Morgunblaðið - 05.07.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
Einstakt tækifæri
fyrir 14-15 ára unglinga
CISV hefur verið starfandi á Íslandi í tæp 30 ár og sent
yfir 1.000 þátttakendur út um allan heim.
Við erum með laus pláss fyrir tvo stráka í unglingaskipti til
Klagenfurt í Austurríki. Unglingaskiptin hefjast 9. júlí standa yfir
í fjórar vikur, tvær vikur í hvoru landi og dvelja krakkarnir inn á
heimilum jafnaldra sinna. Þann 9. júlí kemur 8 manna hópur frá
Austurríki og þann 23. júlí fara svo báðir hóparnir saman til
Austurríkis og dvelja þar í tvær vikur við leik og störf.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins
www.cisv.org, www.cisv.is,
á netfanginu cisv@cisv.is
eða í síma 863 6966 (Edda)
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
STEFNT er að því að byrja að rífa
efstu vinnupallana við Hallgríms-
kirkju í vikunni. Svokallaður milli-
múr er kominn á turninn en eftir er
að kústa með hvítum múr. Sú vinna
hefst efst og eftir því sem endanleg
áferð fæst og múrararnir vinna sig
niður, verða vinnupallarnir fjar-
lægðir jafnóðum. Toppur turnsins
fer því að sjást von bráðar en
kústuninni verður ekki lokið fyrr en
í haust. Búist er við að síðustu still-
ansarnir hverfi í október eða nóv-
ember.
Að sögn Tómasar Tómassonar,
verkfræðings hjá Ístaki, kom í ljós
þegar verkið hófst að steypan undir
múrhúðinni var ónýt og því hefur
framkvæmdin tekið lengri tíma en
upphaflega var áætlað. „Það er í
raun komin ný steypt kápa utan á
allan turninn.“
Jóhannes Pálmason, formaður
sóknarnefndar Hallgrímskirkju,
bætir því við að gamla múrhúðin
hafi verið dönsk en nú hafi einungis
íslensk efni verið notuð. „Það er
mikið betri steypa en var í boði í
„den tid“. Nú er notuð tegund af sér-
staklega styrktri steypu sem kölluð
er brúarsteypa og er mjög sterk.“
Tómas segir erfitt að spá því
hversu lengi nýja múrhúðin muni
endast en eflaust lengur en sú
gamla. Turninn var tekinn í notkun
árið 1974.
Bjöllurnar þagna
Indriði Níelsson, byggingartækni-
fræðingur hjá Verkís, segir viðgerð-
irnar snúast frekar um að endurnýja
stóran hluta turnsins en að gera við
hann. „Í rauninni er ekki forsvaran-
legt að gera við of skemmda steypu
heldur verður að fjarlægja hana og
setja nýja. Maður lagar ekki það sem
er ónýtt,“ segir hann.
Þar sem afar kostnaðarsamt er að
koma upp vinnupöllum meðfram öll-
um turninum segir Indriði eins gott
að vinna verkið vel svo að viðgerðin
endist lengur. Þá verður tækifærið
notað til að yfirfara tæknibúnað frá
lögreglunni og Útvarpinu, klukkna-
verkið og bjöllurnar þar sem tæki-
færið mun ekki gefast aftur næstu
áratugina. „Það þarf að senda hluta
af búnaðinum út til að láta yfirfara
hann en að öðru leyti verður allt
gert hér heima. Það er mikið
veðrunarálag á mótornum og bjöll-
urnar þagna í einhvern tíma meðan
verið er að yfirfara búnaðinn,“ segir
Jóhannes. Fjarlægja þarf bjöllubún-
aðinn með krana sökum þess hve
þungur hann er en stærsta bjallan,
Hallgrímur, vegur 3,8 tonn.
Toppur turnsins mun senn sjást
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Endurbætur Mikið hefur mætt á Tómasi Tómassyni, verkfræðingi hjá Ís-
taki, og Jóhannesi Pálmasyni, formanni sóknarnefndar, við endurbæturnar
á kirkjunni. Verkið reyndist mun umfangsmeira en reiknað var með.
Táknið Það geislar af krossinum
efst á Hallgrímskirkju, en viðgerð á
kirkjunni er nú langt komin.
Tækifærið notað til að yfirfara
tæknibúnað frá lögreglu og útvarpi,
klukknaverkið og bjöllurnar
SAMNINGUR um sölu Reykjanes-
bæjar í HS orku skilar 13,1 milljarði.
Kaupverð bæjarins í HS veitum nem-
ur 4,3 milljörðum. Gefur því augaleið
að verðviðmiðanir frá 2007 eru bæn-
um í hag, en ekki endurreikningur á
virði fyrirtækjanna í dag. Þetta segir
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ. Hann sendi í gær frá sér yf-
irlýsingu vegna fréttar blaðsins í gær.
Þá segir Árni út í hött að bera sam-
an hektaraverð í tilboðum nú og í des-
ember, 2,6 milljónir þá og 7,1 milljón
nú. Kaupverð á landinu í Svartsengi
byggist annars vegar á virði auðlinda-
réttar og hins vegar á verðmæti sjálfs
landsins. Verðmæti auðlindaréttar,
samkvæmt fyrri samningum, tengist
aðeins landinu undir virkjununum og
rétti til nýtingar jarðhita langt út fyr-
ir það. Virði auðlindaréttar sé mun
hærra en reiknaðs hektara lands án
réttarins.
Klaufagangur og aðgerðaleysi
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks í
Grindavík, þeir Sigmar Eðvardsson
og Guðmundur Pálsson, hafa óskað
eftir aukafundi í bæjarstjórn vegna
málefna HS Orku. Hafa þeir óskað
eftir öllum gögnum í málinu.
„Það er okkur Grindvíkingum til
vansa hvernig meirihlutinn hefur
klúðrað málum með aðgerðarleysi
sínu og klaufaskap. Meirihlutinn hef-
ur haft sex mánuði til að setjast að
samningaborðinu og semja um málin
en hefur ekki gert það,“ segir Sigmar.
„Við viljum halda þessu landi í eigu
opinberra aðila og teljum því mjög
æskilegt að Grindavíkurbær eignist
það.“ onundur@mbl.is
Kaupin í HS orku
Reykjanesbæ í hag
Vilja fund í bæjarstjórn Grindavíkur
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
UM 400 manns voru við varðeld og brekkusöng á
Hólmavík á föstudagskvöldið, en þar ná Hamingjudagar
hámarki um helgina. Þá var dansleikur á Kaffi Riis og
Gunnar Þórðarson hélt tónleika. Búist er við allt að
1.500 manns á hátíðina og margt við að vera. Magnús
Eiríksson og KK héldu uppi stuðinu á laugardagskvöld
en um daginn fóru meðal annars fram Furðuleikar, þar
sem keppt var í hvers kyns fáránlegum íþróttum, svo
sem kvennahlaupi með óhefðbundnu sniði.
Humar í hléi, humar í verðlaun
Þá voru á að giska 3.500 manns á Humarhátíð á Höfn
í Hornafirði, að heimamönnum meðtöldum. Að sögn
Valdemars Einarssonar skipuleggjanda var góð stemn-
ing, skemmtidagskrá á hátíðarsviði, varðeldur og hóp-
söngur, stórdansleikur í íþróttahúsi og heimsmeist-
aramótið í Hornafjarðarmanna á döfinni. Í hvers kyns
keppnum var auðvitað humar í verðlaun og humar í
boði þegar hlé var gert á átökunum.
Umferðin á vegum landsins var ansi mikil og frekar
hæg framan af helginni, en gekk þó stóráfallalaust fyr-
ir sig, að sögn lögreglu.
Dansað í Skvísusundi
Ekki var síðri stemning í Vestmannaeyjum, þar sem
minnst er 36 ára frá lokum gossins í Heimaey. Helga
Björk Ólafsdóttir, formaður goslokanefndar, sagði um
4.000 manns á hátíðinni, en hápunktinum hafði þó ekki
verið náð þegar blaðamaður náði tali af henni. Það er
dansinn í Skvísusundi, sem fram fór á laugardagskvöld.
Margir gerðu sér líka ferð til Akureyrar þessa
helgina, enda árlegt fótboltamót N1 í gangi á KA-
svæðinu, þar sem ungt og efnilegt knattspyrnufólk
reyndi með sér. Að sögn lögreglu var áætlað að a.m.k.
um 2.000 manns væru í bænum í tengslum við fótbolta-
mótið, en þar að auki fór fram Akureyrarmótið í golfi
og hafa eflaust margir kylfingar einnig gert sér ferð.
Að sögn Gísla S. Einarssonar bæjarstjóra á Akra-
nesi voru líkast til ekki undir 3.000 manns á Írskum
dögum á Akranesi og fóru skemmtanahöldin þar vel
fram.
Hamingja, írsk menning, goslok, humar og fótbolti
Ljósmynd/Kristín
Eintóm hamingja Allt fór vel fram á Hamingjudögum á Hólmavík á föstudaginn og gleði að sjá í hverju andliti.
Júlí var tekið opnum örmum
á héraðshátíðum víða um land