Morgunblaðið - 27.06.2009, Page 4
Í HNOTSKURN
»Loftorka Borgarnesi ehf.hafði verið í vandræðum
um nokkurt skeið og lagði í
gær inn beiðni til gjald-
þrotaskipta til hérðasdóms
Vesturlands. Þar unnu 70
manns.
»Mikill vilji er meðalheimamanna til þess að
endurvekja reksturinn með
einhverjum hætti.
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„ÞETTA er auðvitað mikið áfall fyrir
sveitarfélagið Borgarbyggð, en okk-
ur hafði verið ljóst í nokkurn tíma að
staða Loftorku væri erfið og fyrir-
tækið ætti í erfiðleikum,“ segir Páll
S. Brynjarsson, sveitarstjóri í Borg-
arbyggð. Loftorka Borgarnesi ehf.
lagði í gær inn beiðni til Héraðsdóms
Vesturlands um að félagið yrði tekið
til gjaldþrotaskipta.
„Aðalástæða fyrir því að svona er
komið fyrir Loftorku eru gengis-
breytingarnar. Þetta var fullkomn-
asta einingaverksmiðja landsins og
slíkt kallaði á fjárfestingar. Á sama
tíma drógust verkefni fyrirtækisins
gríðarlega saman. Verkefnin voru
ekki nema brot af því sem áður var,
jafnvel innan við 20%,“ segir Óli Jón
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Loftorku.
„Þá hafa gjaldþrot ýmissa fyrir-
tækja valdið dómínó-áhrifum sem
við töpuðum mikið á. Þau ganga koll
af kolli og því miður lentum við í því
að falla og valda öðrum tjóni. Þetta
er mjög dapurlegur ferill.“
300 starfsmenn árið 2007
Fyrirtækið hefur verið stærsta
fyrirtækið í Borgarfirði um langt
skeið og mikill vilji er meðal heima-
manna til þess að reynt verði að end-
urvekja reksturinn. „Ég veit ekki
nákvæmlega hver staðan er á því
máli en það væri auðvitað afar mik-
ilvægt ef það gæti gengið eftir. Það
eru miklir hagsmunir fyrir alla að
það verði áfram starfsemi hjá Loft-
orku,“ segir Páll sveitarstjóri.
Hjá Loftorku störfuðu 70 manns
en þegar best lét árið 2007 voru hátt í
300 starfsmenn hjá fyrirtækinu.
Loftorka var alhliða framleiðslu-
og verktakafyrirtæki á sviði mann-
virkjagerðar. Það var stofnað árið
1962.
„Mjög dapurlegur ferill“
Gengishrun, verkefnaskortur og gjaldþrot annarra fyrirtækja veittu Loftorku
náðarhöggið „Mikið áfall fyrir sveitarfélagið Borgarbyggð,“ segir sveitarstjóri
Morgunblaðið/Golli
Borgarbyggð 300 manns störfuðu
hjá Loftorku árið 2007.
Páll S.
Brynjarsson
Óli Jón
Gunnarsson
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson og
Ylfu Kristínu Árnadóttur
„Innflytjendur
kvörtuðu og töldu
ekki ráðuneytis-
ins að ákveða á
hvaða kjörum þeir
gætu keypt inn og
þá var einfaldlega
orðið við því og
tollkvótinn aug-
lýstur,“ segir Sig-
urgeir Þorgeirs-
son, ráðuneytis-
stjóri í sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðuneytinu.
Ráðuneytið auglýsti í gær toll-
kvóta fyrir innflutning á nautgripa-,
svína- og alifuglakjöti, smjöri, ostum
og unnum kjötvörum fyrir tímabilið
1. júlí 2009 til 30. júní 2010. Fyrir
rétt rúmri viku tilkynnti ráðuneytið
á heimasíðu sinni að kvótunum, svo-
nefndum WTO-kvótum, yrði ekki út-
hlutað „að þessu sinni“.
Ráðuneytið taldi „ekki forsendur
til að úthluta sérstaklega WTO toll-
kvótum“ þar sem nú stæði til að miða
tollinn við verð en ekki magn vöru
líkt og tíðkast hefur. Þá fléttuðust
veikt gengi krónunnar og hækkun á
innflutningsverði landbúnaðarvara
einnig inn í ákvörðunina. Ráðherra
ber hins vegar að úthluta kvóta sam-
kvæmt lögum um framleiðslu, verð-
lagningu og sölu á búvörum.
Samtök verslunar og þjónustu
höfðu mótmælt ákvörðuninni harð-
lega og sögðu að með aðild að WTO-
samningnum hefði Ísland skuld-
bundið sig til að úthluta tollkvótum
fyrir innflutningi landbúnaðaraf-
urða. Þessi mótmæli skiluðu greini-
lega árangri því ráðherra afturkall-
aði ákvörðunina í skyndi.
Tollkvóti auglýstur
Morgunblaðið/Eggert
Kvóti Ekki er sama hvaðan gott kemur.
Ráðherra dró vikugamla ákvörðun sína til baka vegna at-
hugasemda frá Samtökum verslunar og þjónustu
Sigurgeir
Þorgeirsson
„VINNA göfgar manninn“ segir máltækið og
sem betur fer tókst að koma í veg fyrir, að æsku-
lýðurinn yrði með öllu verkefnalaus í sumar.
Þúsundir unglinga vinna við að fegra og snyrta
umhverfið og þar á meðal þetta myndarlega
fólk. Það hafði fengið það verkefni hjá Vinnu-
skólanum að hressa upp á vegginn við Hljóma-
lindarreitinn og beitti við það öllum tiltækum
tólum, jafnt penslum sem rúllum. svs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
GAMLI MÚRINN FÆR UPPLYFTINGU
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands
dæmdi í gær karlmann á 27. aldurs-
ári, Rimvydas Stasiulionis, í fjög-
urra ára fangelsi fyrir stórfellda
líkamsárás sem leiddi til dauða
Almis Keraminas, 39 ára karl-
manns. Árásin átti sér stað í sum-
arhúsi í Grímsnesi seint á síðasta
ári.
Annar karlmaður og tvær konur
voru einnig ákærð í málinu, fyrir að
hafa ekki komið fórnarlambinu til
aðstoðar eftir árásina. Konurnar
voru sýknaðar en maðurinn dæmd-
ur í hálfs árs fangelsi.
Rannsókn málsins var mjög viða-
mikil enda framburður vitna og
árásarmannsins um málsatvik mjög
ótrúverðugur. Krufning leiddi í ljós
að maðurinn lést af blæðingum í
heila eftir að hafa hlotið þungt höf-
uðhögg. Vísbendingar voru um að
sparkað hefði verið í höfuð manns-
ins og hann dáið skömmu síðar.
Við ákvörðun refsingar var litið
til að fórnarlambið hafði krafið
árásarmanninn um verndarþóknun
og hótað að nauðga vinkonu hans
yrði hún ekki greidd. andri@mbl.is
Dæmdur
fyrir árás
í bústað
Spark í höfuð leiddi
til dauða mannsins
FORSÆTISRÁÐHERRA hefur
skipað Má Guðmundsson í embætti
seðlabankastjóra til fimm ára frá og
með 20. ágúst og Arnór Sighvats-
son í embætti aðstoðarseðlabanka-
stjóra til fjögurra ára frá og með 1.
júlí.
Már hefur frá árinu 2004 gegnt
starfi aðstoðarframkvæmdastjóra
peningamála- og hagfræðisviðs Al-
þjóðagreiðslubankans í Basel í
Sviss. Hann starfaði áður í Seðla-
banka Íslands í um tvo áratugi og
þar af sem aðalhagfræðingur í rúm
tíu ár. Már var efnahagsráðgjafi
fjármálaráðherra frá 1988 til 1991.
Arnór hóf störf í Seðlabanka Ís-
lands árið 1990, var aðalhagfræð-
ingur og framkvæmdastjóri hag-
fræðisviðs frá árinu 2004 og settur
aðstoðarseðlabankastjóri árið 2009.
Arnór var aðstoðarmaður fram-
kvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, skrifstofu Norðurlanda,
frá 1993 til 1995.
Svein Harald Øygard, settur
seðlabankastjóri, mun gegna því
embætti þar til Már tekur við emb-
ættinu 20. ágúst næstkomandi.
Már skipaður
seðlabankastjóri
Arnór verður aðstoðarseðlabankastjóri
Már Guðmundsson Arnór Sighvatsson
ÞINGMENN Framsóknarflokks og
Borgarahreyfingarinnar vilja að
fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um
ríkisábyrgð á skuldbindingum
Landsbankans vegna Icesave-
reikninganna.
Þingsályktunartillaga 13 þing-
manna flokkanna var lögð fram á Al-
þingi í gær. Þar segir að efna skuli
til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort
staðfesta eigi ríkisábyrgð vegna Ice-
save-skuldbindinganna. Í greinar-
gerð með tillögunni segir að úrslitin
yrðu ekki bindandi. Þó megi telja að
Alþingi og ríkisstjórnin myndu lúta
niðurstöðu hennar, eins og títt er í
nágrannalöndum okkar um þjóðar-
atkvæðagreiðslur sem ekki eru bind-
andi fyrir stjórnvöld.
Vilja þjóð-
aratkvæði
Tillaga frá þrettán
þingmönnum