Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 35
Minningar 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009 Nudd Temple Massage Whole Body Healing Massage based on Tantric principles. For men, women and couples. Tel. 698 8301. www.tantra-temple.com Sælunudd í boði! Við bjóðum upp á sælunudd. S: 698 4105. Húsnæði í boði Íbúðir til leigu Reykjavík 101, Flórída USA, Barcelona, Costa Brava, Menorca, Andalucia. www.helenjonsson.ws og starplus.info. Sími 899 5863. Geymslur Geymdu gullin þín í Gónhól Ferðabílar, hjólhýsi og fleira og fleira. Upplýsingar og skráning á gonholl.is og í síma 771 1936. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Til sölu Glæsilegt fullbúið raðhús Þorlákshöfn - Til sölu 3ja herbergja miðjuraðhús með 40 fm bílskúr. Hellulagt bílaplan, tilbúinn garður með flottum sólpalli. Afhendist við kaupsamning. Upplýs. í s. 893-1901. Glæsileg penthouse-íbúð 220 Hafnarfirði - 3 herbergja penthouse- íbúð, sérsmíðaðar innréttingar, bað, eldhús, þvottahús og fataskápar. Uppþvottavél, amerískur ísskápur og gardínur í öllum gluggum frá Z-braut- um. Gegnheilt parket og flísar á gólfi, gólfhiti. Stórar hellulagðar svalir. Upplýsingar s. 893 1901. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi af fólki og veiti ég góð ráð. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns. Upplýsingar á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13. Verið velkomin. Bílar Gæðaþvottur + bón - 2500 kr. Bara að mæta. Í vetur býður Bón & þvottur, Vatnagörðum 16, upp á ódýr- an gæðaþvott + bón. Opið virka daga 9-22, laugardaga frá 10, sunnudaga frá 13. Hefðbundin þjónusta kl. 9-18. www.bonogtvottur.is, sími 445-9090. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Tökum að okkur að leggja PVC dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands- byggðinni einnig. Erum líka í viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598. Hreinsa þakrennur Hreinsa þakrennur fyrir veturinn o.fl. Upplýsingar í síma 847 8704. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl ✝ Haraldur AlbertGuðlaugsson fæddist í Reykjavík 9. janúar 1918. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Skjóli 12. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Guðlaugur Skúlason, f. 1882, d. 1965, og Una Gísla- dóttir, f. 1883, d. 1965. Systkini Har- aldar voru: Skúli, f. 1903, d. 1977, Gísli Viggó, f. 1905, d. 1995, Sigríður Laufey, f. 1906, d. 1975, og Þor- björn Ágúst, f. 1912, d. 1991. Hinn 20. desember 1947 kvænt- ist Haraldur Unni Lilju Hermanns- dóttur, f. 29. apríl 1924. Foreldrar hennar voru Hermann Ólafsson, f. 1897, d.1960, og Halldóra Daníels- dóttir, f. 1899, d. 1991. Dætur Har- aldar og Unnar eru Heba Gunn- rún, f. 24. október 1958, og Una Guðlaug, f. 8. maí 1965, en hún er í sambúð með Erni Sigurðssyni. Synir þeirra eru Haraldur Örn, f. 8. ágúst 1994, og Frið- jón, f. 23. janúar 1999. Haraldur nam ung- ur að árum gler- slípun og speglagerð, lauk sveinsprófi árið 1944 og öðlaðist meistararéttindi árið 1948. Hann starfaði lengst af við gler- slípun og speglagerð hjá Brynju við Laugaveg, allt þar til hann lenti í vinnuslysi árið 1956. Nokkrum árum síðar tók hann til við fyrri iðju, fyrst hjá glerverk- smiðjunni Esju, síðar hjá Gliti, en lengst af starfaði Haraldur hjá Íspan, eða fram að áttræðu. Har- aldur bjó í hartnær 40 ár í Fells- múla 10, en frá árinu 2004 í Hraunbæ 103 og síðustu tvo mán- uðina á Skjóli. Útför Haraldar verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 24. september, og hefst kl. 13. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Elsku besti pabbi hefur kvatt okk- ur í hinsta sinn. Hann var yndislega ljúfur maður með mikla þolinmæði sem vildi allt fyrir okkur systurnar gera. Foreldrar okkar voru gift í yfir 60 ár og voru miklir félagar. Þau ferðuðust mikið saman um Ísland, en fóru einnig í nokkrar ferðir erlendis. Þau voru allt- af ástfangin, dönsuðu valsa og polka hvar sem þau gátu komið því við, og þá ekki síst á stofugólfinu heima. Mamma kveður nú sinn lífsföru- naut með þakklæti en einnig með söknuði. Við söknum raddar hans, að geta ekki sagt pabbi og einnig þess- arar fallegu söngraddar sem hann hafði. Öllu því góða fólki sem annaðist hann í veikindum liðinna mánaða þökkum við veitta umönnun. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þínar dætur, Heba Gunnrún og Una Guðlaug. Þrátt fyrir að tengdafaðir minn Haraldur Guðlaugsson hafi verið kominn vel yfir nírætt þegar hann lést var mér nokkuð brugðið við frá- fall hans, enda fannst mér eins og hann yrði ávallt á meðal okkar, því lít- ið sem ekkert hafði hann breyst á þeim tæpa aldarfjórðungi sem ég þekkti hann. Þessa góðu endingu má án efa þakka mikilli geðprýði og ein- stakri reglusemi, en Haraldur smakkaði hvorki áfengi né tóbak á sinni löngu ævi. Haraldur var stálminnugur á gamla tíma og sagði oft sögur af því þegar hann starfaði ungur að árum með vini sínum Skafta Guðjónssyni ljósmyndara í Nýja bíói eða eftir að hann tók til við að læra glerslípun og speglagerð sem síðar varð hans ævi- starf. Þá var vinnustaðurinn í bakhúsi við Laugaveg, fyrir aftan Brynju, þar sem glerið var slípað við frumstæðar aðstæður og lítið fór fyrir vinnuör- yggi. Enda fór það svo árið 1956 að Haraldur lenti í einni vélinni og slas- aðist svo alvarlega á vinstri hendi að minnstu mátti muna að hún yrði tekin af. Varð hann aldrei samur aftur og þurfti að taka sér nokkurra ára hlé frá glerslípuninni. Síðustu tvo áratugi starfsævi sinn- ar vann Haraldur hjá glerverksmiðj- unni Íspan í Kópavogi og þar var hann tvímælalaust ánægðastur í starfi, enda reyndist vinnuveitandi hans, Grímur Guðmundsson, honum frábærlega vel. Fór svo að Haraldur starfaði hjá Íspan fram yfir áttrætt og eftir það heimsótti hann oft sína gömlu vinnufélaga og var iðulega boð- ið á árshátíðir og þorrablót þótt hann væri hættur störfum. Þessara ein- stöku samskipta við vinnuveitendur sína minntist Haraldur með hlýhug allt fram til síðasta dags. Haraldur var mikill bílakarl og eignaðist ungur að árum Ford Junior sem bar skráningarnúmerið R-194, en það númer átti eftir að fylgja hon- um á fjöldamörgum bílum í meira en hálfa öld. Haraldur naut mikilla sam- vista við landið og ferðaðist vítt og breitt um Ísland með fjölskyldu sinni allt fram á efri ár. Ók hann sínum bíl með miklu öryggi allt fram í júní sl. þegar heilsan gaf sig. Komu sæmd- arhjónin oft í heimsókn til okkar Unu og drengjanna í Nökkvavoginn en þar er hans nú sárt saknað, enda var hann dóttursonum sínum tveimur ávallt góður og gjafmildur afi. Sakna þeir hans nú innilega og kveðja með trega. Far í friði aldni vin- ur. Örn Sigurðsson. Elskulegur móðurafi okkar var okkur bæði kær og góður. Hann var alltaf til í að passa okkur þegar við vorum litlir. Þá fórum við í heimsókn til hans og fengum alltaf síríussúkkul- aði og stundum pening. Í sumar veiktist afi mikið og var fluttur á Landakotsspítala. Þangað fórum við á hverjum degi í tvær vikur og sýndum honum gamlar bíómyndir með Chaplin, Gög og Gokke og Bus- ter Keaton, en þá skemmtilegu karla þekkti hann vel síðan í gamla daga og fannst ógurlega gaman að sjá þá aft- ur. Þetta gladdi afa og þannig viljum við bræðurnir minnast hans. Haraldur Örn og Friðjón. Haraldur Guðlaugsson vinur okkar og vinnufélagi er fallinn frá. Haraldur hóf störf hjá Íspan í júlí 1977. Hann var léttur í lund og við vinnufélagar hans fengum að njóta þess, oft var lagið tekið og sungið hástöfum við vinnu. Hann var afskaplega stundvís og vandvirkur, og þegar hugsað er til baka minnumst við þess ekki að hann hafi verið frá vinnu vegna veikinda, enda algjör reglumaður. Hann sagði okkur reyndar frá því þegar hann flutti í Hraunbæinn, þá kominn vel yf- ir áttrætt, að hann hefði ekki áhuga á að starfa með eldri borgurum, enda væri það bara fyrir gamla fólkið. Hann sagði okkur líka frá því að hann dansaði við Unni sína nánast á hverj- um degi, hann var svo sannarlega ungur í anda, og bar aldur sinn mjög vel. Þegar hann var kominn vel á átt- ræðisaldurinn kom hann að máli við okkur með þeim orðum að hann væri farinn að eldast svolítið og ætti nú ef til vill að fara að minnka við sig vinnu. Síðustu árin sem hann vann með okkur starfaði hann hálfan daginn, en hætti svo alveg þegar hann var 81 árs. Eftir að hann hætti störfum hjá okkur komu Haraldur og Unnur kona hans reglulega í heimsókn til okkar og okkur þótti afskaplega vænt um það. Við systkinin og fjölskyldur okkar fórum í heimsóknir heim til þeirra Haraldar og Unnar oftar en einu sinni, og bar heimili þeirra vitni um snyrtimennsku og myndarskap, en þar var mikið af handverki unnið af þeim hjónum. Um leið og við þökkum Haraldi samferðina sendum við fjölskyldunni hans innilegar samúðarkveðjur. Íspan-fjölskyldan; Grímur, Jón, Guðmundur, Finnur og Elín. Haraldur Albert Guðlaugsson ✝ Búi Þór Birgissonfæddist á Blöndu- ósi 23. febrúar 1947. Hann lést á heimili sínu, Strandgötu 10 á Skagaströnd, aðfara- nótt föstudagsins 18. september sl. Hann var sonur hjónanna Ingu Þorvaldsdóttur frá Brúarlandi, f. 24.2. 1926, og Teits Birgis Árnasonar frá Kringlu í Torfalækj- arhreppi, f. 12.8. 1925, d. 2.2. 2005. Systkini Búa Þórs eru Árni Björn og Margrét Eyrún. Fyrri eiginkona Búa Þórs er Guðbjörg Karolína Karlsdóttir. Börn þeirra eru: 1) Birgir Heiðar, kvæntur Ásu Karítas Arnmundsdóttur. Börn þeirra eru Búi Þór og Konráð Ingi. 2) Karl Heimir. Eftirlifandi eig- inkona Búa Þórs er Þorbjörg Bjarnadótt- ir. Börn hennar eru Ragnar Sigurmunds- son og Borghildur Sigurmundsdóttir. Búi Þór verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju á Skagastönd í dag, 24. september, kl. 14. Meira: mbl.is/minningar Nú hefur þú pabbi minn, langt fyr- ir aldur fram, kvatt þetta jarðneska líf eftir glímu við erfiðan sjúkdóm um árabil. Það er margs að minnast er ég horfi til baka. Þú varst alltaf traust- ur og góður faðir og á ég svo ótal- margar góðar minningar frá upp- vaxtarárunum um ykkur mömmu og Bigga bróður. Einu sinni man ég eftir því að þú flengdir mig. Þá var ég fimm eða sex ára strákhnokki og kveikti í sinu fyr- ir ofan húsið okkar og breiddist eld- urinn með ógnarhraða í skraufþurri sinunni og sunnangolunni svo ekki varð við neitt ráðið. Meðan þú bjóst á Eskifirði starf- aði ég með þér árum saman bæði við síldarverkun og rækjuvinnslu. Þú varst vel liðinn yfirmaður og sam- viskusamur í störfum. Eins reyndist þú okkur Dísu vel þegar við rákum Valhöll á Eskifirði í nokkur ár. Helstu áhugamál þín í frístundum voru golf og bridge. Nú hin síðari ár, eftir að þú fluttir frá Eskifirði, voru samverustundir okkar færri. Ég kveð þig, kæri faðir, með þessu fallega ljóði ort til minningar um Báru Rut Sigurðardóttur við lagið „I have a dream“ með Abba. Ég á mér trú á Heimsins ljós er vefur sig um hverja rós. Hvort sem hún er lítil eða stór og sterk, mæta geislar hlýir er vinna kærleiks- verk. Ég trúi á það góða sem í hverjum einum manni býr. Ég trúi á það góða þá enn mér mætir aftur dagur nýr. Mín von er sú. Ég á mér trú. Ég á mér trú sem aldrei dvín, þá myrkt er él og þörfin brýn. Eins og stjörnur loga á næturhimni skært, þær eins og í mig toga sem þyrstan vatnið tært. Ég trúi á það góða sem aldrei hverfur neinu barni frá. Ég trúi á það góða það kærleiksljós sem ávallt er mér hjá. Mín von er sú. Ég á mér trú. Mín von er sú. Ég á mér trú. (Davíð Baldursson) Hvíl í friði elsku pabbi minn. Karl Heimir (Kalli litli). Hann afi minn var alltaf til staðar þegar ég var leiður. H22ann lét mig alltaf verða kátan með alls konar sprelli, hann var góður afi og vinur minn. Afi bjó hjá okkur í Neskaup- stað þegar hann var að vinna þar, og ég doblaði hann oft til að leigja víd- eómyndir og horfðum við á þær og átum snakk, svo á morgnana kúrðum við saman. Þegar ég flutti til Hafnarfjarðar hringdi ég til hans og tjáði mig um það, hann sagði að þetta yrði allt í góðu lagi. Ég var einu sinni á Gjögri á Ströndum með fjölskyldunni, þar hjuggum við afi í eldinn. Afi og amma og fjölskyldan skemmti sér konunglega þar. Þegar hann kom suður til læknisins kom hann alltaf með harðfisk handa Gutta, hundin- um mínum, og gaf honum alltaf mat í laumi. Afi, ég á eftir að sakna þín rosa- lega mikið, „þú varst minn besti vin- ur“. Bless, þinn vinur Konráð (Konni). Búi Þór Birgisson Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skila- frests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.