Morgunblaðið - 09.08.2009, Side 44
44 Menning
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
Ferill Björgvins Halldórssonar er nú orðinn rúm 40 ár. Hann hefur tekið á svo mörgu að ógerningur er að ætla að fjalla um
það allt í svona vísindalegri úttekt. Við stiklum því á stóru, einbeitum okkur aðallega að ferli Björgvins sem söngvara í hljóm-
sveitum eða sem einherja. Gengisvísitalan tekur því ekki á Bó sem fjölmiðlamanni, upptökustjóra eða frasameistara. Björgvin
gaf nýverið út plötu ásamt Hjartagosunum sem heitir Sígrænir söngvar og því er tilvalið að líta yfir feril stórsöngvarans.
Eftir margar tilraunir í forkeppnum Eurovision varloksins kominn tími á Bó vorið 1995. Björgvin fór út
með lagið Núna og var alltaf svekktur yfir því að fá ekki að
syngja það á ensku en þá var hverri þjóð skipað að syngja
á sínu móðurmáli. Björgvin endaði í 15. sæti og var ekki
ánægður með þann árangur. Sérstaklega eftir viðtökurnar í
hljóðprufunni þegar þeir sungu
enska textann If its Gonna
End in Heartache. Hann
var svo óánægður að hann
ákvað að senda sama lag í
söngvakeppni á Írlandi tveimur
árum seinna, þá á ensku, þar
sem hann kom, sá og sigraði.
Eins og sést fellur gengisvísitalaBjörgvins snemma á tíunda
áratuginum. Ein hugsanleg ástæða
gæti verið að á þeim tíma var Bó
útvarpsstjóri Bylgjunnar og gaf ekki
út sólóplötu með nýju efni í yfir áratug.
Hann gerði þó glás af Íslandslögum,
jólaplötum og svoleiðis. Bó segist hafa
minnkað spilun á tónlist sinni á Bylgj-
unni af virðingu við starfið. Samt var
hann auðvitað gagnrýndur fyrir að spila sjálfan sig mikið og var á endanum
sagt upp störfum. Hann starfar þó enn hjá fyrirtækinu sem rödd Stöðvar 2.
Athygli vekur þó að eftir brotthvarf Björgvins af Bylgjunni hefur spilun tónlistar
hans ekkert minnkað. Aukist ef eitthvað er.
Nýjasta uppsveiflaBjörgvins hófst þegar
hann kom fram með
Baggalúti í laginu Allt
fyrir mig árið 2006. Þá
kom hann oft fram með
sveitinni á tónleikum
og vann aftur auðmýkt
hörðustu gagnrýnenda sin-
na. Þá um haustið fyllti Bó
svo Laugardalshöll þrisvar
á glæsilegum tónleikum
þar sem hann fagnaði 40
ára starfsafmæli sínu.
Björgvin var valinnpoppstjarna ársins á
Popphátíð er haldin var í
Laugardalshöll 1. október
1969 fyrir framan 4500
gesti. Bjöggaæðið byrjar og
pilturinn endar á forsíðum
blaðanna. Fær hundruð
bréfa frá ungum meyjum
er vilja eyða með honum
einni kvöldstund og ungir
menn hvarvetna brjóta í sér
framtennurnar til þess að
líkjast goðinu.
Árið 1974 gekkBjörgvin til liðs við
nýendurreista Hljóma
í fjarveru Engilberts.
Plata þeirra Hljómar
´74 þótti of framúr-
stefnuleg sínum tíma
og rann illa ofan í
aðdáendur Hljóma og
Björgvins. Auk þess
kom hún út í miðju
blaðaverkfalli og fékk litla umfjöllun. Björgvin hefur greint frá því í
blaðaviðtölum að þrátt fyrir litlar vinsældir sé þetta ein af þeim plötum
sem hann sé hvað ánægðastur með.
Björgvin Halldórsson er eflaust einn duglegasti tónlistarmaður landsins ogá þeim tímum sem hann hefur verið lítið í því að trana sjálfum sér fram hefur
hann iðulega verið að vinna að verkefnum sem áttu verulegri velgengni að fagna.
Þannig hafa gospelseríurnar,
jólaseríurnar, Íslandslögin
og kvikmyndatónlistin við
Djöflaeyjuna allt verið nokkurs
konar „sólóskífur í dulbún-
ingi” eins og Björgvin orðar
það sjálfur. Auk þess eru ekki á
grafinu nokkrar útgáfur Brim-
klóar, HLH og dúettar sem Bó
hefur sungið með öðrum og
slegið í gegn.
3
Gengisvísitala
Björgvins
1967
Goðsögn
Ofurstjarna
Stjarna
Frægur
Þekktur
Efnilegur
Óþekktur
1969 1971 1973 1975 1977 1979 1981 1983 1985 1987 1989 1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 2009
2
6
1
4
Halldórssonar
1
´67 Björgvin er boðið í hafnfirsku
sveitina Bendix. Fyrsta giggið er
á dansæfingu í Flensborgarskólan-
um og sveitin fer strax á flug.
´69 Björgvin er boðið í Flowers,
eina vinsælustu sveit landsins,
sem endist stutt. Ævintýri
stofnuð í kjölfarið.
´72 Brimkló er stofnuð upp úr
Ævintýrum þar sem menn vildu
skipta um stefnu og gera sveita-
tónlist. Björgvin hættir fljótlega
vegna listræns ágreinings.
´74 Er reiðubúinn í slaginn erlendis
og gengur til liðs við Change.
Sveitin gefur sjálf út breiðskífuna
Change, klæðist skrautlegum
búningum og reynir fyrir sér úti.
´75 Björgvin stofnar
Lónlí Blú Bojs með
Hljómum í hálfgerðu
gríni. Platan Stuð, stuð,
stuð slær í gegn.
´76 Björgvin gengur aftur
til liðs við Brimkló sem
gefur út plötuna Rock
N´Roll öll mín bestu ár.
´70 Útgefandi segist frekar
vilja sólóplötu frá Björgvin í stað
Ævintýra. Hann lætur undan og
platan Þó líði ár og öld slær í gegn.
´76 Björgvin og Gunnar Þórðar-
son fá þá hugmynd að poppa
upp íslensk þjóðlög. Vísnaplatan
kemur út árið 1976 og selst enn
eins og heitar lummur.
´77 Gunnar og Björgvin
að endurtaka leikinn.
Út um græna grundu
kemur út en nær ekki
sömu vinsældum.
Brimkló gengur vel.
´78 Björgvin gerir aðra
sólóplötu, Ég syng
fyrir þig, sem slær
rækilega í gegn.
´79 Stofnar HLH flokkinn
ásamt Halla og Ladda.
Platan Í góðu lagi kemur
út og lagið Vertu ekki
að plata mig verður
vinsælasta lag ársins.
´79 Brimkló gefur út Sann-
ar dægurvísur. Sagan af
Nínu og Geira verður eitt
vinsælasta lag ársins.
´80 Björgvin gerir plötuna
Dagar og nætur með
Röggu Gísla um svipað
leyti og pönkið byrjar. Yngri
kynslóðinni finnst hún púkó
en platan selst samt.
´81 Brimkló gefur
út Glímt við
Þjóðveginn.
´82 Björgvin gefur út þriðju
sólóplötu sína, Á hverju
kvöldi. Eina sólóplatan
sem ekki hefur gengið
almennilega í bolinn.
´90 Björgvin stofnar Sléttu-
úlfanna í anda Travelling
Wilbury´s. Platan Líf og fjör
í Fagradal kemur út.
‘94 Björgvin gefur út
sína fyrstu safnplötu,
Þó líði ár og öld, og
mokar gulli.
´93 Björgvin snýr sér að gospel-
tónlist og gerir Kom heim, fyrstu
„safnplötuna” af þremur. Lagið
Gullvagninn verður eitt vinsælasta
lag söngvarans frá upphafi.
´86 Björgvin snýr aftur
með fjórðu sólóplöt-
una sem rokselst.
´87 Björgvin gefur út fyrstu
plötuna í því sem svo varð
Jólagesta-serían og
stimplar sig inn sem helsta
jólalagasöngvara landsins.
´89 HLH flokkurinn gefur
út Heima er best og slær
verulega í gegn með laginu
Áðan í útvarpinu.
´03 Björgvin gerir
dúettaplötu með
ungum íslenskum
söngvurum. Krummi
og Svala syngja bæði.
´07 Gefur út nýja jólaplötu
og fyllir Laugardalshöll
þrisvar. Endurtekur leikinn
svo árið eftir, þrátt fyrir
bankahrunið.
‘01 Eftir margra ára
pásu frá sólóplötum
með nýju efni kem-
ur loksins platan
Eftirlýstur þar sem
Björgvin syngur
kántrí. Platan
gengur sæmilega.
´09 Stofnar Hjartagosana
og gefur út plötuna Sígrænir
söngvar. Rýkur beint á topp
plötusölulistans þrátt fyrir
miðlungsdóma í Morgunblaðinu.
2
3
4
5
6
5