Morgunblaðið - 27.06.2009, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 27.06.2009, Qupperneq 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009 Sjórinn er kaldur Þeir Magnús og Gunnar hrylla sig í köldum sjónum en þeir urðu að synda til baka eftir að hafa verið á skútu úti fyrir Nauthólsvíkinni. Jakob Fannar Ómar Ragnarsson | 25. júní Tekinn tvisvar vegna óíslenskrar tillitssemi ...Alla leiðina var ég með augun á baksýnis- speglunum og oftast tókst mér að hleypa öðr- um bílum fram úr mér án þess að þeir tefðust. Þá vék ég eins vel og ákveðið út á hægri kantinn og mér var unnt og gefa stefnuljós sem benti þeim á að ég vildi hjálpa til við framúraksturinn. Þegar þeir fóru fram úr hægði ég á mér svo að framúraksturinn tæki sem minnstan tíma. Slíkt athæfi er að vísu fáheyrt á Ís- landi. „Lestarstjórar“ eru fleiri hér á landi en í nokkru öðru land, víkja ekki út á vegaxlir og virðast jafnvel gera í því að gera framúrakstur sem erfiðastan eða ómögulegan. Um daginn var ég í tveggja kílómetra langri bílalest á eftir einum slíkum sem hélt sig kirfilega inni við miðju vegar á 70 km hraða og hægði á sér niður í 55 ef hann mætti bíl. Ég hafði ánægju af að fást við þetta.... Meira: omarragnarsson.blog.is Auður H Ingólfsdóttir | 26. júní Eru konur friðsamari en karlar? ...Kannski er körlum hættara við að ofmeta styrk sinn? Að halda í al- vörunni að hægt sé að þröngva sínu fram, bara ef þeir trúa nógu heitt á sinn málstað sjálfir og berjast nógu harkalega, jafnvel þó stuðn- ingur sé enginn í hinu ytra umhverfi og andstæðingurinn sé margfalt sterkari?... Meira: aingolfs.blog.is FYRIR þrem vikum setti Sjálfstæðisflokk- urinn fram viðamiklar efnahagstillögur sem allar miða að því að endurreisa íslenskt efnahagslíf. Ástæður þess að tillögurnar voru settar fram eru að mönnum virtist ríkja nokkurt ráðaleysi með- al valdhafanna og að Íslendingar allir eru orðnir langeygir eftir tillögum til lausnar á efnahagsvandanum. Það er skemmst frá því að segja að ein til- lagan hlaut meiri athygli en aðrar – að hugað verði að kerfisbreytingum á skattlagningu lífeyrisgreiðslna. Hug- myndin felst í að það myndi leiða til mikils tekjuauka fyrir ríkissjóð að skattleggja inngreiðslur í sjóðina í stað útgreiðslna eins og nú er. Mörgum hefur fallið hugmyndin vel í geð en öðrum miður – en það er eins og gengur og lítið við því að segja. Mesta athygli hafa vakið gagn- rýni Þórarins V. Þórarinssonar, fyrr- verandi forstjóra Símans, og ádrepur Bjarna Þórðarsonar tryggingastærð- fræðings. Í þessari grein leitast ég við að svara efnislegri gagnrýni Þórarins og Bjarna en læt mælskubrögð þeirra liggja á milli hluta. Staðhæfingarnar fjórar Segja má að málefnaleg gagnrýni félaganna skiptist í fjórar staðhæf- ingar: 1. Skattgreiðsla sem lækkar ið- gjaldið í upphafi verður ekki ávöxtuð í sjóðnum og réttindin munu því óhjá- kvæmilega skerðast. Það hefur úr- slitaáhrif hvort skatturinn er greidd- ur við inn- eða útgreiðslu. 2. Samkvæmt réttindakerfi al- mennu sjóðanna mun geta þeirra til að greiða lífeyri skerðast um 15% við kerfisbreytinguna. 3. Tillagan felur í sér grófa mis- munun milli starfsmanna á opinber- um og almennum mark- aði. 4. Skatttekjur drag- ast saman vegna lækk- andi skattgreiðslna frá lífeyrisþegum og því verður að hækka skatta í framtíðinni. Ég mun hér svara þessum stað- hæfingum: 1. Kerfisbreytingin skerðir getuna til að greiða lífeyri Þessi stað- hæfing gengur ekki upp stærðfræðilega eins og einfalt dæmi sýnir: Segjum að inngreiðsla í lífeyrissjóð sé 1 milljón, að hún muni ávaxtast um 100% og sé að lokum skattlögð um 40% við útgreiðslu. Þá fær eft- irlaunaþeginn 1,2 milljónir í eftirlaun ((1.000.000 * 2 * (1-0,4)) = 1.200.000). Gerum nú ráð fyrir að iðgjald sé skattlagt við inngreiðslu. Þá eru lagð- ar inn 0,6 milljónir í stað 1 milljónar. Útgreiðslan verður sú sama og áður (600.000 * 2 = 1.200.000). Staðhæfingin um skertar tekjur eftirlaunaþega við kerfisbreytinguna er því rökvilla. 2. Vegna eðlis réttindakerfis mun geta sjóðanna til að greiða lífeyri skerðast um 15% Almennu lífeyr- issjóðirnir byggðu hér áður á svokall- aðri jafnri réttindaávinnslu. Króna sem lögð var inn snemma á atvinnu- ferlinum var jafn verðmæt fyrir rétt- indin og króna sem lögð var inn seint. Þetta bar með sér tilfærslu milli kyn- slóða í kerfinu. Þessi tilfærsla var ógagnsæ og fæstir vissu af henni. Ef nýtt kerfi byggðist á tveim deildum og jafnri réttindaávinnslu, önnur þar sem inngreiðslur eru skattlagðar og hin þar sem út- greiðslur eru skattlagðar, myndaðist rof í þessari tilfærslu sem myndi að öðru óbreyttu leiða til réttindaskerð- ingar eins og staðhæft er. Þetta gildir allt þar til nýja deildin stæði ein eftir að um 40 árum liðnum. Hægur vandi væri að greiða milli deildanna til að bæta þetta rof og þá um leið yrðu til- færslurnar gagnsæjar ólíkt því sem nú er. Önnur leið væri að við tilfærslu í nýtt kerfi þá myndi ríkið einfaldlega taka til sín allar framtíðarskatt- greiðslur og frá fyrsta degi yrðu allar útgreiðslur skattfrjálsar. Ríkið á þessar framtíðar-skattgreiðslur og er því ekki að ganga á hlut neins. Það myndi þá strax leysa til sín allt að 600 milljarða peningalegar eignir – ríkið yrði skuldlaust á ný ef horft væri til nettóskulda. Ekki þyrfti að selja eignir sjóðanna til að framkvæma breytinguna. Ríkið væri einfaldlega stærsti sjóðfélaginn. Þetta væri gríðarlega jákvætt fyrir ríkissjóð og myndi flýta mjög fyrir uppbyggingu Íslands. Þetta myndi engin bein áhrif hafa á ráðstöf- unartekjur launþega og eft- irlaunaþega en óbeinu áhrifin yrðu að kaupmáttur myndi aukast fyrr en ella. Ef þessi leið væri farin kæmi ekki til tilfærsluvandans vegna jöfnu réttindaávinnslunnar eins og ef um tvær deildir væri að ræða. Þessi leið léttir 600 milljarða kvöðum af skatt- greiðendum í framtíðinni. Þrátt fyrir að hafa rakið hér vanda- málið vegna jafnrar réttindaávinnslu ítarlega og bent á lausnir er það þó óverulegt í dag. Flestir lífeyrissjóð- anna hafa skipt yfir í aldurstengda réttindaávinnslu sem gerir það að verkum að ekki á sér stað tilfærsla af því tagi sem er lýst hér að ofan. Vandamálið átti við á tíunda áratugn- um en ekki nú. Önnur staðhæfingin stenst því ekki eins og reglum er al- mennt háttað í dag. 3. Mismunun milli starfsmanna í einkageiranum og hjá hinu opinbera Í dag tryggir hið opinbera starfs- mönnum sínum almennt mun betri lífeyrisréttindi en einkamarkaðurinn. Kerfisbreytingin myndi þó ekki hygla opinberum starfsmönnum í A-deild lífeyrissjóðs starfsmanna hins op- inbera frekar þar sem miðað er við að iðgjald sé hækkað eða lækkað í sam- ræmi við skuldbindingarnar og ræðst af inngreiðslum og ávöxtun eins og í almenna kerfinu. Hins vegar myndu lífeyrisþegar í B-deild hagnast á til- lögunni að óbreyttu þar sem eftirlaun þeirra ákvarðast af launum eft- irmanns en ekki inngreiðslum. B- deildin hefur verið lokuð síðan á tí- unda áratugnum þannig að stöðugt fækkar í deildinni. Árið 2008 voru 6.088 virkir sjóðfélagar í B-deild og 11.861 þáði frá henni eftirlaun. Til samanburðar voru 22.000 virkir sjóð- félagar í A-deild og 1.272 lífeyr- isþegar (þar af 611 eftirlaunaþegar). Því er um óverulegan fjölda fólks að ræða í B-deild sem kerfisbreytingin snertir þar sem virkir sjóðfélagar verða eingöngu fyrir áhrifum. Hægur vandi væri þó að skatt- leggja sérstaklega þann hluta sem ekki kemur af innborgunum í B- deildinni þegar til útborgunar kemur til að leiðrétta fyrir skatta- misræminu. Þetta eykur flækjustigið eitthvað en ekki nóg til þess að hug- myndin sé slegin út af borðinu. Þá væri einfaldlega hægt hafa tvö kerfi, annað þar sem greiðslur á almennum markaði og A-deild eru innskattaðar en hitt þar sem eftirlaunatekjur í B- deildinni væru útskattaðar. Staðhæf- ingin sem sett var fram stenst ekki skoðun þar sem hún byggist á for- sendum sem hafa breyst. 4. Skatttekjur framtíðarinnar dragast saman vegna lækkandi skatt- greiðslna Lífeyrissjóðakerfið íslenska mun ná þroska um 2020-2030 en þá munu flestallir hafa borgað í lífeyr- issjóð alla sína starfsævi. Eftirlaunin verða á bilinu 70% til 80% af með- alævilaunum ef ávöxtun sjóðanna verður þokkaleg. Skattleysi eftirlauna mun minnka tekjur ríkissjóðs en lífeyrissjóðakerf- ið mun einnig leiða til minni þarfar í framtíðinni. Vegna tekjutengingar lífeyrisgreiðslna mun tekjuþörf rík- isins vegna greiðslu ellilífeyris verða hverfandi. Þá verður að hafa í huga að auknar ríkistekjur nú, minni skuldir (minni vaxtabyrði) og hraðari endurreisn mun koma framtíð- arkynslóðum öllum til góða og leiða til minni tekjuþarfar en ella. Því er afar hæpið að hækka þurfi skatta umtalsvert í framtíðinni og því stenst fjórða staðhæfingin tæpast. Niðurlag Kostirnir við breytinguna eru að hægt verður að standa vörð um vel- ferðarkerfið eins og það er í dag og ekki þarf að skuldsetja ríkið eins mikið og ella og þ.a.l. verða vaxta- greiðslur minni – við náum okkur mun fyrr á strik. Aðalgallinn á tillög- unni er að þjóðhagslegur sparnaður vex ekki jafn hratt og ella ef af kerf- isbreytingunni verður. Mikilvægt er að gera sér grein fyr- ir að Sjálfstæðiflokkurinn myndi aldrei leggja til tillögu sem fæli í sér jafn mikla tekjuaukningu fyrir rík- issjóð og raun ber vitni nema vegna þess að neyðarástand ríkir í fjár- málum hins opinbera. Fyrir liggur að hallinn á ríkisjóði verður á bilinu 150- 170 milljarðar á þessu ári og að loka þarf þessu gati á næstu þrem árum. Ef hægt væri að fá þriðjung upphæð- arinnar með þessari aðgerð, þriðjung með sparnaði og skattahækkunum og þriðjung með því að stækka skatt- grunna aftur (hagvexti) væri til mik- ils unnið – ekki þyrfti að koma til jafn blóðugur niðurskurður og skattp- íning og nú hyllir undir. Eins og greinin ber með sér eru ýmis álitamál sem þarf að huga að áður en ákvörðun er tekin um að ráð- ast í framkvæmdina enda lagði Sjálf- stæðisflokkurinn til samráð með að- ilum vinnumarkaðarins við útfærslu hugmyndarinnar. Sníða þarf ag- núana af en það er tæknileg úrlausn- arefni þar sem hægt er að fara marg- ar leiðir eins og rakið hefur verið hér. Ekki dugir að slá hugmyndina út af borðinu að óhugsuðu máli eins og þeir félagar Bjarni og Þórarinn virð- ast gera. Það er ekki góð rökræðulist að smíða sér kerfi í huganum sem ekki gengur upp (eða kerfi sem bygg- ist á reglum sem giltu í fortíðinni) og eigna það síðan tillöguhöfundum – það er ekki til þess fallið að vinna rökræður. Því síður er klókt að setja fram rangar og vanhugsaðar fullyrð- ingar og saka síðan þann sem gagn- rýnin beinist að um „rakalaus ósann- indi“. Eftir Tryggva Þór Herbertsson »Kostirnir við breyt- inguna eru að hægt verður að standa vörð um velferðarkerfið eins og það er í dag og ekki þarf að skuldsetja ríkið eins mikið og ella … Tryggvi Þór Herbertsson Höfundur er alþingismaður og prófessor í hagfræði. Úrtölumenn BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.