Morgunblaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
....ERTU NÓGU MIKILL MAÐUR
TIL AÐ SEGJA ÞAÐ?
ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA KNOCKED UP OG FORGETTING SARAH MARSHALL
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
750kr.
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA
STÆ
RST
A
OP
NU
NIN
Á Á
RIN
U
UNCUT
- S.V. MBL
EMPIRE
TOTAL FILM
HÖRKUSPENNANDI MYND FRÁ LEIKSTJÓRA
THE LAST KING OF SCOTLAND
750k
r.
750k
r.
State of Play kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
I love you man kl. 5:40-8-10:15 B.i. 12 ára
Fast and Furious kl. 5:40-8-10:15 B.i. 12 ára
Crank 2: High Voltage kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára Draumalandið kl. 6 - 8 -10 LEYFÐ
I love you man kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i.12 ára
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga
“ÞESSI MYND HÉLT MÉR ANNAÐ HVORT GLOTTANDI
EÐA SKELLI- HLÆJANDI ÚT ALLA LENGDINA.
MÆLI VEL MEÐ HENNI.”
“ÞESSI MYND HÉLT MÉR ANNAÐ HVORT
GLOTTANDI EÐA SKELLI- HLÆJANDI ÚT
ALLA LENGDINA. MÆLI VEL MEÐ HENNI.”
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA
KNOCKED UP OG FORGETTING SARAH MARSHALL
750k
r.
HÖRKU HASAR!
GEÐVEIKIN STOPPAR ALDREI,
OG VIRÐIST ÞEIM FÉLÖGUM,
LEIKSTJÓRUNUM NEVELDINE OG
TAYLOR FÁTT VERA ÓMÖGULEGT.
- V.J.V., - TOPP5.IS
JASON STATHAM ER
MÆTTUR AFTUR Í
HLUTVERKI HINS
ÓDREPANLEGA
CHEV CHELIOS
750k
r.
Boat that rocked kl. 6 - 9 B.i.12 ára
X Men Origins: Wolverine kl. 6:30 - 9 B.i.14 ára
JASON STATHAM ER
MÆTTUR AFTUR
Í HLUTVERKI HINS
ÓDREPANLEGA
CHEV CHELIOS
GEÐVEIKIN STOPPAR ALDREI,
OG VIRÐIST ÞEIM FÉLÖGUM,
LEIKSTJÓRUNUM NEVELDINE OG
TAYLOR FÁTT VERA ÓMÖGULEGT.
- V.J.V., - TOPP5.IS
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
HÖRKU HASAR!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
VINSÆLASTA MYNDIN Í HEIMINUM Í DAG!
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Nú eru Múminálfarnir
komnir með sína
fyrstu bíómynd sem
segir frá stærsta
ævintýrinu sem þeir
hafa nokkurn tíma
lent í.
Bráðskemmtileg mynd
fyrir alla fjölskylduna
650 kr.
VINSÆL
ASTA MY
NDIN
Í HEIMIN
UM Í DA
G!
X Men Origins: Wolverine kl. 8 - 10 B.i.14 ára
Boat That Rocked kl. 8 - 10:10 B.i.14 ára
Draumalandið (Aukasýning) kl. 6 LEYFÐ
Múmínálfarnir kl. 6 LEYFÐ
Tilurð og uppgangur Loft-leiða er með stærstu við-skiptaævintýrum í Íslands-sögunni og það sem er hvað
mest heillandi, baðað ljóma dugn-
aðar, áræðis og hæfileika. Félagið
varð einnig illilega fyrir barðinu á
pólitíkusum og var innlimað langt
undir gengi þegar flugfélögin tvö
voru sameinuð undir einn hatt, Flug-
leiðir. Það er a.m.k. skoðun allra við-
mælenda í Alfreð Elíasson og Loft-
leiðir, vandaðri og einkar
áhugaverðri heimildarmynd Sig-
urgeirs Orra, sem rekur stórbrotna
og ævintýralega sögu „óskabarns
einkaframtaksins“, ef svo má að orði
komast.
Eins og nafnið bendir til er kast-
ljósinu talsvert beint að þætti Alfreðs
heitins Elíassonar og konunnar sem
stóð eins og klettur að baki bónda
sínum, Kristjönu Millu Thor-
steinsson. Myndin er að nokkru leyti
byggð á ævisögu Alfreðs sem Jakob
F. Ásgeirsson skráði. Alfreð var
lengst af forstjóri og einn af frum-
kvöðlunum sem komu Loftleiðum á
laggirnar og var, að öðrum ólöst-
uðum, prímusmótorinn, hugmynda-
smiðurinn sem stjórnaði félaginu í
gegnum súrt og sætt á meðan heilsan
leyfði. Framsýnn og framsækinn
maður, sem að hætti viðskiptajöfra
sá jafnan úrræði og nýja möguleika
þegar kreppti að fyrirtækinu og var
frumherji á mörgum sviðum, ekki
síst á sviði lágfargjalda þar sem Loft-
leiðir voru brautryðjendur í flugsög-
unni.
Sagan um Alfreð Elíasson og Loft-
leiðir er ævintýri líkust allt til dap-
urlegra loka, þegar ríkisafskipti og
sameining kemur til sögunnar. Hlut-
ur Loftleiða var hrikalega vanmetinn
að dómi viðmælenda og rökin blasa
við áhorfendum. Fram til þeirra ör-
lagatíma er sagan stórfengleg, reyf-
arakennd á köflum, mörkuð sigrum,
erfiðleikum, áföllum, uppgangi og
þrautseigju manna sem börðust eins
og afkomendum víkinganna sæmir.
Loftleiðir byrjuðu smátt með
þriggja manna Stinson, eftir að hafa
numið flug í Kanada. Alfreð, sem áð-
ur hafði nokkra viðskiptareynslu af
leigubílarekstri, var hinn sjálfkjörni
foringi með þá Ólsen-bræður, Magn-
ús Guðmundsson, Dagfinn Stef-
ánsson, Kristján í Kassagerðinni og
fleiri úrvalsmenn með sér í barátt-
unni. Víðsýna atorkumenn sem eru
goðsagnir í íslenskri flugsögu. Rakn-
ir sigrar og áföll í umfangsmikilli at-
vinnusögu sem teygði anga sína um
allan heim, utan Ástralíu.
Sigurgeir styðst við ný og eldri
viðtöl, hagnýtir það mikla efni sem til
er á filmu og fléttar við það auglýs-
ingum, blaðagreinum og -fyr-
irsögnum, af nógu er að taka. Út-
koman er ekki aðeins fræðandi
heldur firna skemmtileg mynd
áhorfs, það er vel haldið á viðfangs-
efninu, þessu hrífandi öskubusku-
ævintýri með mikla sjarmöra í aðal-
hlutverkum. Maður minnist þess
hversu þjóðin hreifst af atorku þeirra
í slagnum við IATA og hákarlana,
hugmyndaflæði þeirra, sem var drif-
krafturinn í baráttu við erlenda og
síðar íslenska áhrifamenn. Myndin
mun hjálpa til að halda nafni Alfreðs
og félaga hans á loft um leið og hún
er merk heimild um einstakan útrás-
arkafla í atvinnusögunni (áður en
óorði var komið á hugtakið).
Þau sitja í minninu lokaorð Alfreðs
þegar andstæðingar hans voru búnir
að bola honum út úr fyrirtækinu sem
hann byggði frá grunni upp í stór-
veldi:
„Hvar er félagið mitt?“ segir hann,
sem vekur aðra spurningu: Hver á
það í dag og hvar er frægðarljóminn?
saebjorn@heimsnet.is
Kringlubíó
Alfreð Elíasson og Loftleiðir
bbbbn
Íslensk heimildarmynd. Leikstjórn,
handrit, klipping og framleiðsla: Sig-
urgeir Orri Sigurgeirsson. Þulur: Arnar
Jónsson. Viðmælendur: Alfreð Elíasson,
Alfred Olsen, Arngrímur Jóhannsson,
Björn Theodórsson, Dagfinnur Stef-
ánsson, Erna Hjaltalín, Geir R. And-
ersen, Guðni Þórðarson, Jakob F. Ás-
geirsson, Jóhannes Einarsson, Kristinn
Olsen, Kristjana Milla Thorsteinsson,
Magnús Guðmundsson, Sigurður Helga-
son o.fl. Kvikmyndataka: Jón Viðar Edg-
arsson o.fl. Hljóðsetning: Nick Cath-
cart-Jones. 120/131 mín.
Heimildarmyndir ehf. Ísland 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Heimildarmynd Myndin mun hjálpa til að halda nafni Alfreðs og félaga hans á lofti um leið og hún er merk heimild
um einstakan útrásarkafla í atvinnusögunni (áður en óorði var komið á hugtakið).
Ljóminn yfir Loftleiðum
Gerð efnismikilla heimildar-
mynda á borð við Alfreð Elíasson
og Loftleiðir, er tímafrek og
krefst óhemju heimildarvinnu.
Umfjöllunarefnið er litrík saga
fyrirtækis og einstaklinga sem
settu svip sinn á 20. öldina. Það
var því af miklu að taka og fróð-
legt að sjá hversu víða Sigurgeir
leitaði hófanna. Listinn er þó
ekki fyllilega tæmandi: Kvik-
myndasafn Íslands: Agnar Kofo-
ed Hansen – Jökull lendir í
Reykjavík; Gunnar Ásgeirsson –
Grumman á sundunum og Vest-
firðir; Hans-Ernst Weitzel –
Summer in Iceland; Loftur Guð-
mundsson – Ísland í lifandi
myndum; Magnús Jóhannsson –
Björgun Jökuls; Samuel Kadori-
an – Stríðsárin í Reykavík;
Svipmyndir frá Ísafirði; Vigfús
Sigurgeirsson – Hekla kemur
1947;
Ríkisútvarpið: Loftleiðir í New
York 1968; Flug á Íslandi í 50 ár
1969; Biðin langa; Fréttamyndir.
Landkynningarmyndir Loftleiða.
Mikil heimildavinna