Morgunblaðið - 27.06.2009, Blaðsíða 23
Daglegt líf 23VIÐTALIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
fyrir utan og dæma. Samt finnst mér
skrýtið hvað ráðherrastólarnir hafa
mikil áhrif á hugsanir manna. Menn
eiga að taka stefnuna með sér í stól-
inn en ekki að fá stefnuna úr stóln-
um. Stjórnvöld þurfa að hlusta miklu
betur á fólkið í landinu. Að minnsta
kosti hlýtur fólkið að láta í sér
heyra.“
Þráhyggja Samfylkingar
Það kemur margoft fram í bók-
inni að þér finnst vinstrimenn hafa
gengið of hart fram gegn Davíð
Oddssyni.
„Samfylkingarfólk fékk Davíð á
heilann og gerði hann að þráhyggju
sinni. Það tók engan kraft úr Davíð
en það tók allan kraft úr samfylking-
arfólkinu. Innan Samfylkingar var
einblínt á turnana tvo, Sjálfstæð-
isflokk og Samfylkingu. Jafn-
aðarmenn dáðu sinn leiðtoga og í
þeirra augum varð öll þjóðfélagsleg
barátta á milli tveggja leiðtoga: Ingi-
bjargar Sólrúnar og Davíðs. Frá
sjónarmiði Davíðs Oddssonar hljóta
þessi átök að hafa verið eins og hver
önnur smjörklípa, það var stöðugt
verið að ræða um hann, en ekki
stefnuna sem hann stóð fyrir.
Davíð er þversagnakenndur
stjórnmálamaður. Einn af leiðtogum
einkavæðingarinnar en síðan hefur
hann ákveðna réttlætiskennd sem
gerir að verkum að hann sér flísina í
augum sumra kapítalista en ekki
annarra. Davíð líkist Don Kíkóta í
því að hann er í herferð sem getur
ekki gengið upp. Hann vill reyta arfa
hjá yfirstéttinni, flokka þá verstu út
og halda þeim bestu eftir. Hann átt-
ar sig ekki á því að það er ekki hægt
að stjórna þessu partíi.“
Ofvaxinn veruleikinn
Það er heldur nöturleg mynd sem
þú dregur upp í bókinni. Þú segir
að stjórnmálamenn hafi skapað
skrímsli, það er að segja auðmenn-
ina, að forsetinn hafi gerst húskarl
þessara auðmanna og að frjáls-
hyggjan hafi gleypt allt. Hvað get-
ur orðið þessari þjóð til bjargar?
„Ég segi að stjórnmálamennirnir
hafi skapað reglur eða afnumið regl-
ur og setið svo uppi með ofvaxinn
veruleikann í fanginu. Ég líki þessu
við söguna af Frankenstein og
skrímslinu. Margt gott má segja um
þjóðfélag okkar og þá veröld sem við
lifum í en við erum að súpa seyðið af
löngu hnignunarskeiði hvað varðar
félagsleg sjónarmið. Frjálshyggjan
gleypti allt og líka handhafa hinna
félagslegu sjónarmiða, jafn-
aðarmannaflokkinn og verkalýðs-
hreyfinguna.
Verkalýðshreyfingin sem áður
lagði áherslu á samstöðu og vildi
byggja upp stoltan og upplýstan al-
menning fór að leika fjárhættuspil
með lífeyrissjóði. Blair-isminn náði
tökum á jafnaðarmönnum og margir
þeirra ánetjuðust frjálshyggjunni og
horfðu framhjá félagslegum lausn-
um. Útkoman var einmitt þessi per-
sónugerða pólitík þar sem jafn-
aðarmenn fengu einn mann á
heilann. Við þurfum að endurheimta
markmið og hugsjónir alveg eins og
auðlindirnar. Það er enn öflug frjáls-
hyggja á sveimi en frjálshyggjan er
hrunið hugmyndakerfi og hún hefur
kostað þjóðfélagið allt of mikið.“
Kómedía um fjármálaheiminn
Er ekki einhver von fyrir þjóð-
ina?
„Sagan held ég að snúist alltaf um,
eins og góður maður orðaði það,
svartsýni hugans og bjartsýni vilj-
ans. Maður verður að horfast í augu
við veruleikann en líka að trúa á von-
ina. Það er hægt að breyta heim-
inum. Búsáhaldabyltingin fjarlægði
ákveðin yfirborðsmein en leiddi ekki
af sér stórtækar breytingar. Hún
færði okkur hins vegar heim sann-
indi um að það er þess virði að berj-
ast. Og það má segja að hún hafi
bjargað mannorði okkar, alla vega
mun frekar en Icesave-undirgefnin.
Hefðu stjórnvöld eins og þessi fært
út landhelgina? En það krefst mik-
illar samstöðu.
Mér finnst mestu skipta að gefast
ekki upp og ég hef alltaf séð skáld-
skapinn sem boðbera vonarinnar.
Ég mun halda ótrauður áfram á
þeim vettvangi. Mitt hlutverk er að
skrifa sögur og yrkja ljóð og taka
þátt í baráttunni sem einn af fjöldan-
um.“
Hvers konar skáldskapur er að
fæðast hjá þér á krepputímum?
„Í byrjun síðasta árs hóf ég að
skrifa leikrit, þjóðfélagslega kóme-
díu sem fjallar um fjármálaheiminn.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
leikritum og lesið mikið af þeim en
það er eina formið sem ég hef átt eft-
ir að sinna. Ég hef alltaf vitað af leik-
ritum inni í hausnum á mér. Und-
anfarin ár hefur þó nokkuð verið
skrifað af leikritum um samtímann.
Veikleiki flestra þeirra hefur mér
fundist vera hversu einfeldningslega
þau eru hugsuð og að höfundar
þeirra sleppa ódýrt frá stóru spurn-
ingunum.
Ég setti mér það verkefni að
kynna mér bankamálin við vinnslu
þessa leikrits og á meðan ég gerði
það voru persónurnar að mótast. Ég
er búinn að gera nokkrar gerðir af
leikritinu og það er svo til tilbúið.
Góðu hirðarnir heitir það. Svo vinn
ég að ýmsum öðrum verkefnum. Þau
eru krefjandi eins og tímarnir.“
Hvenær áttu von á að það verði
tekið til sýningar?
„Það veltur á leikhúsheiminum.
Núna finnst mér ég nokkurn veginn
í sömu stöðu gagnvart leikhúsheim-
inum eins og gagnvart bóka-
forlögum þegar ég var að reyna að fá
útgefanda að ljóðunum mínum. Það
er erfitt að ræða við stofnanaleik-
húsin. Þar hafa menn séð handritið
og hafa ekki verið neikvæðir en
humma þetta fram af sér. Ég býst
jafnvel við að fara eigin leiðir í
þessu, eins og þegar ég gaf sjálfur út
ljóðabækurnar mínar. Ég mun taka
til minna ráða.“Morgunblaðið/Eggert
erkið
» Þegar ég og fleiri bentum Vinstri grænum á þennan sérkennilega mál-flutning, að varpa allri ábyrgðinni yfir á almenning og líta á vinstrimenn
sem einhverja hreingerningamenn til að þrífa eftir frjálshyggjuballið, þá feng-
um við að vita að kosningabaráttan væri rekin samkvæmt málefnakönnunum.
Það er þessi tilhneiging hjá flokkum að byggja stefnu sína á því sem þeir halda
að fólkið vilji heyra. Þetta er hrein og klár hentistefna og á lítið skylt við
vinstristefnu eins og ég hef skilið hana. Ef menn vilja stjórna sínum flokki
svona þá gera þeir það og ég fer bara að gera eitthvað annað.
AUKAKRÓNUR
2 iPod Shuffle á ári
fyrirAukakrónur
A-kortin
Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig
Þú getur keypt þér tvo iPod Shuffle á ári í Apple-búðinni fyrir Aukakrónurnar sem safnast
þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað sem þig langar í hjá samstarfsaðilum
Aukakróna.
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
* M.v. 150 þúsund kr. innlenda verslun á mánuði, þ.a. 1/3 hjá samstarfsaðilum. Sjá nánar á www.aukakronur.is.
*
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
4
14
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-2
0
8
0
.