Morgunblaðið - 09.08.2009, Page 16
16 Ferðalag
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
S
vona tækifæri býðst bara
einu sinni,“ segir Fjóla
Kim Björnsdóttir sem er
nýkomin úr hálfs mánaðar
boðsferð til Bandaríkjanna
og Kanada, þar sem tilgangurinn var
fyrst og fremst að kynnast Samein-
uðu þjóðunum og starfsemi þeirra
auk þess sem þátttakendur fengu
innsýn í sögu Bandaríkjanna. Hlynur
Trausti Hlynsson tekur í sama
streng. „Þetta er mikil lífsreynsla,“
segir hann.
Ritgerðirnar gerðu útslagið
Íslensku þátttakendurnir voru
valdir í kjölfar ritgerðasamkeppni í
Borgarholtsskóla. Fjóla segir að
hringt hafi verið í sig í júní og henni
tilkynnt að hún hafi verið valin til
þess að taka þátt í verkefninu í sum-
ar. „Ég hélt fyrst að þetta væri ein-
hver brandari en þegar ég komst að
því að svo var ekki var ég mjög upp
með mér.“ Hlynur segir að útnefn-
ingin hafi komið skemmtilega á óvart.
„Ég var mjög ánægður með hana og
enn ánægðari eftir ferðina.“
Fjóla, sem verður 17 ára í sept-
ember, er í viðskipta- og hag-
fræðinámi og byrjar á öðru ári í
haust. Hlynur er í listnámi og fer á
fjórða ár í haust. Hann er 19 ára og
gerir ráð fyrir að ljúka jafnframt
stúdentsprófi næsta vor.
Vinningshafarnir segjast ekki sjá
eftir því að hafa tekið þátt í ritgerð-
arsamkeppninni. Fjóla skrifaði al-
mennt um sögu Sameinuðu þjóðanna
með áherslu á barnahjálp SÞ, Unicef-
hreyfinguna, og starfsemi hennar er-
lendis. Hlynur skrifaði líka um starf-
semi Unicef í þróunarlöndunum.
Fundir hjá SÞ hápunkturinn
Vegna ræðukeppni þátttakenda
sátu þeir á fundum um margvísleg
málefni. „Fundarhöldin í höf-
uðstöðvum Sameinuðu þjóðanna voru
hápunktur ferðarinnar,“ segir Fjóla.
„Þetta voru sér fundir fyrir okkur og
við máttum spyrja spurninga. Við
tókum niður glósur á fundunum og
síðan var okkur úthlutað ræðuefni
með tilliti til þessara funda,“ heldur
hún áfram.
Hlynur tekur undir þetta og bætir
við að New York í heild hafi slegið
öllu öðru við. „Dvölin þar var mesta
menningaráfallið,“ segir hann. „Þó að
ég hafi áður farið til Bandaríkjanna
er ég hvorki vanur svona stórum
borgum né svona stórum byggingum.
Dagskráin hjá Sameinuðu þjóðunum
var vel sett upp og efnið gert mjög
skiljanlegt. Við lærðum líka mikið um
sögu Bandaríkjanna, átök og sigra.“
Áður en Fjóla og Hlynur fóru til
Bandaríkjanna heimsóttu þau utan-
ríkisráðuneytið, Félag Sameinuðu
þjóðanna á Íslandi, Þróunarsjóð SÞ í
þágu kvenna (UNIFEM) og Unicef á
Íslandi og kynntu sér hlutverk
Barnahjálpar SÞ á Íslandi og á al-
þjóðavettvangi. „Okkur fannst betra
að vita hvernig Ísland tengdist öllum
verkefnum Barnahjálparinnar og það
kom sér vel,“ segir Fjóla. „Ég náði að
koma þessari kunnáttu að í ræðu-
keppninni og tengingin féll í góðan
jarðveg hjá dómurunum.“
Dagskráin var mjög stíf og víða
stungið niður fæti í Bandaríkjunum
og Kanada en krakkarnir segja að
ferðin hafi skilið mikið eftir sig. „Í
kjölfar verkefnisins hef ég gríð-
arlegan áhuga á Sameinuðu þjóð-
unum,“ segir Fjóla. „Ég hef áður
skrifað og rökrætt mikið í skólanum
um Sameinuðu þjóðirnar og mér
finnst mjög gaman að geta rökrætt
og séð hluti og málefni út frá mismun-
andi sjónarhornum. Það var líka
áhugavert að kynnast starfi Odd-
fellowa sem eru eins og litlir englar
hér og þar. Við heyrðum til dæmis af
heimilislausri konu í neyð, sem fékk
að gista nokkrar nætur í húsakynn-
um Oddfellowhreyfingarinnar á með-
an Oddfellowar útveguðu henni vinnu
og nú gengur henni mjög vel í lífinu.
Ég kynntist líka mörgum og hef
meiri skilning en áður á því hvað fólk
er gríðarlega ólíkt eftir því hvaðan
það er.“
Hlynur segir að þessi ferð hafi opn-
að augu sín meira fyrir öðrum siðum
og venjum en þeim sem hann á að
venjast. „Það er líka allt annað að
fara í svona fræðsluferð heldur en að
fara til útlanda með fjölskyldunni eða
vinum sínum. Í svona ferð fer maður
til þess að læra og skilja. Hún skilur
líka eftir sig aukin félagsleg tengsl.“
Hann bætir við að hann hafi mikinn
áhuga á bílum og hafi séð marga
áhugaverða, sem hann vildi eiga.
„Rétt áður en við komum til Ottawa
ókum við fram á bílasýningu. Ég
keypti einn happdrættismiða þar sem
Camaro SS árgerð 1967 er í verðlaun
en dregið verður 27. desember. Vinn-
ingshafinn má vera frá Íslandi og
þarf ekki að vera á staðnum við drátt-
inn. Það kemur í ljós hvað gerist.“
Fjóla hefur heimsótt 23 lönd í Evr-
ópu en þetta var fyrsta ferð hennar til
Bandaríkjanna og það sem hún sá og
kynntist kom henni skemmtilega á
óvart. „Þetta var mjög ólíkt því sem
ég hef séð í bandarískum kvikmynd-
um,“ segir hún. „Allir voru sérlega
kurteisir og vingjarnlegir og allt var
mjög stórt í sniðum. Það kom oft fyrir
að ég var á eftir í gönguferðum vegna
þess að ég gleymdi mér við það að
horfa á skýjakljúfana.“
Vinskapur
Meira en 43.000 ungmenni hafa
tekið þátt í verkefninu frá byrjun. Í
sumar voru um 600 þátttakendur í
tveimur hópum sem síðan skiptust í
þrjá hópa hvor eftir að hafa verið
saman í New York í þrjá daga.
Mikill vinskapur skapaðist í ferð-
inni og eru þátttakendur í góðu sam-
bandi á netinu, en íslensku krakk-
arnir voru í hópi með ungmennum frá
Bandaríkjunum, Kanada, Svíþjóð og
Danmörku.
„Við kynntumst vel öllum krökk-
unum í rútunni okkar en hinum eðli-
lega minna þar sem við vorum bara
með þeim í New York,“ rifjar Hlynur
upp. „Ég tók að mér að stofna hóp á
Facebook sem heitir Bus5 en við vor-
um í rútu númer fimm og allir eru
skráðir í hópinn,“ segir Fjóla. Hún
bætir við að ekki sé hægt annað en að
mæla með verkefninu og það sé eins
og stór happdrættisvinningur að vera
útnefndur. „Það er eitt að vinna rit-
gerðarsamkeppni og fá viðurkenn-
ingarskjal eins og ég hef upplifað en
það slær allt út að fá svona verðlaun.“
Morgunblaðið/RAX
Frumherjar Hlynur Trausti Hlynsson og Fjóla Kim Björnsdóttir brutu ísinn á Íslandi í Pílagrímsferðum ungmenna til Sameinuðu þjóðanna.
Einstakt tækifæri vestra
FJÓLA KIM BJÖRNSDÓTTIR OG HLYNUR TRAUSTI HLYNSSON FYRSTU ÍSLENDINGARNIR Á MEÐAL
ÞÁTTTAKENDA Í PÍLAGRÍMAVERKEFNI UNGMENNA TIL SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA Í NEW YORK
Fjóla Kim Björnsdóttir og Hlynur Trausti Hlynsson,
nemendur í Borgarholtsskóla í Reykjavík, eru
fyrstu Íslendingarnir til þess að taka þátt í píla-
grímaverkefni Oddfellowreglunnar í Bandaríkj-
unum, Kanada og Evrópu.
Í Kanada Fjóla og Hlynur fóru meðal annars að Niagarafossunum.
Oddfellow-reglan í Bandaríkjunum
stofnaði verkefnið Pílagrímsferðir
ungmenna til Sameinuðu þjóð-
anna árið 1949. Hugmyndin var að
styrkja ungt fólk til þess að kynna
sér starfsemi SÞ og auka þannig
skilning þess á mismunandi þjóð-
um til að stuðla að aukinni sátt og
samlyndi þeirra á millum. Fyrsti
hópurinn fór til New York sumarið
1950 og síðan hefur þetta verið ár-
viss viðburður, en 60. hópurinn
tók þátt í verkefninu á dögunum.
Fyrsti hópurinn samanstóð af
46 krökkum, flestum 16 og 17 ára,
víðs vegar að úr Bandaríkjunum.
Auk heimsóknar í höfuðstöðvar SÞ
fóru krakkarnir meðal annars í
skoðunarferðir um New York. Þessi
þáttur dagskrárinnar hefur haldist
í 60 ár, en þegar árið 1951 var bætt
við lengri rútuferðum til sögu-
frægra staða og í tveggja vikna
dagskránni fara þátttakendur nú
m.a. til höfuðborgarinnar Wash-
ington, Philadelpiu, Gettysburg,
Ottawa í Kanada og Niagarafossa.
Á hverju ári taka ekki aðeins
krakkar frá Bandaríkjunum þátt í
þessu verkefni sér að kostnaðar-
lausu heldur einnig ungmenni víðs
vegar að úr heiminum. Reglu-
umdæmi í Evrópu hafa haft með
sér samstarf um ungmennastarf
um langt skeið og nokkur þeirra
tengdust verkefninu upp úr 1970.
Fyrir um tveimur árum ákvað Odd-
fellow-reglan á Íslandi að sækja
um aðild að Hinni evrópsku ung-
mennanefnd oddfellowa. Eftir að
aðild hafði verið samþykkt var
ákveðið að taka þátt í Pílagríms-
ferðum ungmenna til Sameinuðu
þjóðanna.
Fyrir hönd Oddfellow-búðanna
nr. 1, Petrusar á Íslandi, hefur
Magnús V. Magnússon framhalds-
skólakennari fylgt starfinu eftir.
Efnt var til ritgerðasamkeppni á
ensku og var nemendum við Borg-
arholtsskóla í Reykjavík boðið að
vera með í fyrstu atrennu. Í ljósi
fenginnar reynslu er búist við að
verkefninu verði haldið áfram í
vetur og þá verði öðrum fram-
haldsskóla boðin þátttaka.
ÁRVISS VIÐBURÐUR HJÁ FRAM-
HALDSKÓLAKRÖKKUM Í 60 ÁR