Morgunblaðið - 09.08.2009, Page 33
Umræðan 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali
Guðmundur
Sigurjónsson,
lögfræðingur,
lögg. fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson,
lögg. fasteignasali
Kjartan Hallgeirsson,
lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteignasali
Hilmar Þór
Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteignasali
Magnús Geir
Pálsson,
sölumaður
Þórarinn M.
Friðgeirsson,
lögg. fasteignasali
Jóhanna
Valdimarsdóttir,
gjaldkeri
Elín Þorleifsdóttir,
ritari
Reykjavík
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s
STIGAHLÍÐ - STÓR OG MIKIL EIGN
Stórt og mikið 328,2 fm einbýlishús á þremur pöllum. Eignin skiptist í forstofu, stórt hol, 6
svefnherb., 3 stofur, sjónvarpsst., eldhús, baðherbergi, þvottahús, gestasnyrtingu, kyndi-
klefa, bílskúr og stóra geymslu. Húsið er klætt að utan. Garðurinn er með miklum pöllum og
gróðri, hannaður af Stanislas Bohic. V. 90,0 m. 4912
SUMARBÚSTAÐUR Á ÞINGVÖLLUM
Til sölu um 70 fm sumarbústaður í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Bústaðurinn stendur í
skógivöxnu landi við Þingvallavatn. Glæsilegt útsýni. Aðstaða fyrir bát. Bústaðurinn skiptist
m.a. þannig: Stofa, 3 herbergi, eldhús, bað, geymslurými o.fl. Allt innbú fylgir. Stór verönd.
Heitur pottur.Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. 4923
BARÐASTAÐIR - PENTHOUSE
Glæsileg 270,9 fm penthouse íbúð með stórfenglegu útsýni. Tvöfaldur 64,0 fm bílskúr,
samtals 334,9 fm Íbúðin er á tveimur hæðum. Íbúðin er innréttuð á afar vandaðan hátt og
allar innréttingar 1. flokks. Þrjár stofur, þrjár snyrtingar, tvö svefnherbergi, þrennar svalir.
V. 74,0 m. 4713
BLIKASTÍGUR - ÁLFTANES
Glæsilegt tvílyft 193,9 fm einbýlishús þ.a. stakstæður 35,2 fm bílskúr á stórri sjávarlóð við
Blikastíg með óviðjafnanlegu útsýni til allra átta. V. 45,3 m. 4922
GNITAKÓR KÓPAV. - GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS
Fallegt og vel byggt 300 fm einbýli á fallegum útsýnisstað. Húsið er nánast fullbúið að inan
og hefur verið innréttað á smekklegan og glæsilegan hátt. Í húsinu eru 5 svefnherbergi.
V. 75 millj. 4710
GRANASKJÓL - GLÆSILEGT RAÐHÚS
Glæsilegt 185,8 fm endaraðhús á eftirsóttum stað í Vesturbænum. Bílskúr. Þrjár stofur, þrjú
svefnherbergi. Risloft.Gróinn og fallegur garður er við eignina. Hiti er í bílaplani. Eignin er
staðsett innanlega í botnlanga. Falleg eign. V. 55,0 m. 4050
LANGAGERÐI - EINB. MEÐ AUKAÍBÚÐ
Flott ca 280 fm einbýlis /tvíbýlishús á mjög góðum stað við Langagerði í Reykjavík. Í húsinu
eru í dag glæsilegt efri hæð ásamt bílskúr og séríbúð 2ja herbergja á neðri hæð með sérinn-
gangi en einnig er innangengt milli hæða. Góður bílskúr. Sólskáli. Stór verönd með heitum
potti og sannkallaður skrúðgarður fyrir neðan húsið. Skipti möguleg á ódýrari eign.
V. 72,0 m. 4905
STRÝTUSEL - SÉRLEGA GLÆSILEGT HÚS
Árakur - Garðabær
Fullbúið glæsilegt 5 herbergja 232 fm raðhús í
þessu nýja hverfi. Eignin skiptist í anddyri, bíl-
skúr, 2 baðh., 2 stofur, eldhús, 3 svefnh.,
þvottah. og geymslu. Mögulegt að hafa allt að 5
svefnherb. V. 51,6 m. 7824
Kelduhvammur - efri hæð
Stór og rúmgóð 126,4 fm 4-5ra herbergja efri
hæð í þríbýli í Hvömmunum í Hafnarfirði.
Möguleiki er á að hafa 4 svefnherbergi. Íbúðin
er laus strax. V. 20,5 m. 4920
Grýtubakki - barnvænt hverfi
Rúmgóð fjögurra herbergja íbúð sem skiptist í
hol, þrjú herbergi, baðherbergi, eldhús, borð-
stofu og stofu. Íbúðin þarfnast standsetningar.
V. 15,9 m. 4915
Glitvellir - fokhelt hús á fínu verði
Fokhelt, samtals 178,2 fm einbýlishús á einni
hæð á mjög góðum stað á Völlunum í Hafnar-
firði. Húsið stendur á 718,3 fm á hornlóð.
Húsið selst í núverandi ástandi. Mjög hagstætt
verð. V. 19,7 m. 4916
Stórt og sérlega glæsilegt, mikið endurnýjað, samtals 304,9 fm einbýlishús sem er á tveim-
ur hæðum með tvöföldum 38,4 fm innbyggðum bílskúr. Húsið stendur innst í botnlanga-
götu og er mikil reisn að aðkomu hússins. Húsið var teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt.
Stór fallega gróin lóð. HÚS FYRIR VANDLÁTA. V. 85,0 m. 4911
Það er með ólíkindum að Ísland
skuli vera komið í þá aðstöðu sem
raun ber vitni. Ekki síst með þá
staðreynd að baki að hafa tekist
að búa sér ágætt menntakerfi,
heilsugæslu, fáa en nokkuð trausta
atvinnuþætti og ekki þurft að
greiða fyrir ýmsa þætti svo sem
aðrar þjóðir hafa þurft að gera um
langa hríð. Má þar nefna varn-
armál og samgöngur á sjó og landi
(járnbrautir) sem kostaðar eru af
hinu opinbera.
Það mátti þó alveg búast við að
einmitt áður taldir þættir, flestir,
yrðu okkur ofraun til lengdar.
Þjóð með 330 þúsund íbúa, þar af
aðeins um 190 þúsund skattgreið-
endur, var aldrei í stakk búin til
að standa undir endalausum lán-
tökum fyrir dýrkeypt líf full-
komleikans.
Ofmetnaður varð landi og þjóð
að bráð – eitthvað sem náttúrulög-
málið segir að sé í raun sífellt yf-
irvofandi þegar farið er offari. Við
Íslendingar fórum offari í flestum
greinum. Og það sem verra er:
þjóðin naut þess í fullkomnu gá-
leysi sínu.
Stjórnvöld bera ábyrgð
Það er eitt að kjósa til þings og
annað að mynda ríkisstjórn. Það
er ekki val lands-
manna í kosningum
sem ræður myndun
nýrrar ríkisstjórnar.
Hér er margflokka
kerfi sem gerir kosn-
ingar til þings full-
komlega marklausar
hvað þetta varðar.
Og það er þess
vegna sem myndun
ríkisstjórnar hér á
landi verður ekki að
veruleika fyrr en sam-
komulag hefur náðst
milli einhverra flokka eða flokks-
brota um hvernig best verði komið
fyrir þeim málum sem þá og þá er
deilt um í þjóðfélaginu. – Það
vantar ekki kröfurnar og það vant-
ar ekki að þær eigi greiðan að-
gang að sveimhuga fulltrúum
stjórnarandstöðu jafnt og ríkis-
stjórnarmeirihluta hverju sinni.
Að kröfum fólksins?
Á þessari stundu er deilt um
Icesave-samning og svo að segja
samhliða um aðildarumsókn Ís-
lands að ESB. Fram hefur komið í
nýlegri könnun sem Capacent
gerði, að meirihluti landsmanna er
á móti því að Ísland samþykki
Icesave-samninginn. – Engu að
síður hefur það verið stefna núver-
andi ríkisstjórnar að samþykkja
hann. Og er enn! Er það krafa
fólksins í landinu?
Það má í raun full-
yrða, að sú ríkisstjórn
sem nú situr gangi
einna fremst í því að
„aumingjavæða“ þjóð-
ina sem mest hún má.
Láta þegnana finna
að þeir séu upp á
hana komnir með
hvaðeina sem til lífs-
þurfta má telja.
En landsmenn eru
ekki að biðja rík-
isstjórnina eða ráða-
menn um ölmusur. Þeir vilja ein-
faldlega fá að vera í friði fyrir
nýjum og sligandi álögum, sem
eru settar fram. Það er ekki ósk
landsmanna að takast á við
„vanda“ sem er tilbúinn í banka-
og fjármálastofnunum hér og síðan
í framhaldi á „aumingjavæðingu“
undangenginna ríkisstjórna sem
hafa stjórnað líkt og land-
ráðamenn en ekki landvörslumenn.
Og það er ekki heldur að kröfu
fólksins.
Réttlæting eða
sjálfsblekking?
Það er alþekkt staðreynd, að
þar sem eðlileg og heilbrigð víxl-
áhrif eiga sér stað milli ein-
staklinga og þjóðfélags, er látlaus
viðleitni á báðar hliðar í þá átt að
komast að viðunandi málamiðlun,
jafnvel þótt í odda skerist milli
þessara aðila. Þegar þessi jafn-
vægisleit fer út um þúfur og of-
beldi er beitt á báðar hliðar hefur
átt sér stað uppgjöf sem leiðir oft
til örþrifaráða.
Áður en svo langt gengur þurfa
stjórnvöld að taka nýjan kúrs í
Icesave-málinu; fá J.P.Morgan
bankann, sem tengist AGS beint,
til þess að leiða Íslendinga inn í
nýtt ferli samninga um málið
þannig að tvennt eða þrennt vinn-
ist, a) lægri vextir, b) mun lengri
afborgunartími, jafnvel allt að 25–
30 ár, þannig að greiðslur komi lít-
ið sem ekkert við þjóðarbúið, c) að
vinna að upptöku Bandaríkjadoll-
ara sem allra fyrst með tengslum
við seðlabanka Bandaríkjanna.
Það er sjálfsblekking að ætla, að
núverandi Icesave-samningur eða
nokkrir „fyrirvarar“ í honum verði
samkomulagsgrundvöllur úr því
sem komið er.
Ennfremur eiga Íslendingar að
vinda bráðan bug að endurskoðun
varnarmála fyrir Ísland með það
fyrir augum m.a. að semja um að
íslenskir aðilar taki að sér eft-
irlitsflug vegna loftrýmisgæslu á
vegum NATO. Það kemur enda
senn að því að Ísland sinni sínum
varnarmálum að eigin frumkvæði
meira en hingað til. Landhelg-
isgæslan tengist einnig þegar mun
meira eftirlitisstörfum á þessu
sviði en áður var.
Orkulindir sem geyma olíu til
vinnslu neðanjarðar og neð-
ansjávar verður einnig að virkja.
Því þarf að láta kanna strax hin
þykku setlög sem Shell Intl. fann
á Skjálfandaflóa. Olíuvinnsla á
Drekasvæðinu er lítið annað en
blekking íslenskra iðnaðarráð-
herra til að afstýra umræðu um
vinnslu hér við land.
Núverandi fjármálaráðherra
hefur orðað það svo í umræðunni
um hið margnefnda „hrun“ að allt
þetta verði að takast – „þetta skuli
takast“. Ekki skal dregið úr þess-
um hvatningarorðum ráðherrans.
Hitt er mála sannast að nú verða
Íslendingar að hafna sjálfsblekk-
ingu í umræðunni og nota réttlæt-
ingu orða og gerða fyrir gjör-
breyttri stefnu. – Það er heldur
ekkert réttlæti í því að „aum-
ingjavæða“ þjóðina mikið lengur.
Suðupottur á sagnaslóð
Eftir Geir R.
Andersen » Við Íslendingar
fórum offari á flest-
um sviðum. Og það sem
verra er: þjóðin naut
þess í fullkomnu
gáleysi sínu.
Geir R. Andersen
Höfundur er blaðamaður