Morgunblaðið - 27.06.2009, Side 38
38 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Atvinnuauglýsingar
•
Upplýsingar í síma
899 5630
Blaðbera
vantar í
sumarafleysingar
í Njarðvík
Blaðbera
vantar
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Laxatunga 12, 230-8079, Mosfellsbæ, þingl. eig. Fjárfestingafélagið
Hagur ehf., gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn
1. júlí 2009 kl. 11:30.
Maríubaugur 69, 225-8332, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Þröstur
Gestsson, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn
1. júlí 2009 kl. 10:30.
Meistaravellir 17, 202-5694, Reykjavík, þingl. eig. Alma Jenny
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 14:00.
Njarðargata 47, 200-7757, Reykjavík, þingl. eig. Orri Hreinsson,
gerðarbeiðandi Njarðargata 47, húsfélag, miðvikudaginn 1. júlí 2009
kl. 14:30.
Suðurhlíð 38d, 225-8795, Reykjavík, þingl. eig. I.P. fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Suðurhlíð 38 A-D, húsfélag, miðvikudaginn 1. júlí
2009 kl. 15:00.
Tjarnarmýri 2, 205-673, Seltjarnarnesi, þingl. eig. Vesturbygg ehf.,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib., miðvikudaginn
1. júlí 2009 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
26. júní 2009.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Hólavað 27, 230-9054, Reykjavík, þingl. eig. ÓGBYGG ehf.,
gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, fimmtudaginn 2. júlí
2009 kl. 10:00.
Skipholt 15, 226-7516, Reykjavík, þingl. eig. Burðarafl ehf.,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg, Skipholt 15, húsfélag og
Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtudaginn 2. júlí 2009 kl. 14:30.
Skipholt 17, 223-5942, Reykjavík, þingl. eig. Byggingarfélagið Stekkur
ehf., gerðarbeiðandi Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf., fimmtudaginn
2. júlí 2009 kl. 13:30.
Skipholt 17, 229-9436, Reykjavík, þingl. eig. Byggingarfélag K.
Pálmasonar ehf., gerðarbeiðandi Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf.,
fimmtudaginn 2. júlí 2009 kl. 14:00.
Skipholt 17, 229-9437, Reykjavík, þingl. eig. Byggingarfélagið Stekkur
ehf., gerðarbeiðandi Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf., fimmtudaginn
2. júlí 2009 kl. 13:45.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
26. júní 2009.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Akurvellir 1, 0102, (228-0969), Hafnarfirði, þingl. eig. Angela Kelly
Abbott, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Íslandsbanki hf.,
miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 10:30.
Blómvellir 14, 0101, (226-2594) Hafnarfjörður, þingl. eig. Blómvellir
ehf., gerðarbeiðendur Gunnarshólmi grasavinafélag ehf. og Vörður
tryggingar hf., miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 11:00.
Einivellir 7, 0304, (228-0545), Hafnarfirði, þingl. eig. Björg Helgadóttir
og Helgi Pétursson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
1. júlí 2009 kl. 11:20.
Eskivellir 5, 0206, (227-5746), Hafnarfjörður, þingl. eig. Davíð Stein-
grímsson, gerðarbeiðendurTollstjóri og Vörður tryggingar hf.,
miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 11:40.
Fagrakinn 11, (207-4675), Hafnarfirði, þingl. eig.Trausti Eysteinsson,
gerðarbeiðendur Byko ehf., Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og Vörður
tryggingar hf., miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 13:30.
Flatahraun 21, (207-4785), Hafnarfirði, þingl. eig. DSB Eignarhalds-
félag ehf., gerðarbeiðandi Dagbjartur Björnsson, miðvikudaginn
1. júlí 2009 kl. 14:00.
Hlíðarás 21, 0201, (230-7424), Hafnarfirði, þingl. eig. Steinunn Inga
Ólafsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 1. júlí
2009 kl. 14:30.
Hofakur 3, 0202, (227-7169), Garðabæ, þingl. eig. Steinþór Jóhanns-
son, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 2. júlí 2009
kl. 10:00.
Hvaleyrarbraut 29, 0103, (224-3634), Hafnarfirði, þingl. eig. Gengi ehf.,
gerðarbeiðendur NBI hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðviku-
daginn 1. júlí 2009 kl. 15:00.
Kaldakinn 17, 0201, (207-6588), Hafnarfirði, þingl. eig. Björk Harðar-
dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vörður tryggingar hf.,
miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 15:30.
Langamýri 26, (207-1230), Garðabæ, þingl. eig. Nína Björk Svavars-
dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Langamýri 26, húsfélag og
Lífeyrissjóður starfsm. sv.fél., fimmtudaginn 2. júlí 2009 kl. 10:30.
Skipalón 25, 0302, (230-1370), Hafnarfirði, þingl. eig. Sigita Stanke-
viciene og Artúras Stankevicius, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin
hf., miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 10:15.
Skútahraun 15, (207-5818), Hafnarfirði, þingl. eig. Verkás ehf., gerðar-
beiðandi Gluggasmiðjan ehf., fimmtudaginn 2. júlí 2009 kl. 11:30.
Stapahraun 2, (207-9283), Hafnarfirði, þingl. eig. Fish4u ehf., gerðar-
beiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Sjóvá-Almennar tryggingar
hf. ogTollstjórinn í Reykjavík, fimmtudaginn 2. júlí 2009 kl. 13:30.
Stapahraun 6, 0103, (222-3751), Hafnarfirði, þingl. eig. Óskar Ölvers-
son, gerðarbeiðandi Nýi Glitnir banki hf., fimmtudaginn 2. júlí 2009
kl. 13:50.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði,
26. júní 2009.
Tilkynningar
Afmæli
Í tilefni af 60 ára afmæli Sendibílastöðvar-
innar hf. bjóðum við upp á veitingar hjá
okkur að Klettagörðum 1, sunnudaginn
28. júní milli kl. 14 og 18. Leiktæki, blöðrur
og fl. fyrir börnin. Allir hjartanlega velkomnir.
Félagslíf
28.6. Snæfellsjökull
Brottf. frá BSÍ kl. 08:00.
V. 4500/5600 kr.
Vegalengd 10-12 km. Hækkun
800-900 m. Göngutími 5-7 klst.
Fararstj. Leifur Hákonarson.
2. - 5.7. Sveinstindur -
Skælingar
Brottf. frá BSÍ kl. 08:30.
V. 35.000/43.000 kr.
0907LF01. Örfá pláss laus.
Fararstj. Vala Friðriksdóttir &
Helga Kristinsdóttir.
2. - 5.7. Strútsstígur
Brottf. frá BSÍ kl. 08:30.
V. 33.000/41.000 kr.
0907LF02. Örfá pláss laus.
Fararstj. Ingvi Stígsson.
2. - 5.7. Landmannalaugar -
Sveinstindur
Brottf. frá BSÍ kl. 08:30.
V. 29.900/37.400 kr. 0907LF03
Fararstj.Trausti Pálsson.
2. - 6.7. Hofsjökull
Brottf. kl. 08:30 frá BSÍ.
V. 30.000/37.500 kr. 0907LF04
Krefjandi ferð og þátttaka háð
samþykki fararstjóra.
Fararstj. Reynir Þór Sigurðsson.
3. - 5.7. Fimmvörðuháls
Brottf. frá BSÍ kl. 17:00.
V.16.200/20.200 kr.
0906HF05. Örfá pláss laus.
Fararstj. Sverrir Andrésson.
Skráning á utivist@utivist.is eða
í síma 562 1000.
Sjá nánar www.utivist.is
Elsku yndislega
Magga mín,
ég man þegar við
kynntumst uppi á
Reykjalundi, ég þú
og Aðalsteinn okkar.
Við þrjú höfum alltaf haldið sam-
bandi síðan, við tvær vorum líka
saman í húsi við Reykjalund og við
áttum mörg æðisleg samtöl þar
sem eru svo minnisstæð. Þú ert ein
sterkasta og yndislegasta vinkona
sem ég hef átt og þú kenndir mér
svo mikið um lífið sem ég er þér
svo þakklát fyrir, við gátum talað
saman um allt. Þú varst alltaf til
staðar fyrir mig ef eitthvað var og
ég man nú bara fyrir tæpu ári síð-
an þegar ég þurfti að fara til lækn-
is út af fætinum á mér og lækn-
irinn var búinn að vera svo
dónalegur og leiðinlegur við mig,
þá komst þú með og spurðir hann
spurningar sem hann var ekki bú-
inn að svara mér og hann var fínn
eftir það.
Þegar ég átti Flís og Heklu (kis-
ur) þá gat ég líka alltaf leitað til
þín og þú gast leiðbeint mér. Við
hittumst síðast 17. maí þegar ég
Margrét Gísladóttir
✝ Margrét Gísla-dóttir fæddist í
Reykjavík 25. febr-
úar 1956. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 8. júní sl. og
var jarðsungin frá
Garðakirkju á Álfta-
nesi 24. júní.
hélt upp á afmælið
hans Hlyns Smára,
hann varð 5 ára, það
var svo gott að hitta
þig þá.
Ég heyrði í þér á
þriðjudagskvöldið 2.
júní og ætlaði þá að
kíkja til þín en þú
varst svo upptekin við
að finna pelana fyrir
kettlinga, við
ákváðum að hittast
fljótlega þegar þú
hefðir tíma. Elsku
Magga mín, á sunnu-
daginn hringdi Aðalsteinn okkar
svo í mig um kl 14 og sagði mér að
þú hefðir veikst og ég kom strax
til þín upp á spítala um kvöldið. Þú
varst sofandi þegar ég kom en
kíktir smá og opnaðir augun þín og
þá vissi ég að þú vissir að ég var
hjá þér. Ég hélt í hendurnar þínar
og var til staðar fyrir þig og sagði
þér hvað ég elska þig mikið. Þú ert
og hefur alltaf verið kraftaverka-
kona og lifað ótrúlega hluti af. Þú
hefur alltaf verið svo ofsalega
sterk.
Mér fannst svo gott að geta ver-
ið hjá þér og fjölskyldunni þinni á
mánudaginn þegar þú kvaddir. Það
var ofsalega erfitt og sárt að
kveðja þig en ég var líka svo þakk-
lát Magga mín að fá að vera hjá
þér, þú fórst alltof snemma frá
okkur og það er svo mikill missir
að þú ert farin en ég veit að þú ert
ekki farin langt og þú verður
áfram með okkur þó við sjáum þig
ekki.
Mig langar líka að þakka fjöl-
skyldunni þinni fyrir að vera mér
svona yndisleg að lofa mér að vera
hjá þér þessa stund. Ég á svo
margar góðar minningar í hjartanu
mínu um þig og ég á eftir að sakna
þín svo mikið, en við munum hitt-
ast aftur, ég veit það, og eins og
við sögðum alltaf þegar við kvödd-
umst: Love you. Takk fyrir allt,
kraftaverkakonan mín, sem varst
alltaf svo jákvæð og góð. Ég sendi
styrk og hlýju til fjölskyldunnar
þinnar, Magga mín.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Kveðja.
Guðrún Lárusdóttir vinkona.
Ég kynntist Möggu Gísla í sum-
arvinnu í Bæjarútgerð Hafnar-
fjarðar, þá 15 ára. Við urðum báðar
ástfangar þetta sumar, hún af
„flugvélinni“ ég af „þotunni“, það
kölluðum við strákana. Þegar ann-
ar þeirra nálgaðist sögðum við:
„Þotan“ og svo hlógum við.
Magga náði í „flugvélina“, var al-
sæl fór að búa og eignaðist Jónsa
og svo Júlla. Magga var listræn,
um tíma sneið hún og saumaði á
sig og strákana. Einu sinni kom
hún til mín í síðum gervipels sem
hún hafði saumað, ég vildi líka
eignast svona „pels“, hún hjálpaði
mér. Eftir það spókuðum við okkar
í fínum „pelsum“ Magga kenndi
mér að búa til pitsu, næstu árin
borðaði fjölskyldan Möggu-pitsu á
föstudögum. Magga hafði mikinn
áhuga á ljósmyndun, þær systur
voru með aðstöðu í kjallaranum hjá
Júllu. Hún smitaði mig og kenndi
mér að framkalla og stækka mynd-
ir. Magga fór í nám til Bandaríkj-
anna, á sumrin kom hún með
naglalakk, varaliti og augnskugga í
öllum regnbogans litum. Við
klæddumst notuðum fötum sem
hún keypti í Ameríku, máluðum
okkur og fórum út á lífið. Eftir að
ég flutti til Svíþjóðar, var Magga
dugleg að heimsækja okkur. Við
þræddum „second hand“-búðir og
fundum alltaf eitthvað skemmti-
legt. Krakkarnir elskuðu Möggu,
hún reyndi alltaf að vera viðstödd
gleðistundir fjölskyldu minnar og
sá um myndatökurnar enda ljós-
myndari. Eftir að hafa lært innan-
hússarkitektúr flutti hún til Ís-
lands, keypti sér hús sem hún
hefur verið að taka í gegn þrátt
fyrir veikindi sín. Hún var dýravin-
ur, ræktaði ketti og oft iðaði húsið
af kettlingum. Ég svaf iðulega hjá
Möggu þegar ég var í heimsókn.
Eina nóttina vaknaði ég og taldi
níu kettlinga í rúminu hjá okkur.
Ég reyndi að skutla þeim á gólfið,
þeir hoppuðu bara upp í aftur.
Daginn eftir sagði ég Möggu að ég
hefði verið að vakna við kett-
lingana. Af hverju vaktir þú mig
ekki, „ég hefði sagt þeim að fara
niður á gólf“. Húmorinn var alltaf
til staðar. Þegar Magga „ættleiddi“
Dobermanhund leist mér ekkert á.
Næst þegar ég bankaði á dyrnar
heyrðist svaka gelt ég heyrði að
Magga átti fullt í fangi með að
halda dýrinu, hún hleypti mér inn,
sleppti takinu á dýrinu sem hopp-
aði upp á mig og í nokkrar sek-
úndur horfðumst við í augu, svo
opnaði hann ginið og gaf mér lang-
an blautan koss. Þetta var góði vin-
ur hennar, Castró.
Magga sendi mér alltaf jólakort,
eitt árið kom ekkert. Magga hafði
veikst af Steven Johnson syndrome
sem gerði það að verkum að líkami
hennar brenndist 96% innvortis og
að hluta til að utanverðu. Eftir það
var Magga öryrki og átti í stórum
vandræðum með sjónina. Magga
reyndi allt til að fá heilsuna aftur
og trúði því að hún myndi ná sér.
Hún var alltaf jákvæð og bjartsýn
en ódugleg að kvarta.
Nú er komið að því að kveðja
þig, mín kæra. Ég er svo glöð yfir
hversu duglegar við vorum að
segja hvað okkur þótti vænt hvorri
um aðra. Þú lést gott af þér leiða
hvar sem þú komst. Minning þín
lifir, ég sakna þín, elsku Magga, ég
sakna hláturs þíns, ég sakna svips-
ins sem kom á þig þegar þú varst
að hugsa, ég sakna samtala okkar,
ég sakna kaffihúsaferða okkar, ég
sakna þess að sjá þig vökva augun,
ég sakna þess að heyra þig tala um
barnabörn, ég sakna fallega bross-
ins þíns, ég sakna nærveru þinnar
og faðmlags.
Elsku Júlla, Nína, Nonni, Jónsi,
Júlli og dætur, ég og fjölskylda
mín samhryggjumst ykkur inni-
lega.Við þökkum fyrir að hafa
fengið að kynnast þessari stórkost-
legu konu sem er engin önnur en
hún Magga Gísla.
Sjáumst elskan, þín vinkona
Ólöf.