Morgunblaðið - 09.08.2009, Blaðsíða 12
12 Viðtal
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Í
október í fyrra tók Erna Lúð-
víksdóttir við starfi verk-
efnastjóra vegna uppbygg-
ingar nýrra verslana IKEA í
Kína. IKEA opnaði fyrstu
verslun sína í Kína fyrir áratug og
nú eru sex slíkar verslanir í landinu
en til stendur að opna 15 verslanir á
næstu fimm árum. „Það er mikill
uppgangur hjá IKEA í Kína,“ segir
Erna, sem hefur yfirumsjón með
öllu sem snýr að versluninni sem
slíkri.
IKEA er með um 300 verslanir í
86 löndum. Verslunin í Sjanghæ er
með þeim stærstu, um 32.000 fer-
metrar að stærð, en IKEA í Garða-
bæ er um 20.670 fermetrar. Erna
segir að vöxturinn nú sé einna
mestur í Asíu og þá helst í Kína og
Japan. IKEA finni samt vel fyrir
heimskreppunni en alla tíð hafi
kostnaði verið haldið í lágmarki og
fyrirtækið standi vel.
Sjö ár í Svíþjóð
Erna og Erwin Glauser, eigin-
maður hennar, störfuðu hjá IKEA í
Älmhult í Svíþjóð í sjö ár áður en
þau tóku atvinnutilboði í Sjanghæ.
„Þetta var spurning um að festa
rætur í Svíþjóð eða leita á ný mið og
að vel athuguðu máli fannst okkur
vera kominn tími til þess að breyta
til,“ segir hún um flutninginn.
Ingvar Kamprad skrásetti IKEA
1943. 1958 opnaði hann fyrstu versl-
unina í Älmhult í Smálöndunum, um
tveggja tíma akstur í norður frá
Malmö, og þar hefur IKEA verið
með eina af höfuðstöðvum sínum
síðan auk þess sem miðstöð þróunar
fyrirtækisins er þar, auk fleiri þátta.
Þar er meðal annars 5.000 fermetra
sýningarsvæði, þar sem vöruúrvalið
er reglulega kynnt fyrir starfs-
mönnum á sérstökum sýningum
nokkrum sinnum á ári, en Erna var
yfirmaður svæðisins fyrstu fjögur
árin í Svíþjóð. Árlega er þar stór
sýning fyrir yfirmenn IKEA alls
staðar í heiminum til að kynna þeim
söluvörurnar á næsta ári.
Í þessu sambandi minnir Erna á
að síðasta árið í Svíþjóð vann hún á
samskiptasviði IKEA, IKEA
Communications AB, sem sér meðal
annars um alþjóðlegan vef IKEA á
Netinu og alþjóðlega, árlega vöru-
bæklinginn. Hún bendir á að fram-
leiðsla á öllum vörum, sem komi á
markað 2010, sé byrjuð enda sé
vöruúrval í bæklingnum ákveðið
með 12 til 18 mánaða fyrirvara.
Langflestar myndir í vörubækl-
ingnum eru teknar í myndveri
IKEA í Älmhult. „Þetta er eitt
stærsta myndver í Evrópu,“ segir
Erna, en hún var einnig verkefn-
isstjóri vegna breytinga á hótel- og
veitingastað IKEA í Älmhult, IKEA
Vardshus.
Älmhult er um 15.000 manna bær
og um 80% íbúanna tengist IKEA á
einn eða annan hátt. Erna og Erwin
bjuggu um 50 km fyrir utan bæinn
og þau voru opin fyrir öllu, þegar
þau ákváðu að breyta til. „Það kom
eiginlega allt til greina og þegar
honum bauðst að vera innkaupa-
stjóri í Kína ákváðum við að slá til,“
segir Erna.
13 ár í Sviss
Fyrir um 20 árum hélt Erna til
Sviss til þess að spila handbolta, en
á Íslandi hafði hún unnið hjá PON,
Pétri O. Nikulássyni heildverslun.
„Ég hafði hugsað mér að ljúka
handboltaferlinum þar og spila í
Sviss í eitt eða tvö ár,“ rifjar hún
upp. „Svo fór að ég spilaði þar í
fimm ár og bjó í landinu í 13 ár að
frátöldum tveimur árum, 1998 til
2000, þegar ég var deildarstjóri út-
stillingadeildar IKEA í Holtagörð-
um. Ég kynntist Erwin hjá IKEA í
Sviss og þegar honum var boðið
starf í Svíþjóð ákváðum við að flytja
þangað.“
Fyrsta verslun IKEA utan
Skandinavíu var opnuð í Spreiten-
bach í Sviss 1973 og vann Erna í út-
stillingadeild verslunarinnar í fimm
ár. „Ingvar Kamprad hafði stóra
drauma og hann sagði á sínum tíma
að ef IKEA gengi í Sviss þá gengi
hugmyndin í öllum heiminum. Þetta
er ótrúlegur maður með mikla yf-
irsýn.“
Erna hefur starfað hjá IKEA í
fjórum löndum. Hún bendir á að
erfitt sé að bera reynsluna saman
vegna þess að hún hafi verið í ólík-
um störfum á mismunandi stöðum.
„Allt sem viðkemur versluninni sem
slíkri, búðinni, er svipað, því þar er
verið að gera sömu hlutina úti um
allan heim, en viðskiptavinirnir eru
mismunandi eftir stöðum. Það koma
til dæmis talsvert fleiri í búðina í
Sjanghæ en í Garðabæ. Í búðum
IKEA um allan heim eru gönguleið-
ir 200 til 250 sentimetrar á breidd
en þrír metrar í Sjanghæ til að geta
tekið á móti öllu fólkinu með góðu
móti frá klukkan 10 til 22 alla daga
vikunnar.“
Mikil uppbygging
Skrifstofubygging er sambyggð
versluninni í Sjanghæ og þar er
Erna með aðstöðu. Hún segir að
mjög mikill hraði sé í allri uppbygg-
ingu í borginni, „það sem tekur
fimm ár í París gerist á einu ári í
Sjanghæ,“ segir hún og vísar til gíf-
urlegra breytinga í Sjanghæ und-
anfarin 10 ár. „Ég þekki fólk sem
hefur búið í Sjanghæ í um 11 ár og
það segir að borgin hafi algerlega
skipt um lit – þau þekki hana ekki
fyrir þá sömu. Þau segja að þegar
þau fluttu þangað hafi verið erfitt
eða nær ómögulegt að finna vest-
rænan varning. Nú fást allar helstu
tískuvörur heims í borginni og hægt
er að nálgast vestræn matvæli. Í
stærstu stórmörkuðunum og nokkr-
um sérverslunum er að finna sér-
stakar deildir með innfluttum mat-
vælum.“
Svipuð bylting hefur verið í sjón-
varpsmálum. „Fyrir 10 árum var
sjónvarpsefni aðeins svart, hvítt og
eingöngu kínverskar stöðvar og kín-
verskt efni í boði. Nú nást erlendar
stöðvar en til þess þarf reyndar að
vera með móttökudisk fyrir sjón-
varpsrásir sem eru sendar um
gervihnött. Það sem kemur mér
mest á óvart er hvað Kínverjar eru
langt á eftir í tölvumálum. Int-
ernetið er til dæmis ótrúlega hæg-
virkt og ekki er hægt að stunda
bankaviðskipti á Netinu, borga
reikninga og millifæra, svo dæmi
séu tekin. En það er spennandi að
lifa uppganginn í Kína. Heimssýn-
ingin EXPO 2010 verður í Sjanghæ
og það snýst allt um að gera allt
sem glæsilegast fyrir sýninguna,
rétt eins og í Peking fyrir Ólympíu-
leikana í fyrra. Heilu svæðunum
hefur verið rutt í burtu og nýtt
byggt í staðinn, byggingar, hrað-
brautir, nýtt lestarkerfi og fleira.
Uppbyggingin er ólýsanleg.“
Sömu vandamálin
Þýska, franska og ítalska eru op-
inberu tungumálin í Sviss. Þegar
Erna flutti þangað kunni hún ekkert
þeirra. Hún kunni heldur ekkert í
sænsku þegar hún settist þar að og
eftir að hafa búið í tæpt ár í Kína er
kínverska enn kínverska fyrir
henni.
„Fyrsta árið hefur verið erfitt í
öllum þessum löndum og sömu
vandamálin hafa komið upp á öllum
þessum stöðum,“ segir Erna. Hún
segir að tungumálið sé eðlilega erf-
iðasti hjallinn, en síðan séu alltaf
sömu atriðin sem þurfi að koma sér
inn í: finna út með læknisþjónustu,
hvar sé best að kaupa í matinn,
hvert eigi að fara í hárgreiðslu og
svo framvegis.
Erna bendir á að í Sviss sé enska
valfag í skóla og þar sem svissneska
sé mállýska út frá þýsku geti verið
Morgunblaðið/Heiddi
Starfsmaðurinn Erna Lúðvíksdóttir fyrir framan IKEA í Garðabæ en hún hefur starfað hjá fyrirtækinu í fjórum löndum, í Sviss, Svíþjóð, Kína og á Íslandi.
Fyrir um 20 árum hélt
Erna Lúðvíksdóttir til
Sviss í þeim tilgangi
að ljúka þar glæstum
handboltaferli og spila
í eitt eða tvö ár til við-
bótar. Árin í Sviss urðu
13 að frátöldum tveim-
ur árum á Íslandi og
síðan tóku við sjö ár
í Sviss en nú býr
fjölskyldan í Kína.
Í Jóhannesarborg Eftir skjal-Á útimarkaði Erwin og börnin á Tanicang Lu í Shanghai.Fjölskyldan Erwin Glauser, Smári, Erna og Björk á Seltjarnarnesinu.