Morgunblaðið - 27.06.2009, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2009
Í þessu blaði hér, fyrr í vikunni, birtistskemmtileg grein um áhrif tónlistar áheilsuna. Ítalskir vísindamenn ku hafa
komist að því að „rétt“ tónlist geti hægt á
hjartslætti og lækkað blóðþrýsting. Þar
kemur fram að: „… rétta tónlistin hér er óp-
erutónlist og þá vegna þess, að takturinn í
henni er yfirleitt hægur … þegar tónlistin
vex að styrk, verður hjartslátturinn hraðari
og blóðþrýstingur hækkar. Þegar styrkurinn
minnkar og takturinn verður hægur, slaknar
líka á hjarta og blóðþrýstingi. Undir þetta
taka ýmsir framámenn í samtökum hjarta-
sjúklinga. Segja þeir, að framfarirnar séu
miklu meiri hlusti fólk á fallega og rólega
tónlist.“
Svo mörg voru þau orð. Af hverju finnstmér eins og ég sé alltaf að lesa þessa
sömu frétt, á ca. misserisfresti, með stöku
tilbrigðum? Þessi frétt er jafn reglubundin
og fréttirnar af því þegar pöndur í Kína geta
af sér afkvæmi. Verst þó hvað þetta er
skottulækningalegt, mafíósarnir syðra eru
líkast til bara að renna stoðum undir sínar
ástkæru óperur.
Að þessu gefnu er hröð, þung og hávær
tónlist þá skaðleg fyrir hjartað. Því hraðari
og þyngri, því „verri“. Iðkendur öfgarokks
ættu því að vera farlama, taugaveiklaðir og
hjartveikir sjúklingar en merkilegt nokk …
af hverju er fólk sem ég hef kynnst af því
taginu alltaf svona mikið rólegheitafólk?
Dauðarokkararnir sem ég kynntist hér í den
voru upp til hópa blíðlyndir pælarar, skarpt
þenkjandi tæknitröll með allt sitt á tæru
enda ekki vanþörf á þegar hlaupið er upp og
niður tónstigann á fullri ferð með óteljandi
snúningum og útúrdúrum.
Ég set þetta svona fram til að sýna fram á
þruglið í nefndri grein. Ég veit t.a.m. fátt
eins róandi og að hlusta á tónlist sem er á
snarbrjáluðu blasti með tilheyrandi
þyngslum. Þegar tónlistin er orðin það hröð
ummyndast hún í taktfastan, sefandi graut;
líkt og þegar maður stendur frammi fyrir
hinum öfluga og dynjandi Dettifossi. Þetta
vita þeir sem hafa reynt það.
Ég vil því leggja meiri trúnað á næstsíð-ustu frétt, sem birtist í blaði þessu síð-
asta haust. Þar kemur fram að vísindamenn
við Maryland School of Medicine í Banda-
ríkjunum hafi komist að því að uppáhalds-
tónlistin manns víkki æðar þannig að blóðið
streymir auðveldar um þær. Tónlist sem fer
í taugarnar á manni veldur því hins vegar að
æðarnar dragast saman þannig að blóð-
streymið minnkar. Ég held að þetta sé nærri
lagi. Og þess vegna ætla ég óhikað að skella
Marduk á fóninn heima, fremur en Madame
Butterfly … á meðan ég bíð eftir næstu slá-
andi vísindalegu niðurstöðunum á þessu
sviði sem ættu að detta inn um næstu ára-
mót.
Öfgarokkið nærir ósæðina
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
» Að þessu gefnu er hröð,þung og hávær tónlist þá
skaðleg fyrir hjartað. Því hrað-
ari og þyngri, því „verri“.
Marduk Þitt hjartans mál greinilega samkvæmt rannsóknum ítalskra vísindamanna.
á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND M
EÐ
ÍSLENS
KU OG
ENSKU
TALI
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FLOTTASTA
HASARMYND
SUMARSINS
Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt
stórleikurunum Shia LaBeouf, John Torturo
og kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox „STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ...EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA,
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
TRANSFORMERS 2 kl. 1D - 4D - 7D - 10D POWERS. KL. 7 10 DIGITAL
THE HANGOVER kl. 2 - 4 - 6D - 7 - 8D - 9:10- 10:20D 12 DIGITAL
CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 23D - 43D L 3D DIGTAL
TRANSFORMERS 2 kl. 2D - 5D - 8D - 11D - Powersýning kl. 11 10 DIGTAL STAR TREK XI kl. 10:20 10
TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5 - 8 - 11 - Powersýning kl. 11 LÚXUS VIP STÍGV. KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 L
THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:10 - 8:30 - 10:20 - 10:30 - 11 12 HANNAH MONTANA kl. 1:30 - 3:40 L
MANAGEMENT kl. 5:50 - 8 10 MONSTER VS. ALIENS m. ísl. tali kl. 1:30 á sunnud. L
ADVENTURELAND kl. 3:40 - 5:50 12