund-
um harkalega með-
ferð. Í tilfelli Einars
Jónssonar var það
Sigurður sem hljóp á
Einar en ekki Einar
sem sló til Sigurðar. Það er oft erf-
itt fyrir dómarana að meta svona
árekstra. Mér finnst því að HSÍ
ætti að taka upp þá reglu að dóm-
arar megi skoða myndbönd og
draga sínar ályktanir af þeim. Ekki
ætla ég að spá um úrslitin að öðru
leyti en því að það lið sem vinnur
útileik mun sigra í þessari keppni
en annars held ég að þetta fari í
fimm leiki. Ég sem gamall Valsari
hef sterkar taugar til félagsins og
held alltaf með því nema þegar þeir
spila við Hauka. Ég vona að þeir
leikir sem eftir eru verði drengilega
leiknir og að betra liðið vinni.
Hermann Þórðarson, fyrr-
verandi formaður Hauka.
Hlýleg þjónusta í Fjarðar-
kaupum
MIG langar að koma á framfæri
ánægju minni með þjónustu í versl-
uninni Fjarðarkaupum í Hafnar-
firði. Starfsfólkið þar er bæði al-
mennilegt og notalegt.
Guðný Úlla Ingólfsdóttir.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Bað kl. 8-15-16, handa-
vinna og smíði/útskurður kl. 9-16.30,
félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur, handa-
vinna, fótaaðgerð, dagblöð. Vorfagnaður
verður 14. maí kl. 17. Ragnar Bjarn-
arsson og Þorvaldur Halldórsson
skemmta. Veislumatur. Skráning og
greiðsla í s. 535-2760 fyrir 12. maí.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
kl. 13, kaffitár kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Afmælisdag-
skrá kl. 14.15, í tilefni þess að 16 ár eru
frá opnun Gjábakka, stóri kór Snæ-
landsskóla syngur og Stefán Helgi Stef-
ánsson tenór og Davíð Ólafsson bassi
syngja við undirleik Helga Hannessonar.
Afmæliskaffi í boði Gjábakka.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8 og 9, kvennaleikfimi
kl. 9, 9.50 og 10.30, gönguhópur kl. 11,
vorsýningin í Jónshúsi opin frá kl. 10-16.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, vatnsleikfimi í Breið-
holtslaug kl. 9.50, frá hádegi er spila-
salur opinn, kóræfing kl. 16. Á miðviku-
dag er ferð austur fyrir fjall. Skráning á
staðnum og í s. 575-7720.
Háteigskirkja | Félagsvist í Setrinu kl.
13, kaffi.
Hraunbær 105 | Handavinna/
útskurður kl. 9, bænastund kl. 10,
myndlist kl. 13
Hraunsel | Ganga og pútt kl. 10, Gafl-
arakórinn æfir í Víðistaðakirkju kl.
10.30, handverkssýningin opin kl. 13-
16.30, síðasti dagur.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl.
9, jóga kl. 9 og 10, spilað kl. 13.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár-
anum kl. 10.40, hringdansar í Kópa-
vogsskóla kl. 16.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi kl.
9.30 á morgun í Grafarvogslaug.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund, spjall og æfingar kl. 10.30,
handverks- og bókastofa opin kl. 11.30,
söng- og samverustund kl. 15. Fótaað-
gerðastofa s. 552 7522.
Norðurbrún 1 | Leikfimi kl. 9.45,
handavinna kl. 9-12, boccia kl. 10, opið
smíðaverkstæði. Bíó kl. 13.30.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15-
15.30, boccia kl. 9, leikfimi kl. 11, les-
hópur kl. 13, kóræfing kl. 13.30, tölvu-
kennsla kl. 15. Hárgr. og fótaaðgerðir
kl. 9-16.
Vesturgata 7 | Flóamarkaður kl. 13-16.
Fatnaður, húsbúnaður, vínilplötur,
geisladiskar, bækur, skór. Veislukaffi.