Morgunblaðið - 09.08.2009, Síða 10
10 FréttirVIÐHORF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
Með mikilli ánægju bjóðum við nú upp á splunkunýja ferð til Álandseyja í Eystrasalti
með fararstjóra sem ætlar að sýna sína heimahaga, en hann hefur búið á Íslandi til
fjölda ára og talar mjög góða íslensku. Flogið er til Stokkhólms og farið beint í
glæsilegt skip sem flytur okkur til eyjanna. Snæðum kvöldverð af víkingahlaðborði og
látum fara vel um okkur. Álandseyjar er dæmigerður skerjagarður, alls eru eyjarnar
6.500 en einungis 60 þeirra eru byggðar og eru þær þekktar fyrir mikla
náttúrufegurð. Komið til höfuðstaðarins Mariehamn seint um kvöld og farið beint á
hótelið þar sem við gistum 4 nætur. Farið verður í skoðunarferðir, m.a. um
Mariehamn, safnaskipið Pommern skoðað og verður farið með ferju til
skerjakommúnunnar Kökar þar sem við fræðumst um lífið á eyjunum og skoðum
okkur um. Dagsferð um aðaleyjarnar er að sjálfsögðu á dagsskrá og þá heimsækjum
við Kastelholm kastalann frá 14. öld. Fiskveiði hefur alltaf verið mikilvægur
atvinnuvegur á þessum svæðum og skoðum við sjóminjasafn Álendinga. Eftir
ánægjulega daga á eyjunum er morgunferjan tekin til Stokkhólms og flogið heim.
Í þessari ferð er nánast allt innifalið, allar ferjur, aðgangur á söfn og flestar máltíðir.
Fararstjóri: Per Ekström
Verð: 174.600 kr. á mann í tvíbýli ALLT INNIFALIÐ!
SUMAR 14
14. - 18. september
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
ATH
.
Alltinnifalið
Álandseyjar
beitt afli sínu í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og
hvernig Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lætur nota sig.
Þá er ekki síður merkilegt að lesa hvað hún segir
um hinar svonefndu vinaþjóðir okkar, Norð-
urlöndin, því augljóslega völdu þau auðveldu leið-
ina, að styðja þá sterku: Engin lán til litla Íslands,
nema það geri það sem Bretar og Hollendingar
segja því að gera: að borga.
Hvernig má það vera að þau Jóhanna og Stein-
grímur séu búin að koma sér í þá vonlausu stöðu að
vera helstu fylgismenn þess að við þegjandi og
möglunarlaust samþykkjum að taka á okkur Ice-
save-skuldbindingarnar hvað sem tautar og raular?
Er það ekki einhvern veginn að snúa hlutunum á
hvolf, að þessir tveir vinstrimenn, sem ávallt hafa
gefið sig út fyrir að vera talsmenn réttlætis og jafn-
aðar, skuli nú ekki sjá neinn veg annan færan fyrir
þjóðina, sem þau eiga að vera að leiða út úr þeim
þrengingum sem við erum í, en þann, að samþykkja
að borga, hvað sem á dynur?
Svo leyfði Hrannar B. Arnarsson, aðstoð-
armaður forsætisráðherra, sér í þokkabót að setja
ofan í við Evu Joly og segja að hún ætti nú bara að
skipta sér að því sem henni kæmi við. Að vísu dró
strákgreyið örlítið í land og bakkaði, því vitanlega
féllu þessi ummæli aðstoðarmannsins í grýttan
jarðveg.
Nei, við eigum ekki að vanþakka þann stuðning
sem Eva Joly getur veitt okkur.
Við eigum að þakka henni og
biðja hana um að halda
áfram að beita sér á al-
þjóðavettvangi og verja
okkar málstað. Grein
eftir hana í virtum dag-
blöðum úti í heimi ger-
ir meira gagn og vinnur
málstað okkar smælingj-
anna meira fylgi en allar
tilraunir ráðherra rík-
isstjórnarinnar og blað-
urfulltrúa þeirra, eins og ber-
lega hefur komið á daginn.
Hugsið ykkur hvað hefði
gerst, ef Steingrímur J.
hefði nú haft vit á
því að virkja kraft
Evu, reynslu
hennar, þekk-
ingu og sam-
bönd út um
Eva Joly er eins og himnasending fyrir okkur Ís-
lendinga. Hún er sannur Íslandsvinur og henni
tókst með einni grein, sem birtist samdægurs í fjór-
um dagblöðum í Evrópu, fyrir viku síðan, í Aften-
posten, Daily Telegraph, Le Monde og hér í
Mogga, það sem engum talsmanni ríkisstjórn-
arinnar hefur tekist, að setja málstað okkar Íslend-
inga í þannig samhengi, að það þarf hjartalaust fólk
til þess að sjá ekki það óréttlæti sem ætlunin er að
neyða þjóðina til að sætta sig við.
Þau Steingrímur og Jóhanna og þeirra fylgi-
fiskar ætlast til þess að Íslendingar taki því með
þegjandi þögninni, að Alþingi samþykki rík-
isábyrgð fyrir Icesave og þau virðast hvorugt vera
neitt áfram um það, að einhverjir þeir fyrirvarar
verði í samþykktinni, sem tryggi að við verðum
ekki dæmd til þess að greiða, hvað sem gerist í ís-
lensku efnahagslífi, hvort sem árar vel eða illa,
hvort sem hér verður aflabrestur eða ekki. Við eig-
um bara að þegja og borga.
Svo kemur þessi engill, hún Eva Joly, og skrifar
þessa mögnuðu grein, sem sýnir djúpan skilning á
því hvernig fyrir okkur verður komið, ef við verðum
svo vitlaus að samþykkja Icesave. Hún lýsir því á
sannfærandi hátt hvaða ábyrgð Evrópusambandið
ber á því mjög svo
ófullkomna reglu-
verki, sem íslenskir
bankar störfuðu
samkvæmt. Hún
lýsir því einnig vel
hvernig Bretar og
Hollendingar
hafa mis-
allan heim, til þess að leiða, eða að vera a.m.k. til
ráðgjafar samninganefndinni sem samþykkti þá af-
arkosti sem nú heita samningarnir um Icesave!
Haldið þið að Eva hefði ekki verið snögg að leið-
rétta kúrsinn hjá þeim kumpánum Svavari Gests-
syni og Indriða H. Þorlákssyni, ef hún hefði haft
vald og umboð til? Hafi Steingrímur J. einhvern
tíma haft ástæðu til þess að naga sig í handarbökin
yfir rangri ákvörðun, þá er það vegna ákvörðunar
hans um að gera Svavar Gestsson að formanni
samninganefndarinnar. Svavar, sem nennti ekki að
hafa samningana lengur hangandi yfir hausnum á
sér!
Ég hef haft djúpa samúð með Steingrími J. allar
götur frá því hann varð fjármálaráðherra í þessari
samsteypuríkisstjórn Samfylkingar og VG, en aldr-
ei meiri en nú undanfarnar vikur. Hann kom prýði-
lega fyrir í Kastljósi á fimmtudagskvöld, en tók þó
þann skakka pól í hæðina að leggjast í vörn eina
ferðina enn fyrir samninganefndina um Icesave.
Gagnrýnin beinist auðvitað að þeim samningi sem
gerður var. Steingrímur, hvernig sem á málin er lit-
ið er þessi samningur hinn versti fyrir okkur ís-
lenska skattborgara. Þú ert bara að berja höfðinu
við stein, ef þú viðurkennir ekki þá bláköldu stað-
reynd. Samninganefndin gætti ekki að hag ís-
lenskra skattgreiðenda í nútíð og framtíð, eins og
henni eðlilega bar að gera. Nefndin var einfaldlega
ekki rétt mönnuð og ekki voru nýttir möguleikar á
því að fá sjálfstæða, erlenda og óháða sérfræðinga
til þess að tryggja okkar hag og því fór sem fór.
Sorglegt, en svona er þetta og sést nú best á vand-
ræðaganginum á heimili VG að þar er allt á góðri
leið í steik, Ögmundur Jónasson, Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir og fleiri þingmenn VG eru beinlínis
komnir í stríð við formann sinn. Ja, öðru vísi mér
áður brá! agnes@mbl.is
Agnes segir…
Himnasendingin Eva Joly
Ögmundur Jónasson og
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.
Steingrímur
J. Sigfússon
og Eva Joly.
Annir fjárlaganefndarmanna Al-þingis hafa verið meiri en ann-
ir annarra þingmanna að undan-
förnu, því allt kapp hefur verið
lagt á það í nefndinni að ná breiðri
samstöðu í nefndinni um þá fyrir-
vara sem hún leggur til að gerðir
verði við samþykkt ríkisábyrgðar
vegna Icesave-skuldbindinga.
GuðbjarturHannesson,
formaður fjár-
laganefndar,
segir hér í Morg-
unblaðinu í gær
að mikil áhersla
sé lögð á að ná
breiðri samstöðu
í nefndinni um
afgreiðslu máls-
ins. Gríðarlega
mikilvægt sé að
fá stuðning allra
við málið „þann-
ig að Hollend-
ingar og Bretar
finni að það er
einhuga þing á
bak við það“,
sagði Guð-
bjartur.
Þetta er ugglaust satt og rétt hjáGuðbjarti, þótt vissulega sé
engin fullvissa um það, enn sem
komið er, hverju fyrirvarar sem
Alþingi setur við ríkisábyrgð geti
hugsanlega skilað Íslendingum í
frekari samningum við Breta og
Hollendinga.
Samt sem áður hlýtur það aðvera tilraunarinnar virði að
reyna að ná þverpólitískri sam-
stöðu á Alþingi í þessu mikilvæga
máli.
Kristján Þór Júlíusson á sæti í
fjárlaganefnd. Hann sagði hér í
Morgunblaðinu í gær: „Ég held að
hlutir þurfi að breytast fljótt og
vel til þess að hægt verði að taka
málið fyrir á Alþingi fljótlega eftir
helgi.“ Kristján hefur lög að mæla.
Þingheimur má ekki fara sér óðs-
lega í þessu máli, heldur gefa sér
allan þann tíma sem þörf er á.
Guðbjartur
Hannesson
Næst breið samstaða?
Kristján Þór
Júlíusson
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 12 alskýjað Lúxemborg 18 skýjað Algarve 17 heiðskírt
Bolungarvík 11 rigning Brussel 19 skýjað Madríd 20 heiðskírt
Akureyri 13 skýjað Dublin 14 skýjað Barcelona 22 léttskýjað
Egilsstaðir 12 heiðskírt Glasgow 16 heiðskírt Mallorca 22 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 11 rigning London 14 heiðskírt Róm 20 heiðskírt
Nuuk 13 skúrir París 17 skýjað Aþena 27 léttskýjað
Þórshöfn 12 upplýsingar bárust ekkiAmsterdam 18 skýjað Winnipeg 19 alskýjað
Ósló 16 heiðskírt Hamborg 20 heiðskírt Montreal 11 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt Berlín 24 heiðskírt New York 21 heiðskírt
Stokkhólmur 19 heiðskírt Vín 17 léttskýjað Chicago 21 alskýjað
Helsinki 19 heiðskírt Moskva 9 þoka Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
STAKSTEINAR
VEÐUR
9. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2.13 0,5 8.13 3,7 14.19 0,5 20.26 3,8 5:02 22:06
ÍSAFJÖRÐUR 4.19 0,3 10.05 2,0 16.20 0,4 22.16 2,2 4:50 22:28
SIGLUFJÖRÐUR 0.33 1,3 6.42 0,2 12.59 1,2 18.40 0,3 4:32 22:11
DJÚPIVOGUR 5.23 2,1 11.31 0,4 17.39 2,1 23.52 0,5 4:27 21:40
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á mánudag
Hæg breytileg átt, skýjað að
mestu og dálítil væta norðantil
á landinu, en léttskýjað með
köflum og stöku skúrir sunnan
heiða. Hiti 10 til 16 stig.
Á þriðjudag
Hæg norðaustlæg átt, skýjað
og skúrir, en rigning um tíma S-
lands. Hiti 9 til 14 stig.
Á miðvikudag
Fremur hæg norðlæg átt og
skúrir á víð og dreif. Milt veður,
einkum SV-lands.
Á fimmtudag og föstudag
Hægviðri og dálítil væta, síst þó
NA-lands. Kólnar heldur í veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Suðlæg átt, 3-10 m/s og dálítil
rigning eða súld S- og V-lands
framan af morgni, en síðan
skúrir. Skýjað með köflum og
síðdegisskúrir á NA-verðu land-
inu. Heldur hægari SV-til á
morgun. Hiti 10 til 20 stig, hlýj-
ast á NA-landi.