Morgunblaðið - 09.08.2009, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
HHH
„Þessi spræka og
fjölskylduvæna
bandaríska teikni-
mynd er sú þriðja í
röðinni og sú besta
þeirra“
- Ó.H.T. , Rás 2
HHH
-D.Ö.J., kvikmyndir.com
HHHH
-Þ.Þ., DV
HHH
-T.V., kvikmyndir.is
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK
STIEG LARSSON
„Fantagóð, kuldaleg sænsk
glæpahrollvekja... Saga sem rífur
mann í sig. Myndin gefur
bókinni ekkert eftir“
-F.E. Morgunvaktin á Rás 2.
HHHH
- S.V., MBL
HHHH
- V.J.V., FBL
HHHH
- Ó.H.T., Rás 2
HHHH
- Heimir og Gulli / Bítið á Bylgjunni
HHH
„þessi fallega og átakanlega
kvikmynd hlýjar manni bæði um
hjartaræturnar og rífur í þær”
- Ó. Þ. I., Kvikmyndir.com
„Á ÉG AÐ GÆTA
SYSTUR MINNAR“
abigai l bresl in cameron diaz
FRÁ LEIKSTJÓRA
„THE NOTEBOOK“
„Napur og forkunnar yfirveguð úttekt á ofbeldi. Funny Games refsar
áhorfendum fyrir blóþorstann með því að gefa þeim allar þær misþyrmingar
sem hægt er að ímynda sér. Ansi sniðugur hrekkur hjá Haneke.”
- Scott Tobias, The Onion
ATH: Ekki fyrir viðkvæma
vinsælasta
teiknimynd ársins
40.000 manns
í aðsókn!
30.000 manns í aðsókn!
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓ
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ, BORGARBÍÓ OG REGNBOGANUM
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBOGANU
M 750kr.
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
TILBOÐSVERÐ
550 KR Á SÝNIN
GAR MERKTAR
RAUÐU
Karlar sem hata konur kl. 3 - 6 - 9 B.i.16 ára
The Hurt Locker kl. 5:45 B.i.12 ára
B13-Ultimatum kl. 8 - 10 B.i.14 ára
The taking of Pelham 123 kl. 8 FORSÝNING B.i.16 ára
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 2 - 4 LEYFÐ
Funny Games kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.18 ára
Karlar sem hata konur kl. 3 - 4:30 - 6 - 7:30 - 9 - 10:30 B.i.16 ára
My Sister‘s Keeper kl. 3:20 - 8 - 10:20 B.i.12 ára
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
Crossing Over kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 750kr. B.i.16 ára Ice Age 3 (enskt tal) kl. 3:30 - 5:50 - 8 750kr. LEYFÐ
Karlar sem hata konur kl. 2:30 - 5:30 - 8:30 750kr. B.i.16 ára Angels & Demons kl. 10:10 750kr. B.i.14 ára
The Hurt Locker kl. 2:30 - 5:15 - 8 - 10:45 750kr. B.i.16 ára
Eftir Dag Gunnarsson
dagurg@mbl.is
Í DAG (laugardag) var opnuð í
Reykjavík miðstöð fyrir skapandi
fólk sem hefur hug á að endurnýta
afganga frá ýmsum iðnaði til list-
sköpunar. Miðstöðin er staðsett við
Hverfisgötu, þar sem Kaffihús Sam-
hjálpar var til húsa, og mun starfa
til 22. ágúst og þar munu listamenn
halda fyrirlestra, námskeið og pall-
borðsumræður. Verður haldin sýn-
ing? Gefin út bók eða eitthvað slíkt
þegar verkefninu lýkur? „Meiningin
er að ferlið sjálft sé sýningin,“ sagði
Sigurður Atli Sigurðsson myndlist-
arnemi í samtali við Morgunblaðið.
Hugmyndin tengist ítalskri leik-
skólastefnu sem nefnist Remida og
gengur út á hið sjónræna, að end-
urvinna efni og láta börnin læra í
gegnum sköpun og leika sér með
efni sem er ekki tilbúið leikfang.
Sigurður Atli er ein af þremur drif-
fjöðrunum í verkefninu. Hann seg-
ist hafa kynnst hugmyndinni er
reist var slík miðstöð fyrir leikskóla
í Hafnarfirði á síðasta ári.
Rusl notað í listsköpun
„Þetta passar svo vel fyrir mynd-
listamenn og listafólk almennt að
taka saman þessa iðnaðarafganga
því það er svo margt flott sem fer í
ruslið, sjálfur smíða ég alla blind-
ramma úr spýtuafgöngum og nota
að mestu leyti eitthvert rusl í mína
list og já, það varð kveikjan að því
að við fórum að skipuleggja svona
stöð sem væri opin öllum,“ sagði
Sigurður Atli.
Á sunnudaginn verður fyrsti
skipulagði viðburðurinn í efnisveit-
unni, milli klukkan 16 og 18. Þá
mun Margrét Blöndal listakona
ræða við gesti um efnisnotkun út
frá efni á staðnum en hún er einmitt
þekkt fyrir að nota hluti sem hún
finnur í sinni listsköpun.
„Hugsunin er að koma listinni
meira inn í samfélagið með því að
hafa einhvern svona listvettvang í
miðju borgarinnar með ókeypis
aðgangi fyrir alla. Þetta gæti líka
virkað sem einhverskonar kveikja
fyrir atvinnulaust fólk. Ég held að
skapandi hugsun smiti alltaf frá sér
í hvað sem er, hvort sem það er list-
sköpun eða frumkvöðlastarfsemi af
einhverju tagi,“ sagði Sigurður Atli.
Í efnisveitunni verður hægt að
nálgast málningu, reipi og spotta,
granít, plast, plexigler, járn, blikk,
kopar, pappír og efnisbúta af ýmsu
tagi svo eitthvað sé tínt til og svo er
fólki frjálst að mæta með hluti og
efni með sér.
Á morgun, mánudag, mun Helga
Rakel Jósepsdóttir verða með
smiðju þar sem farið verður yfir
hvernig hægt er að tvinna saman
endurnýtingu og vöruhönnun. Sú
smiðja stendur yfir frá mánudegi til
miðvikudags.
Þar á eftir mun listamaðurinn Ás-
dís Sif Gunnarsdóttir setja upp inn-
setningu í myrkri þar sem reiknað
er með að þátttakendur geti síðan
unnið með ljósgjafa. Í lok verkefn-
isins verður síðan Anna Líndal með
hringborðsumræður þar sem leitast
verður við að skilgreina hvað skap-
andi endurnýtingarstöð gengur út
á.
Efnisveitan verður opin frá 14 –
22.
Verkefnið er styrkt af Nýsköp-
unarsjóði námsmanna og Evrópu
unga fólksins sem og hinum mörgu
aðilum sem gefa afganga og efni.
„Margt flott
fer í ruslið“
Morgunblaðið/Kristinn
Nýtni Sigurður Atli ásamt samstarfsfólki, þeim Ragnheiði Hörpu og Jóhanni Leó.
Skapandi efnisveita opnuð Afgang-
ar hagnýttir sem annars færu í ruslið