Morgunblaðið - 05.07.2009, Síða 46
46 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
2 8
1 5 4
5 6 2 3
1 9 4
9 5 6
3 7 4
3 6
9 6
4 3
1 9
7 2 6
4 6 8 7 3
1 5 9
6 8 3
4 5
7 2
8 9 1 2
5
6
4 1 5 2
9 1
8 2
4 8 3
1 7 3 9
9 2 1 4
4 8
5 9 2 4 1 6 7 3 8
3 6 1 8 7 9 4 2 5
8 4 7 3 5 2 9 6 1
2 5 8 7 4 3 6 1 9
9 3 4 1 6 5 2 8 7
7 1 6 9 2 8 3 5 4
4 7 5 6 3 1 8 9 2
1 8 3 2 9 4 5 7 6
6 2 9 5 8 7 1 4 3
4 9 1 3 6 8 7 2 5
7 5 8 9 2 4 1 3 6
2 6 3 5 1 7 9 8 4
5 2 9 6 4 3 8 1 7
6 3 7 2 8 1 5 4 9
1 8 4 7 5 9 2 6 3
8 7 6 1 3 5 4 9 2
3 4 5 8 9 2 6 7 1
9 1 2 4 7 6 3 5 8
3 9 1 2 8 4 6 5 7
8 4 5 7 1 6 3 2 9
7 6 2 9 3 5 4 1 8
5 8 9 1 6 3 2 7 4
4 2 6 8 7 9 5 3 1
1 3 7 5 4 2 8 9 6
9 7 3 6 5 8 1 4 2
2 5 8 4 9 1 7 6 3
6 1 4 3 2 7 9 8 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 5. júlí,
186. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Jesús horfði á þá og
sagði: „Fyrir mönnum eru engin ráð
til þessa, en fyrir Guði. Guð megnar
allt.“ (Mk. 10, 27.)
Víkverji er einlægur aðdáandibarna. Hann dáir hreinskilni
þeirra, heiðarleika, forvitni, hug-
myndaríki og visku. Víkverji hefur átt
gáfulegri og innilegri samtöl við börn
en flesta fullorðna. En það er nátt-
úrlega vegna þess að í eðli sínu er Vík-
verji ekkert óskaplega hrifinn af full-
orðnu fólki. Lífið hefur spillt því of
mikið, alveg eins og lífið hefur spillt
Víkverja. En við því er ekkert að gera,
svona hræðilegur er nú einu sinni
gangur lífsins. Með tímanum verðum
við einhvern veginn allt öðru vísi en við
ættum að vera.
x x x
Í svo til hvert sinn sem Víkverji álangt samtal við barn horfir Vik-
verji á litla barnið, sem hann elskar
einlæglega, og hugsar: „Mikið er það
hræðilega sorglegt, elsku barnið mitt,
að þú skulir eiga eftir að verða full-
orðið.“ En þetta segir Víkverji ekki
upphátt því hann veit að hvert og eitt
barn lætur sig dreyma um að verða
fullorðið því það heldur að þá geti það
gert allt sem það langi til: borðað
súkkulaði á hverjum degi og farið út í
heim og hitt sjóræningja eða dansað í
konungshöllum. Já, ef framtíð barna
væri nú bara þannig, þá væri nú fjör í
tilverunni.
x x x
Víkverja finnst fullorðið fólk geraallt of mikið í því að gera börn sín
veraldarvön. Um leið eru börn rænd
ævintýrinu. Og um leið og maður
hættir að trúa á ævintýrið er maður í
þeirri stórhættu að verða fullorðinn og
ábyrgur. Það hefur farið illa með
margan manninn.
x x x
Víkverji mælir með því að þeir full-orðnu horfi á börn sem eftir-
sóknarverðar fyrirmyndir. Það er eina
leiðin fyrir þá fullorðnu til að verða að-
eins skárri einstaklingar en þeir eru.
En þeir fullorðnu munu aldrei ná
þeirri fullkomnun sem börn hafa,
hversu mikið sem þeir reyna. Fullorðið
fólk er alltaf pínulítið óekta af því það
hefur svo oft þurft að kasta frá sér sak-
leysi og hreinskilni. Það er hins vegar
ekkert óekta við börn. Þau eru bara
eðlileg og dásamleg víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gekk til þurrð-
ar, 4 romsar, 7 hreysi, 8
rödd, 9 missir, 11 efn-
islítið, 13 hræðslu, 14
hótun, 15 görn, 17 reikn-
ingur, 20 greinir, 22
legg að velli, 23 auð-
skilin, 24 blóðlitað, 25
rífur í tætlur.
Lóðrétt | 1 hnikar til, 2
árás, 3 hreint, 4 kaup-
tún, 5 barðir, 6 nagdýr,
10 tormerki, 12 frístund,
13 eldstæði, 15 daunn, 16
lítillar flugvélar, 18
fnykur, 19 gengur, 20
annað, 21 dægur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fjandmenn, 8 líður, 9 nætur, 10 fín, 11 tommi,
13 innst, 15 skort, 18 strák, 21 urt, 22 látin, 23 eykur, 24
fagurkeri.
Lóðrétt: 2 Júðum, 3 Narfi, 4 munni, 5 nýtin, 6 flot, 7
hrút, 12 mær, 14 nýt, 15 súld, 16 ostra, 17 tunnu, 18
stekk, 19 ríkur, 20 karp.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 4. Bb5
Rd4 5. Bc4 d6 6. Rxd4 exd4 7. Rd5 Rd7
8. O-O g6 9. c3 Bg7 10. cxd4 Bxd4 11.
d3 c6 12. Re3 O-O 13. Kh1 Rc5 14. f4 d5
15. exd5 cxd5 16. Bb3 He8 17. Df3
Rxd3 18. f5 Kh8 19. fxg6 fxg6 20. Dd1
Bxe3 21. Dxd3 d4
Staðan kom upp á Karpov-mótinu
sem lauk fyrir skömmu í Poikovsky í
Rússlandi. Sigurvegari mótsins, Rúss-
inn Alexander Motylev (2677), hafði
hvítt gegn Alexei Shirov (2745) frá
Spáni. 22. Bxe3! Hxe3 23. Hf8+! Kg7
24. Hg8+! og svartur gafst upp enda
liðstap óumflýjanlegt, t.d. eftir
24 … Kh6 25. Dxe3+.
Hvítur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Einspil í borði.
Norður
♠KG1064
♥Á74
♦2
♣KD75
Vestur Austur
♠5 ♠82
♥986 ♥KD10
♦ÁG73 ♦K10954
♣98432 ♣ÁG6
Suður
♠ÁD973
♥G532
♦D86
♣10
Suður spilar 4♠.
Austur hóf sagnir með tígulopnun og
vestur „kíkir á blindan“ með tígul-
ásnum. Nú til dags nota flestir hlið-
arkall í þessari stöðu, þegar einspil
birtist í borði og útspilarinn heldur
slag. Þessir menn eru vel heima í varn-
arvísindum og austur æpir í hjarta með
♦10. Vestur hlýðir, skiptir yfir í ♥9 –
lítið úr borði, austur tekur á ♥D og
trompar síðan út.
Frá bæjardyrum sagnhafa er málið
grafalvarlegt, en ekki vonlaust. Vitað
er að austur á ♣Á, svo ekki þýðir að
spila laufi á kóng. Betra er að renna
lauftíunni. Það er aldrei að vita nema
vestur „gleymi“ að leggja gosann á
tíuna eða þá hitt, að austur sé með
♣ÁGx. Sem sagt: Tromp tekið tvisvar
og lauftíunni siglt í austur. Kemur þá á
daginn að austur er endaspilaður í
þremur litum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Gagnrýnisröddin innra með þér
er að gera þig reiða(n), í stað mann-
eskju sem gerir eitthvað vel. Valið
stendur á milli þess að fá umbun strax
eða bíða.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þetta er góður dagur til einhvers
konar rannsóknarvinnu í tengslum við
trúmál og heimspeki. Tilvonandi elsk-
hugar dragast að þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Andlegt atgervi þitt er gott,
þótt líkamlega formið sé kannski leti-
legra en ella. Farðu því varlega.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ættir að beina athygli þinni
að einhverjum í fjölskyldunni í dag.
Hikaðu ekki við að biðja vini þína um
hjálp við flutninga eða umbætur á heim-
ilinu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sjálfsagt er að sýna skoðunum
annarra virðingu. Aðstæður eru þannig
að þú þarft á öllu þínu að halda til dag-
legs brúks.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þótt þú hafir ýmislegt fyrir stafni
er eins og þér finnist eitthvert tóma-
hljóð í tilverunni. Sýndu tillitssemi og
umburðarlyndi.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú þarft að venja þig af því að ætla
að keyra skoðanir þínar ofan í annað
fólk. Njóttu skemmtana, og gerðu eitt-
hvað skemmtilegt fyrir þig.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er ekki amalegt lífið
þessa dagana svo þú skalt njóta þess til
hins ýtrasta. Þú átt mjög góð vinkonu,
þótt hún nenni ekki að gera allt fyrir
þig.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þetta er ekki besti tíminn til
að sýna frumkvæði í vinnunni. Kipptu
þér ekki upp við það þótt þú verðir
spurður spjörunum úr.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er fortíðin sem kom þér
þangað sem þú ert í dag, gleymdu því
ekki. En mundu að öllu gamni fylgir
nokkur alvara.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Viðskiptin hægja á sér á með-
an þú bíður eftir símtali frá ákveðnum
aðila. Gættu þess að þú gangir ekki of
nærri sjálfum þér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Sköpunarkraftur þinn er mikill
um þessar mundir, jafnvel svo að þú átt
erfitt með að velja og hafna. Leitaðu að-
stoðar ef eitthvað vefst fyrir þér.
Stjörnuspá
5. júlí 1930
Sólheimar í Grímsnesi, fyrsta
heimili hér á landi fyrir
þroskahefta, tók til starfa.
Sesselja H. Sigmundsdóttir, 28
ára, stofnsetti heimilið ásamt
Þjóðkirkjunni og var forstöðu-
maður þess til æviloka, 1974.
5. júlí 1987
Bjarni Arason, 15 ára kjöt-
afgreiðslumaður, sigraði í
Látúnsbarkakeppni Stuð-
manna sem haldin var í Tív-
olíinu í Hveragerði. Undan-
keppnir höfðu verið á átta
stöðum á landinu.
5. júlí 1998
Minnisvarði um bræðurna
Brynjólf Pétursson Fjölnis-
mann, Jón Pétursson háyfir-
dómara og Pétur Pétursson
biskup var afhjúpaður á Víði-
völlum í Skagafirði þar sem
þeir ólust upp.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Hilmar Björg-
vinsson forstjóri
Innheimtustofn-
unar sveitarfé-
laga ætlar að
fagna sjötíu ára
afmælinu í dag,
5. júlí, ásamt eig-
inkonu, Rann-
veigu Haralds-
dóttur, og fjölskyldu.
Afmælisveislan verður haldin að
Hvammi, Deildardal, Skagafirði í
sumarbústað fjölskyldunnar.
70 ára
,,ÉG fresta veislunni til haustsins, það er fallegri
tími. Við gerum eitthvað skemmtilegt þá. Há–
sumarafmæli eru alltaf svolítið skrýtin, þá eru
allir á ferðalögum,“ segir Valdimar. Afmælisdeg-
inum ætlar hann hins vegar að eyða í Rangánni
því fátt finnst honum skemmtilegra en að renna
fyrir fisk. ,,Skíði og fluguveiðar, það er mitt líf og
yndi. Mér finnst svo gaman að leika mér í nátt-
úrunni,“ segir hann. Músík er honum sömuleiðis
mikilvæg og semur Valdimar tónlistina fyrir
hljómsveit sína, Úlf. ,,Það hefur engum tekist að
skilgreina þessa tónlist sem er býsna sérkennileg.
Þetta er sambland af þessum 50 árum mínum. Það eina sem máli
skiptir er að þetta grúvi.“ Hvað tónleikahald varðar segist Valdimar
vera að reyna að finna á því einhvern flöt, pöbbaspil þyki honum ekki
vera spennandi kostur. Hins vegar væri áhugavert að spila kannski í
bílakirkjugarði. Spurður að því hvort hann ætti von á einhverjum
gjöfum svaraði Valdimar að það yrði bara að koma í ljós, hann bygg-
ist ekki við neinu. ,,Ef stórhöfðingi lætur sjá sig upp úr ánni væri það
nóg fyrir mig. Hann myndi þá skipa heiðurssess í afmæliskvöldverð-
inum.“ sigrunerna@mbl.is
Valdimar Örn Flygenring, leikari, 50 ára.
Í laxveiði í Rangá
Nýirborgarar
Reykjavík Yzabelle Krist-
ín fæddist 2. apríl kl.
23.08. Hún vó 3.910 g og
53 cm löng. Foreldrar
hennar eru Úlfar Harri
Elíasson og Suzette Bar-
riga Cuizon.
Reykjavík Tómas Hinrik
fæddist 28. febrúar kl.
14.50. Hann vó 3.660 g og
var 53,5 cm langur. For-
eldrar hans eru Anna Sig-
urbjörnsdóttir og Mal-
colm Holloway.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is