Morgunblaðið - 09.08.2009, Síða 41
Auðlesið efni 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
Páll Óskar var einn af mörgum sem skemmti á glæsi-
legri opnunarhátíð Hinsegin daga í Háskóla-bíói.
Hinsegin dagar í Reykjavík
hófust síðast-liðið
fimmtu-dags-kvöld. Þetta er
í ellefta sinn sem hátíðin
Hinsegin dagar í Reykjavík
er haldin.
Þetta byrjaði sem eins
dags hátíð en er nú fjórir
dagar, frá fimmtu-degi til
sunnu-dags.
Við setningu hátíðarinnar
á fimmtu-dags-kvöld
skrifaði Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgar-stjóri
undir sam-starfs-samning
við hátíðina, en borgar-ráð
hafði fyrr um daginn
sam-þykkt að fram-lengja
samning sinn við Hinsegin
daga um þrjú ár. Há-punktur
hátíðarinnar er að venju
Gleði-gangan þar sem mikill
mann-fjöldi fylgist jafnan
með göngunni sem gengin
er niður Laugaveg.
Hinsegin dagar í Reykja-
vík haldnir í ellefta sinn
Morgunblaðið/Kristinn
Frétta-konurnar Euna Lee og Laura
Ling föðmuðu fjölskyldur sínar eftir
að þær lentu í Banda-ríkjunum á
miðviku-dag heilar á húfi eftir
rúm-lega fjögurra mánaða fanga-vist
í Norður-Kóreu. Bill Clinton,
fyrr-verandi Banda-ríkja-forseti,
tryggði í óvæntri heim-sókn sinni til
N-Kóreu lausn frétta-kvennanna eftir
að hafa átt fund með leiðtoga
landsins, Kim Jong-II, í vikunni.
Frétta-konunum var gefið að sök
að fara ólög-lega inn í N-Kóreu og
áttu yfir höfði sér 12 ára
fangelsis-vist í þrælkunar-búðum þar
í landi.
Frétta-konur
komnar heim
Reuters
Heim-koma Eunu Lee og Lauru Ling
var tilfinninga-þrungin.
Tals-maður breska fjár-mála-
ráðu-neytisins segir bresku
ríkis-stjórnina skilja sam-skipti sín við
íslensku ríkis-stjórnina svo að sú
íslenska sé reiðu-búin að afla
stuðnings þingsins við samkomu-
lagið um Ice-save sem var undir-ritað
5. júní.
Íslenska ríkis-stjórnin hefur þó
fyrir-vara við samninginn.
Lög-fræðingar sem Morgun-blaðið
ræddi við sögðu að miðað við
almennar reglur samninga-réttar
jafn-gildi fyrir-varar við samning
höfnun á samningi og nýju til-boði.
Fyrir-varar eru vægari eða kurteisari
leið til að hafna samningi.
Aðstoðar-maður fjár-mála-ráðherra
segir marga þá fyrir-vara sem hafa
verið í um-ræðunni ekki rúmast innan
þess samnings sem liggur fyrir.
Er búið að
semja?
Morgunblaðið/Eggert
Fjármála-eftirlitið hefur sent mál er
varða lán-veitingar Kaup-þings til
Holly Beach, í eigu Skúla Þorvalds-
sonar, og Trenvis LTD í eigu Kevins
Stanfords til embættis sérstaks sak-
sóknara vegna gruns um umboðs-
svik og markaðs-misnotkun, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Bæði félögin voru stofnuð af
Kaup-þingi í ágúst 2008 og síðar
skráð á þá Skúla og Stanford. Trenvis
ltd. fékk lán til að kaupa skulda-
tryggingar á Kaupþing á sama tíma og
verð-myndun á markaði með skulda-
tryggingar var bankanum mjög
ó-hag-stæð. Sigurður Einarsson,
fyrrverandi stjórnarformaður
Kaupþings, sagði í bréfi til vina í
janúar á þessu ári að Kaup-þing hefði
gripið til þess ráðs að lána traustum
viðskipta-vinum til þess að kaupa
tryggingarnar að tillögu Deutsche
Bank. Jafnframt hefur mál er tengist
kaupum Gertner-fjölskyldunnar, á 2%
hlut í Kaup-þingi í júní í fyrra, verið
sent til sérstaks sak-sóknara vegna
gruns um markaðs-misnotkun.
Þrjú ný mál til
sak-sóknara
Átta naut-gripir drápust eftir
að þeir urðu fyrir fjalla-bíl á
Suður-lands-vegi austan við
Selfoss á þriðjudags-nótt. Sjö
naut dóu við áreksturinn og
af-lífa þurfti eitt til við-bótar
vegna áverka. Gripirnir höfðu
komist út um hlið á girðingu
sem ein-hver hafði trassað
að loka. Anton
Guðmunds-son, bíl-stjóri hjá
Fjalla- jeppum ehf., ók
jeppanum sem lenti á
naut-gripunum en slysið varð
í svarta-myrkri. „Allt í einu
stóð hjörð á miðjum veginum
rétt fyrir framan bílinn. Ég sá
hana ekki fyrr en of seint,“
sagði Anton. Bjarni
Stefáns-son, bóndi í Túni I,
sem átti naut-gripina, sagði
þetta vera tals-vert tjón fyrir
sig. Hann missti kvígur með
fangi sem áttu að bera í
vetur. Það gætu því orðið
tóm-legir básar í fjósi hans í
vetur.
Morgunblaðið/Heiddi
Jeppinn er illa leikinn eftir
áreksturinn við naut-gripina.
Naut-gripir dráp-
ust í árekstriSigurður Ragnar Eyjólfsson,þjálfari kvenna-lands-liðs
Íslands í knatt-spyrnu, hefur
tilkynnt hvaða 22 leik-menn
fara í úrslita-keppni
Evrópu-móts fyrstir Íslendinga
í Finnlandi í þessum mánuði.
„Maður vandaði sig
kannski sérstaklega mikið við
að velja þennan hóp því
maður veit hvað það er mikið
í húfi fyrir liðið og leik-menn.
Það dreymir alla um að spila í
loka-keppni fyrir Ísland
þannig að það þarf að vanda
til verka en mér finnst þetta
vera okkar bestu 22
leik-menn,“ sagði Sigurður
Ragnar.
Vals-konan Kristín Ýr
Bjarnadóttir er eini ný-liðinn í
22 manna hópi Íslands sem
fer í úrslita-keppni EM.
Fanndís Friðriksdóttir úr
Breiða-bliki er aðeins 19 ára
og fær hún einnig tæki-færi til
þess að láta ljós sitt skína í
Finnlandi.
Meðal leik-manna sem
ekki komust með er til dæmis
mark-vörðurinn María B.
Ágústsdóttir. Þá er Þórunn
Helga Jónsdóttir, sem leikur
með Santos í Brasilíu, ekki í
hópnum og fleiri mætti
vissulega nefna.
Stelpurnar okkar á EM
Vals-konan Kristín Ýr Bjarnadóttir og Fanndís Friðriksdóttir
úr Breiða-bliki eru ánægðar lands-liðs-konur.
Morgunblaðið/Ómar
„Þetta er toppur sem við
höfum ekki séð lengi,“ segir
Kristján Ólafur Guðnason,
aðstoðar-yfir-lögreglu-þjónn
hjá lög-reglunni á höfuð-
borgar-svæðinu, spurður út í
inn-brota-faraldur á höfuð-
borgar-svæðinu um versl-
unar-manna-helgina. Brotist
var inn í bíla, fyrirtæki og
heima-hús. Kristján segir að
það hafi gengið þokkalega að
upp-lýsa málin. Í mörgum til-
vikum er um svo-kallaða góð-
kunningja lög-reglunnar að
ræða.
Alls voru til-kynnt 48 inn-
brot á tíma-bilinu frá kl. 12
föstu-daginn 31. júlí til kl. 21
á þriðju-dags-kvöld. Kristján
hvetur fólk til að láta lög-
regluna vita verði það vart við
grun-samlegar manna-ferðir í
hverfum. Allar slíkar ábend-
ingar séu vel þegnar og
mættu þær í raun vera fleiri.
Inn-brota-
hrina í höfuð-
borginni