Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 27
Verkið 294.989 er sérstaklega gert fyrir sýninguna List og ást og list í
Norræna húsinu. Fjórir hlutar verksins verða sýndir á fjórum stöðum:
í Norræna húsinu, Listasafninu á Akureyri, á veitingahúsinu Gráa
kettinum á Hverfisgötu og í sýningarglugga vikublaðsins Frétta á
Strandvegi í Vestmannaeyjum.
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið í Galleríi Fold á Rauðarárstíg virka daga 10–18, laugard. 11–16 og sunnud. 14–16
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn 11. maí,
kl. 18.15 í Galleríi Fold,
á Rauðarárstíg
Kristján Davíðsson
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Verkin verða sýnd í dag kl.12–17
MOONBOY & the Sun-
beams heldur tónleika á Ró-
senberg við Klapparstíg í
kvöld kl. 21.
Bandið skipar hópur lista-
manna með ólgandi tónlist-
arblóð í æðum sem leika
milda, myrka, djúpa frum-
samda tónlist eftir Moon-
boy.
Meðlimir eru: Einar
Hrafnsson á gítar, Anna
Kristín píanó/söngur, Sigga Elliðadóttir söng-
ur, Guðmundur Jónas Haraldsson, sem kallar
sig Moonboy, er á gítar og syngur, Darren
bassi og Birgir Baldursson slagverk.
Lofað er magnaðri upplifun á tónleikunum,
myrkri en ljúfri og djúpri kynngi með óvænt-
um endi.
Tónlist
Með ólgandi tón-
listarblóð í æðum
Guðmundur Jónas
Haraldsson
LISTMUNAUPPBOÐ fer
fram í Gallerí Fold við
Rauðarárstíg kl. 18.15 í
dag.
Að venju verða boðin
upp fjölmörg verk eftir
gömlu meistarana, þar á
meðal verk eftir Guð-
mundu Andrésdóttur,
Svavar Guðnason, Ásgrím
Jónsson og Hring Jó-
hannesson. Að þessu sinni
eru einnig mörg verk eftir yngri listamenn
og má þar nefna Karólínu Lárusdóttur,
Harald Bilson, Húbert Nóa og Daða Guð-
björnsson.
Verkin má sjá á heimasíðu gallerísins,
www.myndlist.is. Einnig er hægt að nálgast
uppboðsskrána þar. Allir velkomnir.
Myndlist
Yngri og eldri
verk á uppboði
Ásgrímur Jónsson
listmálari.
PORTRETTMYNDIR eft-
ir Þórhildi Jónsdóttur frá
Lambey eru nú til sýnis í
Gallerí Ormi í Sögusetrinu
Hvolsvelli.
Þórhildur er fædd á
Breiðabólstað í Fljótshlíð
en býr á Seltjarnarnesi.
Hún vinnur við grafíska
hönnun og rekur eigin aug-
lýsingastofu.
Myndirnar eru unnar
með vatnslitum, pastel, olíu og bleki og flestar
þeirra eru portrett- og mannlífsmyndir úr
Fljótshlíðinni.
Þetta er fyrsta einkasýning Þórhildar en
hún hafði opna vinnustofu sína á Menning-
arhátíð Seltjarnarness 2007.
Sýningunni í Gallerí Ormi lýkur 21. júní.
Myndlist
Mannlífsmyndir
úr Fljótshlíðinni
Breiðabólstaðar-
kirkja.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
SÝNING á verkum Huldu Hákon
verður opnuð laugardaginn 16. maí
í Listasafninu á Akureyri og er
sýningin hluti af dagskrá Listahá-
tíðar í Reykjavík. Sýningin sam-
anstendur af verkum í eigu lista-
konunnar og verkum sem eru í eign
Listasafns Íslands og Listasafns
Reykjavíkur.
Eins og að éta fíl
Meðal þeirra verka sem sýnd
verða er hluti af stóru verki sem
Hulda Hákon vinnur nú að og nefn-
ist 294.989. Þetta verk er mynd af
allri þjóðinni. „Það er alltaf talað
um að Íslendingar séu tæp 320.000
en íslenskir ríkisborgarar 1. janúar
2009 eru 294.989. Ég er að gera
þessi andlit,“ segir Hulda Hákon.
„Þetta verður stórt myndverk. Að
skapa það er eins og að éta fíl. Það
er gert úr flekum sem hver um sig
er 120x120 sm. Það eru um 16.800
hausar á hverjum fleka þannig að
þetta verða að lokum allmargir
flekar. Þetta er mikil vinna en ef ég
get gert þetta þá held ég að þjóðin
geti allt.“
Leitað til fuglanna
Spurð hvort hún haldi að hún
muni gera öðruvísi verk nú þegar
kreppa er skollin á svarar Hulda
Hákon: „Þegar kreppan skall á gat
ég ekki hugsað mér að gera verk
sem tækju beint á þessu stóra
vandamáli. Ég einhenti mér í það
að gera myndir af svönum og
hröfnum. Ég held að ég hafi leitað
til fuglanna vegna þess að þar finn
ég vissa staðfestu. Þeir halda bara
áfram og þar gerist ekkert drama-
tískt, ekki frekar en í ytri umgerð
landsins og miðanna. Fyrstu við-
brögðin voru því að reyna að gera
eitthvað fallegt sem innihéldi vissan
varanleika.
Annað sem hefur breyst er að nú
nenni ég ekki lengur að fara eftir
óskrifuðum reglum samfélagsins
um það hvað má og hvað má ekki.
Ég hef alltaf látið þetta fyrirbæri
fara létt í taugarnar á mér en sem
góður borgari hef ég umborið það
og reynt að fara eftir þessum
óskrifuðu reglum.“
Opnar yrðingar
Hulda Hákon er ekki síst þekkt
fyrir lágmyndir sínar með fígúrum
og texta. „Frá því ég var krakki hef
ég verið hrifin af lágmyndum, þrí-
víddin sem kemur fram í þeim
finnst mér falleg og skemmtileg.
Þetta form hentar mér mjög vel af
því mér finnst gaman að móta og
horfa á flötinn, mála og skrifa
texta,“ segir hún.
Dýr eru mjög áberandi í verkum
hennar. „Þegar ég var að byrja á
listabrautinni var ég nýkomin út úr
Íslandi jafnréttisbaráttunnar. Ég
var svo meðvituð um það að ef ég
væri með konu í verki þá væri það
yfirlýsing og ef ég væri með karl þá
væri það líka yfirlýsing. Kannski
þess vegna læddust dýrin inn í verk
mín og ég fór að manngera þau.
Annars er ég lítið fyrir að analý-
sera verk mín. Ég vil í verkum mín-
um kasta fram opnum yrðingum og
svarið þarf ekkert frekar að vera
hjá mér heldur alveg eins þeim sem
horfir á verkin. Ég vil ekki fylgja
verkunum úr hlaði pökkuðum inn í
analýsu.“
Mynd af allri þjóðinni
Morgunblaðið/Heiddi
Hulda Vinnur nú að mynd af allri
þjóðinni. „Þetta er mikil vinna en ef
ég get gert þetta þá held ég að þjóð-
in geti allt,“ segir Hulda.
Sýning á verkum Huldu Hákon í
Listasafninu á Akureyri Listakonan
vinnur að verki af allri þjóðinni
SÓLARLJÓÐ voru nýverið
endurútgefin af Bók-
menntafræðistofnun en þau
hafa verið ófáanleg um
langt skeið. Sólarljóð eru
kaþólskt helgikvæði eftir
ókunnan 13. aldar höfund.
Þetta er eitt stórbrotnasta
trúarljóð sem ort hefur ver-
ið á íslenska tungu.
Með útgáfu ljóðanna í
þessari bók er reynt að
gera nútímalesendum kleift að skilja þetta
merkilega kvæði og benda á helstu hugmynda-
og rittengsl sem sýna menntun og þekkingu
höfundarins.
Útgáfa og umfjöllun í bókinni er í höndum
Njarðar P. Njarðvík sem einnig sér um rit-
stjórn bókarinnar ásamt Davíð Erlingssyni.
Endurútgáfa
á Sólarljóðum
Njörður P.
Njarðvík
Bókmenntir
294.989
„ÉG mun að sjálfsögðu sækja aftur
um,“ segir Tinna Gunnlaugsdóttir,
spurð hvort hún ætli að sækja um
að gegna starfi þjóðleikhússtjóra
fimm ár í viðbót.
Embætti þjóðleikhússtjóra var
auglýst laust til umsóknar um
helgina en samkvæmt leiklist-
arlögum skal auglýsa embættið
laust til umsóknar í lok hvers skip-
unartímabils. Skipað er í starfið til
fimm ára í senn.
Tinna hefur gegnt starfi þjóð-
leikhússtjóra síðan í ársbyrjun 2005
en hún tók við starfinu af Stefáni
Baldurssyni.
Í starfslýsingu segir að þjóðleik-
hússtjóri sé forstöðumaður Þjóð-
leikhússins og stjórnandi þess.
Hann markar listræna stefnu leik-
hússins í samráði við Þjóðleik-
húsráð, stýrir leikhúsinu sam-
kvæmt samþykktri starfs- og
fjárhagsáætlun og ber ábyrgð á
listrænum og
fjárhagslegum
rekstri þess.
Það er
mennta-
málaráðherra
sem skipar þjóð-
leikhússtjóra í
embætti til fimm
ára í senn, frá og
með 1. janúar
2010. Í embættið
skal skipaður
einstaklingur með menntun á sviði
lista og staðgóða þekkingu á starfi
leikhúsa.
Umsóknir um stöðuna þurfa að
hafa borist ráðuneytinu fyrir föstu-
daginn 26. júní.
ingveldur@mbl.is
Tinna sækir um að
vera áfram
Tinna Gunn-
laugsdóttir