Morgunblaðið - 05.07.2009, Síða 36
36 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
Fallegt einbýlishús á góðum stað í Selfossbæ. Húsið er 212,1 fm ,hæð og ris og er kjallari
undir hluta þess. Á hæðinni er flísalögð forstofa, parketlagt sjónvarpshol, parketlögð stofa
ásamt parketlögðu eldhúsi og borðstofu. Í eldhúsinu er gegnheil eikarinnrétting og út-
gengt er úr borðstofunni á veröndina sunnan við húsið. Parketlagður stigi liggur upp á
rishæðina en þar eru þrjú svefnherbergi og bað. Herbergin eru parketlögð og útgengt er
úr hjónaherberginu á svalir til vesturs. Nýir fataskápar eru í hjónaherberginu Baðherberg-
ið er nýtekið í gegn og er flísalagt í hólf og gólf. Vönduð eikarinnrétting er á baðinu sem
og hornbaðker og stór sturtuklefi með nuddi og gufu. Í kjallaranum er þvottahús og er
það flísalagt í hólf og gólf. Einnig er í kjallaranum gott búr og þar er hvít/beyki innrétting.
Bílskúrinn er alls 60 fm en í enda hans er íbúðarherbergi sem er 20 fm auk baðherbergis
Garðurinn er skjólsæll verðlaunagarður og hannaður af landslagsarkitekt. Í garðinum er
m.a tjörn með fiskum, verönd með heitum potti og svo fallegur gróður. Eigninni hefur
verið vel við haldið og er húsið m.a. nýlega málað að utan og búið er að skipta um raf-
lagnir og hitalagnir svo nokkuð sé nefnt. Sjón er sögu ríkari. Skipti möguleg á góðri
ódýrari íbúð á höfuðborgarsvæðinu eða Selfossi. Hafa má samband við Lögmenn
Suðurlandi í síma 480-2902 eða eiganda í síma 892-5854.
REYNIVELLIR 8, SELFOSSIVERSLUNAR- OG ATVINNUHÚSNÆÐI
– TIL LEIGU –
SMIÐJUVEGUR 3, KÓPAVOGI (á móti Orkunni, Bónus og BYKO)
4000 fm verslunar- og atvinnuhúsnæði. Þar af allt að 2300 fm á
einu gólfi og í einum sal. Allt að 5,5 m lofthæð og góð bílastæði.
Hugsanlegt að skipta í minni einingar.
Nánari upplýsingar í síma 892 1529
um tíma hefur launakostnaður rík-
isins á hvern starfsmann hækkað um
38% en fjárlög LbhÍ til rekstrar að-
eins um 23%. Framlög til annarra
háskóla hafa hækkað mun meira eða
58% að meðaltali.
3. Í tölum sem birtast í fjölmiðlum
er rekstarvandi miðaður við framlag
menntamálaráðuneytis til LbhÍ, sem
er 521,7 milljónir króna á árinu 2009,
og verður prósentutalan þá há, en
rétt er að taka fram að rekstur stofn-
unarinnar er um 1,2 milljarðar á árs-
grundvelli og sértekjur mjög miklar
á mörgum sviðum eða samtals 617
REKSTUR Landbúnaðarháskóla
Íslands (LbhÍ) hefur verið nokkuð til
umræðu í fjölmiðlum upp á síðkastið
en í mun neikvæðara ljósi en efni
standa til. Landbúnaðarháskólinn
var myndaður árið 2005 úr þremur
einingum: Landbúnaðarháskólanum
á Hvanneyri, Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins og Garðyrkjuskól-
anum á Reykjum.
Nýrri stofnun var gert að varð-
veita hlutverk allra þessara eininga í
rannsóknum og kennslu eftir sam-
eininguna. LbhÍ er sérhæfður rann-
sóknaháskóli á sviði landbúnaðar og
umhverfisvísinda en á undanförnum
árum hefur mikill vöxtur verið á því
fagsviði og mörg ný verkefni borið
að, svo sem í loftslags-, votlendis- og
orkumálum, að ógleymdum nýjum
áherslum í landnýtingu, skipulags-
málum og hefðbundnum landbúnaði.
Í tilefni af umræðu undanfarinna
daga teljum við nauðsynlegt að
árétta eftirfarandi:
1. Fyrir sameininguna hafði verið
viðvarandi halli á rekstri skólans á
Hvanneyri og stofnanirnar þrjár í
rauninni allar í fjársvelti sem m.a.
kom fram í langvarandi uppsafnaðri
viðhaldsþörf á húsnæði og búnaði.
Þessi halli hefur enn ekki verið leið-
réttur.
2. Landbúnaðarháskóli Íslands er
sá háskóli landsins sem minnst hefur
hækkað á fjárlögum undanfarin sex
ár (sjá meðfylgjandi mynd). Á þess-
mkr. skv. áætlun 2009. Hallinn er
auðvitað mun minni sem hlutfall af
heildarveltunni þó sú staðreynd
dragi ekkert úr alvarleika vandans.
4. Á síðasta hausti lá fyrir að
menntamálaráðuneytið hygðist gera
úrbætur á fjárhag skólans með
hækkuðum fjárlagaramma um 140
mkr. á ári og í því ljósi lögðu stjórn-
endur upp með áætlanir ársins. Við
afgreiðslu fjárlaga undir lok desem-
ber sl. hurfu þessi áform út í vindinn
þrátt fyrir ýtarlega eftirfylgni og
fyrirheit stjórnmálamanna.
5. Á þeim rúmu fjórum árum sem
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur
starfað hefur umfang skólastarfsins
u.þ.b. tvöfaldast, hvort sem það er
mælt í fjölgun nemenda eða sér-
tekjum vegna kennslu og rannsókna
(rannsóknastyrkir, innritunargjöld
og námskeiðsgjöld.)
Þessi aukning hefur orðið þrátt
fyrir takmarkaða aukningu fjárlaga,
enda mikil áhersla lögð á hvers kyns
hagræðingu og sparnað innan LbhÍ.
Þróun í þessum lykilstærðum má sjá
á meðfylgjandi mynd. Við Landbún-
aðarháskóla Íslands er rekin öflug
og metnaðarfull starfsemi, sem hef-
ur sprungið út í nýrri stofnun, þrátt
fyrir fjárhagsvandann, og aldrei
hafa eins margir nemendur sótt um
skólavist og á komandi hausti. Það
er von okkar allra að hlúð verði að
þessari starfssemi sem kostur er
þrátt fyrir bága stöðu ríkisfjármála.
Um rekstur Landbúnaðarháskóla Íslands
»Rekstur Landbún-
aðarháskóla Íslands
(LbhÍ) hefur verið
nokkuð til umræðu í
fjölmiðlum upp á síð-
kastið en í mun nei-
kvæðara ljósi en efni
standa til.
Ágúst Sigurðsson er rektor, Áslaug
er deildarforseti auðlindadeildar,
Björn er aðstoðarrektor kennslumála,
Guðríður er forstöðumaður starfs- og
endurmenntunar, Ólafur Arnalds er
deildarforseti umhverfisdeildar og
Þorvaldur er rekstrarstjóri.
Ágúst Sigurðsson
Guðríður Helgadóttir
Eftir Ágúst Sigurðsson,
Áslaugu Helgadóttur,
Björn Þorsteinsson, Guðríði
Helgadóttur, Ólaf Arnalds
og Þorvald T. Jónsson
Ólafur Arnalds Þorvaldur T. Jónsson
Áslaug Helgadóttir Björn Þorsteinsson
Á HEIMASÍÐU
Hrafnistu – www.hrafn-
ista.is – og einnig í grein í
Morgunblaðinu þann 12.
júní síðastliðinn er að
finna ljúfa sögu af fal-
legum álfadúkkum sem
þurfa á nýjum heimilum
að halda og hvernig leir-
listarkonan Jóhanna
Jakobsdóttir og íbúar
Hrafnistu bregðast við til
að koma þeim í góðar hendur. Í þess-
ari viðleitni leirlistarkonunnar og
íbúa Hrafnistu til að koma álfadúkk-
unum til manna er talað um að fá fólk
til að ættleiða álfadúkkurnar.
Samkvæmt íslenskri
orðabók fyrir skóla og
skrifstofur er merking
orðsins: Ættleiðing: 1
taka sér í sonar (dóttur)
stað, gera að kjörbarni
sínu, veita óskilgetnu
barni réttindi skil-
greinds barns, 2 rekja
uppruna og skyldleika
(t.d. orða).
Ættleiðing er þegar
fullorðnir taka sér það
hlutverk að vera for-
eldrar barns sem er ekki
líffræðilegt afkvæmi þeirra, sam-
kvæmt lögum þar um. Þau ættleiðing-
arskjöl sem staðfesta ættleiðinguna
eru löglegir pappírar gefnir út af við-
eigandi yfirvöldum.
Það er okkur, foreldrum ættleiddra
barna, hugleikið að orðið ættleiðing
sé ekki ranglega notað í íslensku máli.
Erum við þá meðal annars að hugsa
um börnin okkar, því með rangri
notkun orðsins geta þau fengið rang-
ar hugmyndir um ástæður þess að
þau eru gefin til ættleiðingar.
Í umræddri grein í Morgunblaðinu
stendur meðal annars um þetta verk-
efni með álfbörnin: „Svo ákváðum við
að leyfa þeim sem vildu kaupa brúð-
urnar að ættleiða þær og ég bjó til
sérstök ættleiðingarskjöl fyrir hvert
og eitt álfabarn.“
Af fréttinni geta börnin dregið þá
ályktun að þau hafi verið seld til okk-
ar, foreldra sinna. Það að vera ættleitt
barn getur oft verið viðkvæmt og
sjálfsmynd barnanna er stundum
brothætt. Því getur verið erfitt fyrir
börnin að lesa svona frétt sem gefur í
alla staði ranga mynd af því hvernig
þau eignuðust nýja foreldra. Einnig
má benda á að það að gefa barn til
ættleiðingar er öllum foreldrum erfið
ákvörðun og í langflestum tilfellum
gert í neyð. Því ber að virða þá
ákvörðun en ekki gefa því undir
vænginn að þeir hafi selt börnin sín,
þótt ómeðvitað sé.
Jafnframt má benda á að önnur
börn sem lesa þetta geta líka fengið
ranghugmyndir um framkvæmd ætt-
leiðingar og til dæmis borið það upp á
ættleidda skólafélaga og vini að þau
hafi verið keypt, sem getur verið
mjög sárt fyrir ættleidd börn.
Ættleiðing er ferli þar sem sorg
kynforeldra og hamingja kjörfor-
eldra mætast yfir afdrifum lítils
barns, sem sjálft fær ekkert um
framtíð sína að segja. Bera skal virð-
ingu fyrir því ferli og varast að draga
upp ranga mynd af því.
Við teljum augljóst að meining leir-
listarkonunnar og íbúa Hrafnistu hafi
ekki verið að særa neinn með notkun
á orðinu ættleiðing í þessu samhengi
og biðjum þau því góðfúslega að taka
upp annað orð yfir þá framkvæmd að
viðskiptavinir þeirra kaupi þessar fal-
legu dúkkur. Getum við bent á að það
að taka í fóstur hefur víðtækari
merkingu og er ef til vill meira viðeig-
andi í þessu tilfelli.
F.h. stjórnar Foreldrafélags ætt-
leiddra barna.
Eftir Gíslínu Vil-
borgu Ólafsdóttur »Með rangri notkun
orðsins ættleiðing
geta ættleidd börn feng-
ið rangar hugmyndir
um ástæður þess að þau
eru ættleidd.
Gíslína Vilborg
Ólafsdóttir
Höfundur er móðir tveggja stúlkna
ættleiddra frá Kína.
Notkun orðsins ættleiðing