Morgunblaðið - 11.05.2009, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Hart í bak (Stóra sviðið)
Creature - gestasýning (Kassinn)
Ó, þú aftur - afmælissýning leikhópsins Hugleiks (Smíðaverkstæðið)
Í Óðamansgarði - ópera í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Fim 14/5 kl. 20:00Aukas. Ö
Fim 14/5 kl. 20:00 U
Fös 15/5 kl. 20:00 Ö
Fös 15/5 kl. 20:00 U
Sun 17/5 kl. 20:00
Mið 20/5 kl. 20:00
Fös 22/5 kl. 20:00
Fös 15/5 kl. 20:00 U
Lau 16/5 kl. 20:00
Sun 17/5 kl. 20:00
Fös 22/5 kl. 20:00
Sun 24/5 kl. 20:00
Mið 27/5 kl. 20:00
Lau 23/5 kl. 20:00
Fim 28/5 kl. 20:00
Fös 29/5 kl. 20:00
Fös 29/5 kl. 18:00 U
Lau 30/5 kl. 14:00 U
Lau 30/5 kl. 17:00 U
Fim 4/6 kl. 18:00 U
Fös 5/6 kl. 18:00 U
Lau 6/6 kl. 14:00 U
Lau 6/6 kl. 17:00 U
Lau 16/5 kl. 14:00 U
Lau 16/5 kl. 17:00 U
Sun 17/5 kl. 14:00 U
Sun 17/5 kl. 17:00 U
Sun 24/5 kl. 14:00 U
Þri 26/5 kl. 18:00 U
Mið 27/5kl. 18:00 U
Sun 7/6 kl. 14:00 U
Sun 7/6 kl. 17:00 U
Lau 13/6 kl. 14:00 Ö
Lau 13/6 kl. 17:00 Ö
Sun 14/6 kl. 14:00 U
Sun 14/6 kl. 17:00 U
Sun 30/8 kl. 14:00
Sýningar haustsins komnar í sölu
Yfir 40 uppseldar sýningar. Sýningum lýkur 15. maí
Kolklikkaður leikhúskonsert - aðeins fjórar sýningar
Aðeins tvær sýningar
Snarpt sýningatímabil - miðaverð aðeins 1.500 kr.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Einleikjaröð- Sannleikurinn (Litla sviðið)
Lau 23/5 kl. 19:00 ný aukaU Lau 23/5 kl. 22:00 ný aukaU
Ökutímar (Nýja sviðið)
Mið 13/5 kl. 20:00 5kort U
Fim 14/5 kl. 20:00 6kort U
Fös 15/5 kl. 19:00 U
Lau 16/5 kl. 16:00 7kort U
Sun 17/5 kl. 19:00 U
Mið 20/5 kl. 19:00 8kort U
Fim 21/5 kl. 20:00 Ö
Fös 22/5 kl. 19:00 aukas Ö
Lau 23/5 kl. 19:00 aukas
Sun 24/5 kl. 20:00 aukas
Mið 27/5 kl. 20:00 9kort U
Fim 28/5 kl. 20:00 10kort U
Fös 29/5 kl. 19:00 Ö
Aðeins sýnt í maí.
Söngvaseiður – allt að seljast upp fram á sumar
Mið 13/5 kl. 20:00 4kort U
Fim 14/5 kl. 20:00 5kort U
Fös 15/5 kl. 20:00 6kort U
Lau 16/5 kl. 16:00 7kort U
Sun 17/5 kl. 16:00 U
Sun 17/5 kl. 20:00 8kort U
Mið 20/5 kl. 20:00 U
Fim 21/5 kl. 16:00 U
Fim 21/5 kl. 20:00 9kort U
Fös 22/5 kl. 20:00 10kort U
Lau 23/5 kl. 20:00 U
Sun 24/5 kl. 16:00 U
Mið 27/5 kl. 20:00 ný aukasU
Fim 28/5 kl. 20:00 U
Fös 29/5 kl. 20:00 U
Lau 30/5 kl. 20:00 U
Mán 1/6 kl. 16:00 ný aukaU
Mið 3/6 kl. 20:00 U
Fim 4/6 kl. 20:00 U
Fös 5/6 kl. 20:00 ný aukasÖ
Lau 6/6 kl. 16:00 U
Lau 6/6 kl. 20:00 U
Sun 7/6 kl. 16:00 U
Fim 11/6 kl. 20:00 Ö
Fös 12/6 kl. 20:00 ný aukasÖ
Lau 13/6 kl. 14:00 Ö
Sun 14/6 kl. 16:00 U
Frumsýning 8. maí!
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Fúlar á móti ATH! sýnt í Íslensku Óperunni Sími 511 4200
Aðeins örfáar sýningar
Fim 14/5 kl. 20:00 U
Fös 15/5 kl. 20:00 U
Sun 17/5 kl. 20:00 U
Fös 22/5 kl. 20:00 Ný sýn
Fim 28/5 kl. 20:00 Ný sýn
Fim 4/6 kl. 20:00 Ný sýn
Fös 5/6 kl. 20:00 Ný sýn
Lau 6/6 kl. 20:00 Ný sýn
Sun 7/6 kl. 20:00 Ný sýn
Það var sannkölluð hátíð-arstemning í Borgarleikhús-inu á föstudagskvöldið, áfrumsýningu á hinum sí-
gilda söngleik Rogers og Hammer-
steins, Söngvaseið. Söngleikurinn var
frumfluttur í New York 1959 en þetta
er í þriðja sinn sem hann er settur upp
hér á landi í snilldarlegri þýðingu hins
góðkunna Flosa Ólafssonar.
Sagan gerist í Austurríki og segir
frá hinni glaðværu Maríu sem býr sig
undir líf í nunnuklaustri en ræður ekki
alveg við þær reglur sem henni eru
settar. Hún er send á heimili hins
stranga kapteins Von Trapp sem
barnfóstra í von um að hún átti sig bet-
ur á tilveru sinni. En þrátt fyrir að
María vinni hjörtu barnanna sjö, með
söng og gleði, verður líf hennar enn
flóknara þegar ástin kemur henni á
óvart og innrás Þjóðverja yfirvofandi.
Með hlutverk Maríu fer söngkonan
Valgerður Guðnadóttir. Hér er um að
ræða burðarhlutverk sýningarinnar. Í
skemmstu máli má segja að Valgerður
skilaði hlutverkinu með starkri prýði,
hún hefur mjög fagra rödd og mikla
útgeislun á sviði. Hlutverk kapteins
Von Trapp er ekki eins líflegt og Mar-
íu, en Jóhannes Haukur Jóhannesson
fer með hlutverk kapteinsins með
ágætum. Jóhannes hefur undanfarið
leikið gamanhlutverk og var skemmti-
leg tilbreyting að sjá hann í alvarlegri
kantinum. Á heimili Von Trapps eru
hjú sem leikin eru af Bergi Þór Ing-
ólfssyni og Hönnu Maríu Karlsdóttur.
Þau eru bæði mjög skemmtileg í hóf-
stilltum leik. Jóhann Sigurðarson leik-
ur fjölskylduvininn Max með mikilli
kómík og Katla Margrét Þorgeirs-
dóttir fer vel með hlutverk hinnar ríku
Elsu, unnustu Von Trapps. Þau eru
ekki síður færir söngvarar en leikarar.
Fjölmargir leikarar voru í minni
hlutverkum og ekki er rúm að minnast
á þau öll en þó verður að geta um frá-
bæra frammistöðu Jóhönnu Vigdísar
Arnardóttur í hlutverki abbadís-
arinnar. Nunnukórinn átti nokkur
mögnuð söngatriði og sungu stundum
á „nunnumáli“ eins og einn ungur leik-
húsáhorfandi orðaði það og átti við lat-
nesku textana.
Af leikurum skal síðast en ekki síst
telja börnin, þau Árna Beintein, Lilju
Eivoru, Jakob, Agnesi, Rebekku og
Söru sem stóðu sig með miklum sóma
í leik, söng og dansi. Elsta dóttirin er
leikin af Láru Sveinsdóttur og átti hún
skemmtilegan samleik með Guðjóni
Davíð Karlssyni sem lék unglingspilt-
inn Frans.
Tónlist verksins hefur hljómað í
eyrum fólks í hálfa öld og þekkja
margir þessi sígildu lög. Hljómsveitin
var þétt undir styrkri stjórn hljóm-
borðsleikarans og tónlistarstjórans
Agnars Más Magnússonar og var út-
setningin mjög góð.
Leikmyndahönnuðurinn Snorri
Freyr Hilmarsson málaði fallegar
myndir á sviðið og nutu þær lýsingar
Þórðar Orra Péturssonar. Leik-
myndin var hófstillt en náði vel tíð-
arandanum sem og búningar Stefaníu
Adolfsdóttur.
Dansatriðin eiga veigamikinn sess í
sýningunni og voru unnin af fag-
mennsku undir stjórn Ástrósar Gunn-
arsdóttur.
Þórhallur Sigurðsson leikstjóri hef-
ur einstakt lag á barnasýningum og er
Söngvaseiður enn ein fjöður í hattinn
hans.
Söngvaseiður er klassískur söng-
leikur sem höfðar til allra aldurshópa.
Borgarleikhúsið er með stórsýningu í
höndunum, vel heppnaða, skemmti-
lega og afar vel unna.
Borgarleikhúsið
Söngvaseiður
Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson. Tón-
listarstjóri: Agnar Már Magnússon. Bún-
ingar: Stefanía Adolfsdóttir. Lýsing:
Þórður Orri Pétursson. Hljóð: Sigurvald
Ívar Helgason. Dans: Ástrós Gunn-
arsdóttir. Þýðing: Flosi Ólafsson. Leik-
stjóri: Þórhallur Sigurðsson
Leikarar: Valgerður Guðnadóttir, Jóhann-
es Haukur Jóhannesson, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir, Jóhann Sigurðarson, Katla
Margrét Þorgeirsdóttir, Guðjón Davíð
Karlsson, Lára Sveinsdóttir, Pétur Ein-
arsson, Theodór Júlíusson, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Hanna María Karlsdóttir,
Linda Ásgeirsdóttir, Bergur Þór Ingólfs-
son, Þórunn Erna Clausen, Árni Bein-
teinn Árnason, Lilja Eivor Gunnarsdóttir
Cederborg, Jakob Van Oosterhout,
Agnes Gísladóttir, Sara Lind Styrm-
isdóttir, Rebekka Ósk Svavarsdóttir o.fl.
INGIBJÖRG
ÞÓRISDÓTTIR
LEIKLIST
Þar sem gleðin
tekur völdin
Söngvaseiður „Borgarleikhúsið er með stórsýningu í höndunum, vel heppnaða, skemmtilega og afar vel unna.“
„ÞETTA er orgelverk og innsetning í einu verki,“
segir Hildur Guðnadóttir tónskáld, en 23. maí verð-
ur verk hennar og Elínar Hansdóttur myndlistar-
manns frumflutt í Riga í Lettlandi.
Ljós og skuggi
„Elín gerir innsetninguna, og hún samanstendur
af ljósum, sem eru beintengd við nótur orgelsins.
Þannig hefur hver nóta heiltónaskalans sitt ljós; d
hefur til dæmis rautt ljós. Ljósin fara svo í spegl-
astrúktúr sem er haldið uppi af risastórum blöðrum
sem svífa uppi í lofti í kirkjunni,“ segir Hildur og
hlær.
„Þetta er búið að standa til í ár, og við erum bún-
ar að vera með hugann við verkið síðan þá, en byrj-
uðum að vinna það fyrir nokkrum mánuðum.
Verkið er eins og risastórt DNA og margar pæl-
ingar á bak við það. DNA-inu er svo skipt í lita-
skala eftir litahring Newtons. Annars er mig búið
að langa lengi til að búa til svona verk, því í þeim
stóru hljóðfærainnsetningum sem ég hef verið að
gera er ég oft að vinna með tóna, hreyfingu og ljós.
Fyrir mér er mjög sterk tenging þar á milli. Ég hef
rannsakað þetta mikið síðustu árin, og langaði virki-
lega að gera verk þar sem ljósið væri beintengt við
hljóðið. Tækifærið kom með þessu verki. Elín er
svo algjör snillingur, og í sínum verkum hefur hún
mikið unnið með ljós og skugga – á svipaðan hátt
og ég hugsa um hljóðið. Það var því fullkomið fyrir
okkur að mætast í þessu verki og samstarfið hefur
verið yndislegt.“
Það voru skipuleggjendur hátíðarinnar Sound
Forest í Riga í Lettlandi sem föluðust eftir verkinu,
en Hildur hefur komið fram á hátíðinni nokkrum
sinnum áður. begga@mbl.is
D er rautt!
Morgunblaðið/Ásdís
Yndislegar „Það var fullkomið fyrir okkur að mætast í þessu verki og sam-
starfið hefur verið yndislegt,“ segir Hildur um samstarfið við Elínu.
Hildur Guðnadóttir og
Elín Hansdóttir með risa-
stórt DNA í Lettlandi
@